Ástin á götunni
308 309 310 311 312 313 314 315 316 … 334 ›
Pyo á leið til Tottenham Suður-Kóreumaðurinn Lee-Young Pyo er á leið til Tottenham Hotspur frá PSV Eindhoven, ef marka má orð forráðamanna félagsins í morgun. Pyo hefur fyrir löngu sagt að hann vildi fara til Lundúnaliðsins, en fram að þessu hefur hollenska liðið ekki viljað láta hann fara. Sport 14.10.2005 06:39
Tudor ekki til Bolton? Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, hefur að undanförnu unnið að því að öturlega að fá króatíska landsliðsmanninn Igor Tudor til liðs við sig en hann gerði garðinn frægan hjá Juventus á árum áður. Allardyce óttast að hann muni ekki fá Tudor þar sem hann hefur ekki gengið frá samningi ennþá. Sport 14.10.2005 06:39
Charlton gerir tilboð í Rúrik Enska knattspyrnufélagið Charlton hyggts gera HK tilboð í unglingalandsliðsmanninn Rúrik Gíslason, en Rúrik sem aðeins er 17 ára hefur verið til reynslu hjá Charlton í tvígang á síðustu vikum. Sport 14.10.2005 06:39
David James gefst ekki upp Markvörðurinn David James hjá Manchester City ætlar ekki að gefa upp alla von um að komast aftur í enska landsliðshópinn, þrátt fyrir að vera skilinn eftir úti í kuldanum af Sven-Göran Eriksson fyrir leiki Englands í undankeppni HM á næstu dögum. Sport 14.10.2005 06:39
Baros ætlar að skora grimmt Tékkneski framherjinn Milan Baros hjá Aston Villa ætlar að vera iðinn við kolann í markaskorun fyrir nýja liðið sitt og segir að leikstíll liðsins muni hjálpa sér að skora miklu meira en hann gerði þegar hann var hjá Liverpool. Sport 14.10.2005 06:39
Stoke sigruðu Norwich 3-1 Fjöldi leikja fór fram í dag í ensku Championship deildinni í knattspyrnu. Hæst ber 3-1 sigur Stoke City á Norwich og 4-0 útisigur Preston á Ipswich. Sjá úrslit úr Championship deildinni. Sport 14.10.2005 06:39
Landsliðshópur Íslands Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu hafa valið landsliðshópinn sem mætir Króötum og Búlgaríu í næstu viku í undankeppni HM. Ekkert pláss er fyrir þá Bjarna Ólaf Eiríksson leikmann Vals og Harald Frey Guðmumndsson leikmann Álasunds. Sport 14.10.2005 06:39
Kuznetsova úr leik Rússneska tennisstjarnan Svetlana Kuznetsova er úr leik á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis en hún er núverandi meistari. Það var landa hennar, Ekaterina Bychkova sem sigraði hana 6-3 og 6-2 en Bychkova er í 96. sæti heimslistans. Sport 14.10.2005 06:39
U21 hópurinn í knattspyrnu Þrír nýliðar eru í U21 landsliðshópi Eyjólfs Sverrissonar fyrir leikina gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni EM, þeir Ingvar Þór Kale, Andri Júlíusson og Andri Ólafsson. Framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson, sem skorað hefur 6 af 7 mörkum Íslands í keppninni hingað til, er meiddur og getur ekki leikið. Sport 14.10.2005 06:39
David James sparkað Sven Göran Erikson, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu valdi markvörðinn David James ekki í landsliðshóp sinn sem mætir Wales og Norður-Írlandi í næstu viku. James lék illa með Englendingum þegar liðið tapaði fyrir Dönum 4-1 í Kaupmannahöfn. Sport 14.10.2005 06:39
Jafnt gegn Svíum Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu gerði í dag jafntefli, 2-2, gegn Svíum í undankeppni heimsmeistaramótsins en leikið var í Svíþjóð. Sport 14.10.2005 06:39
Ítalski boltinn í gær Livorno bar sigurorð af Leece 2-1 í fyrsta leik ítölsku deildarinnar í gær og Fiorentina vann sigur á Sampdoria 2-1. Ítalíumeistarar Juventus hefja titilvörnina á heimavelli gegn Chievo í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18.30. Sport 14.10.2005 06:39
Eiður Smári á bekknum allan tímann Sjö leikir voru í ensku úrvalsdeildinni í gær. Chelsea vann Tottenham 0-2. Eiður Smári var á bekknum allan tímann. Aston Villa vann Blackburn 1-0, Fulham 1 Everton 0, Man. City 2 Portsmouth 1, West Ham 1 Bolton 2, Wigan 1 Sunderland 0 og WBA 2 Birmingham 3. Chelsea er með 12 stig á toppnum, Man. City er í öðru sæti með 10 stig. Sport 14.10.2005 06:39
Ruud og Rooney afgreiddu Newcastle Wayne Rooney og Ruud van Nistelrooy gerðu mörk Manchester United sem sigraði Newcastle í dag 2-0 í ensku úrvalsdeildinni.Þetta var þriðji sigur United í jafn mörgum leikjum í deildinni. Newcastle eru hins vegar í vondum málum með aðeins eitt stig eftir fjóra leiki. Sport 14.10.2005 06:39
Spænski boltinn í gær Spánarmeistarar Barcelona náðu aðeins markalausu jafntefli á útivelli gegn Alaves í opnunarleik deildarinnar í gærkvöld. Valencia lagði Real Betis að velli 1-0, með marki Pablos Aimar. Sport 14.10.2005 06:39
