Þarf að greiða um hálfan milljarð í skatt eftir rannsókn sem hófst með Panama-skjölunum Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, þarf að greiða tæpan hálfan milljarð í tekjuskatt og útsvar, vegna áranna 2010-2016, í máli sem nefnt hefur verið sem eitt af umfangsmestu skattalagabrotum sem upp hafi komið hér á landi. Yfirskattanefnd telur ljóst að Sigurður Gísli hafi vantalið tekjur frá tveimur panamískum-félögum í hans eigu upp á rúmlega einn milljarð króna á umræddum árum. Mál hans er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Viðskipti innlent 19. febrúar 2023 12:00
Skýrslan leiði til úrbóta í veitingu leyfa til fiskeldis Ítrekaðar frestanir á leyfisveitingum fyrir fiskeldi í Ísafjarðardjúpi valda því að örlög laxaseiða fyrir á þriðja hundrað milljóna króna eru í uppnámi hjá Arctic Fish. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að viðkomandi stofnanir taki mið af ábendingum Ríkisendurskoðunar, fari að lögum og gefi út leyfin. Viðskipti innlent 18. febrúar 2023 22:44
Loðnuhrognin og fullnýting sjávarfangs Þessa stundina er sjávarútvegurinn að undirbúa sig undir loðnuvertíð. Ekki er á vísan að róa enda óvíst hvað leyft verður að veiða mikið, hvort næst að veiða þegar loðnan er verðmætust og hvaða staða er á mörkuðum. Síðustu ár hefur það gerst oftar en einu sinni að loðnuvertíðin er blásin af í heilu lagi. Þá sitja hinar gríðarlegu fjárfestingar sem verða að vera tiltækar aðgerðalausar og allt markaðsstarf í óvissu. Þetta er nú það sem sjávarútvegurinn verður að búa við. Skoðun 18. febrúar 2023 07:01
„Íbúar hér vilja þetta bara ekki“ Ný skoðanakönnun Gallup sem gerð var meðal þeirra sem búsettir eru í póstnúmerum 710 og 711 sýnir að mikill meirihluti eða þrír fjórðu þeirra eru andvíg sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Rúmur helmingur lýsir sig alfarið andvígan þeim fyrirætlunum. Innlent 17. febrúar 2023 14:25
Stefnumótun matvælaráðuneytisins byggir á kjaftasögum Stefnumótun Svandísar Svavarsdóttur, ráðherra Vg, undir því kaldhæðnislega slagorði „Auðlindin okkar“ verður í framtíðinni líklega notuð sem kennslubókardæmi í háskólum, í opinberri stjórnsýslu, um stefnumótun stjórnvalda í þágu almennings sem getur snúist upp í andhverfu sína þegar fram líða stundir. Skoðun 17. febrúar 2023 12:17
Húskarlar fara hamförum Þekkt aðferð manna með veikan málstað er að ráðast á þann sem er ósammála þeim í stað þess að rökræða við hann. Stundum er notað íþróttamál og þá er þetta kallað að fara í manninn en ekki boltann, viðkomandi er sem sagt svo slakur á vellinum að hann ræður ekkert við boltann og reynir því í vanmætti sínum að meiða mótherjann í staðinn. Slík hegðun þykir ekki stórmannleg. Skoðun 17. febrúar 2023 10:00
Upplýsandi rimma lobbíista um sjókvíaeldið Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish um fiskeldi tókust harkalega á um hið umdeilda sjókvíaeldi á Sprengisandi á Bylgjunni. Innlent 17. febrúar 2023 07:01
Segir að þetta hús lyfti upp norðanverðum Vestfjörðum Stærsta og afkastamesta laxvinnsla landsins rís núna í Bolungarvík á vegum Arctic Fish og á hún að taka til starfa í júní. Ráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að bara á síðari helmingi þessa árs verði unninn þar lax fyrir yfir fimmtán milljarða króna. Viðskipti innlent 16. febrúar 2023 23:40
