Drógu vélarvana bát í land Björgunarsveit í Hafnarfirði var kölluð út snemma í morgun vegna vélarvana báts sem rak hratt að landi. Innlent 26. maí 2022 14:01
Þörungaræktandi telur Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar Tugir manna gætu fengið vinnu hér á landi við verksmiðju bandarísks nýsköpunarfyrirtækis sem ætlar sér að binda kolefni með þörungarækt í Atlantshafi á næstu árum. Stofnandi fyrirtækisins segir Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar í heiminum. Viðskipti innlent 26. maí 2022 07:30
Jakob Valgeir kaupir 20 prósent í Hraðfrystihúsinu Gunnvör Jakob Valgeir ehf., sem rekur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bolungarvík, hefur keypt nærri 20 prósenta hlut í Hraðfrystihúsinu Gunnvör samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 25. maí 2022 15:18
Myndaveisla frá Blárri nýsköpun í Húsi sjávarklasans Yfir 50 fyrirtæki sýndu matvælaráðherra og öðrum gestum nýsköpun í Húsi sjávarklasans í gær. Á viðburðinum Blá nýsköpun voru í boði veitingar og jazz. Lífið 20. maí 2022 13:30
Tvöfalda fiskeldi Samherja í Öxarfirði Samherji stendur nú að stækkun Silfurstjörnunnar, landeldisstöðvar sinnar í Öxarfirði. Stefnt er að því að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að framleiðslan verði um þrjú þúsund tonn á ári. Viðskipti innlent 20. maí 2022 09:52
Hömlur á erlendu eignarhaldi ýta Síldarvinnslunni út úr vísitölu FTSE Alþjóðlega vísitölufyrirtækið FTSE Russell hefur ákveðið að Síldarvinnslan, eitt stærsta útgerðarfélag landsins, verði ekki á meðal þeirra fyrirtækja í Kauphöllinni sem verða tekin inn í sérstaka vísitölu nýmarkaðsríkja vegna þeirra víðtæku takmarkana sem gilda um fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi. Innherji 18. maí 2022 14:57
Ætla að byggja hátæknifiskvinnsluhús fyrir eldisfisk á Patreksfirði Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu. Viðskipti innlent 13. maí 2022 18:23
Stöndum með íbúalýðræði Mikið hefur verið fjallað um áætlanir um fiskeldi í Seyðisfirði á undanförnum misserum. Ekki er laust við að ýmsum íbúum Múlaþings, Seyðfirðingum sérstaklega, sé misboðið hvernig aðdragandi þessa máls hefur verið. Skoðun 13. maí 2022 14:11
Gróðahyggjan má ekki ráða öllu Takk fyrir VG í Múlaþingi að styðja okkur, sem erum andvíg laxeldi í Seyðisfirði. Þingmaður VG í kjördæminu er á sömu skoðun. Nú þurfum við formann VG og forsætisráðherra líka í liðið. Við getum ekki látið fólk standa á Austurvelli út af öllum málum, sem eru afgreidd í bakherbergjum í skjóli nætur. Skoðun 13. maí 2022 10:50
„Firðinum er vonandi ekki mikil hætta búin“ Frambjóðandi VG í Múlaþingi telur andstöðu Seyðfirðinga við fyrirhugað fiskeldi fordæmalausa á landsvísu. Þá hafi bæjarbúar sýnt að þeir séu færir um atvinnusköpun með öðrum leiðum. Heimastjórnarmaður telur andstöðuna ofmetna og segir eldið ómissandi fyrir uppbyggingu. Innlent 12. maí 2022 23:24
