Lög og regla
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 120 ›
Annþór vill málið aftur í hérað Verjandi Annþórs Kristjáns Karlssonar krafðist þess fyrir Hæstarétti í gær að máli hans yrði vísað aftur heim í hérað. Í nóvemberlok voru Annþór og Ólafur Valtýr Rögnvaldsson dæmdir í fangelsi fyrir að ráðast inn á heimili mjaðmagrindarbrotins manns og ganga í skrokk á honum. Innlent 13.10.2005 19:06
Hrottaleg árás fyrir Hæstarétt Hrottafengin árás handrukkaranna Annþórs Kristjáns Karlssonar og Ólafs Valtýs Rögnvaldssonar verður tekin fyrir í Hæstarétti í dag. Þeir réðust á mann á sjúkrabeði á heimili hans og barði Annþór hann með kylfu. Innlent 13.10.2005 19:05
Ungt fólk með efni á Suðurnesjum Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar í Keflavík í fyrrinótt. Þrír menn yfir tvítugu voru teknir með minniháttar magn af hassi við Narðvík. Innlent 13.10.2005 19:05
Gerendur fari út í fíkniefnaneyslu Ef enginn stöðvar í tæka tíð þá sem leggja aðra í einelti er mikil hætta á að þeir leiðist út í fíkniefnaneyslu og afbrot síðar á ævinni. Nýjar rannsóknir leiða þetta í ljós. Innlent 13.10.2005 19:05
Erill hjá lögreglunni á Selfossi Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Annars vegar þurfti lögreglan að stöðva slagsmál milli tveggja manna við pylsuvagninn þar í bæ um klukkan fjögur í nótt og aftur stuttu síðar þegar önnur slagsmál brutust út við Kaffibarinn en greiðlega gekk að ganga frá málum og slasaðist enginn í átökunum. Innlent 13.10.2005 19:05
Skemmtun í miðri viku Á nær öllu landinu voru skemmtistaðir opnir síðasta vetrardag og dansleikir víða. Alls sóttu 160 nemendur Menntaskólans á Akureyri dansleik í félagsheimili Ólafsfirðinga, Tjarnaborg. Lögreglan segir ballið hafa farið vel fram. Innlent 13.10.2005 19:05
Skotárás hefur verið upplýst Skotárás á Akureyri um síðustu helgi hefur verið upplýst að sögn lögreglunnar, sem annars þegir þunnu hljóði um rannsóknina. Tveimur mönnum hefur verið sleppt, sem grunaðir voru um að hafa flutt ungan mann nauðugan upp á Vaðlaheiði, látið hann afklæðast og sært hann með loftbyssu í tengslum við fíkniefnauppgjör. Að minnsta kosti annar hinna grunuðu hefur játað. Innlent 13.10.2005 19:05
Öðrum manna úr skotárás sleppt Annar mannanna sem skaut á sautján ára dreng á Akureyri um síðustu helgi hefur játað árásina og gefið greinargóða lýsingu á atburðarrásinni. Honum var sleppt í gær. Innlent 13.10.2005 19:05
Ólæti í miðbæ Hafnarfjarðar Annasamt var hjá lögreglunni í Hafnarfirði í nótt og fengu tveir að gista í fangageymslum hennar vegna mikillar ölvunar og láta í miðbænum. Skýrsla verður tekin af þeim nú í morgunsárið þegar mesta víman er runnin af þeim. Innlent 13.10.2005 19:05
Skotárás á ungan pilt við Akureyri Sautján ára piltur varð fyrir skotárás skammt frá Akureyri síðastliðinn laugardag. Talið er að skotið hafi verið á hann um ellefu skotum úr loftbyssu og sex skotum úr annars konar byssu. Tvær byssukúlur voru fjarlægðar úr piltinum með skurðaðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Innlent 13.10.2005 19:05
Krefjast gæsluvarðhalds Lögreglan á Akureyri fór í gærkvöldi fram á gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn ásamt öðrum manni þar í bæ í fyrrakvöld vegna rannsóknar á fíkniefnamáli. Hinum manninum var sleppt í gær. Innlent 13.10.2005 19:05
Árekstur í gjánni í Kópavogi Lögregla, sjúkralið og slökkvilið landsins höfðu í ýmis horn að líta í gær. Innlent 13.10.2005 19:05
2 ára fangelsi fyrir bílaíkveikju Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa hellt bensíni yfir og kveikt í bifreiðum á bílastæði fjölbýlishúss í Hafnarfirði í fyrra, með þeim afleiðingum að eldur barst í gluggakarma á jarðhæð hússins og stofnaði maðurinn með því í hættu lífi níu sofandi íbúa hússins. Innlent 13.10.2005 19:05
Rannsókn skotárásar langt komin Lögreglan á Akureyri er langt komin með rannsókn skotárásar sem sautján ára piltur varð fyrir skammt frá Akureyri á laugardag. Tveir voru handteknir vegna málsins, annar játaði fljótlega og var sleppt úr haldi en hinn var úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 19:05
Dómur fyrir sölu á aflahlutdeild Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun karlmann á fimmtugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa selt alla aflahlutdeild frá skipi, án samþykkis Sparisjóðs Keflavíkur, sem átti skuldabréf sem hvíldu á skipinu og aflakvóta þess. Innlent 13.10.2005 19:05
Ákæran 900 þúsundum lægri Verjandi Jóns Árna Rúnarssonar fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans sagði ekki hægt að sakfella hann fyrir fjárdrátt þó hann hefði ekki gefið tekjurnar upp til skatts. Jón Árni er ákærður fyrir að draga að sér 28 milljónir auk 450 þúsund króna skjalafals.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:05
