Viðskipti
194 195 196 197 198 199 200 201 202 … 223 ›
Bankastjóramálin rædd í vikunni Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna ætla að ræða bankastjóramál Alþjóðabankans á fundi sínum í Brüssel í þessari viku. Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í síðustu viku Paul Wolfowitz aðstoðarvarnarmálaráðherra sem bankastjóraefni. Erlent 13.10.2005 18:56
Bann við dreifingu á Kristal Plús var óheimilt Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarmála hefur kveðið upp þann úrskurð að Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, UHR, hafi verið óheimilt að setja dreifingarbann á drykkinn Kristal Plús sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. setti á markað um áramót.Ölgerðin íhugar að krefjast skaðabóta vegna þessa. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:57
Sölumenn óttast um hag sinn Sölumenn á fasteignasölum óttast að löggiltir fasteignasalar séu að reyna að bola þeim út úr starfsgreininni. Það er ekki rétt, að sögn fasteignasala, en báðir aðilar eru sammála um að breyta þurfi lögunum um fasteignaviðskipti. Lífið 13.10.2005 18:56
Bensínið hækkar Lítrinn af 95 oktana bensíni hefur hækkað um um það bil tvær krónur og 70 aura hjá stóru olíufélögunum og er ástæðan sögð þróun heimsmarkaðsverðs. Lítrinn kostar nú um 100 krónur og 30 aura í sjálfsafgreiðslutönkum en er sjö til tíu krónum dýrari með þjónustu. Lítrinn af dísilolíu hefur einnig hækkað um svipaða upphæð. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
Áfram einungis karlar í stjórn Fimm karlar voru endurkjörnir í stjórn Sparisjóðabankans á dögunum. Eina konan sem var í framboði komst ekki að þrátt fyrir áskoranir ráðherra um að reyna að jafna kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
Nýtt viðskiptablað í burðarliðnum Nýtt viðskiptablað lítur dagsins ljós á íslenska fjölmiðlamarkaðnum í næsta mánuði. Það verður gefið út undir merkjum 365 - prentmiðla, sem einnig reka DV og Fréttablaðið. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri fyrirtækisins, segir að blaðið verði gefið út vikulega undir ristjórn Hafliða Helgasonar sem verið hefur blaðamaður á Fréttablaðinu frá stofnun þess. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
Góð afkoma Flugstöðvarinnar 890 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Flugstöðar Leifs Eiríkssonar eftir skatta í fyrra en árið á undan nam hagnaðurinn 547 milljónir króna. Fjölgun farþega, meiri fjármunamyndun og þróun gengis- og vaxtamála hafði mikil áhrif á rekstur félagsins á árinu. Heildartekjur félagsins fyrir árið 2004 námu um 5,8 milljörðum króna og jukust um tæp 28 prósent milli ára. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
Svigrúm fyrir eitt álver í viðbót Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir svigrúm til að reisa eitt álver til viðbótar á Íslandi. Færri álfyrirtæki komist að en vilji. Hún segir að markaðssetning fyrir orkufrekan iðnað sé að skila sér. Talað sé um Ísland sem best varðveitta leyndarmál Evrópu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
Methagnaður hjá VÍS Methagnaður varð af rekstri Vátryggingafélags Íslands í fyrra og fengu allir starfsmenn greiddar 175 þúsund krónur í kaupauka fyrir góðan árangur. Hagnaður eftir skatta varð tveir og hálfur milljarður króna, sem er tæplega sjötíu prósenta meiri hagnaður en árið áður. Tíu eigendur VÍS fá 650 milljónir króna í arð, en meðal eigenda eru Meiður, KB banki og bræðurnir í Bakkavör. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Sameiningartillaga samþykkt Tillaga um sameiningu Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á félagsfundi í MBF í gærkvöldi, en hún hafði áður verið samþykkt í MS. Guðbrandur Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa, verður væntanlega forstjóri nýja fyrirtækisins, sem skipt verður í sex svið. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Ólafur og Pétur stofna Veröld Ólafur Ragnarsson og Pétur Már Ólafsson, fyrrverandi útgefendur hjá Vöku-Helgafelli, hafa stofnað nýtt bókaforlag og ætla að setja fyrstu bækurnar á markað í haust. Forlagið heitir Veröld og segir í tilkynningu frá því að það sé þegar búið að tryggja sér útgáfurétt á ýmsum bókum sem vakið hafa athygli erlendis og einnig gengið frá samningum um íslenskar bækur. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:56
OIíuverð í sögulegu hámarki Olíuverð hækkar enn og er verðið á fatinu nú komið yfir 57 dollara á markaði í New York. Svipaða sögu er að segja af markaði í Lundúnum; þar náði verðið einnig sögulegu hámarki í morgun, þrátt fyrir tilkynningu OPEC-ríkjanna í gær um að þau hygðust auka olíuframleiðslu um tvö prósent. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:55
Lyfjaverksmiðja reist á Húsavík Norskir iðjuhöldar ætla að reisa verksmiðju á Húsavík í sumar. Hún á að framleiða hráefni til lyfjagerðar úr sjávarfangi. Sótt hefur verið um lyfjaleyfi í Svíþjóð og er ætlunin að koma lyfinu á markað víða í Evrópu. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Aukning um 158 þúsundir lestir Botnfiskafli íslenskra skipa í febrúar á þessu ári var rúmlega 52 þúsund tonn miðað við tæplega 45 þúsund tonn í febrúar í fyrra. Heildaraflinn fyrstu tvo mánuði ársins er 158 þúsund lestum meiri en á sama tíma í fyrra, eða 533 þúsund tonn á móti 375 þúsund tonna heildarafla í janúar og febrúar 2004. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Gengi dollarans lækkaði um 0,5% Gengi dollarans gagnvart krónunni lækkaði um hálft prósent á milli daga og var miðgengi Seðlabankans 58,45 krónur. Lækkun evrunnar var svipuð og var miðgengi hennar 78,19 krónur. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Óvíst hvort Wolfowitz verði ráðinn Tilnefning Pauls Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í embætti bankastjóra Alþjóðabankans, hefur vakið hörð viðbrögð. Óvíst er hvort tilnefningin fæst staðfest. Erlent 13.10.2005 18:55
