Innlent
209 210 211 212 213 214 215 216 217 … 334 ›
Marel verður stærst í heimi með Stork Stjórn og hluthafar fyrirtækjasamstæðunnar Stork N.V. í Hollandi takast á um stefnumál. Marel horfir til þess að verða stærsta matvælavinnslukerfafyrirtæki í heimi með yfirtöku á Stork Food Systems. Viðskipti innlent 8.10.2006 22:02
Erlent grænmeti selt sem íslenskt Borið hefur á því að garðyrkjuvörur séu merktar vistvænar án þess að uppfylla þau skilyrði og sem íslensk framleiðsla án þess að varan sé ræktuð hér á landi heldur aðeins pakkað. Þetta segir Helga Hauksdóttir hjá Sambandi garðyrkjubænda. Innlent 8.10.2006 22:03
Ráðgjafar að drukkna í álagi Sjö starfsmenn reyndu að svara 1.870 fyrirspurnum skjólstæðinga Tryggingastofnunar ríkisins síðastliðinn miðvikudag. Þeir, sem á annað borð ná í gegn, mega bíða í góðan klukkutíma til að fá viðtal og getur munað um minna fyrir farsímanotendur. Að auki heimsækja skrifstofuna allt að fimm hundruð viðskiptavinir á degi hverjum. Innlent 8.10.2006 22:03
Óvanar að þurfa að berjast Hlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða hefur tvöfaldast á tveimur árum og er nú komið í 26,7 prósent, eða 31 kona af 116 stjórnarmönnum. Árið 2004 voru konur átján af 132 stjórnarmönnum eða 13,6 prósent. Innlent 8.10.2006 22:02
Sautján gefa kost á sér Prófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi verður haldið 4. nóvember en þar gefa sautján einstaklingar kost á sér. Efstu fimm sætin eru bindandi að teknu tilliti til jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um að hvort kyn skuli hafa að lágmarki fjörutíu prósent fulltrúa. Innlent 8.10.2006 22:03
Sonja í fjórða til fimmta sæti Sonja B. Jónsdóttir, myndlistarkennari og kvikmyndagerðarmaður, sækist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri þingflokks Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 8.10.2006 22:03
Ræddu útrás Íslendinga og sóknarfæri Forseti Finnlands, Tarja Halonen, bauð í gær fjórum íslenskum athafnamönnunum til fundar, þeim Björgólfi Thor Björgólfssyni kaupsýslumanni, Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra KB-banka, Hannesi Smárasyni, forstjóra FL-Group, og Róbert Wessman, forstjóra Actavis. Innlent 8.10.2006 22:03
Í framboð í Suðurkjördæmi Birgitta Jónsdóttir Klasen, náttúrulæknir í Keflavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í fimmta til sjötta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Innlent 8.10.2006 22:03
Sækist eftir fjórða sæti Jens Sigurðsson, formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi, gefur kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 8.10.2006 22:03
Gefur kost á sér í efstu sætin Ragnheiður Jónsdóttir, sýslufulltrúi á Húsavík, gefur kost á sér í 1. til 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Innlent 8.10.2006 22:02
Gefur kost á sér í níunda sæti Grazyna Maria Okuniewska hefur ákveðið að bjóða sig fram í níunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Innlent 8.10.2006 22:03
Gefur kost á sér í fjórða sæti Guðmundur Steingrímsson blaðamaður og tónlistarmaður gefur kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 8.10.2006 22:03
Vilja styrkan Íbúðalánasjóð Félag fasteignasala fagnar tillögum stýrihóps félagsmálaráðherra um að staðinn sé vörður um stefnu íslenskra stjórnvalda í húsnæðismálum og Íbúðalánasjóð. Í ályktun félagsins segir að þeirri áratuga uppbyggingu sem stjórnvöld hafi unnið að í húsnæðismálum með því að skilgreina þau sem velferðarmál megi ekki raska vegna hagsmuna bankanna. Innlent 8.10.2006 22:02
Skiluðu fánanum til lögreglu Tveir ungir menn skiluðu rússneska fánanum í gærmorgun en honum hafði verið stolið aðfaranótt laugardags úr garði rússneska sendiráðsins við Garðastræti 33 í Reykjavík. Innlent 8.10.2006 22:03
Norrænt námskeið sérsveita Um þessar mundir stendur yfir samnorrænt riffilskyttunámskeið sérsveita frá öllum Norðurlöndunum og Þýskalandi í Hvalfirðinum. Guðmundur Ómar Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í sérsveit Ríkislögreglustjóra, segir svona námskeið mikilvæg þar sem lögregluliðin séu að kynna hvort fyrir öðru búnað, æfingatækni og aðrar nýjungar. Innlent 8.10.2006 22:03
Ferðamenn streyma enn að Kárahnjúkum í október Rútufarmar af ferðamönnum streyma enn á Kárahnjúkasvæðið, þótt komið sé fram í október, og íhuga Landsvirkjunarmenn nú að framlengja opnunartíma upplýsingamiðstöðvar við Valþjófsstað til að mæta ásókninni. Innlent 8.10.2006 19:16
