Viðreisn
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 33 ›
Vonast eftir hraðri uppbyggingu á kjörtímabilinu Oddvitar Framsóknarflokksins og Viðreisnar eru bjartsýnir á að framkvæmdir við nýjar íbúðir og Sundabraut geti farið hratt af stað á kjörtímabilinu. Nýr meirihluti sé einhuga um að drífa Sundabraut áfram. Innlent 7.6.2022 11:03
Fjórir flokkar sem hafi þurft að mætast einhvers staðar Oddviti Viðreisnar segir það fyrsta verk á dagskrá nýs borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík að setja aukinn kraft í húsnæðisuppbyggingu sem verði stórt áherslumál á næsta kjörtímabili. Innlent 6.6.2022 23:46
Einar tekur við af Degi sem borgarstjóri árið 2024 Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og borgarstjóri, mun áfram gegna embætti borgarstjóra Reykjavíkur fyrri hluta kjörtímabilsins, eða til ársloka 2023. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, mun síðan taka við embættinu af Degi í ársbyrjun 2024. Á kjörtímabilinu mun Dagur því gegna embættinu í rúmlega eitt og hálft ár, en Einar í tæplega tvö og hálft ár. Innlent 6.6.2022 15:10
Nýr borgarstjórnarmeirihluti kynntur Hulunni verður svipt af meirihlutasamstarfi og málefnasamningi Framsóknarflokks, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á blaðamannafundi klukkan 15:00 í dag. Vísir fylgist með fundinum í beinni útsendingu og textalýsingu. Innlent 6.6.2022 13:54
Kynna nýjan meirihluta í Elliðaárdal í dag Oddvitar Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík hafa boðað til blaðamannafundar til að kynna nýjan meirihluta við stöðvarstjórahúsið í Elliðaárdal í dag. Innlent 6.6.2022 09:40
Dagur kynnir málefnasamninginn fyrir Samfylkingarliðum annað kvöld Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík mun kynna málefnasamning nýs meirihluta fyrir flokksmönnum sínum í borginni annað kvöld. Fundarboð barst félagsmönnum á níunda tímanum í kvöld. Innlent 5.6.2022 21:09
Fjórflokkarnir í Reykjavík byrjaðir á ritun meirihlutasáttmála Líklegt verður að teljast að flokkunum sem rætt hafa myndun nýs meirihluta í borgarstjórn takist ætlunarverkið enda eru oddvitar þeirra byrjaðir á textavinnu fyrir nýjan meirihlutasáttmála. Reiknað er með niðurstöðu um eða strax eftir helgi. Innlent 3.6.2022 21:07
Enginn skellt á eftir sér hurðum í Elliðaárdalnum Oddviti Pírata í borgarstjórn segir meirihlutaviðræður við Framsóknarflokk, Samfylkingu og Viðreisn um meirihlutasamstarf ganga vel. Í dag hafi velferðarmál, mannréttindamál og húsnæðismál meðal annars verið til umræðu. Hún hafi trú á að flokkunum muni takast að leysa úr eðlilegum álitaefnum á milli flokkanna. Innlent 31.5.2022 19:20
Segir byggingu nýrrar flugstöðvar ekki hafa komið til umræðu Bygging nýrrar flugstöðvar í Reykjavík hefur ekki komið til umræðu í meirihlutaviðræðum sem nú standa yfir í borginni. Oddviti Framsóknarflokksins segir að einblínt hafi verið á samgöngu-, skipulags-, loftslags- og húsnæðismál undanfarna tvo daga. Innlent 30.5.2022 12:00
Vilja stuðla að auknu valfrelsi um hvar fólk vinnur Þingflokkur Viðreisnar vill að vinnumarkaðsráðherra skoði tækifæri í fjarvinnu og móti fjarvinnustefnu fyrir íslenskan vinnumarkað. Þingmaður segir að skrifstofan sé ekki eini vinnustaðurinn sem er í boði og aukið valfrelsi um að vinna heima sé af hinu góða. Innlent 29.5.2022 20:58
Ræða ekki um embættin fyrr en málefnin eru klár Vonir standa til þess að niðurstaða fáist í meirihlutaviðræður Framsóknar, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar á næstu dögum. Ekki hefur verið rætt um hver verður borgarstjóri, en það verður gert þegar flokkarnir þrír hafa náð niðurstöðu um öll málefni. Oddviti Viðreisnar er bjartsýnn á að viðræðurnar muni skila málefnasáttmála milli flokkanna. Innlent 27.5.2022 21:56
Bregðast við fjöldabrottvísun með nýju frumvarpi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar munu leggja sameiginlega fram frumvarp til að bregðast við stöðu þeirra sem nú stendur til að senda úr landi með fjöldabrottvísun. Innlent 27.5.2022 11:01
Rjómablíða í borginni liðkaði fyrir viðræðum Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir að meirihlutaviðræður í Reykavík gangi vel. Hún leyfir sér að vera bjartsýn á að flokkarnir nái saman, en treystir sér ekki til að segja hvenær það verði. Innlent 26.5.2022 19:07
Einar segir að ákalli kjósenda um breytingar í Reykjavík verði svarað Formlegar meirihlutaviðræður hófust í Reykjavík í dag. Oddviti Framsóknarflokksins segir að ákalli kjósenda um breytingar verði svarað. En í samningaviðræðum verði allir að gefa eitthvað eftir. Innlent 25.5.2022 18:31
Formlegar meirihlutaviðræður hefjast í Reykjavík í dag Oddvitar flokkanna sem reyna að mynda meirihluta í Reykjavík koma saman til fyrsta formlega viðræðufundarins eftir hádegi. Reiknað er með að byrjað verði á að setja saman viðræðuáætlun. Síðasti fundur borgarráðs á kjörtímabilinu sem er að líða fór fram í morgun. Innlent 25.5.2022 11:30