Laun almennra bankamanna há Laun æðstu yfirmanna á almennum vinnumarkaði komast ekki nálægt launum almennra starfsmanna í bönkunum, samkvæmt könnunum Hagstofunnar og Morgunblaðsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Ólafur nær yfirhöndinni í Keri Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, hefur tryggt sér 56 prósenta hlut í Keri í gegnum eignarhaldsfélag sitt Kjalar. Seljandi er Vogun sem er í eigu Kristjáns Loftssonar og Árna Vilhjálmssonar. Ker er eignarhaldsfélag sem ræður för í Samskipum, olíufélaginu Essó og hefur ítök í KB banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Gagnrýnir auglýsingar Olís "Mér þykja þetta heldur einkennileg vinnubrögð hjá Olís að básúna slíkt þegar um gamla könnun er að ræða," segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann gagnrýnir auglýsingaherferð Olís þar sem fram kemur að mikil almenn ánægja sé hjá viðskiptavinum fyrirtækisins samkvæmt könnun Gallup. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Yfirlýsing OPEC marklaus Olíuframleiðsla OPEC-ríkjanna verður aukin á næstunni en það virðist lítil áhrif ætla að hafa á olíuverð á heimsmarkaði sem þokast enn á ný nærri sögulegu hámarki. Sérfræðingar á markaði telja mestar líkur á að verðið hækki áfram í ljósi vaxandi eftirspurnar og í raun sé yfirlýsing OPEC marklaus í því samhengi. Erlent 13.10.2005 18:55
Fiskafli eykst milli ára Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans í síðasta mánuði var 30 þúsund tonnum meiri en á sama tíma í fyrra. Veiddust þá tæp 270 þúsund tonn en aflinn í febrúar á þessu ári varð tæp 300 þúsund tonn. Samanlagt er aflinn fyrstu tvo mánuði þessa árs um 160 þúsund lestum meiri en í fyrra. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
OPEC-ríkin auka olíuframleiðslu OPEC-ríkin ætla að auka olíuframleiðslu til að slá á síhækkandi olíuverð en aukningin hefur engin áhrif á olíumarkaði enn sem komið er. Dollarinn fellur enn fyrir vikið. Viðskipti erlent 13.10.2005 18:55
Skuldabréf fyrir 28 milljarða Alþjóðasvið Landsbankans hefur gengið frá útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 28 milljarðar króna, eða sem jafngildir 350 milljónum evra. Útgáfan skiptist í tvo flokka, 12 milljarðar króna (150 milljónir evra) undir eiginfjárþætti A, og 16 milljarða króna (200 milljónir evra) undir eiginfjárþætti B, og var beint að alþjóðlegum fagfjárfestum. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Kaup Íslandsbanka samþykkt Íslandsbanka barst samþykki norska fjármálaráðuneytisins í gær fyrir kaupum á norska bankanum BNbank. Með samþykkinu hafa öll önnur skilyrði fyrir kaupum á BNbank, sem sett voru fram í tilboðinu, verið uppfyllt. Viðskipti innlent 17.10.2005 23:41
900 milljóna hagnaður FLE Tæplega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eftir skatta í fyrra sem er u.þ.b. þrjátíu prósenta meiri hagnaður en árið þar áður. Að vísu voru tekjur af Íslenskum markaði í fyrsta sinn teknar inn í uppgjörið í fyrra en fyrir utan það var afkomubatinn samt umtalsverður. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Landsbankinn selur Og fjarskipti Landsbankinn og Burðarás hafa selt hlut sinn í Og fjarskiptum, eiganda Og Vodafone og 365 fjölmiðlanna. Landsbankinn hefur átt langa samleið með fyrirtækinu frá kaupum í Íslandssíma fyrir um fimm árum síðan. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Dalurinn ekki ódýrari í 13 ár Gengi bandaríkjadals fór undir 59 krónur í morgun og hefur hann ekki verið svo ódýr síðan árið 1992. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að helstu ástæður fyrir þessu gríðarháa gengi krónunnar séu mikill munur innlendra og erlendra vaxta og vaxandi innlend eftirspurn, m.a. vegna stóriðjuframkvæmda. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:54
Milljarðar svart hjá veitingahúsum Veltan í neðanjarðarhagkerfi veitingageirans nemur milljörðum króna. Formaður Matvís telur að 60-70 prósent starfsmanna á veitingastöðum við Laugaveginn vinni svart. Matvís ætlar í átak gegn svartri atvinnustarfsemi. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Bankarnir með fjórðung íbúðalána Bankarnir hafa tekið til sín fjórðung allra íbúðalána síðan þeir hófu að bjóða upp á þau fyrir rúmu hálfu ári. Bankarnir lána nú að meðaltali 26 milljarða króna í hverjum mánuði en Íbúðalánasjóður fjóra og hálfan milljarð. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:55
Kaupa flugfélagið Sterling Eigendur Iceland Express hafa fest kaup á norræna lágfargjaldaflugfélaginu Sterling. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Pálmi Haraldsson, annar aðaleigenda Iceland Express, segir í viðtali við blaðið að kaupverðið hafi verið um 5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 18:54