Írak
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 27 ›
Sendiherra Egyptalands rænt í Írak Sendiherra Egyptalands í Írak var rænt í gærkvöldi. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir egypskum sendiráðsstarfsmanni en hann segir sendiherrann hafa verið að kaupa dagblað úti á götu þegar tvær BMW-bifreiðar, fullar af vopnuðum mönnum, hafi rennt upp að honum og numið hann á brott. Erlent 13.10.2005 19:27
Enn ein sjálfsmorðsprengjuárásin Tuttugu manns létu lífið í enn einni sjálfsmorðsprengjuárásinni í Bagdad í morgun. Flestir hinna látnu voru menn sem voru að skrá sig í lögregluna en uppreisnarmenn hafa undanfarið sérstaklega beint spjótum sínum að þeim hópi. Með því vilja þeir hræða menn svo færri þori að skrá sig. Erlent 13.10.2005 19:27
Skothríð á hóp mótmælenda Lögregla í borginni Samawa í Írak hóf fyrir stundu skothríð á hóp atvinnulausra mótmælenda í borginni. Að sögn Reuters-fréttastofunnar eru um tvö þúsund manns samankomin í borginni til að mótmæla því að enga vinnu sé að hafa hjá lögreglunni. Erlent 13.10.2005 19:25
Ár síðan Írakar tóku yfir Í dag er ár liðið frá því að Írakar tóku við stjórnartaumunum í eigin landi úr höndum Bandaríkjamanna. Ýmislegt hefur áunnist en vandamálin sýnast þó miklu stærri. Erlent 13.10.2005 19:26
Yfirgefa ekki Írak í bráð Flest bendir nú til að Bandaríkjamenn séu ekki á leiðinni frá Írak í bráð. Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks sagði í dag útilokað að segja til um hvenær óöldinni í Írak myndi linna og á meðan svo væri færu Bandaríkjamenn ekki neitt. Erlent 13.10.2005 19:25
Flugskeyti skotið að herþyrlu? Tveir bandarískir hermenn féllu þegar bandarísk herþyrla brotlenti norður af Baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. Vitni segja að flugskeyti hafi verið skotið að vélinni, en það hefur ekki fengist staðfest. Tvímenningarnir voru einir um borð í vélinni.</font /> Erlent 13.10.2005 19:25
Herþyrla brotlenti nærri Bagdad Bandarísk herþyrla brotlenti norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Aðeins tveir voru um borð í þyrlunni en ekki er enn vitað um afdrif þeirra. Erlent 13.10.2005 19:25
Milljarðar í fangelsisbyggingar Fangelsi fyrir rúma þrjá milljarða króna eru að rísa í Írak. Bandaríkjamenn fjármagna gerð fangelsanna sem ætlað er að hýsa þær þúsundir uppreisnarmanna sem búið er að handtaka í landinu. Erlent 13.10.2005 19:25
Íraksstríðið í 10-12 ár enn? Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir 10 til 12 ár geta liðið áður en ró komist á í Írak. Hann staðfesti þó í gær að bandarískir embættismenn í Írak hefðu átt viðræður við leiðtoga uppreisnarmanna í landinu. Erlent 13.10.2005 19:25
Lögreglumenn drepnir í Írak Uppreisnarmenn í Írak réðust á lögreglustöð í vesturhluta landsins í gær og drápu þar átta manns. Í norðurhluta landsins geisaði þriggja klukkustunda byssubardagi milli skæruliða og sveita Bandaríkjamanna og Íraka. Þá hafa nokkrir lögreglumenn verið drepnir í morgun. Erlent 13.10.2005 19:25
Á fjórða tug liggur í valnum Á fjórða tug manna liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í bænum Mósúl í Írak í morgun. Maður sprengdi sig í loft upp við varðstöð við sjúkrahús, annar við aðalstöðvar lögreglunnar og sá þriðji við herbækistöð í borginni. Erlent 13.10.2005 19:25
Engar samningaviðræður í gangi Talsmenn bandarískra og írakskra hersveita segja að þeir eigi í viðræðum við leiðtoga uppreisnarmanna í Írak, klerka og hópa sem tengdir eru súnní-aröbum til að fá fleiri að pólitískri uppbyggingu landsins. Aðspurðir neituðu talsmennirnir hins vegar að þetta séu samningaviðræður hvers konar eins og haldið er fram í <em>Sunday Times</em> í dag. Erlent 13.10.2005 19:25
Sextán látnir í Mósúl Sextán hið minnsta fórust í sjálfsmorðsárás í borginni Mósúl í Írak í morgun. Þá ók maður bíl fylltum sprengiefni á höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni og sprengdi sig í loft upp. Hluti byggingarinnar hrundi og fimm lögreglumenn fórust. Fjórtán eru sárir. Erlent 13.10.2005 19:25
Sjö bílsprengjur í Bagdad í nótt Minnst þrjátíu og átta eru látnir og um það bil eitt hundrað særðir eftir sjö bílsprengingar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í nótt. Rétt fyrir miðnætti sprungu fjórar bílsprengjur í íbúðahverfi sjíta í höfuðborginni með þeim afleiðingum að tuttugu og þrír létust. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á þeim árásum. Erlent 13.10.2005 19:24