Bæjarstýran hlýtur að vera ánægð að fá hafnargjöldin Mikil umsvif hafa verið í Ísafjarðarhöfn og Dýrafirði undanfarnar vikur í kringum norskt fiskvinnsluskip, sem fengið var tímabundið til Vestfjarða til laxaslátrunar. Útflutningsverðmæti afurðanna úr þessu eina verkefni nemur þremur og hálfum til fjórum milljörðum króna. Viðskipti innlent 15. febrúar 2023 22:42
Vill að Grænlendingar flytji fiskinn út í gegnum Ísland Ísland gæti leikið lykilhlutverk í fiskútflutningi Grænlendinga í framtíðinni. Þetta segir Verner Hammeken, forstjóri Royal Arctic Line, skipafélags landsstjórnar Grænlands. Viðskipti innlent 15. febrúar 2023 13:44
Réttarhöldin í Samherjamálinu hefjast í haust Ákveðið var í morgun að réttarhöldin yfir mönnunum tíu sem ákærðir eru í Samherjamálinu í Namibíu munu hefjast þann 2. október næstkomandi. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi yfir fram í júní árið 2024. Erlent 14. febrúar 2023 14:06
Löndun hvalkjöts lokið í Japan án vandkvæða Norska frystiskipið Silver Copehagen lét úr höfn í Japan í morgun eftir að hafa landað 2.600 tonnum af íslensku hvalkjöti. Engar fregnir hafa borist af því að andstæðingar hvalveiða hafi reynt að trufla affermingu skipsins. Þá virðist 49 daga sigling skipsins frá Íslandi hafa gengið vandræðalaust. Viðskipti innlent 12. febrúar 2023 10:33
Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt. Viðskipti innlent 11. febrúar 2023 22:00
Uppvakningahugmyndir um sjóeldi Uppvakningahugmynd (e. zombie ideas) er hugmynd eða hugarfóstur sem hefði átt að vera drepin með staðreyndum en nær samt að lifa áfram og vakna aftur til lífsins sama hvað á dynur, og er þannig haldið á lofti í umræðunni eins og sannindum þrátt fyrir að staðreyndir tali öðru máli. Skoðun 11. febrúar 2023 15:30
Segir grátlegt að sjá fjölmiðla kokgleypa ryðgaðan öngul Kidda sleggju Jón Kaldal, talsmaður Icelandic Wildlife Fund, telur með hinum mestu ólíkindum að fjölmiðlar hafi tekið upp það sem hann segir ósvífna og lágkúrulega afvegaleiðingu í vestfirska miðlinum BB. Innlent 10. febrúar 2023 16:53
Ríkisendurskoðandi segist ekki vera vanhæfur Ríkisendurskoðandi segir formennsku eiginkonu sinnar í veiðifélaginu Laxá ekki hafa áhrif á hæfi sitt við vinnslu úttektar Ríkisendurskoðunar á sjókvíaeldi. Einnig segir hann að auglýsing frá árinu 2004 og störf í NASCO geri sig ekki vanhæfan. Innlent 10. febrúar 2023 12:15
Vinur minn Róbert Guðfinnsson Fyrst vil ég þakka fjölmörgum Siglfirðingum bæði búsettum og brottfluttum fyrir jákvæð símtöl, skilboð og auðsýndu þakklæti fyrir greinarkorn mitt um mismerkilega Siglfirðinga. Þessi sterku viðbrögð komu ánægjulega á óvart. Það sem flestir tala um, er hvers vegna heyrist ekkert í bæjarstjórn Fjallabyggðar um þetta alvarlega málið. Skoðun 10. febrúar 2023 12:00
Léttir að skýrslan sé komin fyrir sjónir almennings Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að stofnunin hafi þurft að berjast fyrir fjárveitingum til að geta staðið undir eftirliti með sjókvíaeldi og öðrum lögbundnum verkefnum. Það væri léttir að skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi væri nú komin fyrir sjónir almennings. Innlent 10. febrúar 2023 11:54
Sjómenn skrifa undir lengstu samninga sögunnar Kátt var á hjalla og vöfflulyktin angaði í Karphúsinu í kvöld þar sem forsvarsmenn Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) skrifuðu undir nýja kjarasamninga. Samningar þessir eiga að gilda til tíu ára. Innlent 9. febrúar 2023 23:46