Raúl tryggði Real sigur Gulldrengurinn Raúl gerði sigurmark Real Madrid gegn Cadiz í fyrsta leik liðsins í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið sigraði nýliðana 2-1 á útivelli. Ronaldo skorði fyrra mark Real en Pavoni jafnaði fyrir Cadiz í byrjun síðari hálfleiks. Raúl gerði svo sigurmark Real fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 14.10.2005 06:39
Frábær úrslit hjá stelpunum Íslenska kvennalandsliðið gerði jafntefli við sterkt lið Svíþjóðar á Nobelstadion í Karlskoga í Svíþjóð. Hanna Ljungberg koma sænska liðinu yfir á 34.mínútu en Ásthildur Helgadóttir jafnaði fyrir Ísland á 49.mínútu með góðum skalla að stuttu færi. Sport 14.10.2005 06:39
Þór lagði Fjölni Sextándu umferð fyrstu deildar karla í knattspyrnu lauk í gær með þremur leikjum. Þór Akureyri vann Fjölni, 3-1, Víkingur Ólafsvík lagði Völsung að velli 1-0 og KS og Haukar gerðu 1-1 jafntefli. KS og Völsungur eru í fallsætum með 13 stig en Fjölnir og HK koma næst með 16 stig og Haukar eru með 17 stig í sjötta sæti. Sport 14.10.2005 06:39
Fullt hús hjá Charlton Charlton lið Hermanns Hreiðarssonar hefur unnið alla þrjá leiki sína í upphafi ensku úrvalsdeildarinnar. Í dag sigraði liðið Middlesbrough 3-0 á útivelli. Mörkin gerðu þeir Dennis Rommendahl, Chris Perry og Darren Bent. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í hjarta Charlton varnarinnar. Sport 14.10.2005 06:39
Liðið sem mætir Svíum Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í undankeppni HM í Karlskoga í Svíþjóð í dag klukkan 15:00. Sport 14.10.2005 06:39
Svakalegt byrjunarlið Real Madrid Fyrsti leikur Real Madrid hófst núna klukkan 19 í spænsku úrvalsdeildinni. Liðið er að leika við Cadiz á útivelli. Ronaldo er búinn að koma Real yfir strax á 4. mínútu en byrjunjarlið Madridarliðsins er all svakalegt. Sport 14.10.2005 06:39
Ísland í 9. sæti Íslenska landsliðið í handknattleik karla 21 árs og yngri tryggði sér 9. sætið á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í morgun með því að bera sigurorð af Ísraelsmönnum, 35-32. Í hálfleik var staðan 18-17 fyrir Íslendinga. Sport 13.10.2005 19:46
Mikilvægur sigur Ólafsvíkinga Víkingur frá Ólafsvík sigraði Völsung 1-0 í botnbaráttuslag í fyrstu deild karla. Mark Ólafsvíkinga gerði Hermann Geir Þórsson á lokamínútum leiksins. Með sigrinum komust Ólafsvíkingar úr mestri fallhættu. Völsungar er hins vegar enn í fallsæti. Þá sigraði Þór Fjölni 3-1 á Akureyri. Sport 13.10.2005 19:46
Guðjón á toppnum Notts County, sem Guðjón Þórðarson þjálfar, er komið í efsta sæti ensku annarar deildarinnar en liðið sigraði Bristol Rovers í dag 2-0. Glyn Hurst gerði bæði mörk County sem eru taplausir að loknum fimm leikjum í deildinni. Sport 13.10.2005 19:46
Fullt hús hjá Bayern Bayern München sigraði Herthu Berlín 3-0 í þýsku úrvaldeildinni í dag. Bayern er nú búið að vinna alla fjóra leiki sína það sem af er móti. Mörk Bayern gerðu Michael Ballack, Memet Scholl og Roy Makaay Sport 13.10.2005 19:46
Áherslan verður lögð á varnarleik Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í dag því sænska á Nobelstadion í Karlskoga í Svíþjóð, en leikurinn er hluti af undankeppni heimsmeistaramótsins. Lið Svíþjóðar er eitt það allra besta í heiminum og hefur margsinnis leikið til úrslita á stórmótum á síðustu árum. Sport 13.10.2005 19:46
Eiður á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen, er á varamannabekk Chelsea sem leikur við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í ensku úrvalsdeildinni í dag. Einum leik er lokið, Birmingham sigraði WBA 3-2. Emile Heskey gerði tvö mörk fyrir Birmingham. Sport 13.10.2005 19:46
Sigur hjá Gylfa og Leeds Gylfi Einarsson og félagar í Leeds sigruðu Norwich 1-0 á útivelli í ensku Championship deildinni. Gylfi var eini Íslendingurinn sem var í sigurliði. Sjá úrslit í ensku Championship deildinni Sport 13.10.2005 19:46
Chelsea sigraði Tottenham Chelsea sigraði Tottenham 2-0 í ensku úrvalsdeildinni. Asier Del Horno og Damien Duff gerðu mörk Chelsea. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan leikinn á varamannabekknum. Sjá úrslit annara leikja og markaskorara. Sport 13.10.2005 19:46
KA sigraði HK KA sigraði HK 2-1 á Kópavogsvelli í kvöld í 1.deild karla. KA komst í 2-0 með mörkum frá Hauki Ingvari Sigurbergssyni og Hreini Hringssyni en Rúrik Gíslason klóraði í bakkann fyrir Kópavogsliðið. Sport 13.10.2005 19:45