Ástin á götunni
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 334 ›
Englendingar unnu Pólverja Enska landsliðið lagði það pólska 2-1 í lokaleik sínum í undankeppni HM í kvöld og tryggði sér þar með sigurinn í riðlinum. Michael Owen og Frank Lampard skoruðu mörk enska liðsins, sem hafði nokkra yfirburði í leiknum.> Sport 23.10.2005 18:59
Byrjunarlið Íslands gegn Svíum Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Svíum á Rasunda leikvanginum í undankeppni HM nú klukkan 17:30. Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum. > Sport 23.10.2005 18:59
Ísland komið í 3-0 í Svíþjóð Íslenska U-21 árs landsliðið er komið í 3-0 gegn Svíum í Eskilstuna í undankeppni EM og það var Bjarni Þór Viðarsson sem skoraði þriðja markið um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Bjarni skoraði með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Emils Hallfreðssonar, sem hefur lagt upp tvö af mörkum Íslands í leiknum. Hörður Sveinsson skoraði hin tvö mörkin í fyrri hálfleik. Sport 23.10.2005 15:03
Ísland yfir 2-0 gegn Svíum Íslenska U-21 árs landsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forystu í hálfleik gegn Svíum í Eskilstuna í Svíþjóð í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði bæði mörk liðsins á fjórum mínútum undir lok fyrri hálfleiksins. Sport 23.10.2005 15:03
Parlour fór í uppskurð Ray Parlour, leikmaður Middlesbrough, hefur gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla sem hafa hrjáð hann síðan í september og verður líklega frá keppni fram í desember. Sport 23.10.2005 15:03
Henry verður boðinn risasamningur Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið hafi í hyggju að bjóða Thierry Henry stærsta samning í sögu félagsins ef hann fellst á að vera áfram hjá félaginu. Samningurinn myndi hljóða upp á fjögur ár og 100 þúsund pund á viku. Sport 23.10.2005 15:03
Finnan ekki ákærður Varnarmaðurinn Steve Finnan verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að mál hans hefur verið tekið fyrir af saksóknara. Finnan lenti í árekstri við áttræðan mann í janúar á þessu ári, með þeim afleiðingum að maðurinn lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Sport 23.10.2005 15:03
Sérfræðingar óttast enskar bullur Hollenskur sérfræðingur sem hefur að atvinnu að rannsaka fótboltabullur, segir að þrátt fyrir þokkalega hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í knattspyrnu á síðustu tveimur stórmótum, stafi enn hætta af enskum fótboltabullum og bendir á að þær verði undir smásjánni á HM í Þýskalandi næsta sumar. Sport 23.10.2005 15:03
Fær Pleat stöðuhækkun? David Pleat hefur strax verið sterklega orðaður við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, eftir að Velimir Zajec sagði starfi sínu lausu eftir aðeins ellefu mánuði í starfi. Sport 23.10.2005 15:03
Ísland lagði Svía 4-1 Íslenska U-21 árs landsliðið lagði Svía 4-1 í Eskilstuna í Svíþjóð í dag og hafnaði því í fjórða sæti riðils síns í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði tvö marka íslenska liðsins í fyrri hálfleik og þeir Bjarni Þór Viðarsson og Garðar Gunnlaugsson bættu við sitt hvoru markinu í þeim síðari. Emil Hallfreðsson lagði upp þrjú marka íslenska liðsins. Sport 23.10.2005 15:03
Djetou til Bolton Fyrrum franski landsliðsmaðurinn Martin Djetou hefur gengið til liðs við Bolton í ensku úrvalsdeildinni, en hann hafði verið samningslaus síðan hann fór frá franska liðinu Nice á síðustu leiktíð. Djetou er 31 árs og lék áður hjá Fulham á árunum 2002-04. Sport 23.10.2005 15:03
Potsdam hefur áhuga á Margréti Þýska liðið Potsdam átti ekki í teljandi vandræðum með að vinna Val í Evrópukeppninni um helgina, en þjálfari liðsins sagðist hafa hrifist mjög af leik Margrétar Láru Viðarsdóttur og sagðist vilja fá hana til liðs við Potsdam. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Sport 23.10.2005 15:03
Svíar yfirspila Íslendinga Eftir 20 mínútna leik er enn markalaust hjá Svíþjóð og Ísland í leik liðanna í undankeppni HM. Svíar verða að vinna til þess að tryggja sér 2. sætið í riðlinum og komst í umspil um sæti á HM. Íslendingar fengu fyrsta færið... Sport 23.10.2005 15:03
United fylgist með Ballack Þýski landsliðsmaðurinn Michael Ballack mun funda með forráðamönnum Bayern Munchen síðar í þessum mánuði, þar sem nýr samningur verður aðalumræðuefnið. Ekki er búist við að Ballack semji áfram við Bayern, en samningur hans rennur út í sumar. Sport 23.10.2005 15:03
Meiðsli í herbúðum Englendinga Nú hefur verið staðfest að Steven Gerrard mun ekki verða með Englendingum í leiknum gegn Pólverjum um efsta sætið í sjötta riðlinum í undankeppni HM, en auk hans verða þeir Ashley Cole, Sol Campell og David Beckham frá vegna meiðsla og leikbanns. Sport 23.10.2005 15:03
