Ástin á götunni
305 306 307 308 309 310 311 312 313 … 334 ›
Reid hræðist ekki Zidane Andy Reid, miðjumaður Tottenham Hotspur og írska landsliðsins, segist hlakka til að mæta Frökkum í landsleik annað kvöld og segist hvergi banginn við að mæta goðsögninni Zinedine Zidane, sem eins og kunnugt er hóf að leika með Frökkum á ný á dögunum. Sport 13.10.2005 19:47
Beckham varar við vanmati David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, hefur varað félaga sína við því að vanmeta Norður-Íra, en liðin mætast í undankeppni HM annað kvöld. Sport 13.10.2005 19:47
Klinsmann á undir högg að sækja Það er ekki auðvelt starf að vera landsliðsþjálfari Þýskalands og nú hefur "Keisarinn" Franz Beckenbauer gagnrýnt störf landsliðsþjálfarns Jurgen Klinsmann harðlega, eftir að þýska liðið tapaði 2-0 fyrir Slóvökum á dögunum. Sport 13.10.2005 19:47
Young fetar í fótspor Neville Luke Young, leikmaður Charlton, vill feta í fótspor Gary Neville með enska landsliðinu, en vill ekki gera sér of miklar vonir um að eiga sæti í enska landsliðinu ef það fer á HM í Þýskalandi næsta sumar. Sport 13.10.2005 19:47
Guðjón smalar fólki á völlinn Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, hefur sent út skilaboð til stuðningsmanna liðsins á heimasíðu félagsins, þar sem hann hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á völlinn á laugardaginn til að verða vitni að toppslag í deildinni. Sport 13.10.2005 19:47
Mutu að ná fyrri styrk Rúmenski markaskorarinn Adrian Mutu er óðum að koma til baka eftir sjö mánaða keppnisbann sem hann fékk vegna eiturlyfjaneyslu þegar hann lék með Chelsea og er farinn að skora grimmt fyrir landslið Rúmeníu. Sport 13.10.2005 19:47
Bonhof íhugar að segja af sér Ranier Bonhof , þjálfari U-21 árs liðs Skota, hefur látið í veðri vaka að hann muni segja af sér á næstu dögum í kjölfar neyðarlegs atviks í leik liðsins við Ítali um síðustu helgi, þegar hann leyfði leikmanni að spila sem var í banni í leiknum. Sport 13.10.2005 19:47
Owen þarf að sanna sig Framherjinn Michael Owen segist eiga skilið að vera í enska landsliðshópnum gegn Norður-Írum annað kvöld, en bendir á að hann muni þurfa að sanna að hann eigi þar heima eftir fjarveruna vegna leikbanns. Sport 13.10.2005 19:46
Stoichkov vill skora mörk Hristo Stoichkov, landsliðsþjálfari Búlgaríu, gerir þá kröfu til sinna manna að þeir skori mörk þegar þeir taka á móti Íslendingum í landsleik þjóðanna á morgun, en hann er mjög ósáttur við tap sinna manna gegn Svíum í síðasta leik. Sport 13.10.2005 19:47
Bölvun á íslenska landsliðinu Það má með sanni segja að bölvun hvíli á íslenska landsliðinu í knattspyrnu þegar kemur að því að spila á Balkanskaga en í níu heimsóknum sem liðið hefur átt þangað hefur liðið aldrei unnið sigur. Afrakstur landsliðsins í heimsóknum til Balkanskagans í gegnum tíðina er eitt stig sem náðist gegn Tyrkjum fyrir 17 árum síðan. Sport 13.10.2005 19:47
Tvær breytingar hjá Eyjólfi Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands hefur gert tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum við Króatíu á KR-vellinum á dögunum, en strákarnir mæta Búlgaríu í Sofíu í dag klukkan 14 að íslenskum tíma. Sport 13.10.2005 19:47
Mourinho er ósáttur Franski landsliðsmaðurinn Claude Makelele hjá Chelsea segir að Jose Mourinho sé ósáttur við leik liðsins í úrvalsdeildinni til þessa og segir liðið eiga langt í land með að ná því formi sem það var í undir lok síðustu leiktíðar. Sport 14.10.2005 06:40
Cole treystir á Rooney Ashley Cole hefur mikla trú á að enska landsliðið geti gert góða hluti á HM í Þýskalandi næsta sumar og telur Wayne Rooney vera lykilmann liðsins í þeim efnum. Sport 14.10.2005 06:40
King að ná heilsu Enski landsliðsmaðurinn Ledley King er óðum að ná sér af nárameiðslum sínum og stefnir á að vera með liði sínu Tottenham þegar það tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, Sport 14.10.2005 06:40
Jónas æfur vegna slakrar dómgæslu Jónas Sigursteinsson, þjálfari Þór/KA/KS í knattspyrnu kvenna, var afar ósáttur með Marínó Þorsteinsson, dómara í úrslitaleiknum við Fylki í 1.deild kvenna, en honum lauk með 3-2 sigri Fylkis og vann Árbæjarliðið sér með því sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. Sport 14.10.2005 06:40
