Rúta valt við Öxará - 49 manns um borð Rúta með 49 manns innaborðs fór á hliðina við Öxará á Þingvöllum rétt í þessu. Samkvæmt skeyti frá neyðarlínunni urðu ekki mikil slys á fólki. Lögreglan er á leiðinni, bæði frá Selfossi og Reykjavík. Innlent 19. nóvember 2013 14:14
Frosthörkur á leiðinni Sannkallað vetrarveður hefur sett svip sinn á höfuðborgarsvæðið að undanförnu en töluverð snjókoma hefur gert vart við sig Innlent 19. nóvember 2013 00:01
Töluvert frost um næstu helgi Veðrið hefur sett svip sinn á höfuðborgarsvæðið síðastliðin sólahring en töluverð snjókoma hefur gert vart við sig. Innlent 18. nóvember 2013 14:20
Erfiðar aðstæður hjá Vegagerðinni suður með sjó í nótt "Þetta fór allt saman vel hér á höfuðborgarsvæðinu og vel gekk að ryðja götur borgarinnar,“ segir Jóhann Bjarni Skúlason, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnafirði, en mikil úrkoma var í nótt og þurftu starfsmenn Vegagerðarinnar að hafa hraðar hendur. Innlent 18. nóvember 2013 09:59
Sluppu ómeiddir úr veltu en bíllinn gjörónýtur Þrír menn og tveir hestar sluppu ómeiddir þegar bíll með hestakerru hafnaði utan vegar á Hellisheiði í gærkvöldi. Tveir ferðamenn sluppu líka ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af þjóðveginum um Kleifaheiði í gærkvöldi. Innlent 18. nóvember 2013 07:25
Ekki þjónusta við alla vegi Vetrarfærð er í öllum landshlutum og víða er verið að hreina vegi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Innlent 17. nóvember 2013 09:42
Vegfarendur kynni sér færð áður en lagt er af stað Það er vetrarfærð á landinu öllu. Hálka og snjóþekja er nokkuð víða á Suðurlandi. Innlent 16. nóvember 2013 10:23
Stormi spáð í flestum landshlutum Veðurstofan spáir stormi víða um land í dag og rigningu fyrir norðan og austan. Það fer hinsvegar að snjóa suðvestanlands eftir hádegi, en verður vart nema slydda á höfuðborgarsvæðinu þar til úrkoman breytist í rigningu. Innlent 14. nóvember 2013 07:46
Vetrarfærð víða um land Það snjóaði víða á sunnanverðu landinu í nótt og í morgun. Færð er víða varasöm og eru ökumenn beðnir um að fara varlega. Innlent 13. nóvember 2013 09:19
Snjókoma í borginni - varað við stormi syðst Það fór að snjóa og hvessa víða suðvestanlands í nótt og því víða hálka, meðal annars á öllu höfuðborgarsvæðinu. Veðurstofan spáir stormi syðst á landinu fram eftir morgni, með snjókomu, síðan slyddu og rigningu, og að það fari að snjóa víða um land, með vindi upp á 10 til 18 metra á sekúndu. Innlent 13. nóvember 2013 07:46
Strætisvagn valt á hliðina Betur fór en á horfðist þegar strætisvagn á leið 78 til Húsavíkur fór á hliðina og út af veginum rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Innlent 12. nóvember 2013 10:53
Vigdís föst í flugvélinni “Nú er sem betur fer verið að reyna að koma vélunum að flugskýlinu,” segir Vigdís Hauksdóttir, sem þessa stundina er strandaglópur í flugvél frá Keflavíkurflugvelli. Innlent 10. nóvember 2013 17:18
Lítið um umferðaróhöpp þrátt fyrir aftakaveður Þrátt fyrir það aftakaveður sem nú gengur yfir suðvesturhornið hefur verið lítið um umferðaróhöpp. Lögreglan á höfðurborgarsvæðinu segir að eitthvað hafi verið um minni háttar árekstra, þar sem bílar hafi verið að rekast saman. Innlent 10. nóvember 2013 15:12
Trampólín, klæðingar og brak fýkur til - Björgunarsveitir kallaðar út Björgunarsveitin í Hafnarfirði var fengin til þess að loka veginum við Bláfjöll, Hafnarfjarðarmegin. Þar er stormur og brak úr skálanum sem brann í nótt fýkur yfir veginn. Björgunarsveitin í Hafnarfirði hefur einnig aðstoðað ferðamenn við að komast af svæðinu og til byggða. Innlent 10. nóvember 2013 14:55
Lögreglan varar við akstri yfir Hellisheiði Lögreglan á Selfossi beinir því til fólks að aka ekki yfir Hellisheiðina nema á vel útbúnum bílum. Lögreglumaður sem hafði samband við fréttastofu sagði að eitthvað væri um, að bílar sem hefðu lagt af stað yfir heiðina illa búnir, væru nú fastir. Innlent 10. nóvember 2013 13:35
Leiðindaveður í dag og á morgun Búist er við leiðindaveðri á landinu öllu í dag. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að von sé á snjókomu og slyddu núna fyrir hádegið á suðvestulandi og það muni snjóa víða inn til landsins. Innlent 10. nóvember 2013 10:09
