Evrópusambandið
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 48 ›
Grískur Evrópuþingmaður sviptur friðhelgi og handtekinn Belgíska lögreglan handtók Ioannis Lagos, grískan Evrópuþingmann, sem var sakfelldur fyrir aðild að hægriöfgaflokknum Gullinni dögun í heimalandi sínu í dag. Lagos á yfir höfði sér þrettán ára fangelsisvist. Erlent 27.4.2021 17:44
ESB í mál við AstraZeneca Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagðist í dag hafa höfðað mál gegn lyfjaframleiðandanum AstraZeneca vegna vanefnda á samningum. Erlent 26.4.2021 15:01
Bólusettum Bandaríkjamönnum hleypt í frí til Evrópu á næstunni Bólusettir Bandaríkjamenn munu geta heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins í sumar. Forseti framkvæmdaráðs ESB tilkynnti í gær að sambandið myndi líklega breyta stefnu sinni eftir viðræður við ráðamenn í Washington um fyrirkomulag svokallaðra bólusetningar-vegabréfa. Viðskipti erlent 26.4.2021 09:20
ESB og íslenskt fullveldi Í liðinni viku voru á Alþingi ræddar tillögur Viðreisnar um að ganga í Evrópusambandið (ESB) og að taka upp evruna sem gjaldmiðil á Íslandi. Í sjálfu sér er ágætt er að efna til umræðu um þessi mál til að draga fram helstu sjónarmið og skerpa línur um afstöðu stjórnmálaflokka til þessara málefna. Skoðun 25.4.2021 09:00
Íslendingar andvígir inngöngu í ESB en telja góðar líkur á hagstæðum samningi Fleiri eru andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en hlynntir samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu. Aftur á móti telur ríflega helmingur þjóðarinnar að Ísland gæti náð hagstæðum samningi við sambandið. Innlent 21.4.2021 11:04
ESB stefnir á kolefnishlutleysi með nýju loftslagsmarkmiði Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu. Erlent 21.4.2021 10:46
Um sautján börn á flótta hverfa daglega í Evrópu Að minnsta kosti 180 þúsund börn á flótta hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópulanda á borð við Grikkland, Ítalíu og Þýskaland. Alls var 18.292 flóttabarna, sem voru ekki í fylgd með fullorðnum, saknað árin 2018 til 2020. Erlent 21.4.2021 09:00
Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa. Erlent 19.4.2021 16:25
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. Neytendur 19.4.2021 15:44
Rökræddu stöðuna í stjórnmálum: „Eigum að ná miklu meiri árangri sem sjálfstæð þjóð“ Íslenskir stjórnmálamenn standa sig betur á krepputímum og stjórnvöldum er vel treystandi til að takast á við áföllin af völdum heimsfaraldurs innanlands að mati Guðna Ágústssonar. Þorsteinn Pálsson vill hins vegar hefja gjaldmiðlasamstarf við Evrópusambandið samhliða endurreisn ríkisfjármála. Innlent 18.4.2021 12:11
Pfizer flýtir afhendingu bóluefna til Evrópu Lyfjafyrirtækin Pfizer og BioNTech ætla að senda Evrópusambandinu 50 milljónir fleiri skammta af bóluefni fyrirtækjanna á þessum ársfjórðungi en áður stóð til. Það er til viðbótar við þá 200 milljónir skammta sem ESB býst við að fá fyrir lok júnímánaðar. Erlent 14.4.2021 12:16
Framlengja ekki samninga sína við AstraZeneca og Johnson & Johnson Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst ekki framlengja samninga sína við framleiðendur bóluefna á borð AstraZeneca og Johnson & Johnson sem renna út í árslok. Erlent 14.4.2021 08:13
Klúður í Tyrklandsheimsókn rænir forseta leiðtogaráðsins svefni Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segist missa svefn vegna þess að hann lét hjá líða að mótmæla því að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, fengi ekki sæti með þeim Recep Erdogan, forseta Tyrklands, í heimsókn þeirra í vikunni. Erlent 10.4.2021 10:31
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. Erlent 9.4.2021 12:42
Ráðherra hleypur apríl Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitt af mörgum skýrum stefnumálum Viðreisnar. Ég er einn af þeim sem myndi ganga svo langt að segja að hún væri einn af burðarásum í stefnu flokksins og ein af grundvallarástæðum þess að Viðreisn varð til og mun vera til um ókomna framtíð. Skoðun 9.4.2021 07:31
Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB. Erlent 8.4.2021 11:21
