Viðskipti
175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 223 ›
Forstjóraskipti hjá KB banka Ingólfur Helgason tekur við starfi forstjóra KB banka á Íslandi af Hreiðari Má Sigurðssyni samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:40
Veita heilbrigðisþjónustu Til verður stærsta einkarekna fyrirtækið á sviði heilbrigðisþjónustu á Íslandi með sameiningu Liðsinnis Solarplexus (LSP) og Sögu heilsu ehf. Sameinað fyrirtæki tekur til starfa á morgun og verður Ásta Möller framkvæmdastjóri. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:39
Sækja á Japansmarkað Atlantis er ungt alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi. Það er með starfsstöðvar í fjórtán löndum og yfir 180 manns í vinnu. Afurðir fyrirtækisins eru aðallega lax og túnfiskur, sem seldur er á kröfuharðasta markað heims fyrir sjávarfang, Japan. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:39
Þjónusta öll undir einum hatti Fyrirtækið JÁ hefur verið stofnað til að taka við af upplýsingaþjónustu Símans, hundrað og átján, og reka undir einum hatti þá þjónustustarfsemi sem heyrt hefur undir Símann. Markmið nýja félagsins er að skerpa áherslur í rekstrinum og efla vöruþróun. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:46
Ryanair vill inn á Noregsmarkað Írska lágfargjaldaflugfélagið Ryanair vill komast inn á norskan innanlandsflugmarkað. Í <em>Vegvísi</em> Landsbankans segir að framkvæmdastjóri Ryanair í Evrópu, Sidean Finn, telji innanlandsflugmarkaðinn í Noregi vera stóran - Noregur sé langt land, og margir þurfi að komast fljótt og ódýrt á milli suðurhlutans og norðurhlutans. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:46
Bílar og stórir hlutir lækka lítið Á meðan bullandi samkeppni ríkir á matvæla-, fata- og raftækjamarkaði gengur illa að ná verði á bílum og öðrum fyrirferðameiri hlutum niður. Þar sjá innflytjendur ekki þörf á að lækka verð þrátt fyrir lágt gengi bandaríkjadals, sem í dag er rúmar 63 krónur, enda erfiðara fyrir viðskiptavini að kaupa þessa hluti erlendis en aðra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:46
Styrkur krónu hafi ekki skilað sér Sterk staða íslensku krónunnar að undanförnu hefur ekki, nema að litlu leyti, skilað sér til neytenda í formi lægra vöruverðs á mörgum innfluttum vörum. Þetta kemur fram á vefriti Alþýðusambands Íslands, vinnunni.is. Þar segir að gengishækkunin hafi skilað sér best inn í verðlag á þeim mörkuðum þar sem bein samkeppni sé við útlönd og auðvelt fyrir neytendur að flytja vöruna milli landa. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:46
Væntingavísitala ekki hærri í 2 ár Væntingavísitala Gallup var birt í morgun og hefur ekki mælst hærri frá því í maí árið 2003. Í <em>Morgunkorni</em> Íslandsbanka kemur fram að neytendur telja stöðu efnahagsmála betri nú en áður og horfur vænlegri. Mat neytenda á atvinnuástandinu hækkaði mest en atvinnuleysi mælist nú um 2% og kaupmáttur er vaxandi. Þrátt fyrir þetta telja lítillega fleiri að efnahagsástandið verði verra eftir hálft ár en að það verði betra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:46
Græða hálfan þriðja milljarð Fjórtán lykilstjórnendur í KB banka hafa hagnast um 2,5 milljarða á hlutabréfaeign sinni í bankanum frá áramótum. Þar af hafa hlutabréf í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra KB banka, og Sigurðar Einarssonar stjórnarformanns hækkað samanlagt um 700 milljónir króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:46
Hátt olíuverð dragi úr vexti Olíuverð er nú komið upp í 70 dollara á fatið á heimsmarkaði og er hækkunin einkum rakin til spennu vegna hugsanlegra áhrifa fellibylsins Katarínu, en nú þegar hefur fjöldi starfsfólks olíuborpalla og olíuhreinsistöðva við Mexíkóflóa verið fluttur á brott í varúðarskyni. Þetta háa olíuverð hefur áhrif á gengi hlutabréfa á markaði og vekjur áhyggjur um að efnahagsvöxtur á heimsvísu gæti dregist saman. Viðskipti erlent 14.10.2005 06:39
Olíuverð hækkar vegna Katrínar Áhrifa Katrínar gætir víðar en í New Orleans og nágrenni því olíuverð hefur snarhækkað síðasta sólarhringinn. Verð á fatinu af hráolíu fór yfir 70 bandaríkjadali í Bandaríkjunum í morgun og hefur ekki verið hærra í meira en tvo áratugi. Olíuframleiðendur við Mexíkóflóa hafa þegar þurft að draga úr framleiðslunni um meira en milljón tunnur á dag og ekki er útséð með hvenær starfsemi þar kemst í samt lag á ný. Viðskipti erlent 14.10.2005 06:39
Yfir 100% hagnaðaraukning Bakkavör Group hagnaðist um 1,4 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er 123 % aukning frá sama tíma í fyrra. Yfirtaka félagsins á matvælafyrirtækinu Geest á árinu kemur inn í rekstur félagsins og ber reksturinn þess merki, segir í afkomutilkynningu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:45
Segir framkvæmdaávinning mikinn Álversframkvæmdir við Reyðarfjörð skapa tvöfalt fleiri störf en KB banki heldur fram, fullyrðir stjórnarformaður Landsvirkjunar. Hann segir þjóðhagslegan ávinning af framkvæmdunum mikinn. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:45
Fríverslunarsamningur við Færeyjar Sala á landbúnaðarafurðum gefin frjáls en hömlur á eignarhaldi erlendra aðila í sjávarútvegi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:44
Framleiddi karamellur í kjallaranum Helgi Vilhjálmsson er eigandi sælgætisgerðarinnar Góu auk þess að fara með umboð fyrir Kentucky Fried Chicken á Íslandi. Helgi hefur rekið Góu frá árinu 1968 og farið frá því að framleiða karamellur í kjallaranum heima hjá sér í að reka sex þúsund fermetra sælgætisverksmiðju. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:44
