Klárar sína fyrstu fjárfestingu með kaupum á 40 prósenta hlut í KAPP Sjóðurinn IS Haf, sem fjárfestir í haftengdri starfsemi, hefur gengið frá kaupum á 40 prósenta eignarhlut í tæknifyrirtækinu KAPP og mun sömuleiðis leggja félaginu til aukið hlutafé til frekari vaxtar. Þetta er fyrsta fjárfesting sjóðsins, sem er um tíu milljarðar að stærð og að stærstum hluta í eigu ÚR, Brim og lífeyrissjóða, en stjórnendur hans telja umtalsverð vaxtartækifæri vera til staðar fyrir íslensk tæknifyrirtæki í sjávarútvegi. 12.9.2023 16:00
Vilja fella niður margar takmarkanir á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða Seðlabankastjóri tekur undir með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að rétt sé að afnema margar af þeim magnbundnu takmörkunum sem gilda um íslensku lífeyrissjóðanna, eins og meðal annars hámark á eignarhald í einstökum félögum, samhliða auknu eftirliti með starfsemi þeirra og bættri áhættustýringu. Starfshópur sem vinnur að grænbók um lífeyrissjóðakerfið er nú með til skoðunar að leggja til slíkar breytingar. 11.9.2023 10:42
Bóksal tapaði 1,6 milljarði eftir að hafa selt stöður sínar í hlutabréfum Fjárfestingafélagið Bóksal, sem var um skeið umsvifamikið á innlendum hlutabréfamarkaði, losaði um nær allar stöður sínar í skráðum félögum á liðnu ári samhliða því að greiða upp um fimm milljarða króna skuld við lánastofnanir. Félagið, sem er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, tapaði tæplega 1,6 milljarði króna á árinu 2022. 10.9.2023 11:48
Sigurður Hreiðar stýrir verðbréfamiðlun Íslandsbanka Sigurður Hreiðar Jónsson, sem hefur starfað um skamma hríð hjá Kviku banka, hefur verið ráðinn forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka, samkvæmt upplýsingum Innherja. 7.9.2023 17:28
Akta tapar 50 milljónum samtímis því að eignir í stýringu minnka um fimmtung Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið með tæplega 50 milljóna króna tapi á fyrri árshelmingi en eignir í stýringu minnkuðu um liðlega fimmtung samhliða erfiðum aðstæðum á mörkuðum og áframahaldandi innlausnum fjárfesta í helstu fjárfestingasjóðum í rekstri fyrirtækisins. Kaup Akta sjóða á eigin bréfum á tímabilinu verðmeta félagið á liðlega einn og hálfan milljarð króna. 4.9.2023 08:00
Alvotech með nýja umsókn til FDA um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta lyf Verulegur samdráttur varð í sölutekjum Alvotech á öðrum fjórðungi ársins, sem námu um sjö milljónum Bandaríkjadala, borið saman við tekjur fyrsta ársfjórðungs en íslenska líftæknilyfjafélagið hætti meðal annars samstarfi sínu við STADA á tímabilinu. Alvotech hefur skilað inn endurnýjaðri umsókn til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta hliðstæðulyf sem það væntir að verði komið á markað vestanhafs í ársbyrjun 2024. 31.8.2023 10:59
Guðmundur Fertram fjárfestir í Coloplast fyrir um 700 milljónir Forstjóri og stofnandi Kerecis mun kaupa bréf í Coloplast fyrir nálægt 700 milljónir íslenskra króna að markaðsvirði samhliða hlutafjáraukningu sem alþjóðlegi heilbrigðisrisinn hefur boðað til í tengslum við kaupin á íslenska fyrirtækinu. Á morgun, síðasta dag ágústmánaðar, verða jafnvirði um 150 milljarðar króna greiddir út í erlendum gjaldeyri til hluthafa Kerecis. 30.8.2023 14:38
Verðbólguálagið á markaði rýkur upp eftir óvænta hækkun verðbólgunnar Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp í morgun eftir birtingu hagtalna sem sýndu að vísitala neysluverðs hefði hækkað nokkuð meira í ágústmánuði en spár greinenda gerðu ráð fyrir. Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans um 50 punkta var einkum rökstudd með vísun til viðvarandi hárra verðbólguvæntinga og nefndi seðlabankastjóri að það skipti öllu máli fyrir framahaldið að ná þeim niður. 30.8.2023 10:33
Sjóvá dregið úr vægi skráðra hlutabréfa um fjórðung á árinu Eftir að hafa selt skráð hlutabréf fyrir á fjórða milljarð króna á fyrstu sex mánuðum ársins hefur vægi þeirra ekki verið minna sem hlutfall af eignasafni Sjóvá um árabil. Tryggingafélagið bætti við sig í Arion fyrir nærri hálfan milljarð á öðrum fjórðungi samhliða því að það seldi fyrir sambærilega upphæð í Íslandsbanka. 29.8.2023 08:50
Nýr bankastjóri Kviku kaupir í félaginu fyrir 34 milljónir Ármann Þorvaldsson, sem var ráðinn bankastjóri Kviku í síðustu viku, hefur keypt bréf í bankanum fyrir jafnvirði tæplega 34 milljónir króna. Hlutabréfaverð Kviku hefur verið undir þrýstingi til lækkunar um langt skeið og er niður um nærri 20 prósent á síðustu tólf mánuðum. 28.8.2023 16:39