Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. 4.3.2024 15:55
Útkoma kjarasamninga „langstærsti“ óvissuþátturinn fyrir vaxtalækkunarferlið Þrátt fyrir hátt aðhaldsstig peningastefnunnar þá þarf „allt að falla með okkur“ til þess að hægt verði að hefja vaxtalækkunarferlið í maí, meðal annars að niðurstaða kjarasamninga fái grænt ljós frá Seðlabankanum, að mati skuldabréfamiðlara. Hagfræðingar Arion banka segja hækkun matvöruverðs mestu vonbrigðin í nýjustu verðbólgumælingum en benda á að undirliggjandi verðbólga virðist enn vera að hjaðna. 29.2.2024 10:15
Mælir með kaupum í Play og telur útboðsgengið „vel undir“ sanngjörnu virði Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins. 28.2.2024 17:20
Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. 28.2.2024 14:04
Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. 27.2.2024 14:29
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. 26.2.2024 17:58
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. 26.2.2024 11:07
Verið að taka úr sambandi mikilvæg skilaboð til neytenda um raforkuskort Með því að veita ráðherra heimild til að ráðstafa forgangsraforku er verið að draga úr hvatanum til að auka framleiðslu og eins kippa úr sambandi mikilvægum skilaboðum til neytenda um raforkuskort, að sögn varaforseta hagfræðideildar Háskóla Íslands og varaformanns Viðreisnar, sem kallar eftir því að komið sé á skilvirkari samkeppnismarkaði með raforku. Framkvæmdastjóri Samorku líkir framkvæmd rammaáætlunar í dag, sem hann segir vera „háð pólitísku valdi,“ við bankakerfið fyrir um hundrað árum. 23.2.2024 09:33
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. 21.2.2024 17:34
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. 20.2.2024 16:13