Landspítalinn
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 59 ›
Læknar búast við neyðarástandi Formaður Læknafélags Íslands segist búast við neyðarástandi í heilbrigðiskerfinu vegna manneklu. Hann segir álag á heilbrigðisstarfsfólk orðið að hættulegum vítahring. Þegar álag aukist fækki fólki og meira álag verði á þeim sem eftir standa. Innlent 2.8.2022 10:13
Fjórir skrifstofumenn fyrir hvern klínískan starfsmann Formaður nýrrar stjórnar Landspítalans, segir að fjórir til fimm skrifstofumenn hafi verið ráðnir á síðustu árum á móti einum klínískum starfsmanni. Hagræðingar á borð við fækkun starfsfólks á spítalanum komi mögulega til greina til að mæta erfiðri fjárhagsstöðu spítalans. Innlent 31.7.2022 11:51
Hafa náð að fækka komum á bráðamóttöku talsvert Átakshópi heilbrigðisráðherra hefur tekist ágætlega að fækka komum á bráðadeild Landsspítalans. Miklar breytingar eru fram undan á bráðaþjónustu í landinu að sögn formanns hópsins. Innlent 27.7.2022 19:00
Sesselja Lind ráðin hjúkrunardeildarstjóri Sesselja Lind Magnúsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á útskriftardeild aldraðra L2 á Landakoti. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítala. Innlent 27.7.2022 11:03
Helga ráðin hjúkrunardeildarstjóri á göngu- og samfélagsdeild á Landakoti Helga Atladóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á göngu- og samfélagsdeild á Landakoti. Á deildinni fer fram greining, meðferð, ráðgjöf, eftirlit og vísindarannsóknir en eldra fólki sem glímir við langvarandi heilsubrest og versnandi færni er vísað á deildina. Innlent 26.7.2022 13:35
Hugmyndir Björns „fullkomlega óraunhæfar“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir hugmyndir formanns stjórnar Landspítala um að fækka starfsfólki spítalans á stuðningssviðum í hagræðingarskyni fullkomlega óraunhæfar. Stuðningsfólkið létti undir með hjúkrunarfræðingum. Nóg álag sé á þeim nú þegar. Innlent 25.7.2022 12:01
Segir uppsagnir starfsfólks greinilega ekki lausnina við manneklu Formaður Félags lífeindafræðinga segir Landspítalann ekki mega við því að starfsfólki fækki. Nýr formaður stjórnar spítalans sagði í dag að mögulega þyrfti að fækka starfsfólki í hagræðingarskyni. Innlent 24.7.2022 21:12
Síðasti hjúkrunarfræðingur Landspítalans 2ja vikna törn hjá mér á Mæðravernd Landspítalans, þar sem ég hef unnið sem ritari í afleysingum í gegnum stöðu mína sem verkamaður Landspítalans, er nú lokið og bíða mín önnur verkefni á spítalanum í næstu viku. Að starfa með ljósmæðrum Landspítalans hefur fyllt mig bæði fáheyrðu stolti og gleði, þetta er eins og á Landakoti, starf hjúkrunarfræðings er líklega það göfugasta sem til er í vestrænu samfélagi og ég sé það langar leiðir. Skoðun 23.7.2022 19:01
Landspítalinn standi nú á krossgötum Forstjóri Landspítala tekur undir með formanni nýrrar stjórnar sem sett hefur verið yfir spítalann að stokka þurfi upp rekstrinum og ef til vill fækka starfsfólki. Spítalinn hafi átt á brattan að sækja og standi nú á krossgötum. Innlent 14.7.2022 23:36
Vill Landspítalann af fjárlögum og fá greitt fyrir veitta þjónustu Það þarf að einfalda stjórnskipulag Landspítalans og breyta því hvernig hann er fjármagnaður, segir Björn Zoëga, nýr stjórnarformaður Landspítalans og forstjóri Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð. Innlent 14.7.2022 06:39
