Sveitarstjórnarmál
35 36 37 38 39 40 … 40 ›
Vatnsleysuströnd verður að bæ Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur. Innlent 7.11.2005 08:52
Já símaskrá ekki til sölu Hvorki Já símaskrá né starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði eru til sölu. Þetta voru svörin sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, fékk á fundi sínum með stjórnarformanni Já símaskrár í dag að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. Innlent 4.11.2005 17:49
Meiri afgangur en búist var við Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra. Innlent 2.11.2005 22:32
Bærinn vill kaupa starfsstöðina Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði. Innlent 28.10.2005 10:56
Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna. Innlent 28.10.2005 10:24
Göngubrúin er slysagildra Aðstæður fyrir gangandi vegfarendur við Hringbraut eru víða erfiðar og hættulegar. Göngubrú yfir götuna endar í lausu lofti. Innlent 26.10.2005 22:22
Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði. Innlent 26.10.2005 07:21
Deildarstjóri fái miskabætur Akureyrarbær verður að greiða deildarstjóra hjá bænum sjö hundruð þúsund krónur í miskabætur samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Maðurinn heldur jafnframt starfi sínu hjá bænum en hann og bæjaryfirvöld deildu um hvort hann ætti enn rétt á starfinu eða ekki. Innlent 24.10.2005 13:50
Borgin fær hálfan milljarð Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi. Innlent 24.10.2005 08:38
Kosið um 16 sameiningartillögur Kosningar um sameiningu 61 sveitarfélags hér á landi fara fram næstkomandi laugardag. Kosið er um 16 sameiningartillögur en tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið. Á kjörskrá eru 69.144. Fæstir eru á kjörskrá í Mjóafjarðarhreppi, eða 32, en flestir í Hafnarfirði, eða 15.570. Innlent 23.10.2005 15:02
Tekur fyrir uppsagnartillöguna Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í dag taka afstöðu til tillögu sem Gísli Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar, hyggst leggja fram um uppsögn Ársæls Guðmundssonar, sveitarstjóra Skagafjarðar. Innlent 23.10.2005 15:02
Hótar sameiningu með lögum? Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra hafa hótað þeim, sem ekki samþykktu sameiningu sveitarfélaga í kosningunum nú, að sveitarfélögin verði sameinuð með lögum. Hann segir Árna nær að skoða réttlátari og sanngjarnari tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Innlent 23.10.2005 15:02
Allir andvígir sameiningu Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október. Innlent 14.10.2005 06:42
Hvetja til að hafna sameiningu Samtök sem ætla að hvetja landsmenn til að hafna sameiningu sveitarfélaga í kosningum í næsta mánuði eru að verða til í Svarfaðardal. Bitur reynsla heimamanna af sameiningu norðanlands veldur því að forsvarsmenn sjá ástæðu til að vara aðra landsmenn við. Innlent 14.10.2005 06:41
Dróst vegna fjarveru starfsmanna Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, hefur svarað fyrirspurnum Oktavíu Jóhannesdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, um umdeilda lífskjararannsókn sem unnin var fyrir bæjarstjórn Akureyrar. Í svörum bæjarstjórans segir að ástæða þess að kynning niðurstaðna dróst frá maí fram í júlí hafi verið veikindi og fjarvera starfsmanna og bæjarfulltrúa. Innlent 13.10.2005 19:37
Leyndi því að stjórnin væri fallin Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, virðist hafa ætlað að leyna því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn, samkvæmt skoðanakönnum Gallups fyrir Akureyrarbæ í vor. Innlent 13.10.2005 19:35
Hætt við spillingu í lóðaúthlutun? Síðustu lóðum Kópavogsbæjar við Elliðavatn verður úthlutað í sumar. Í Kópavogi er hvorki lóðaútboð né lotterí, heldur úthlutar bæjarráð lóðunum. Formaður skipulagsnefndar segir þetta fyrirkomulag ekki þurfa að bjóða upp á spillingu - flestir sem vilji byggja í Kópavogi fái á endanum lóð. Innlent 13.10.2005 19:23
Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:21
Leikskólinn á Súðavík gjaldfrjáls? Hreppstjórn Súðavíkur veltir nú fyrir sér að gera leikskólann á staðnum gjaldfrjálsan. Gjald fyrir átta tíma dvöl á dag er nú tæpar tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði með fæði. Einnig er möguleiki að byggingarlóðir verði ókeypis og húsbyggjendum verði gefinn kostur á byggingarframlagi frá sveitarfélaginu. Innlent 13.10.2005 19:20
Skerjafjarðarbraut þótti óhagkvæm Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu höfnuðu tengingu miðborgar Reykjavíkur og Álftaness með Skerjafjarðarbraut fyrir þremur árum þar sem hún var talin óhagkvæm. Innlent 13.10.2005 19:20
Óánægðir leikskólastjórar "Ég get fullyrt að leikskólastjórar njóta virðingar hér í bæjarfélaginu og þeir eru ekki notaðir til uppfyllingar frekar en aðrir," segir Gunnsteinn Sigurðsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs vegna óánægjubréfs sem fjórtán leikskólastjórar hafa ritað honum. Innlent 13.10.2005 19:18
Umfangsmesta friðun hér á landi Nú eru á lokastigi umfangsmestu friðunaraðgerðir sem gerðar hafa verið hér á landi. Allt sauðfé í Landnámi Ingólfs verður girt inni í beitarhólfum, en svæðið verður að öðru leyti friðað. Þau 20. 30.000 tonn af hrossataði sem falla til á höfuðborgarsvæðinu geta farið til uppgræðslu. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:07
Skorradalshreppur gegn sameiningu Skorradalshreppur var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi. Innlent 13.10.2005 19:06
Kosið aftur innan sex vikna Einn fámennasti hreppur landsins, Skorradalshreppur, var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var hins vegar samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi. Úrslitin þýða að Skorradalshreppur verður að kjósa aftur innan sex vikna. Innlent 13.10.2005 19:06
Framlögin hafa rúmlega tvöfaldast Framlög ríkisins til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafa meira en tvöfaldast á síðustu sjö árum, úr 3,3 milljörðum króna árið 1998 í 7,1 milljarð 2005. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 13.10.2005 19:03
Hættir vegna trúnaðarbrests Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn Skagafjarðar, hefur hætt þátttöku í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Vinstri - grænna. Bjarni segir ástæðu þessa vera trúnaðarbrest á milli hans og Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar. Innlent 13.10.2005 19:00
Samningar um Arnarnesháls Samningar við verktaka um uppbyggingu á Arnarneshálsi voru undirritaðir á bæjarskrifstofum Garðabæjar í dag. Landið hefur gengið kaupum og sölum og verið í fréttum þess vegna. Innlent 13.10.2005 18:57
Tekjur hækka um 1,5 milljarð Tekjur sveitarfélaga hækka um einn og hálfan milljarð króna á ári samkvæmt samkomulagi tekjustofnanefndar. Tímabundin áhrif á árunum 2006 til 2008 eru um níu og hálfur milljarður segir félagsmálaráðherra. Innlent 13.10.2005 18:55
Leikskólagjöld lækka um fjórðung Leikskólagjöld á Akureyri munu lækka um allt að fjórðung, ef bæjarráð fer að tillögum skólanefndar bæjarins um einföldun og samræmingu gjaldskrárinnar. Verði þetta samþykkt munu leikskólagjöld vegna 650 barna af þeim þúsund sem eru á leikskólum bæjarins lækka um fjórðung, eða um 5700 krónur á mánuði á hvert barn. Innlent 13.10.2005 18:55
Skátar í hávegum í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld. Innlent 13.10.2005 18:48