Tekjur Arnarlax meira en tvöfölduðust á fyrstu þremur mánuðum ársins Rekstrartekjur Icelandic Salmon, móðurfélag Arnarlax sem er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins, námu 37,1 milljónum evra, jafnvirði um 5,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs og jukust um 114 prósent frá sama tímabili á árinu 2021. Rekstrarhagnaður félagsins (EBIT) var 9,5 milljónir evra borið saman við 400 þúsund evrur á sama fjórðungi í fyrra. Innherji 12. maí 2022 11:43
Hlutafé fiskeldisfélags Samherja aukið um þrjá og hálfan milljarð Um þriggja og hálfs milljarðs króna hlutafjáraukning Samherja fiskeldis ehf. er sögð verða nýtt til að byggja upp tilraunaverkefni í Öxarfirði og framkvæmdir við Reykjanesvirkjun. Fyrrverandi forstjóri stærsta fiskeldisfyrirtækis heims er á meðal fjárfesta og tekur sæti í stjórn. Viðskipti innlent 12. maí 2022 08:45
Af hverju er erfitt að elska íslenskan útgerðarmann? Kántrísöngkonan Tammy Wynette söng sig angurvært inn í hjörtu heimsbyggðarinnar með smellinum Stand by Your Man um miðja síðustu öld. Þar ráðlagði hún okkur kynsystrum sínum að elska og virða okkar menn jafnvel þó þeir geri hluti sem við skiljum ekki eða upphefji sig á okkar kostnað. Skoðun 12. maí 2022 07:17
Laxeldi í Seyðisfirði má hindra! Nýverið, sjö árum eftir upphaf laxeldisáforma í Seyðisfirði héldu forsvarsmenn eldisins loks upplýsingafund um sín áform. Þá voru 15 mánuðir síðan sveitarstjóri Múlaþings tók við undirskriftum 55% Seyðfirðinga sem mótmæltu laxeldinu afdráttarlaust. Skoðun 11. maí 2022 07:45
Andri og Birgir með helmingshlut í félagi sem fjárfestir í fiskeldi Eignarhaldsfélagið ÍV SIF Equity Farming (ÍSEF), sem var stofnað í fyrra og hefur það meginmarkmiði að byggja upp eignasafn í fiskeldi og tengdri starfsemi, sótti sér samtals 1.450 milljónir króna frá innlendum fjárfestum til að fjármagna fyrstu tvær fjárfestingar félagsins á árinu 2021. Innherji 9. maí 2022 17:31
Hvar er íbúalýðræðið í Múlaþingi? Það var sorglegt að hlusta á svör núverandi meirihlutaflokka í Sveitarstjórna Múlaþings, við spurningu á framboðsfundi um stuðning við laxeldi í Seyðisfirði. Skoðun 9. maí 2022 10:30
Bein útsending: Ársfundur SFS – Hvert liggur straumurinn? „Hvert liggur straumurinn?“ er yfirskrift ársfundar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem fram fer í dag. Fundurinn hefst klukkan 13 og stendur til 15:15 og verður hægt að fylgjast með honum í spilara að neðan. Viðskipti innlent 6. maí 2022 12:30
Með sterkar skoðanir fyrir kosningar: „Laxeldi í bæinn og ekkert múður með það“ Karlarnir á bensínstöðinni vilja fiskeldi og atvinnutækifæri en konurnar á hjúkrunarheimilinu vilja búa í snyrtilegasta og fallegasta bæ á Vestfjörðum. Við kíktum til Bolungarvíkur og tókum púlsinn á bæjarbúum fyrir kosningar. Innlent 5. maí 2022 08:02
VG gengur lengra í strandveiðum Það var ánægjulegt að undirrita á dögunum reglugerð um strandveiðar sem boðar stærri pott fyrir sumarið. Skoðun 4. maí 2022 16:47
Fengu 674 kíló að meðaltali á fyrsta degi strandveiðanna 132 bátar reru á fyrsta degi strandveiðanna í gær og nam aflinn samtals 89,6 tonnum. Meðalafli á bát var þannig 674 kíló, samkvæmt samantekt Fiskistofu. Viðskipti innlent 3. maí 2022 11:56