Björn Zoëga formaður nýrrar stjórnar Landspítala Heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Landspítala til tveggja ára en stjórnin er skipuð af fimm einstaklingum í senn. Björn Zoëga, forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Svíþjóð, verður formaður stjórnarinnar. Innlent 13.7.2022 17:29
Þyrlan sótti slasaða hestakonu Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi rétt í þessu með slasaða hestakonu innanborðs. Innlent 13.7.2022 16:28
Tveir sóttir með þyrlu á Snæfellsnes eftir bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna bílslyss austan við Grundarfjörð. Innlent 11.7.2022 13:07
Olnbogabörn þjóðfélagsins, þá og nú Með lögum nr. 64/2010 var samþykkt að nýr Landspítali skyldi rísa við Hringbraut. Lengi hafði verið kallað eftir því að umönnun og aðbúnaður sjúklinga myndi færður til nútímahorfs með byggingu nýs hátæknisjúkrahúss enda húsakostur gamla Landspítalans óhagkvæmur og kominn til ára sinna. Skoðun 4.7.2022 16:01
Mannréttindabrot framin á stofnunum landsins „nær daglega“ Sveinn Rúnar Hauksson og Héðinn Unnsteinsson segja að brotið sé á mannréttindum sjúklinga á geðdeildum landsins „nær daglega.“ Í pistli sem þeir skrifa benda þeir á að það séu ekki fullnægjandi heimildir í lögum fyrir þeim þvingandi aðgerðum sem sjúklingar á geðdeildum landsins séu beittir. Innlent 3.7.2022 15:52
Telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf og mælir með núvitund Einn virtasti prófessor samtímans í sálfræði og geðlækningum telur Íslendinga ofnota þunglyndislyf. Hann bendir á að rannsóknir hafi sýnt að dagleg hugleiðsla í stuttan tíma geti haft mun jákvæðari áhrif á andlega heilsu fólks til lengri tíma en lyf. Innlent 1.7.2022 19:00
Þurfi að endurhugsa geðheilbrigðismálin Sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu segir mikilvægt að bregðast við aukinni vanlíðan hjá Íslendingum. Það skjóti skökku við að niðurgreiða aðeins þunglyndis-og kvíðalyf en ekki sálfræðiþjónustu. Innlent 1.7.2022 13:00
Viðbragðsteymi bráðaþjónustu ræðst í aðgerðir Viðbragðsteymi bráðaþjónustu í landinu hefur ráðist í aðgerðir. Meðal þeirra er opnun nýrra endurhæfingar- og hjúkrunarrýma, ný fjarþjónusta bráðadagdeildar lyflækninga og ráðning tveggja erlendra sérfræðinga í bráðalækningum. Innlent 1.7.2022 10:00
Eining um stjórn Landspítala Við stöndum frammi fyrir því að á næstu 20 árum mun Íslendingum yfir 65 ára aldri fjölga um 40 þúsund. Það er ekki valkostur að gera alltaf meira af því sama. Margt sem gekk í fortíð gengur ekki endilega upp í nútíð Skoðun 28.6.2022 11:31
Sex sjúkrabílar biðu í röð fyrir utan Landspítala Á dögunum kom upp sú leiðinlega staða að sjúkraflutningamenn gátu ekki skilað af sér sjúklingum þar sem ekki var pláss fyrir þá inni á Landspítala. Því þurftu þeir einfaldlega að bíða í röð fyrir utan. Innlent 27.6.2022 16:57
Rúmlega 540 þúsund gölluðum fínagnagrímum fargað Landspítalinn festi kaup á tæplega fimmtán milljónum eininga af hlífðarbúnaði á síðustu tveimur árum vegna Covid-19 heimsfaraldursins, kostnaður hlífðarbúnaðarins nemur rúmlega 1,5 milljarði íslenskra króna. Þetta kemur fram í svari Landspítalans við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 26.6.2022 17:27
