Grindavík
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 73 ›
Ekki í stöðunni að loka Bláa lóninu: „Við fylgjum alfarið ráðleggingum sérfræðinganna“ Umhverfisverkfræðingur skorar á yfirvöld að Bláa lóninu verði gert að loka Bláa lóninu tímabundið, en óvissustig almannavarna er þar í gildi vegna jarðhræringa. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir forsvarsmenn lónsins fylgja sérfræðingum Veðurstofunnar og Almannavarna í einu og öllu og samkvæmt þeim sé ekki tilefni til lokunar sem stendur. Innlent 4.11.2023 14:56
Skjálftavirkni minnkað en búist við að hún aukist aftur Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga síðan á sjötta tímanum í gær. Jarðskjálftar sem mælst hafa eru að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands minni en áður en gera megi ráð fyrir að jarðskjálftavirkni aukist aftur. Innlent 4.11.2023 12:11
Var að upplifa jarðskjálfta í fyrsta skipti: „Þurfum við að flýja?“ Jörð skelfur í Grindavík og eru íþróttirnar og leikmenn körfuboltaliðs félagsins ekki þeim undanskyldir. Mönnum gekk misvel að sofa í nótt. Körfubolti 4.11.2023 07:00
Skjálfti af stærðinni 4,3 Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 mældist norðaustur af Grindavík klukkan 13:14 í dag. Um er að ræða einn stærsta skjálfta sem mælst hefur í yfirstandandi hrinu. Innlent 3.11.2023 14:34
Erlendu leikmenn Grindavíkur vel upplýstir: „Nóttin var ekkert eðlileg“ Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfuboltanum, segir vel haldið utan um erlendu leikmennina í liðinu sem eru flestir að finna fyrir almennilegri jarðskjálftavirkni í fyrsta sinn á ævinni þessa dagana. Órói hefur gert vart um sig á svæðinu en Ólafur sjálfur er rólegur yfir stöðunni og svaf hann af sér skjálfta næturinnar. Körfubolti 3.11.2023 13:01
Skjálftavirknin viðbúin þegar land rís svona hratt Stærðarinnar skjálftar hafa riðið yfir norðvestur af Grindavík frá miðnætti, þrír hafa verið yfir fjórum að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir eðlilegt að stærri skjálftar ríði yfir þegar landris verður eins hratt og raunin er við fjallið Þorbjörn. Það þurfi þó ekki að þýði að von sé á gosi. Innlent 3.11.2023 12:06
Lokum Bláa lóninu Þann 9. desember 2019 hófst sprengigos á eyjunni Whakaari úti fyrir ströndum Nýja Sjálands. Gosið kom nokkuð á óvart og var töluvert af ferðamönnum á eyjunni. Fólkið á svæðinu hafði enga undankomuleið og alls létust 22 á eyjunni þennan dag. Skoðun 3.11.2023 12:01
750 skjálftar frá miðnætti Alls hafa 750 jarðskjálftar mælst á Reykjanesinu frá miðnætti og segir sérfræðingur að virknin hafi aukist aðeins í nótt. Innlent 3.11.2023 07:23
„Þetta er í fyrsta sinn sem manni er svolítið órótt“ „Ég vaknaði bara strax við þann fyrsta sem kom eftir miðnætti. Og vaknaði aftur um klukkan þrjú og hef ekki sofnað síðan. Þetta er bara búið að vera viðvarandi; stórir skjálftar. Maður sér á vefnum að þeir eru yfir þrír meira og minna.“ Innlent 3.11.2023 06:42
Skjálfti 4,2 að stærð rétt vestur af Bláa lóninu Skjálfti 4,2 að stærð varð um 1,2 kílómetra vestur af Bláa lóninu á Reykjanesskaga klukkan 3:51 í nótt. Sjö skjálftar sem hafa verið stærri en 3 að stærð, hafa mælst frá miðnætti, en skjálftanir hafa fundist víða á suðvesturhorni landsins. Innlent 3.11.2023 05:41
Heitt vatn og rafmagn undir: „Allt kapp lagt á það að verja virkjunina“ Framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku segir virkjun fyrirtækisins í Svartsengi gríðarlega mikilvæga, enda sjái hún íbúum á Reykjanesi fyrir heitu og köldu vatni og rafmagni. Verði eldgos á vondum stað verði erfiðast að koma heitu vatni til íbúa. Innlent 2.11.2023 23:00
Snarpur skjálfti norðaustur af Þorbirni Íbúar í Grindavík fundu vafalítið fyrir nokkuð snörpum jarðskjálfta á níunda tímanum. Innlent 2.11.2023 20:51
Þensla undir Þorbirni og öflugra merki um landris Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og í jarðhniki hjá Veðurstofu Íslands, segir að þensla á fimm kílómetra dýpi undir Þorbirni sé til marks um kvikusöfnun. „Kvikukoddi“ sé að myndast undir Þorbirni og öflugra merki sé um landris. Innlent 2.11.2023 18:52
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi Boðað hefur verið til upplýsingafundar fyrir íbúa Grindavíkur í íþróttamiðstöð bæjarins klukkan 17. Tilefni fundarins eru jarðhræringar norðvestan við fjallið Þorbjörn. Innlent 2.11.2023 16:02
Staðfest að kvika sé á fjögurra til fimm kílómetra dýpi Ítarleg greining á nýjum GPS gögnum og myndum frá gervitunglum staðfesta að kvikuinnskot sé að myndast á fjögurra til fimm kílómetra dýpi undir svæðinu norðvestan við Þorbjörn. Landris heldur áfram á svæðinu. Innlent 2.11.2023 13:51