Atvinnuleysi ekki minna í 4 ár Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í fjögur ár og mælist nú tvö prósent. Bankarnir segja þenslu og verðbólgu á næsta leiti. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:45
Spá launaskriði og verðbólgu Atvinnuleysi mældist aðeins tvö prósent í júlímánuði og hefur ekki mælst minna frá því í desember árið 2001. Bankarnir spá launaskriði og verðbólgu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:44
Samskip opna skrifstofu í Víetnam Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og hefur fjórða skrifstofa félagsins þar nú verið opnuð í Ho Chi Minh borg í Víetnam. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao og Dalian í Kína. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:42
Netverslun sækir í sig veðrið Í fréttabréfi KB banka kemur fram að vinsældir netverslunar hafa aukist jafnt og þétt í Bandaríkjunum á síðastliðnum árum, m.a. vegna þess að bandarískir neytendur eru nú viljugri en áður til þess að gefa upp ýmsar upplýsingar er lúta að fjármálum á netinu, eins og t.d. kreditkortanúmer. Til netverslunar flokkast kaup og sala sem eiga sér stað um netið, að flugmiðum og fjármálaþjónustu undanskilinni. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:44
Auglýst eftir framkvæmdastjóra KEA Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur auglýst starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út 27. ágúst. Andri Teitsson lét af störfum í byrjun ágúst og var sagt að stjórn KEA hefði lagst gegn því að hann tæki sér fæðingarorlof. Síðar kom á daginn að í rauninni var um uppsögn að ræða vegna óánægju með störf Andra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:44
Konur betri á hlutabréfamarkaði Konur eru betri fjárfestar en karlar og standa sig betur á hlutabréfamarkaði. Þetta sýnir ný, umfangsmikil rannsókn norska hlutabréfasambandsins, AksjeNorge, sem nær yfir síðustu tíu ár. Á árunum 1995-2000 var hlutabréfasamsetningin hjá körlunum betri en svo sprakk netbólan og þá tóku konurnar forystuna og hafa haldið henni síðan. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:43
Fundu gas á botni Norðursjávar Orkufyrirtækið Norsk Hydro hefur fundið gas á botni Norðursjávar sem gæti verið þrjú hundruð milljarða króna virði, ef hægt er að nýta það. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:43
Oddaflug ekki yfirtökuskylt Eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar, Oddaflug er ekki yfirtökuskylt vegna eignarhluta síns í FL Group. Yfirtökunefnd hefur síðustu vikur skoðað hvort Oddaflug hefði haft samráð við Baug eða Kötlu Investment um að ná yfirráðum í félaginu. Nefndin telur ekki að um samráð hafi verið að ræða. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42
Hugsanleg innherjaviðskipti skoðuð Kauphöll Íslands skoðar hvort innherjaviðskipti hafi farið fram í FL Group síðustu daga, en veruleg viðskipti voru með bréf í félaginu í gær og hækkaði gengi þeirra um fjögur prósent. Hagnaður félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,3 milljörðum króna og er þetta mesti hagnaður þess frá upphafi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42
Methagnaður hjá FL Group FL group hagnaðist um 2,3 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og er það mesti hagnaður í sögu félagsins. Velta FL group og fjórtán dótturfyrirtækja var 20,1 milljarður króna og jókst um 6,4 prósent frá sama tíma á síðasta ári. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42
Metvika á Vísi - Fjölsóttasti vefur landsins Visir.is mælist enn fjölsóttasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Tæplega 172 þúsund notendur sóttu vefinn í síðustu viku [171.992] og lásu rúmlega níu milljón síður. Heimsóknir á Vísi hafa áður mælst fleiri en met var sett hvað varðar síðuflettingar og innlit. Innlent 13.10.2005 19:42
Hagnaður SAS þrefaldast Hagnaður SAS, stærsta flugfélags á Norðurlöndunum, rúmlega þrefaldaðist á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra. Hagnaður fjórðungsins nam rétt undir 500 milljónum sænskra króna, en á sama tíma síðasta árs nam hann 145 milljónum. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:42
Lítll þjóðhagslegur ávinningur KB-banki segir þjóðhagslegan ávinning vegna álvera smáan og skýrir það með þeirri stefnu að raforkan sé seld nærri kostnaðarverði og með lágri ávöxtunarkröfu til virkjana. Efnahagsleg áhrif áliðnaðar hafa verið ofmetin í umræðu hérlendis, miðað við niðurstöðu sérfræðinga KB-banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42
Samþykktu kaup Samskipa á Seawheel Evrópsk Samkeppnisyfirvöld hafa samþykkt kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel, sem tilkynnt voru fyrr í sumar, sem og fyrirhugaða sameiningu Samskipa við starfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Geest North Sea Line sem Samskip keyptu fyrr á árinu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42
Júlí metmánuður hjá Icelandair Farþegar Icelandair í júlí 2005 voru rúmlega 214 þúsund og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði í sögu félagsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Farþegum fjölgaði um 16,2 prósent frá því í júlí í fyrra en þá voru farþegarnir 184 þúsund. Farþegafjöldinn í júlí í ár samsvarar því að félagið hafi flutt um 70 prósent íslensku þjóðarinnar í mánuðinum, en sú er ekki raunin, því mikill meirihluti farþeganna er erlendur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:42