Andstæðingar kvikmynduðu komu hvalkjötsins til Japans Hvalverndarsamtök sem fylgjast með löndun íslenska hvalkjötsins í Japan segja nær enga eftirspurn eftir kjötinu þar í landi og fullyrða að óseldar birgðir hafi endað sem hundafóður. Á sömu slóðum fagnaði íslenskt kvikmyndatökulið sjötugsafmæli söngvarans Egils Ólafssonar í dag. Innlent 9. febrúar 2023 22:59
„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“ Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum. Viðskipti innlent 9. febrúar 2023 21:00
Vilja láta banna fiskeldi í sjókvíum Landvernd vill láta banna frekari vöxt sjókvíaeldis við strendur landsins þar til bætt hefur verið úr regluverki. Áhrif hagsmunaaðila á lagasetningu og umgjörð greinarinnar geti ekki talist eðlileg. Innlent 9. febrúar 2023 13:31
Logi starfar fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samtaka fyrirtæka í sjávarútvegi, þar sem hann mun undirbúa ársfund samtakanna og sinna tilfallandi verkefnum. Viðskipti innlent 9. febrúar 2023 06:43
Sneru við niðurstöðu um hærri bætur þrátt fyrir fyrirvara Hæstiréttur hefur sýknað tryggingarfélagið Sjóvá af kröfum háseta sem hafði bæði fyrir héraðsdómi og Landsrétti fengið hærri bætur vegna fyrirvara um síðara örorkumat sem gæti leitt til hærri bóta. Innlent 8. febrúar 2023 23:00
Reynir fyllir í skarð stofnendanna Bjarma og Ólafar hjá Vélfagi Reynir B. Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vélfags ehf. Reynir tekur við af Bjarma Sigurgarðarssyni og Ólöfu Ýr Lárusdóttur sem verið hafa framkvæmdastjórar síðan þau stofnuðu fyrirtækið árið 1995. Viðskipti innlent 8. febrúar 2023 16:32
Ómerkilegir og merkilegir Siglfirðingar Saga Siglufjarðar er vörðuð afrekum fjölmargra merkismanna og má þar nefna séra Bjarna Þorsteinsson, Vigfús Friðjónsson athafnamann, Skafta Stefánsson útgerðarmann, Óla Tynes frumkvöðul, Þórodd Guðmundsson, Guðmund Skarphéðinsson verkalýðsforingja, Aage Schiöth lyfsala, Halldóra Sigurlaug Jónsdóttir og Hinrik Thorarensen lækni og athafnaskáld, svo einhverjir séu tíndir til sögunnar. Skoðun 8. febrúar 2023 10:30
Íslenska hvalkjötið komið í höfn í Japan Norska flutningaskipið Silver Copenhagen kom til hafnar í Japan í morgun eftir sjö vikna siglingu frá Íslandi. Farmurinn var 2.576 tonn af frystum hvalaafurðum. Innlent 8. febrúar 2023 09:49
Bein útsending: Auðlindin okkar – Bráðabirgðatillögur starfshópa kynntar Bráðabirgðatillögur fjögurra starfshópa Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, sem falið var að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins, verða kynntar á fundi á Grand Hótel í dag. Innlent 8. febrúar 2023 08:01
Laxaslagurinn mikli Segja má að skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi feli í sér löngu tímabæra aðgerð af hálfu stjórnvalda. Hvers vegna ekki var ráðist í verkefnið fyrr, má líklega rekja til þess að stjórnvöld töldu sig standa í góðri trú. Framleiðendur hafa almennt fullyrt að vel sé staðið að málum faglega og framkvæmdalega séð. Skoðun 8. febrúar 2023 07:01
Eðlileg krafa að sjókvíaeldi verði hætt Svört skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi hefur vakið ansi hörð viðbrögð. Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins segir nauðsynlegt að stöðva útgáfu frekari leyfa fyrir sjókvíaeldi. Innlent 7. febrúar 2023 23:44