Hagnaður hjá Arsenal Hagnaður á rekstri Arsenal á síðasta ári jókst um tæpar níu milljónir punda, en þetta kemur fram í ársskýrslu félagsins sem lögð var fram í morgun. Hagnaður félagsins jókst úr 10,6 milljónum punda í 19,3 milljónir á tímabilinu sem lauk í maí í vor. Sport 14.10.2005 06:40
Wenger fær peninga í janúar Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, mun njóta góðs af góðri afkomu Arsenal þegar leikmannakaupaglugginn opnast á ný í janúar ef marka má orð Keith Edelman, stjórnarmanns Arsenal. Sport 14.10.2005 06:40
Annasöm nótt hjá Paul Robinson Landsliðsmarkverði Englendinga, Paul Robinson hjá Tottenham Hotspur, brá heldur betur í brún þegar hann kom til síns heima eftir landsleikinn gegn Wales um helgina, því í ljós kom að brotist hafði verið inn í íbúð hans á meðan hann var í burtu með landsliðinu. Sport 14.10.2005 06:40
Þorlákur Árnason í Stjörnuna Þorlákur Árnason, sem sagði af sér sem þjálfari Fylkis á dögunum, hefur verið ráðinn til að taka við yngriflokkastarfi Stjörnunnar í Garðabæ og mun verða skólastjóri knattspyrnuskóla félagsins. Sport 14.10.2005 06:40
Campbell nálgast fyrra form Varnarmaðurinn Sol Campell hjá Arsenal er nú í óðaönn að ná fyrra formi eftir erfið meiðsli og í kvöld spilar hann annan leikinn í röð með varaliði félagsins. Talið er að Arsene Wenger muni freistast til að velja hann í aðalliðið í framhaldinu, ef vel tekst til. Sport 14.10.2005 06:40
Kerr og Keane rifust ekki Brian Kerr, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu, hefur þvertekið fyrir að hafa lent í rifrildi við Roy Keane eða nokkurn annan af leikmönnum írska liðsins, en í gær spurðist út að ólga væri innan írska hópsins. Sport 14.10.2005 06:40
Owen aftur í hópinn Sven-Göran Eriksson segir líklegt að Michael Owen muni taka sæti sitt í byrjunarliði enska landsliðsins þegar hann snýr aftur í hópinn gegn Norður-Írum, en hann var sem kunnugt er í leikbanni gegn Wales um helgina. Sport 14.10.2005 06:40
Línur að skýrast fyrir HM2006 Ný styttist í HM í fótbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári og eru línur aðeins farnar að skýrast með hvaða þjóðir munu mætast á stærsta sviði knattspyrnunnar í heiminum. Gestgjfarnir eru sjálfkrafa með í keppninni og eru 13 aðrar þjóðir úr Evrópu sem komast í lokakeppnina þar sem alls 32 landslið komast að. Sport 14.10.2005 06:40
Guðjón fagnar 8 daga hvíld Guðjón Þórðarson þjálfari Notts County segir í viðtali við BBC í dag að hann fagni mjög svo hvíldinni sem leikmenn hans fái í kringum landsleikjakrinuna. Notts County fær 8 daga hvíld eftir talsverða keyrslu í fyrstu umferðunum í ensku 2.deildinni þar sem liðið er efst. Sport 14.10.2005 06:40
Margt jákvætt í okkar leik Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, var vitanlega svekktur yfir úrslitum leiks Íslands og Króatíu á Laugardalsvellinum í gær, þar sem gestirnir höfðu sigur, 3-1, eftir að Eiður Smári hafði skorað fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik. Sport 14.10.2005 06:40
Tap gegn Króötum Íslendingar töpuðu fyrir Krótötum, 1-3, á Laugardalsvellinum í leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslendingar höfðu verðskuldaða 1-0 forystu í hálfleik en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og skoruðu þrjú mörk. Sport 17.10.2005 23:42
Tap fyrir Hollendingum Ungmennalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði fyrir Hollendingum 1-0 í vináttulandsleik í Hollandi í gær. Sport 13.10.2005 19:46
Undanúrslit hafin í 3. deild karla Fyrri viðureignir liðanna í undanúrslitum á Íslandsmótinu í 3. deild karla í fótbolta fóru fram í dag. Sindri Hornafirði og Leiknir Fáskrúðsfirði gerðu markalaust jafntefli á Sindravöllum og Grótta vann Reyni í 9 marka leik á Sandgerðisvelli, 4-5. Sport 13.10.2005 19:46
Ashley Cole í sögubækurnar? Ashley Cole, varnarmaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta ætlar að láta reyna á réttmæti knattspyrnulaganna og áfrýja til gerðardóms, dómi sem yfir hann var felldur á dögunum. Cole var fundinn sekur af aganefnd enska knattspyrnusambandsins um að eiga í ólöglegum viðræðum við Chelsea á meðan hann er samningsbundinn Arsenal. Sport 13.10.2005 19:46
Brynjar B. aftur í byrjunarliðið Landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 18:05 í dag í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Nokkrar breytingar eru á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var gegn S.Afríku. Sport 13.10.2005 19:46