Stærsti skjálftinn á þessu svæði Jarðskjálftinn sem varð utan við Austurland í fyrrakvöld er sá stærsti sem mælst hefur á þessu svæði að sögn Ragnars Stefánssonar, jarðskjálftafræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftinn var 5,2 stig á Richter kvarða og upptök hans voru um 200 kílómetra út undan Austurlands. Innlent 1. febrúar 2005 00:01
Austurland skelfur Jarðskjálfta varð vart á Austurlandi í gærkvöldi. Samkvæmt Veðurstofunni voru upptök hans um 200 kílómetra austan af landinu. Skjálftinn hafi minnst verið 5,2 á Richter. Innlent 31. janúar 2005 00:01
Þakplötur fuku og malbik fór af Hvassviðri var víðast hvar um landið um helgina og loka þurfti veginum við Mýrdalssand sökum vatnavaxta aðfaranótt sunnudags. Á Akureyri fuku þakplötur af raðhúsalengjum og vörubifreið fauk út af veginum rétt norðan við bæinn. Innlent 30. janúar 2005 00:01
Stormasamt á landinu Mjög hvasst var sums staðar á Vestfjörðum í gær. Lögreglan bað fólk um að vera ekki á ferli að nauðsynjalausu en vindhviður mældust yfir fjörutíu metrar á sekúndu á Þverfjalli. Áð sögn lögreglu á Ísafirði í gærkvöld hafði kvöldið reynst slysalaust, en lausir munir fuku á bíl á Þingeyri. Innlent 28. janúar 2005 00:01
Flughált í Árnessýslu Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu og á Breiðdalsheiði. Ófært er um Öxi. Að öðru leyti er sæmileg færð á vegum en víða eru hálkublettir. Innlent 25. janúar 2005 00:01
Margoft bent á loftlagshlýnun "Fræðimenn hafa bent á það lengi að þegar hlýnun kemst á ákveðið stig mun það kerfi halda áfram óháð aðgerðum og það er því svo sem ekkert nýtt í þessu hvað það varðar," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um fréttir af nýútkominni skýrslu um loftslagshlýnun og afleiðingar þeirra. Innlent 25. janúar 2005 00:01
Ófært frá Reykhólum og í Flókalund Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu að sögn Vegagerðarinnar. Ófært er frá Reykhólum og í Flókalund vegna snjóflóða og flughált er á Breiðdalsheiði. Öxi er ófær. Innlent 25. janúar 2005 00:01
Hættustigi aflýst á Bíldudal Að höfðu samráði við snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands hefur verið ákveðið að aflýsa hættustigi vegna snjóflóðahættu á Bíldudal og er íbúum, sem þurftu að rýma heimili sín í gærkvöldi, heimilt að fara heim á ný. Innlent 25. janúar 2005 00:01
Hlýnunin að verða óumflýjanleg Eftir tíu ár kann að vera orðið of seint að snúa við þeirri þróun sem kennd er við hlýnun jarðar. Afleiðingarnar, ef svo fer, verða gífurlegar og geta meðal annars leitt til bráðnunar Grænlandsjökuls og þess að Golfstraumurinn hætti að ganga en hann gerir Ísland byggilegt. Erlent 24. janúar 2005 00:01
Hús rýmd Fjögur hús voru rýmd á Bíldudal seint í gærkvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Patreksfirði segir að húsin séu við Gilsbakkagil og gripið hafi verið til þessa af öryggisástæðum. Innlent 24. janúar 2005 00:01
Viðbúnaðarstig fyrir vestan Viðbúnaðarstigi vegna hláku sem eykur hættu á snjóflóðum hefur verið lýst yfir í byggðum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Fylgst er með ástandinu. Innlent 24. janúar 2005 00:01
Ekki hætta á flóðum í Reykjavík Talsvert frost hefur verið á landinu það sem af er vetri en á næstunni er spáð hlýindum um allt land. Í Reykjavík mun hitinn vera frá fimm og upp í átta til níu stig þegar best lætur. Innlent 23. janúar 2005 00:01
Vorið lofar ekki góðu "Það er engin sérstök hjátrú um veðrið á bóndadeginum sjálfum en það er sagt að ef þorrinn er þurr og góa vindasöm þá mun vorið verða gott," segir Aðalheiður Hallgrímsdóttir hjá veðurklúbbnum í Dalbæ á Dalvík. Innlent 23. janúar 2005 00:01
Margir fastir á Hellisheiði Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út um hádegi í gær til að aðstoða bíla sem voru í vandræðum á Hellisheiði. Margir bílar lentu í vandræðum í gær vegna ófærðar. Þá voru björgunarsveitarmenn úr Hveragerði beðnir um aðstoð innanbæjar í Hveragerði við að koma skólabörnum til síns heima og aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að komast leiðar sinnar. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Snjóflóð lokaði veginum Tíu metra breitt og tveggja metra djúpt snjóflóð féll á þjóðveginn á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í gærkvöldi og lokaði honum. Enginn var á ferð um veginn þegar það féll og Vegagerðin ruddi veginn. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Hellisheiði lokuð Hellisheiði hefur verið lokað vegna slæmrar færðar að sögn Vegagerðarinnar. Fólk hefur þurft að skilja bíla sína eftir úti í vegakanti í morgun og hafa björgunarsveitarmenn unnið að því að koma ökumönnum til aðstoðar. Fólki er eindregið ráðið frá því að aka heiðina að svo stöddu. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Veðurstofan ákveði ekki rýmingu Átta sýslumenn og bæjarstjórar á Vestfjörðum hafa sent frá sér orðsendingu vegna umræðna um að Veðurstofan eigi ekki að taka ákvörðun um rýmingu húsa vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum. Bent er á að Veðurstofan hafi ekki lögregluvald til að rýma hús heldur sé það hlutverk lögreglustjóra og almannavarnanefnda. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Hálka víðast hvar Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, hálka og éljagangur á Suðurlandi og hálka og hálkublettir á Suðausturlandi. Hálka og skafrenningur er á Vesturlandi, á Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði, ófært og stórhríð er á milli Bíldudals og Patreksfjarðar, þungfært og stórhríð er á Kleifarheiði og Klettshálsi. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Ofsaveður á Hellisheiði Ofsaveður gekk yfir Hellisheiði og Hveragerði í dag. Loka þurfti heiðinni fyrir umferð vegna veðurs og björgunarsveitarmenn hjálpuðu gangandi vegfarendum og skólabörn í Hveragerði. Innlent 19. janúar 2005 00:01
Enn að heiman Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar. Innlent 18. janúar 2005 00:01
Festi bíl sinn á Fróðárheiði Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði. Innlent 18. janúar 2005 00:01
Ófært í fjárhús vegna snjóflóðs Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal þurfti að aðstoða fjáreiganda inni í Auðahringsdal við að gefa sauðfé sínu í gær, þar sem snjóflóð hafði fallið á veginn heim að bænum, svo þangað var ófært. Innlent 17. janúar 2005 00:01
Ótti um snjóflóð 53 íbúar í Bolungarvík og Ísafjarðarbæ gátu ekki sofið í rúmum sínum í nótt vegna snjóflóðahættu. Alls voru rýmd 28 hús, bæði íbúðarhús og vinnustaðir. Þá voru vegir víða lokaðir eða takmarkanir settar á umferð vegna snjóflóðahættu úr bröttum hlíðum. Hættumat verður endurmetið nú strax í morgunsárið. Innlent 17. janúar 2005 00:01
Yfir hundrað íbúa rýmdu hús sín Fimmtíu íbúar úr fimmtán húsum við Urðarstíg, Mýrar og Hóla á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu og leituðu íbúar til ættingja og vina í bænum. Í Bolungarvík voru sjö hús rýmd auk eins sveitabæjar og fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarðarbæ. Innlent 17. janúar 2005 00:01
Hættan metin úr fjarska Snjóflóðavakt hefur verið á Veðurstofunni í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun, og helst er fylgst með Vestfjörðum þar sem ekki hefur verið svona mikill snjór í fjöllum síðan 1995. Innlent 17. janúar 2005 00:01
Rúmlega 100 manns rýmdu hús sín Lokið er rýmingu húsa sem ákveðnar hafa verið á Vestfjörðum. Alls hafa 103 íbúar í 37 húsum þurft að yfirgefa heimili sín í dag vegna snjóflóðahættu. 49 á Patreksfirði, 23 á Ísafirði, Hnífsdal og í dreifbýli Ísafjarðarbæjar og 31 á Bolungarvík og tveimur bæjum þar við. Almannavarnir munu fylgjast grannt með þróun mála í nótt. Innlent 17. janúar 2005 00:01
Hálka víðast hvar um landið Hálka er suðvestanlands og éljagangur og snjóþekja á Vesturlandi. Þungfært er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt veður. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur. Innlent 16. janúar 2005 00:01
Hálka og þung færð víða Hálka og þung færð er víða. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og snjókoma suðvestanlands og á Vesturlandi. Það er hálka á Holtavörðuheiði og á Norðurlandi og hálka og éljagangur er á Vestfjörðum. Kleifaheiði er þungfær og þæfingur á Hálfdáni. Innlent 16. janúar 2005 00:01
Kostnaðarsamur mokstur á Akureyri Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Það má áætla að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna samkvæmt fréttavef Akureyrar en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum. Innlent 16. janúar 2005 00:01
Þriggja daga spáin var vitlaus Þriggja daga veðurspá fyrir Norðurlöndin, áður en óveðrið mikla skall á fyrir rúmri viku, var arfavitlaus. Veðurskilyrðin suðvestur af Íslandi voru önnur en komu fram á reiknilíkani Evrópsku veðurstofunnar, sem staðsett er í Englandi. Innlent 15. janúar 2005 00:01