Stillt upp á alla lista Viðreisnar Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins. 17.10.2024 22:01
Alma hættir sér ekki í oddvitabaráttuna Alma Möller landlæknir gefur kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún fer í leyfi frá störfum sem landlæknir þegar listinn verður birtur og tekur Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir við embættinu á meðan. 17.10.2024 17:46
Sendur í leyfi Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla hefur verið sendur í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á meðferðarheimilinu. Úlfur tjáði sig opinskátt um alvarlega stöðu sem uppi væri á Stuðlum í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær. 16.10.2024 23:59
Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins, sem kenndur er við Hamborgarabúlluna, hyggst gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. 16.10.2024 23:15
Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu. 16.10.2024 22:46
Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykkti í kvöld einróma að haga vali á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum með uppstillingu. 16.10.2024 22:13
Oddný ætlar ekki aftur fram Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður flokksins, mun ekki sækjast eftir sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. 16.10.2024 21:19
Sigþrúður Ármann sækist eftir fjórða sæti Kragans Sigþrúður Ármann, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, býður sig fram í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar. 16.10.2024 20:37
Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ákvörðun sína um að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Bjarna Benediktssonar, vera skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar þar að kemur. 16.10.2024 18:17
Stemningin „eftir atvikum ágæt“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar. 16.10.2024 17:43