Tár féllu á síðasta borgarstjórnarfundi en Vigdís sér ekki eftir neinu Síðasti borgarstjórnarfundur kjörtímabilsins sem er að líða fór fram í dag. Og síðasti fundur í borgarstjórn þýðir auðvitað síðasti dagurinn í vinnunni fyrir þá borgarfulltrúa sem voru ekki kosnir inn í síðustu kosningum. Innlent 24.5.2022 20:11
Búið að mynda meirihluta í Mosfellsbæ Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Viðreisn hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í Mosfellsbæ. Fréttir 24.5.2022 19:07
Hildur segir Sjálfstæðisflokk ekki stunda þvingunar- eða útilokunarpólitík Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, lætur sér hvergi bregða þó Samfylking, Píratar, Viðreisn og Framsóknarflokkur ræði um útfærslu á meirihluta í Reykjavík. Innlent 24.5.2022 14:46
Viðreisn hafi aðkomu frá hægri í meirihlutaviðræðunum Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Viðreisnar í borginni, líst ágætlega á komandi meirihlutaviðræður bandalagsins og Framsóknar í borginni og áréttar sérstöðu Viðreisnar í meirihlutaviðræðunum enda eigi flokkurinn aðkomu í viðræðurnar frá hægri ás stjórnmálanna. Innlent 24.5.2022 14:40
Segir Sjálfstæðisflokk ítrekað hafa reynt samtal við Viðreisn og VG Sjálfstæðisflokkurinn reyndi ítrekað að fá Viðreisn og Vinstri græna til samtals við sig um mögulega meirihlutamyndun. Þetta segir oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann segist ekki ætla að gera kröfu um borgarstjórastólinn áður en meirihlutaviðræður hefjast. Innlent 24.5.2022 14:31
Útilokanir vinstriflokka hafi komið í veg fyrir viðræður til vinstri Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir ekki hafa komið til viðræðna um vinstri meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur vegna útilokana Vinstri grænna og Sósíalista daginn eftir sveitarstjórnarkosningar. Flokkarnir sem nú reyni að mynda meirihluta eigi margt sameiginlegt hvað málefni varðar. Innlent 24.5.2022 13:50
Fátt virðist geta komið í veg fyrir meirihluta BSPC í borginni Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í borginni boðaði til blaðamannafundar í Grósku í Vatnsmýri ásamt oddvitum Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar. Innlent 24.5.2022 11:59
Framsókn, Samfylking, Píratar og Viðreisn hefja formlegar viðræður í Reykjavík Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hefur boðið Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til formlegra viðræðna um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Innlent 24.5.2022 10:06
Gagnrýnir Samfylkingu fyrir að leita til hægri: „Það er hægt að brjóta upp þetta bandalag“ Oddviti Sósíalistaflokks Íslands er afar ósátt með bandalag það sem Samfylking hefur myndað með Pírötum og Viðreisn fyrir meirihlutaviðræður. Bandalagið útilokar algerlega alla meirihlutamyndun í borginni nema þessara flokka við Framsóknarflokkinn. Innlent 23.5.2022 16:56
Samstarfið ekki endilega það sem kjósendur kölluðu eftir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir að mögulegt samstarf flokksins með Samfylkingunni, Pírötum og Viðreisn sé ekki endilega það sem kjósendur flokksins hafi kallað eftir. Hann muni ræða við flokksmenn á morgun um stöðu mála. Innlent 22.5.2022 20:00
Vilja hefja formlegar viðræður við Framsókn í Reykjavík Viðreisn, Samfylkingin og Píratar hafa áhuga á því að fara í formlegar viðræður við Framsóknarflokkinn um myndun meirihluta í borgarstjórn. Oddviti Viðreisnar segir að einhugur ríki um það meðal flokkanna þriggja. Framsókn væri ekki að ganga inn í gamla meirihlutann, sem féll, heldur væri um nýtt upphaf að ræða. Innlent 22.5.2022 13:52
Þórdís Lóa segir línur fara að skýrast í Reykjavík Oddviti Viðreisnar telur að hreyfing gæti komist á meirihlutaviðræður í Reykjavík á morgun og formlegar viðræður gætu hafist eftir helgi. Hún þakkar pent fyrir áskorun oddvita Flokks fólksins um að slíta bandalaginu við Samfylkingu og Pírata en segist vera í því bandalagi af fullri alvöru. Innlent 19.5.2022 19:37
Annar meirihluti ef Framsókn gengur inn í samstarfið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að ef Framsóknarflokkurinn fer í samstarf við þrjá fráfarandi meirihlutaflokkana í borginni þá verði það annar meirihluti en sá sem er að líða undir lok. Ekki sé ólíklegt að Viðreisn og Framsókn vinni saman á nýju kjörtímabili. Innlent 18.5.2022 18:22
„Bæjarstjórastóllinn er vissulega þáttur af þessu samkomulagi“ Á morgun kemur líklega í ljós hvort formlegar meirihlutaviðræður geti hafist milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Tilkall Sjálfstæðismanna til bæjarstjórastólsins geti haft áhrif á viðræður. Innlent 17.5.2022 20:01
Meirihlutarnir fimm sem eru í boði Eftir yfirlýsingar Vinstri grænna um að taka ekki þátt í myndun nýs meirihluta í borgarstjórn og útilokanir Pírata og Sósíalista á samstarfi við suma flokka koma aðeins fimm meirihlutamyndanir til greina í Reykjavík. Innlent 17.5.2022 07:00