Potsdam leiðir 2-1 í hálfleik Þýska stórliðið Potsdam hefur 2-1 forystu gegn Val í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvelli, en nú er hálfleikur í viðureigninni. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Valsstúlkna, en Guðný Óðinsdóttir náði að jafna metin á 36. mínútu. Þær þýsku komust svo yfir rétt fyrir lok hálfleiksins með glæsilegu marki. Sport 23.10.2005 15:03
Valsstúlkur kjöldregnar af Potsdam Kvennalið Vals var tekið í kennslustund af Evrópumeisturum félagsliða, Potsdam frá Þýskalandi, á Laugardalsvelli í dag. Eftir að leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, opnaðist fyrir allar flóðgáttir hjá Val í þeim síðari og niðurstaðan 8-1 sigur þýska liðsins. Sport 23.10.2005 15:03
Þær þýsku nýttu færi sín Þýsku Evrópumeistararnir í Potsdam sigrðu Valsstúlkur á Laugardalsvelli 8-1 í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Margrét Lára Viðarsdóttir átti stórleik í framlínu Vals. Sport 23.10.2005 15:03
Sven-Göran bjartsýnn Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands segir að liðið geti vel orðið heimsmeistari í Þýskalandi ef það verður heppið varðandi meiðsli lykilmanna. Enska landsliðið tryggði sér farseðilinn til Þýskalands um helgina eftir að Holland bar sigurorð af Tékklandi. Sport 23.10.2005 15:03
Damien Duff meiddur Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff verður frá keppni í nokkrar vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Kýpur á laugardaginn og missir því af leiknum mikilvæga gegn Sviss á miðvikudag. Sport 23.10.2005 15:03
Gallas vill fara frá Chelsea Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea hefur gefið það út að hann muni jafnvel fara frá liðnu þegar samningur hans rennur út eftir næsta keppnistímabil, því hann segist þurfa nýja áskorun áður en hann leggur skóna á hilluna. Sport 23.10.2005 15:03
Sigurður til Grindavíkur? Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Sigurður Jónsson taka við af Milan Stefán Jankovic sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður stýrði Víkingum í sumar með góðum árangri og kom liðinu upp í Landsbankadeildina þrátt fyrir harða samkeppni frá KA-mönnum. Sport 23.10.2005 15:03
Fjórir nýliðar frá Afríku á HM Mikil dramatík var í Afríkuriðlum undankeppni HM í dag, en eftir leiki dagsins var ljóst að þrjú lönd úr álfunni færu á heimsmeistaramótið í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru Togo, Gana, Fílabeinsströndin og Angóla. Sport 23.10.2005 15:03
Englendingar komnir yfir Englendingar eru komnir yfir gegn Austurríkismönnum í undankeppni HM, en leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester. Það var Frank Lampard sem skoraði markið úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að brotið hafði verið á Michael Owen í teignum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 23.10.2005 15:03
Toshack ánægður með sína menn John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hrósaði sínum mönnum fyrir góðan baráttuanda þegar liðið lagði Norður-Íra 3-2 í hörku leik í Belfast í dag, en Ryan Giggs skoraði sigurmark Wales úr aukaspyrnu eftir að þeir höfðu misst niður tveggja marka forystu sína. Sport 23.10.2005 15:03
Skotar töpuðu illa og eru úr leik Vonir Skota um að komast í lokakeppni HM í Þýskalandi eru formlega úr sögunni eftir að liðið tapaði illa 1-0 á heimavelli fyrir Hvít-Rússum í dag. Það var Vitaly Kutuzov sem skoraði eina mark leiksins, en þegar Norðmenn sigruðu svo Moldavíu 1-0 síðar í kvöld, var ljóst að Skotar væru dottnir út úr myndinni. Sport 23.10.2005 15:03
Írar halda enn í vonina Írar halda enn í vonina um að komast á HM næsta sumar, en þeir lögðu Kýpur 1-0 á útivelli í dag. Það var framherji Sunderland, Stephen Elliot sem skoraði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu leiksins. Írar geta þó þakkað markverði sínum Shay Given sigurinn, því hann varði stórkostlega í leiknum og þar á meðal vítaspyrnu frá heimamönnum. Sport 23.10.2005 15:03
Beckham óhress með rauða spjaldið David Beckham var ekki sáttur við að vera rekinn af leikvelli í leiknum gegn Austurríki nú áðan og sagði bæði gulu spjöldin sem hann fékk hafa verið mjög strangir dómar. Sven-Göran Eriksson tók í sama streng, en var sáttur við sigurinn. Sport 23.10.2005 15:03
Óvíst með Auðun "Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar. Sport 23.10.2005 15:03
Beckham sá rautt David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu leiksins við Austurríki, eftir að hafa fengið að líta sitt annað gula spjald. Dómurinn var nokkuð strangur, því austurríski leikmaðurinn kryddaði brot Beckham nokkuð vel og fiskaði hann í raun útaf. Staðan í leiknum er enn 1-0 fyrir England. Sport 23.10.2005 15:03