Fjármálafyrirtæki
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 57 ›
Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður Innlent 16.3.2023 21:01
Seðlabankinn segir þjóðaröryggi kalla á íslenska greiðslumiðlun Seðlabankinn segir það varða þjóðaröryggi að koma upp innlendri greiðslumiðlun fyrir kortagreiðslur sem allra fyrst. Bregðist bankarnir ekki við því þurfi að óska eftir lagasetningu um málið. Seðlabankastjóri segir að tryggja verði öryggi og hagkvæmni í þessum viðskiptum. Innlent 16.3.2023 19:30
Evruútgáfa Landsbankans mátti ekki tæpara standa vegna óróa á mörkuðum Útgáfa Landsbankans á sértryggðum bréfum í evrum fyrir jafnvirði 45 milljarða króna undir lok síðustu viku var „mjög jákvæð,“ að sögn seðlabankastjóra, sem segir að ef skuldabréfaútgáfan hefði ekki heppnast á þeim tíma hefði getað reynst afar erfitt að klára hana vegna óvissu á erlendum fjármálamörkuðum. Seðlabankinn gerir ekki athugasemdir við áform bankanna um arðgreiðslur og kaup á eigin bréfum við þessar aðstæður og það sé jafnvel ákjósanlegt út frá markmiði peningastefnunnar. Innherji 16.3.2023 17:24
Spá því að verðbólga hjaðni á milli mánaða Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spá því að ársverðbólga hjaðni lítillega þegar næstu verðbólgutölur verða gefnar út. Sérfræðingar beggja deilda sjá fyrir sér að verðbólga lækki hægt næstu mánuði. Viðskipti innlent 16.3.2023 12:39
Seðlabankastjóri segir íslenska bankakerfið með sterkar varnarlínur Seðlabankastjóri segir ekki hægt að útiloka að vandræði smærri banka í Bandaríkjunum smitist til annarra landa. Íslenska bankakerfið væri hins vegar undir strangasta eftirlit sem þekktist á Vesturlöndum og hann teldi að varnarlínur í fjármálakerfinu muni halda. Innlent 16.3.2023 11:45
Stjórnendur Arion segja „hamlandi starfsumhverfi“ kalla á meiri vaxtamun Æðstu stjórnendur Arion gagnrýndu „hamlandi starfsumhverfi“ hér á landi á aðalfundi bankans í gær, sem þýddi að vaxtamunur þyrfti að vera hærri en ella til að ná fram sambærilegri arðsemi og erlendir keppinautar þeirra, og kölluðu eftir því að stjórnvöld myndu „jafna leikinn.“ Íslenskir bankar greiddu í fyrra um 70 til 80 prósent meira í heildarskatta borið saman við aðra norræna banka, að sögn bankastjóra Arion. Innherji 16.3.2023 10:21
Seðlabankinn slær varnagla vegna aukinnar áhættu Seðlabankinn gerði viðskiptabönkunum í dag að leggja meira fé til hliðar vegna vaxandi áhættu að undanförnu með því að auka framlög þeirra í sveiflujöfnunarsjóð. Bankarnir, heimilin og fyrirtækin standi þó almennt vel og vanskil sjaldan verið minni. Innlent 15.3.2023 19:31
Bankarnir verði að auka markaðsfjármögnun og binda innlán Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands telur að íslensku bankarnir verði að auka markaðsfjármögnun, bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, og huga að bindingu innlána til að treysta lausafjárstöðuna. Innherji 15.3.2023 13:15
Bönkunum gert að spara meira fyrir mögulegum áföllum Seðlabankinn ákvað í dag að hækka framlög viðskiptabankanna í sveiflujöfnunarauka upp í 2,5 prósent og hefur hlutfallið aldrei verið hærra. Þótt fjármálakerfið standi traustum fótum að mati bankans fari fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja versnandi í þrálátri verðbólgu. Innlent 15.3.2023 11:55
Seðlabankinn hækkar eiginfjárkröfu á bankanna vegna aukinnar áhættu Þrátt fyrir að fjármálakerfið hér á landi „standi traustum fótum“ þá hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að setja hærri eiginfjárkröfu á bankanna til að auka enn frekar viðnámsþrótt þeirra vegna innlendrar þenslu og aukinnar áhættu á erlendum mörkuðum. Þá hafa fjármálaskilyrði heimila farið versnandi og útlit er fyrir að verðbólga verði „þrálát og greiðslubyrði lána þyngist.“ Innherji 15.3.2023 09:03
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01
Bankastjóri Arion: Ættum að njóta sömu lánskjara og önnur norræn ríki Ísland ætti á komandi árum að geta séð fram á betri fjármögnunarkjör á erlendum lánamörkuðum samhliða væntingum um að hugverkaiðnaður verði brátt ein helsta útflutningsstoð hagkerfisins, að sögn bankastjóra Arion. Fyrirliggjandi þjóðhagsspár vanmeta áætlanir um vöxt útflutningstekna og því eru líkur á að „hagvaxtarhorfur séu allt aðrar og miklu betri“. Innherji 10.3.2023 10:22
Gildi sér engin rök fyrir nýjum reglum um tilnefningarnefndir Gildi lífeyrissjóður hallast að því að nýleg lagaákvæði, sem lögfesta setu stjórnarmanns í tilnefningarnefndum banka og fela nefndunum það hlutverk að leggja mat á störf framkvæmdastjóra, þarfnist endurskoðunar. Enginn haldgóður rökstuðningur sé fyrir þessum breytingum og reynslan sýni að almennt sé óheppilegt að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 8.3.2023 06:58
RB sendi gögn um viðskiptavini indó á vitlausan banka Mistök urðu í gagnaafhendingu Reiknistofu bankanna (RB) sem varð til þess að gögn um fjárhagsfærslur viðskiptavina indó voru send inn í lokað tölvukerfi Kviku banka. Kvika hvorki skoðaði né rýndi í gögnin heldur var þeim tafarlaus eytt. Viðskipti innlent 7.3.2023 15:52
Seðlabankinn afnemur allar hömlur á binditíma verðtryggðra innlána Reglur sem kveða á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkunum, sem eru einkum í eigu heimilanna og nema hundruðum milljarða króna, verða afnumdar, að sögn seðlabankastjóra, en þær hafa verið í gildi frá því undir lok síðustu aldar. Breytingin gæti ýtt undir aukinn sparnað á tímum þegar verðbólgan hefur aukist hröðum skrefum og heimilin eru á ný farin að sækja í verðtryggð íbúðalán. Innherji 7.3.2023 10:55
Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi. Neytendur 4.3.2023 09:42
Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. Innlent 3.3.2023 10:11
Fólk geti grætt umtalsvert með einu símtali til bankans Verðbólga er komin yfir tíu prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár. Markaðsaðilar spá enn einni stýrivaxtahækkuninni í næsta mánuði og útlit er fyrir að verðbólgan verði þrálát. Dósent í fjármálum segir mikilvægt að fólk sem á pening á bankareikningum kanni hvort vextir á þeirra reikningum séu þeir bestu. Einstaklingur með tíu milljónir króna á almennum veltureikningi gæti grætt hálfa milljón á ári við það eitt að færa peninginn yfir á hagstæðari bankareikning. Viðskipti innlent 27.2.2023 20:00
Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun. Viðskipti innlent 27.2.2023 15:32
Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46
Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. Innherji 22.2.2023 14:51
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Guðjón hættir hjá Arion banka Guðjón Kjartansson, sem hefur verið í fyrirtækjaráðgjöf Arion um nokkurt skeið, hefur sagt upp störfum hjá bankanum. Klinkið 20.2.2023 19:01
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58
„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31