Fjármálafyrirtæki
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 57 ›
Daníel hættur hjá Landsbankanum, stýrt hagfræðideild bankans frá 2010 Daníel Svavarsson, sem hefur verið forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans frá árinu 2010, hefur hætt störfum hjá bankanum. Klinkið 14.2.2022 16:23
Bankarnir vænta aukinnar verðbólgu í febrúar, Arion með dekkstu spána Spár greiningadeilda bankanna um næstu verðbólgumælingu liggja á bilinu 5,8 prósent og 6,1 prósent á ársgrundvelli. Útlit er fyrir að innfluttur verðbólguþrýstingur verði þrálátari en áður var talið og að áfram verði spenna á fasteignamarkaði. Innherji 14.2.2022 14:38
Vill selja yfir 15 prósenta hlut í Íslandsbanka í næsta áfanga Bankasýsla ríkisins, sem heldur utan um eftirstandandi 65 prósenta eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka, mun stefna að því að selja að lágmarki svo stóran hlut í næsta áfanga söluferlisins á komandi vikum að eignarhald íslenska ríkisins fari niður fyrir helmingshlut í bankanum, samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 14.2.2022 06:00
Um „ofurhagnað“ bankanna Verðum við ekki að ætlast til þess að viðskiptaráðherra viti að raunvextir í landinu eru í dag neikvæðir, þannig að nú á sér stað stórfelld yfirfærsla sparifjár frá sparifjáreigendum til lántakenda. Umræðan 13.2.2022 18:01
Útboð og skráning Íslandsbanka kostaði ríkissjóð yfir 1.700 milljónir Beinn kostnaður íslenska ríkisins við skráningu og hlutafjárútboð Íslandsbanka um mitt síðasta ár nam 1.704 milljónum króna, að stærstum hluta vegna söluþóknunar til fjölda erlendra og íslenskra ráðgjafa. Kostnaðurinn jafngilti um 3,1 prósenti af söluandvirðinu en ríkið seldi 35 prósenta hlut í bankanum fyrir rúmlega 55 milljarða króna. Innherji 13.2.2022 15:44
Bankarnir sýni heimilunum svigrúm Forsætisrráðherra og fjármálaráðherra segja góða stöðu banka í eigu ríkisins koma sér vel með miklum argreiðslum í ríkissjóð sem nýtist til fjármögnunar félagslegra verkefna. Fjármálaráðherra segir heimilin þó standa vel og vanskil þeirra séu í algeru lágmarki. Innlent 11.2.2022 19:30
Lífeyrissjóðir hafa bætt 6 prósentum við hlut sinn í Íslandsbanka Lífeyrissjóðir hafa bætt töluvert við hlut sinn í Íslandsbanka frá hlutafjárútboði bankans í júní á síðasta ári en á sama tíma hefur hlutdeild erlendra fjárfesta í bankanum minnkað. Þetta má lesa úr skýrslu fjármálaráðherra um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka, sem var lögð fyrir Alþingi. Innherji 11.2.2022 16:08
Bjarni fellst á tillögu um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu frekari eignarhluta í Íslandsbanka. Tillagan felur í sér að Bankasýslan fái heimild til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka í nokkrum áföngum og að höfðu samráði við ráðherrann. Viðskipti innlent 11.2.2022 11:13
Fjármálaráðherra gefur grænt ljós á frekari sölu á Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um að stofnunin hefji undirbúning hið fyrsta að framhaldi á sölumeðferð á eftirstandandi 65 prósenta eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka innan næstu tveggja ára, háð því að markaðsaðstæður séu hagfelldar. Innherji 11.2.2022 11:06
Inngrip lækka söluverð Íslandsbanka, segir formaður efnahagsnefndar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að tillaga Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra um að skylda viðskiptabankana til að verja hluta af hagnaði sínum í að niðurgreiða vexti sé til þess fallin að lækka verðmiðann á Íslandsbanka þegar ríkið selur eignarhlutinn sem eftir stendur. Innherji 11.2.2022 08:03
Þætti vænt um ef bankarnir kæmu með tillögu um hvernig létta á undir heimilunum Stóru viðskiptabankarnir þrír skila allir methagnaði á síðasta ári enda höfðu stjórnvöld gert rekstrarumhverfi þeirra hagstætt í faraldrinum. Innlent 10.2.2022 21:37
Íslandsbanki hagnaðist um 23,7 milljarða Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 23,7 milljörðum króna á seinasta ári samanborið við 6,8 milljarða árið 2020. Bankinn hagnaðist um 7,1 milljarð króna á fjórða ársfjórðungi 2021. Viðskipti innlent 10.2.2022 15:57
Sátt verði að ríkja um fyrirtæki sem rekin eru í þágu þjóðar Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að það sé hennar helsta verkefni að reka bankann vel, tryggja aðgengi að fjármálaþjónustu á sanngjörnum kjörum en líka að tryggja að eign þjóðarinnar rýrni ekki í verði. Viðskipti innlent 10.2.2022 13:47
Landsbankinn færði sjötíu starfsmenn í Borgartún eftir myglufund Uppgötvun á myglu í húsakynnum Landsbankans í Kvosinni, sem varð til þess að rúmlega 70 starfsmenn voru færðir yfir í Borgartún, mun hvorki hafa í för með sér verulegan kostnað fyrir bankann, né koma niður á söluverðinu þegar bankinn flytur höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði við Austurhöfn. Innherji 10.2.2022 07:01