Stríðið ekki að tapast Stríðið í Írak er ekki að tapast og Bandaríkjamenn munu halda áfram að berjast gegn uppreisnarmönnum eins lengi og til þarf. Þetta sagði Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra í yfirheyrslum þingnefndar öldungadeildar um stríðið í Írak sem staðið hafa yfir í dag. Erlent 13.10.2005 19:24
Írak: Fá borgað fyrir hverja árás Það er græðgi en ekki hugsjón sem knýr uppreisnarmenn í Írak til ódæðisverka. Þetta er álit hershöfðingja Bandaríkjamanna í Írak sem segir fyrrverandi stjórnarmenn úr Baath-flokki Saddams Hussein borga uppreisnarmönnum á bilinu sjö til tíu þúsund krónur fyrir hverja árás. Erlent 13.10.2005 19:24
20 létust í árás á veitingahús Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið og margir særðust í sprengjuárás á veitingahús í Bagdad í dag. Fimm lögreglumenn og nokkrir öryggisverðir voru meðal þeirra sem féllu þegar maður kom inn í veitingahúsið og sprengdi sjálfan sig í loft upp. Erlent 13.10.2005 19:23
Tugir skæruliða felldir í Írak Bandarískir og írakskir hermenn hafa fellt tugi skæruliða og handtekið enn fleiri í stórsókn nálægt sýrlensku landamærunum í dag. Erlent 13.10.2005 19:23
Árásir í Kúveit í farvatninu? Utanríkisráðherra Íraks, Hoshiyar Zebari, segist óttast að skæruliðar í landinu ráðist inn í nágrannaríkið Kúveit á næstunni til að fremja þar ódæðisverk í líkingu við þau sem svo tíð hafi verið í Írak undanfarin misseri. Erlent 13.10.2005 19:23
Fimmtíu skæruliðar felldir Bandarískar og írakskar hersveitir héldu í dag áfram stórsókn sinni gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Fimmtíu skæruliðar voru felldir þar í gær. Erlent 13.10.2005 19:23
Sex látnir eftir loftárásir Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á aðsetur meintra hryðjuverkamanna í Írak í nótt. F-16 orrustuþotur flugu yfir skotmörkin, sem flest eru í og við bæinn Qaim í vesturhluta landsins, og vörpuðu fjölda mjög öflugra sprengna. Erlent 13.10.2005 15:33
18 látnir og 50 særðir Að minnsta kosti átján manns létust og meira en fimmtíu særðust í sjálfsmorðsárás í borginni Kirkuk í morgun. Árásarmaðurinn gekk hlaðinn sprengiefni að fjölmennu markaðstorgi og sprengdi sig þar í loft upp. Erlent 13.10.2005 19:21
28 látnir í dag - 24 lík finnast Að minnsta kosti 28 manns hafa látist í árásum Írak í dag. Auk þess fundust 24 lík rétt fyrir utan Bagdadborg. Þrettán aðrir menn sem teknir höfðu verið af lífi fundust í gærkvöldi. Erlent 13.10.2005 19:22
Hryðjuverkamanna leitað stíft Írakski herinn gerir nú hverja árásina af annarri á stöðvar hryðjuverkamanna. Það er þó ekkert lát á sprengjutilræðum í borgum landsins. Erlent 13.10.2005 19:21
Sprengdu upp flutningabílalest Að minnsta kosti sjö manns létust er uppreisnarmenn sprengdu upp flutningabílalest sem var á leið að herstöð Bandaríkjamanna með vörubirgðir um 80 kílómetra frá Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Erlent 13.10.2005 19:19
Enn ein olíuleiðslan sprengd Enn ein olíuleiðslan hefur verið sprengd í Írak en sú síðasta var sprengd í gær nálægt borginni Kirkuk. Engin slys urðu á fólki að þessu sinni en leiðslurnar getur tekið vikur að laga og hefur áhrif á afkomu landsins. Miklar sprengingar mynduðust þegar leiðslan var sprengd upp. Erlent 13.10.2005 19:18
Tveir látnir hið minnsta Að minnsta kosti tveir írakskir hermenn létust er bílsprengja sprakk í bænum Baquba í morgun. Þá særðust að minnsta kosti níu í árásinni. Erlent 13.10.2005 19:17
Al-Zarqawi segist við hestaheilsu Leiðtogi al-Qaida, Abu Musab al-Zarqawi, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að hann sé við hestaheilsu eftir að hafa særst lítillega í bardaga við bandaríska hermenn í Írak. Ekki hefur verið staðfest að yfirlýsingin sé í raun frá honum sjálfum. Erlent 13.10.2005 19:17
Réttarhöldin handan við hornið? Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta landsins, geti líklega hafist innan tveggja mánaða. Saddam er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þetta kom fram í viðtali við Talabani á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN í dag. Innlent 13.10.2005 19:17
Ítölsk herþyrla hrapaði; 4 létust Ítölsk herþyrla hrapaði nálægt borginni Nassiriya í Írak í morgun með þeim afleiðingum að fjórir hermenn létust. Ástæður slyssins eru enn ókunnar en þetta er þriðja þyrlan sem hrapar í landinu á einni viku. Erlent 13.10.2005 19:17