Orkustofnun „brestur hæfi“ til að ráðstafa forgangsraforku, að mati SI Fyrirhugað frumvarp um breytingar á raforkulögum, sem veitir Orkustofnun heimild til að veita öðrum en stórnotendum forgang að kaupum á raforku, er gagnrýnt harðlega af Samtökum iðnaðarins sem segja að með því verði samkeppnismarkaður með raforku afnuminn og miðstýring innleidd. Þá fer SI hörðum orðum um Orkustofnun, sem að mati samtakanna brestur hæfi til að fara með þau verkefni sem henni er falin í frumvarpinu, en starfshættir stofnunarinnar eru sagðir hafa „tafið verulega alla uppbyggingu í raforkukerfinu.“ 7.12.2023 09:42
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. 6.12.2023 09:10
Beiðni Árna Odds um framlengingu á greiðslustöðvun hafnað Beiðni Árna Odds Þórðarsonar, fyrrverandi forstjóra Marels til tíu ára og einn stærsti hluthafinn í Eyri Invest, um heimild til framlengingar á greiðslustöðvun hefur verið hafnað af dómstólum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en Landsbankinn hafði mótmælt því að hann fengi að vera áfram í slíku skjóli gagnvart kröfuhöfum. Óvissa er núna um mögulegar fullnustuaðgerðir kröfuhafa á hendur Árna Oddi en hlutur hans í fjárfestingafélaginu Eyri er meðal annars veðsettur gagnvart láni frá Landsbankanum. 5.12.2023 18:14
Lífeyrissjóðir með augun á enn meiri fjárfestingum erlendis á komandi ári Margir af stærri lífeyrissjóðum landsins setja stefnuna á að auka áfram nokkuð við hlutfall erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum á komandi ári samhliða því að nýjar breytingar taka þá gildi sem hækkar hámarksvægi gjaldeyriseigna hjá sjóðunum. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni flestir hverjir ekki auka vægi sitt í innlendum hlutabréfum á næstunni þrátt fyrir að sá eignaflokkur hafi lækkað mikið síðustu ár. 4.12.2023 13:52
Verðandi stjórnarformaður Controlant fjárfesti í útboði félagsins Þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu inn sem nýir beinir hluthafar í Controlant þegar þeir lögðu til félaginu meginþorra þess fjármagns sem það sótti sér í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Daninn Søren Skou, verðandi stjórnarformaður Controlant og fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók sömuleiðis þátt í útboðinu en í bréfi til fjárfesta boðar tæknifyrirtækið tíðari upplýsingagjöf til hluthafa. 1.12.2023 12:22
Tugmilljarða tilfærsla lífeyrisréttinda milli kynslóða dæmd ólögleg Fordæmalausar breytingar um síðustu áramót á samþykktum lífeyrissjóða um tilfærslu lífeyrisréttinda milli kynslóða sjóðsfélaga, sem var staðfest af fjármálaráðuneytinu þrátt fyrir neikvæða umsögn fjármálaeftirlits Seðlabankans, hafa núna verið dæmdar ólöglegar samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Fjármálaeftirlitið hafði varað við því að ekki væri lagaheimild fyrir skerðingu réttinda hjá sjóðum sem búa við góðan fjárhag og tryggingastærðfræðingur gagnrýndi ráðstöfunina harðlega og sagði þær brjóta „gróflega á eignarrétti yngri sjóðsfélaga.“ 30.11.2023 16:05
Búast við talsverðum greiðslum á næstu vikum vegna nýrra samstarfsamninga Stjórnendur Alvotech, sem sá lausafé sitt minnka um meira en 110 milljónir dala á þriðja fjórðungi samhliða miklum fjárfestingum, segjast vera í viðræðum við lyfjafyrirtæki um samstarfssamning vegna líftæknilyfjahliðstæðna í þróun hjá félaginu sem geti skilað sér í talsverðum greiðslum undir lok árs. Dræmar sölutekjur ollu vonbrigðum en Alvotech fullyrðir að þær muni taka við sér á yfirstandandi ársfjórðungi þegar lyfin eru hlutfallslega seld meira á mörkuðum þar sem verðlagningin á þeim er hærri. 30.11.2023 11:00
Yfirtökuboðinu var ætlað að hagnast á veikri stjórn Marels og erfiðleikum Eyris Evrópski vogunarsjóðurinn Teleios Capital Partners, einn stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Marels með 3,3 prósenta hlut, gagnrýnir harðlega stjórn fyrirtækisins fyrir að hafa ekki gætt að umboðsskyldu sinni gagnvart öllum hluthöfum og segir vanhugsaðar ákvarðanir þáverandi stjórnenda Eyris valda því að fjárfestingafélagið rambi nú á barmi gjaldþrots. Sjóðurinn styður ákvörðun stjórnar að hafna mögulegu tilboði John Bean Technologies en segir þörf á skýrleika um eignarhald Marels, sem hafi ekki reynst farsælt með Eyri sem aðaleigenda, til framtíðar litið. 29.11.2023 14:34
Breyttar tekjuáætlanir tóku verðmiðann á Controlant niður um tíu milljarða Minni umsvif en áður hafði verið reiknað með vegna ört minnkandi eftirspurnar eftir bóluefnum gegn Covid-19 þýddi að gengið í milljarða króna hlutafjáraukningu Controlant, sem hefur staðið yfir síðustu mánuði, lækkaði talsvert eftir því sem leið á fjármögnunarferlið. Ásamt þátttöku tveggja af stærstu lífeyrissjóðum landsins eru meðal annars stofnandi og aðrir stórir hluthafar í Kerecis núna í hópi fjárfesta sem leggja Controlant til aukið hlutafé. 28.11.2023 12:36
Ardian kaupir meðal annars Verne gagnaverið á Íslandi í risaviðskiptum Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian, sem eignaðist Mílu undir lok síðasta árs, hefur náð samkomulagi við breska fjárfestingafélagið Digital 9 Infrastructure (D9) um kaup á öllum eignarhlutum þess í gagnaverum undir hatti Verne Global, meðal annars starfsemina á Íslandi. Kaupverðið á öllu hlutafé Verne getur numið allt að 575 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 80 milljarða íslenskra króna, en aðeins tvö ár eru frá því að gagnaverið hér á landi komst í eigu D9 sem hefur glímt við fjárhagserfiðleika að undanförnu. 27.11.2023 18:09