Ránið í 10-11 upplýst Lögreglan í Kópavogi hefur upplýst ránið sem tveir menn frömdu í í versluninni 10-11 við Engihjalla fyrir viku. Ræningjarnir, sem eru 19 og 22 ára, hótuðu afgreiðslustúlku þar að stinga hana á hol með skrúfjárni ef hún afhenti þeim ekki allt lausafé, sem hún gerði. Innlent 13.10.2005 19:05
Skemmdi tvo bíla lögreglu Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild í fyrrinótt eftir að hafa lent í eltingarleik við ölvaðan ökumann sem ók um á ofsahraða. Tókst loks að stöðva för hans við Rauðavatn ekki fyrr en brotamaðurinn hafði ítrekað ekið fram og aftur á þá tvo lögreglubíla sem króað höfðu hann af. Innlent 13.10.2005 19:05
Tryllt árás í miðbænum Lögreglan í Reykjavík leitar tveggja til fjögurra ofbeldismanna úr átta manna hópi sem réðust á tvo menn af tilefnislausu fyrir utan Hverfisbarinn í miðborginni á laugardagskvöldið. Mennirnir hafa lagt fram kæru. Árásin var tekin upp á myndband öryggismyndavéla sem gæta gestanna á staðum. Innlent 13.10.2005 19:05
Skemmdir unnar á strætóskýlum Skemmdarvargar brutu sex rúður í fimm strætisvagnabiðskýlum á Akureyri seint í nótt og eru þeir ófundnir. Engin tilkynning barst um verknaðinn og er því ekkert vitað að svo stöddu hverjir voru þarna að verki. Tjónið nemur um hálfri milljón króna og biður lögreglan á Akureyri þá sem eitthvað kunna að vita um málið að láta sig vita. Innlent 13.10.2005 19:05
Skólabygging brann "Þetta er auðvitað áfall fyrir okkur en þetta hefur ekki bein áhrif á skólastarfið þar sem þarna var ekki um eiginlega skólastofu að ræða," segir María Pálmadóttir, aðstoðarskólastjóri Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Innlent 13.10.2005 19:05
Forðuðu stórtjóni af völdum elds Snarræði bænda á bænum Þórustöðum á Ströndum og nágranna þeirra kom í veg fyrir að stórtjón og fjárfellir hlytist af eldi sem kviknaði í dráttarvél á bænum í gær. Hún stóð við fjárhús þar sem kindur voru inni. Bændurnir héldu eldinum í skefjum þar til slökkviliðið á Hólmavík kom á vettvang og slökkti hann. Innlent 13.10.2005 19:05
Skemmdi tvo bíla lögreglu Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild í fyrrinótt eftir að hafa lent í eltingarleik við ölvaðan ökumann sem ók um á ofsahraða. Tókst loks að stöðva för hans við Rauðavatn ekki fyrr en brotamaðurinn hafði ítrekað ekið fram og aftur á þá tvo lögreglubíla sem króað höfðu hann af. Innlent 13.10.2005 19:05
Mál vegna Kjarvalsverka þingfest Mál erfingja Jóhannesar Kjarvals gegn Reykjavíkurborg var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erfingjarnir krefjast þess að Reykjavíkurborg láti af hendi rúmlega 5000 málverk og yfir eitt þúsund bækur sem borgin telur að listamaðurinn hafi gefið sér árið 1968. Innlent 13.10.2005 19:05
Stæra sig af árásum á heimasíðu Tveir urðu fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Þeir sem hafa verið kærðir eru í hópi manna sem kalla sig Fazmo og halda úti heimasíðu þar sem greint hefur verið frá árásum hópsins en lýsingarnar hafa nú verið teknar af síðunni. Innlent 13.10.2005 19:05
Reykjavíkurborg og Kjarval Eftirlifandi kona listamannsins Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals og dótturdóttir hans stefndu í gær Reykjavíkurborg fyrir hönd dánarbús listamannsins. Innlent 13.10.2005 19:05
Skemmdi þrjá bíla með ofsaakstri Háskaakstri ölvaðs ökumanns í Reykjavík í nótt lauk með því tveir lögreglubílar og bíll ökumannsins eyðilögðust og fjórir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar og rannsóknar en enginn var þó alvarlega slasaður. Þegar lögreglumenn sáu bíllinn á ofsahraða á Reykjanesbraut kom í ljós að ökumaðurinn var sá sami og tekinn hafði verið á sama bíl fyrr um nóttina vegna ölvunaraksturs en sleppt aftur. Innlent 13.10.2005 19:05
Fer fyrir Mannréttindadómstóllinn Mannréttindadómstóllinn í Staussburg hefur samþykkt að taka upp mál Sigurðar Guðmundssonar sem dæmdur var í eins og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir að verða barni að bana þegar hann starfaði sem dagpabbi. Innlent 13.10.2005 19:05
Árekstur strætisvagns og jeppa Strætisvagn og jeppabifreið lentu í árekstri í Vesturbænum fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var áreksturinn, sem átti sér stað á mótum Dunhaga og Tómasarhaga, minniháttar og urðu engin slys á fólki. Innlent 13.10.2005 19:04
Ofbeldismanna leitað Lögreglan í Reykjavík leitar enn þriggja til fjögurra manna sem börðu tvo menn til óbóta í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Árásirnar virðast báðar hafa verið tilefnislausar og þekkja fórnarlömbin ekkert til árásarmannanna. Innlent 13.10.2005 19:04