Jarðskjálftavirkni heldur áfram Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Þorbjörn og Svartsengi á Reykjanesskaga. Rúmlega tvö hundruð skjálftar hafa mælst frá miðnætti en engar stórar breytingar eru á virkninni síðan í gær. Síðasta sólarhring hafa aðalega smáskjálftar mælst á svæðinu en enn má gera ráð fyrir stærri skjálftum. Innlent 2.11.2023 08:49
Öflugt landris en engin merki um að eldgos sé yfirvofandi Engin skýr merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs á Reykjanesi. Landris við fjallið Þorbjörn heldur þó áfram af krafti. Innlent 1.11.2023 22:00
Hópur íbúa í Grindavík kvíðinn og óttasleginn Gervitunglamyndir og GPS gögn benda til þess að kvikuinnskot sé á um það bil fjögurra kílómetra dýpi norðvestan við fjallið Þorbjörn. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir marga íbúa kvíðna og að sérstaklega þurfi að halda vel utan um íbúa af erlendum uppruna. Innlent 1.11.2023 13:25
Stærsti skjálftinn í nótt 3,7 stig Tæplega hundrað skjálftar hafa riðið yfir á Reykjanesinu frá miðnætti, sá stærsti upp á 3,7 stig. Sá kom rétt fyrir klukkan eitt í nótt og var á fimm kílómetra dýpi, 4,6 kílómetra norðvestur af Grindavík. Innlent 1.11.2023 07:29
„Maður hrekkur upp eins og húsið sé að farast hjá manni“ Íbúar í Grindavík eru löngu orðnir vanir skjálftum eftir tíðar hrynur síðustu ár. Þrátt fyrir það taka þeir skjálftunum ekki fagnandi. Margir hrökkva ítrekað við á nóttunni vegna skjálftanna. Innlent 31.10.2023 23:01
Vel undirbúin fari að gjósa Sérfræðingar Veðurstofunnar telja ekki útilokað að kvika nái að brjóta sér leið upp í jarðskorpuna norðvestur af Þorbirni skammt frá Bláa lóninu. Framkvæmdastjóri lónsins segir starfsmenn þess reiðubúna ef það fer að gjósa. Jarðskjálftahrina á svæðinu í dag þykir skýrt merki um kvikuhlaup. Innlent 31.10.2023 20:00
Tveir stórir skjálftar norður af Grindavík Laust fyrir klukkan níu í morgun reið yfir skjálfti sem mældist 3,1 að stærð um 3,6 km norður af Grindavík en litlu seinna reið annar og stærri yfir á sama stað en sá mældist 3,4 að stærð. Innlent 31.10.2023 10:19
Með áætlanir gjósi í Svartsengi Kvikusöfnun heldur áfram nærri Svartsengi og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið með viðbragðsáætlun komi til eldgoss. Stjórnendur funduðu með almannavörnum í dag. Innlent 30.10.2023 23:53
Skjálfti upp á 4,5 fannst víða Fólk á suðvesturhorninu fann margt hvert vel fyrir jarðskjálfta nærri Grindavík um klukkan nítján mínútur yfir tólf. Íbúar á Akranesi voru á meðal þeirra sem fundu fyrir skjálftanum sem reyndist 4,5 að stærð. Innlent 30.10.2023 12:28
Langvarandi landris gæti þýtt kröftugra eldgos Eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir ört landris við Svartsengi og Þorbjörn ekki góðar fréttir í ljósi staðsetningar. Langvarandi landris sé til marks um að töluvert hafi safnast af kviku á svæðinu og því ætti eldgos þar að vera aðeins kraftmeira en síðustu tvö. Hann segir farsælla að viðbragðsaðilar geri í undirbúningi sínum ráð fyrir slæmri útkomu til að þeir séu betur í stakk búnir að leysa málin skjótt og örugglega. Innlent 30.10.2023 11:59
Áframhaldandi þensla við Þorbjörn Land heldur áfram að rísa umhverfis Þorbjörn og Svartsengi. Þetta staðfesta nýjustu gögn Veðustofunnar. Von er á nýjum gervihnattamyndum síðar í dag sem þó verður líklega ekki hægt að lesa úr fyrr en á morgun. Innlent 29.10.2023 14:56
Staðan skýrist betur á morgun Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á Reykjanesskaga muni skýrast betur á morgun þegar nýjar myndir berast frá SENTINEL, gervitungli Evrópsku geimstofnunarinnar. Landris hófst við Svartsengi í gær og merki eru um aflögun við Fagradalsfjall. Ekki er talið að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð að svo stöddu. Innlent 28.10.2023 23:35
Landris mælist norðvestan við Þorbjörn GPS gögn og myndir frá gervitunglum sýna skýr merki um landris nærri Svartengi sem virðist hafa hafist í gær. Innlent 28.10.2023 14:04
Reikna með áframhaldandi skjálftavirkni á Reykjanesi Sérfræðingar Veðurstofu Íslands segja áfram mega búast við jarðskjálftum á Reykjanesskaganum vegna spennubreytinga vegna þenslu á töluverðu týpi undir Fagradalsfjalli. Innlent 26.10.2023 15:40
Segir ekkert eldgos að byrja en hrinan haldi áfram Jarðeðlisfræðingur segir að skjálftahrinan á Reykjanesi muni að öllum líkindum halda áfram. Hann segir ekkert benda til þess nú að eldgos sé við það að hefjast. Hann segir ekkert nýtt að frétta í Bárðarbungu, þrátt fyrir stóran skjálfta sem mældist þar í gær. Innlent 25.10.2023 22:21