Vilja virkja í Skagafirði til að hækka laun og draga úr fólksflótta Baráttusamtök hafa verið stofnuð gegn virkjun fallvatna Skagafjarðar. Hugmyndir sveitarstjórnar eru háðar því skilyrði að orkan verði einungis nýtt innan héraðs, og vonast ráðamenn til að þannig megi draga úr fólksflótta og stuðla að því að héraðið hætti að vera láglaunasvæði. Innlent 8.10.2006 19:32
Landlæknir treystir yfirlækni á Sogni Matthías Halldórsson, starfandi landlæknir telur að það þurfi að bæta aðstöðu og fjölga plássum á réttargeðdeildinni að Sogni. Hann segist treysta dómgreind yfirlæknisins á Sogni sem varð að senda geðsjúkan afbrotamann í leyfi til þess að losa pláss vegna bráðainnlagnar. Innlent 8.10.2006 18:37
Sáttaviðræður milli DV og Jónínu Ben Málflutningi í máli sem Jónína Benediktsdóttir höfðaði gegn DV vegna umfjöllunar um einkalíf hennar var frestað í vikunni vegna tilboðs um að dómsátt yrði gerð í málinu. Í tilboðinu felst að fjölmiðillinn greiði Jónínu bætur og biðji hana afsökunar á umfjölluninni. Innlent 8.10.2006 18:34
Fundað eftir helgi vegna uppsagna starfsmanna Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði ætlar að funda eftir helgi um uppsagnir þriggja starfsmanna hjá Alcan. Rafiðnaðarsamband Íslands hótaði því fyrir helgi að beita sér gegn stækkun álversins í Straumsvík vegna uppsagna þriggja starfsmanna hjá Alcan fyrir helgi. Innlent 8.10.2006 16:56
Stærsta hundasýning sem haldin hefur verið Stærsta hundasýning sem haldin hefur verið á Íslandi var um helgina í Reiðhöllinni í Víðidal. Sýndir voru um 700 hundar af hinum ýmsu tegundum. Lífið 8.10.2006 16:47
Íslenskar mjólkurafurðir kynntar í Bandaríkjunum Íslenskar mjólkurafurðir hafa síðustu daga verið kynntar verslunum Whole foods market í Washington. Á heimasíðu Landssambands kúabænda segir að íslensku vörurnar hafi hlotið góðar viðtökur. Innlent 8.10.2006 16:39
Valgerður vill áfram leiða í Norðausturkjördæmi Tvöfalt kjördæmisþing kemur til með að velja á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þingið verður haldið 13. janúar og munu fulltrúar þar raða í tíu efstu sætinu á listanum. Valgerður Sverrisdóttir leiddi lista flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum. Í samtali við NFS sagði Valgerður að hún gæfi að sjálfsögðu kost á sér fyrir komandi kosningar. Innlent 8.10.2006 15:50
Katrín vill leiða lista Katrín Jakobsdóttir, varaþingmaður Vinstri-grænna, sækist eftir efsta sæti sameiginlegu prófkjöri flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum og í Suðvesturkjördæmi. Katrín hefur verið varaformaður flokksins frá árinu 2003 en hún var varaborgarfulltrúi Reykjarvíkurlistans á síðasta kjörtímabili. Prófkjörið verður haldið 2. desember næstkomandi. Innlent 8.10.2006 15:19
Grbavica verðlaunuð á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Grbavica hlaut í gærkvöldi aðalverðalaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar. Myndin er eftir Jasmila Zbanic. Grbavica heitir eftir samnefndu hverfi í Bosníu. Í tilkynningu frá hátíðinni segir að myndin sé raunsæ og áhrifamikil en hún tekur á erfiðleikum eftirstríðsáranna í Bosníu. Innlent 8.10.2006 15:09
Stillt upp hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi Stillt verður upp á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið á kjördæmaráðsþingi flokksins sem fer fram á Ísafirði nú um helgina. Innlent 8.10.2006 15:04
Birkir Jón sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sækist eftir 2. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Birkir lýsti þessu yfir á kjördæmaráðsþingi flokksins sem nú stendur yfir á Djúpavogi. Innlent 8.10.2006 14:32
Réttað í Þverárrétt Búið er að rétta um mest allt land en í dag fara einar síðustu réttir haustsins fram í Eyjafjarðarsveit. Réttað er í Þverárrétt í dag og hófust stóðréttir þar klukkan tíu í morgun. Innlent 8.10.2006 14:09
Skiluðu rússneska fánanum Tveir karlmenn um tvítugt skiluðu skömmu fyrir hádegi í dag rússneskum fána sem þeir stálu af lóð rússneska sendiráðsins. Mennirnir skiluðu fánanum á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Teknar voru af þeim skýrslur en þeir ásamt þriðja manninum brutust inn á lóð rússneska sendiráðsins við Túngötu aðfaranótt laugardags, eftir að hafa verið að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur. Rússneska sendiráðið lítur málið alvarlegum augum Innlent 8.10.2006 13:46
Geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum Talið er að um 2000 útlendingar starfi hér réttindalausir á svörtum markaði. Formaður Matvíss er uggandi fyrir hönd félagsmanna sinna og segir fyrir neðan allar hellur að geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum á Íslandi. Innlent 8.10.2006 13:29