Sjöhundruð bátar á strandveiðum færa fjör í sjávarbyggðir landsins Strandveiðarnar hófust í dag. Búist er við að um 700 bátar stundi veiðarnar í sumar en í morgun voru um 450 bátar þegar komnir með leyfi. Leiðindaveður hamlaði þó sjósókn víða um land á þessum fyrsta degi. Innlent 2. maí 2022 23:10
Komast ekki til strandveiða vegna þungatakmarkana á þjóðveginum Strandveiðarnar hófust í morgun og er búist við að um og yfir sjöhundruð bátar stundi veiðarnar þetta sumarið. Í Norðurfirði á Ströndum, einni aflahæstu höfninni, neyddust sjómenn þó til að fresta brottför þar sem þungatakmarkanir á þjóðveginum norður í Árneshrepp meina flutningabílum að sækja aflann. Innlent 2. maí 2022 12:41
Þurfa að tæma innanverðan Reyðarfjörð af laxi vegna blóðþorrans Laxar Fiskeldi í samvinnu við Matvælastofnun hafa virkjað aðgerðaráætlun með tilliti til slátrunar og tæmingu allra kvía í innanverðum Reyðarfirði eftir að blóðþorri (ISA-veira) greindist í einum eldislaxi í kví félagsins. Innlent 29. apríl 2022 11:38
Metur brottkast mun meira en áður var talið Frá því fiskistofa hóf eftirlit með brottkasti með drónum, í upphafi árs 2021, hafa komið upp hundrað og fjörutíu brottkastsmál. Innlent 27. apríl 2022 21:00
Loðnuvinnslan metin á ellefu milljarða í kaupum Lífsverks á sex prósenta hlut Lífeyrissjóðurinn Lífsverk bættist við hluthafahóp Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði á liðnu ári þegar sjóðurinn keypti samtals um 5,6 prósenta hlut í útgerðarfyrirtækinu. Innherji 27. apríl 2022 10:00
Umsjónarmaður hvalbáta segir starfsmenn Hvals ekkert eldast Tilhlökkun er í starfsmönnum Hvals hf. að hefja hvalveiðar á ný eftir fjögurra ára hlé. Í dag var hvalbátnum Hval 9 rennt úr slipp eftir klössun og Hvalur 8 dreginn upp í staðinn. Innlent 26. apríl 2022 22:02
Tíu þúsund tonn af þorski í strandveiðipottinum í sumar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar þorsks fyrir komandi strandveiðitímabil. Tíu þúsund tonn af þorski eru í pottinum á tímabilinu, sem hefst í maí og varir fram í ágúst. Innlent 26. apríl 2022 11:13
Stysta grásleppuvertíð sögunnar komin á fullt Grásleppuveiðar eru nú komnar á fullt, á stystu vertíð sögunnar í fjölda leyfðra veiðidaga. Dæmi eru um mjög góð aflabrögð og verðið fyrir grásleppuna hefur þokast upp. Innlent 20. apríl 2022 22:55
Einum erfiðasta vetri Landsvirkjunar loks lokið Landsvirkjun hefur afnumið allar skerðingar til raforkukaupenda en vatnsstaðan í miðlunarlónum fyrirtækisins fer hratt batnandi. Í ljósi þess hefur Landsvirkjun nú tilkynnt fiskimjölsverksmiðjum og fiskþurrkunum að skerðingar á afhendingu til þeirra séu afturkallaðar. Viðskipti innlent 19. apríl 2022 11:25
Félög Þorsteins Más og Guðbjargar hafa ekki selt neitt í Íslandsbanka Eignarhaldsfélagið Steinn, sem er í meirihlutaeigu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og fjárfestingafélagið Kristinn, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu og rekur meðal annars Ísfélag Vestmannaeyja, hafa ekki selt neitt af þeim bréfum sem þau keyptu í útboði Bankasýslu ríkisins á ríflega fimmtungshlut í Íslandsbanka í lok síðasta mánaðar. Innherji 13. apríl 2022 10:03