Vetrarfærð í flestum landshlutum Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu vegna færðar á vegum. Innlent 6. nóvember 2013 22:42
Vetrarfærð í flestum landshlutum og varað við hálku Vetrarfærð er í flestum landshlutum með nokkurri hálku eða hálkublettum. Í tilkynningu frá Vegagerð segir að Hálkublettir séu á Hellisheiði og Þrengslum og nokkuð víða í uppsveitum á Suðurlandi. Snjóþekja er í Mýrdalnum og á Reynisfjalli. Innlent 6. nóvember 2013 07:56
Magnaðar myndir: Fólk í stórhættu í ofsaveðri Ljósmyndari Fréttablaðsin fór á stúfana í morgun og náði þessum myndum af óveðrinu. Vindurinn er gríðarlegur við Höfðatorg og má þarna finna myndir af fólki sem rúllar hreinlega eftir götunni. Innlent 2. nóvember 2012 11:53
Varúð - sterkt sólskin framundan á Íslandi Sól og blíða er í veðurkortunum fyrir Ísland eins langt og spár ná. Innlent 29. maí 2012 11:15
Vetur Í samanburðarreikningum á Veðurstofunni er vetur talinn 4 mánaða langur, frá 1. desember til 31. mars. Þetta er lengra tímabil en að jafnaði er notað erlendis því þar er miðað við að veturinn standi yfir tímabilið frá desember og út febrúar. Hér á landi er mars alloft kaldasti mánuður ársins og því er erfitt að tala um hann sem vormánuð. (Fengið af vef Veðurstofu Íslands vedur.is) Veður 17. nóvember 2010 00:41
Suðlægar áttir í kortunum 21.07.10 Veður mun heldur betur leika við landsmenn á norður- og austurhluta landsins næstu daga en þar er útlit fyrir bjartviðri og talsverð hlýindi alveg fram á sunnudag. Horfur á óspennandi veðri um tíma vestan til á föstudag. Innlent 20. júlí 2010 19:01
Sumarið það sjöunda hlýjasta í Reykjavík Sumarið í sumar er það sjöunda hlýjasta í Reykjavík frá því mælingar hófust árið 1870 og þriðja þurra sumarið í röð. Þetta kemur fram þegar rýnt er í gögn yfir veðurlagið í sumar. Innlent 9. september 2009 10:00
Flugókyrrð og flokkun hennar Bandarískar rannsóknir sýna að fjölmargir eru flughræddir eða finna fyrir ónotum á flugi og að um 20% flugfarþega hreinlega þjáist á flugi. Innlent 6. febrúar 2009 11:00
Hvað eru norðurljós? Hvaða fyrirbæri er þetta sem stundum sést og stundum ekki - fyrirbæri sem þrátt fyrir nafn sitt Norðurljós sést ekki á norðurpólnum en sést yfir Íslandi? Innlent 4. febrúar 2009 12:00
Siggi stormur leitar að veðurgleggstu Íslendingunum Veðravon, veðurleikur Vísis og Stöðvar tvö hefst í dag í styrkri umsjá Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. Leikurinn felst í því að landsmenn geta skráð á visir.is hvernig þeim finnst veður dagsins hafa verið og síðan er metið hver stendur sig best, hvaða sveitarfélagið hefur veðurglöggasta fólkið og hvar á Íslandi veðursæld sé mest. Innlent 1. júní 2007 15:42
Niðurstöður kosninga í samræmi við veður Niðurstöður kosninganna á laugardag eru í góðu samræmi við veðrið á kjördag. Eins og greint hefur verið frá virðast náin tengsl vera á milli veðurs á kjördag og úrslita kosninga. Sigurður Þ. Ragnarsson bar saman úrslit kosninganna við veðrið á kjördag og komst að ýmsu forvitnilegu eins og fréttin hér ber með sér. Innlent 14. maí 2007 20:30
Bær í Kansas rústir einar eftir hvirfilbyl Björgunarsveitir leita nú eftirlifenda í bænum Greensburg í Kansas fylki í Bandaríkjunum eftir að hvirfilbylur lagði bæinn í eyði í dag. Níu manns létu lífið í veðurhamnum, þar af átta í Greensburg. Erlent 5. maí 2007 23:02
Áfram hvasst sunnan til Áfram er búist við nokkuð hvössum vindi í höfuðborginni og víða á landinu sunnan- og vestanverðu auk þess sem gert er ráð fyrir snörpum vindhviðum við fjöll. Þessu fylgja skúrir eða él. Vindstrengurinn færist smám saman í dag yfir á austanvert landið. "Það verður býsna hvasst fram yfir hádegi, einkum á sunnanverðu landinu en síðdegis fer að lægja í höfuðborginni og vestan til á Suðurlandi" segir Sigurður Þ. Ragnarsson yfirveðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2. Innlent 11. mars 2007 10:00
Veður fer versnandi á landinu "Já það er versnandi veður á sunnan og vestanverðu landinu og síðar í kvöld má búast við stórhríð á heiðum á Vestfjörðum og einnig gæti orðið talsvert blint á Holtavörðuheiði og raunar víðar gangi spár eftir" segir Sigurður Þ. Ragnarsson yfirveðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2. Innlent 10. mars 2007 17:45