Kallar eftir því að bankarnir noti „ofurhagnað“ til að létta undir heimilunum Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir bankana skila „ofurhagnaði“ og að þeir séu þess vegna í stöðu til að létta undir með heimilunum í landinu, sem sjá fram á verulegar vaxtahækkanir. Innlent 10.2.2022 06:54
Arion hagnaðist um 28,6 milljarða í fyrra Arion banki hagnaðist um 6.522 milljónir króna á fjórða og síðasta ársfjórðungi 2021. Allt síðasta ár hagnaðist bankinn um 28,6 milljarða króna. Viðskipti innlent 9.2.2022 18:11
Sumarhús seldust sem aldrei fyrr Metsala var á sumarhúsum á síðasta ári. Hinn aukni áhugi er rakinn til lægri vaxta, aukins sparnaðar og færri ferðalaga vegna kórónuveirufaraldursins. Viðskipti innlent 7.2.2022 10:11
Berglind frá Landsbankanum til BBA//Fjeldco Berglind Guðmundsdóttir hefur gengið til liðs við lögmannsstofuna BBA//Fjeldco. Berglind er héraðsdómslögmaður með víðtæka reynslu á sviði fyrirtækja– og fjármálalögfræði. Klinkið 6.2.2022 14:56
Skekkjan og lausnin Hagnaður Landsbankans á síðasta ári var tæpir 29 milljarðar króna. Lagt verður til á aðalfundi að greiða 14,4 milljarðar í arð til hluthafa. Ríkið, þ.e.a.s. við, á 98,2% í bankanum. Við vorum að hagnast um 29 milljarða og við munum ákveða hvað við ætlum að nýta þessa peninga í fyrir okkur. Skoðun 4.2.2022 12:00
Landsbankinn hagnaðist um 28,9 milljarða króna í fyrra Landsbankinn hagnaðist um 28,9 milljarða króna eftir skatta í fyrra, samanborið við 10,5 milljarða króna árið 2020. Arðsemi eigin fjár var 10,8% árið 2021 eftir skatta, samanborið við 4,3% arðsemi árið áður. Viðskipti innlent 3.2.2022 13:37
Spá 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta á miðvikudag Greining Íslandsbanka og Hagfræðideild Landsbankans spá því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 0,75 prósentur miðvikudaginn 9. febrúar. Viðskipti innlent 3.2.2022 09:52
Stærsti hluthafinn bætir við sig í Kviku fyrir um milljarð Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti hluthafinn í Kviku, stækkaði stöðu sína í bankanum í nýliðnum mánuði þegar hann keypti samanlagt 35 milljónir hluta að nafnvirði, sem jafngildir rúmlega 0,7 prósenta eignarhlut. Innherji 2.2.2022 12:02
Ellert stýrir fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans Ellert Arnarson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hann hefja störf á næstu vikum. Viðskipti innlent 2.2.2022 09:40
Hækkun húsnæðislána gæti hlaupið á hundruðum þúsunda á ári Hækkun húsnæðislána á ársgrundvelli gæti hlaupið á mörg hundruð þúsund krónum nú þegar verðbólga er í hæstu hæðum og hærri stýrivextir yfirvofandi. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að fólk ætti að vera viðbúið því að staðan versni enn frekar. Viðskipti innlent 28.1.2022 19:41
Útlit fyrir myndarlegan hagvöxt, hjaðnandi verðbólgu og hærri stýrivexti Útlit er fyrir myndarlegan hagvöxt út árið 2024 og hægt hjaðnandi verðbólgu á þessu ári að mati Greiningar Íslandsbanka sem spáir 4,7% hagvexti árið 2022. Gert er ráð fyrir að stýrivextir verði komnir í 3,25% í lok þessa árs og 4,0% í byrjun 2024. Þeir eru nú 2,0% og hækkuðu um 1,25 prósentustig á seinasta ári. Viðskipti innlent 26.1.2022 05:00
Væntingar um bankasölu magna upp sveiflur í Kauphöllinni Fjárfestar halda að sér höndum vegna væntinga um sölu ríkissjóðs á stórum hlut í Íslandsbanka en lítil velta í Kauphöllinni hefur þannig magnað upp sveiflur sem rekja má til verðlækkana á erlendum hlutabréfamörkuðum. Viðmælendur Innherja á fjármálamarkaði benda þó á að skráðu íslensku félögin standi á styrkum fótum og samsetning Kauphallarfélaga sé hagfelld í þessum aðstæðum. Innherji 25.1.2022 19:53
Bankarnir lánuðu yfir 300 milljarða til íbúðakaupa annað árið í röð Ný íbúðalán bankakerfisins, sem voru alfarið drifin áfram af óverðtryggðum lánum, námu rúmlega 307 milljörðum króna á árinu 2021 sem er um einum milljarði króna meira heldur en árið áður. Innherji 24.1.2022 11:04
Bankasýslan óskar eftir heimild til að selja restina af Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins lagði í gær fram tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra um að stofnunin fái heimild til ársloka 2023 til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka í nokkrum áföngum og að höfðu samráði við ráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Innherji 21.1.2022 08:50
Biðja um heimild til að selja alla hluti ríkisins í Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins lagði í gær fram tillögu til Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis að stofnunin fái heimild til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka. Viðskipti innlent 21.1.2022 07:54
Hættir hjá Landsbankanum og fer til Arctica Finance Sveinn Þórarinsson, sem hefur verið helsti hlutabréfagreinandi Landsbankans á undanförnum árum, hefur hætt störfum hjá bankanum og ráðið sig til Arctica Finance. Klinkið 18.1.2022 15:47