Deild á Landakoti lokað vegna hópsýkingar: „Við einbeitum okkur bara að því að komast í gegnum þetta“ Kórónuveirufaraldurinn virðist sem betur fer ekki vera í uppsveiflu hér á landi að sögn sóttvarnalæknis en of snemmt er að segja til um framhaldið. Enn er mikið álag á spítalanum, þar sem hópsmit hefur meðal annars komið upp á Landakoti. Forstöðumaður öldrunar- og endurhæfingarþjónustu segir það vonbrigði að hópsmit hafi aftur komið upp á Landakoti en er bjartsýn á að þeim takist að komast í gegnum ástandið. Innlent 24.6.2022 21:01
Telur Íslendinga á undan öðrum þjóðum í greiningum á ADHD Formaður ADHD samtakanna fagnar því að rannsaka eigi tengsl geðrofa og örlyndis og örvandi ADHD-lyfja. Hann telur Íslendinga fimm árum á undan öðrum þjóðum þegar kemur að greiningum á ofvirkni og athyglisbresti. Innlent 21.6.2022 19:01
Glæný nálgun í öldrunarþjónustu Ný öldrunarþjónusta sem á að gera fólki kleift að búa lengur heima og minnka svokallaðan fráflæðisvanda Landspítala var kynnt á Sólvangi í dag. Heilbrigðisráðherra segir um tímamót að ræða sem muni draga úr innlögnum á spítala. Innlent 20.6.2022 20:01
„Samfélagið er að svíkja þessi börn í stað þess að breyta kerfinu“ Sífellt fleiri börn fá ADHD-lyf hér á landi. Í dag fær um einn af hverjum sjö strákum slík lyf og um ein af hverjum tíu stelpum. Prófessor í sálfræði segir þetta óeðlilega þróun og úr takti við nálganir annarra norrænna samfélaga. Innlent 20.6.2022 18:30
Tveir létust vegna Covid-19 um helgina Tveir létust af völdum Covid-19 á Landspítalanum um helgina. Á fjórða tug einstaklinga liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19, en innlögnum sjúklinga með sjúkdóminn hefur farið fjölgandi síðustu vikur. Innlent 20.6.2022 12:56
Varasamt að kyssa og knúsa viðkvæma Sóttvarnalæknir fundar í dag með fulltrúum hjúkrunarheimila um mögulegar takmarkanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hann hvetur fólk til þess að fara varlega í kringum þá sem eru í áhættuhópum og segir skynsamlegt fyrir viðkvæma að taka upp grímunotkun á ný. Innlent 20.6.2022 12:20
Samfara gríðarlegri aukningu á ADHD-lyfjum hefur tilfellum geðrofs og örlyndis á geðdeildum fjölgað Sífellt fleiri leita á geðdeildir vegna geðrofseinkenna eða örlyndis eftir að hafa verið ávísað örvandi ADHD- lyfjum að sögn yfirlæknis bráðageðdeildar Landspítalans. Íslendingar eru margfaldir Norðurlandameistarar í notkun slíkra lyfja og hástökkvarar í ávísunum þeirra milli ára. Innlent 20.6.2022 09:00
Einstaklingur greindur með berkla á Landspítalanum Einn einstaklingur greindist með berkla á Landspítalanum fyrir helgi, samkvæmt Má Kristjánssyni, yfirlækni á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Líklegt þykir að um fjölónæma berkla sé að ræða en þó sé ekkert tilefni til að hafa áhyggjur. Brugðist hefur verið við með viðunandi lyfjameðferð og einangrun. Innlent 18.6.2022 19:12
Líklegast að útbreitt ónæmi haldi dreifingu veirunnar í skefjum Yfirlæknir á Landspítala segir að fjöldi sjúklinga sem liggja inni vegna Covid-19 sé í nokkru jafnvægi. Hann segir óljóst hvort búast megi við mikilli fjölgun smitaðra eða hvort víðtækt ónæmi komi í veg fyrir stórar bylgjur. Innlent 18.6.2022 14:57