Bandaríkjamenn og Íranir hefja viðræður um kjarnorkusamning Óformlegar viðræður milli Bandaríkjanna og Íran til þess að endurvekja kjarnorkusamning ríkjanna frá 2015 munu hefjast á þriðjudag í Vín. Yfirvöld í Teheran hafa neitað að setjast formlega við samningsborðið en Bandaríkin segja fundinn marka jákvætt skref. Erlent 2.4.2021 23:33
Vill fullan þunga í viðræður um tengingu krónunnar við evru Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögur um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið og samstarf í gjaldeyrismálum. Formaður Viðreisnar segir þjóðina eiga að fá að ákveða næstu skref í þjóðaratkvæðagreiðslu. Innlent 31.3.2021 20:01
Leggja til endurupptöku aðildarviðræðna við ESB Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Innlent 31.3.2021 14:40
Orsakasamband ekki sannað en hugsanlegt Orsakasamband milli bóluefnis AstraZeneca og blóðtappa í þeim sem þegið hafa bóluefnið hefur ekki verið sannað, en það er hugsanlegt. Erlent 31.3.2021 14:33
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. Viðskipti innlent 31.3.2021 13:58
Von á bóluefni Janssen til Evrópu þann 19. apríl Bóluefni Janssen gegn Covid-19 fer í dreifingu í Evrópu þann 19. apríl næstkomandi að sögn Johnson & Johnson, móðurfyrirtækis Janssen. Bóluefnið hefur þá sérstöðu að ekki þarf tvo skammta af efninu svo það gefi fulla vörn. Erlent 29.3.2021 18:45
Boða hraðari afhendingu bóluefna í Evrópu Búist er við því að framleiðslugeta bóluefnaframleiðenda í Evrópu aukist á næstunni með opnun nýrra framleiðslustaða. Þetta muni skila sér í hraðari afhendingu bóluefna í álfunni. Innlent 26.3.2021 17:29
AstraZeneca verði að standa við gerða samninga um afhendingu Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að lyfjaframleiðandinn AstraZeneca verði að standa við gerða samninga um afhendingu bóluefnis til Evrópuríkjanna áður en hægt verður að heimila útflutning á bóluefni þeirra sem framleitt er í Evrópu. Innlent 26.3.2021 06:41
Um ESB, bóluefni og útflutningsbann Byrjum á byrjuninni. Væntanlegt útflutningsbann á bóluefni frá ESB hefur vakið upp hörð viðbrögð. Og þeir íslensku ráðamenn, sem öllu jöfnu hafa verið mótfallnir inngöngu Íslands í sambandið, lýstu vandlætingu sinni samdægurs á samfélagsmiðlum: Hið stóra grimma Evrópusamband væri búið að setja litla klakann okkar á „bannlista“! Skoðun 25.3.2021 20:01
Ísland gæti notið góðs af útflutningshömlum ESB Beri nýjar útflutningshömlur Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni tilætlaðan árangur gæti Ísland notið ávaxta þess. Íslensk stjórnvöld eru þó ósátt við að í reglugerð hafi EFTA-ríki eins og Ísland verið sögð falla undir mögulegar takmarkanir. Innlent 25.3.2021 13:40
Útflutningsbann ESB á bóluefni á ekki við um Ísland: „Ekki boðlegt og brot á EES-samningnum“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að hertar reglur Evrópusambandsins sem kynntar voru í dag og er ætlað að takmarka útflutning á bóluefni gegn covid-19 frá sambandinu eigi ekki við um Ísland. Hann segir ekki boðlegt að annað hafi mátt ráða af yfirlýsingu frá sambandinu, enda myndi það fela í sér skýrt brot á EES-samningnum. Innlent 24.3.2021 21:12
Óvíst hvort útflutningstakmarkanir hafi áhrif á Ísland Utanríkisráðuneytið segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að fyrirhugaðar útflutningstakmarkanir Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á afhendingu bóluefnis hingað. Erlent 24.3.2021 13:58
ESB hyggst takmarka útflutning á bóluefni Ríki utan Evrópusambandsins þurfa sérstakt leyfi til þess að fá að flytja inn bóluefni gegn kórónuveirunni þaðan samkvæmt hertum takmörkunum sem búist er við að verði kynntar í Brussel í dag. Takmarkanirnar eru taldar koma harðast niður á Bretlandi og Bandaríkjunum. Erlent 24.3.2021 10:55
ESB beitir refsiaðgerðum vegna Úígúra og valdaránsins í Búrma Evrópusambandið ákvað í dag að beita fjóra kínverska embættismenn og ellefu yfirmenn í her Búrma refsiaðgerðum vegna mannréttindabrota gegn Úígúrum í Kína annars vegar og valdaránsins í Búrma hins vegar. Erlent 22.3.2021 16:10