Ástin á götunni
317 318 319 320 321 322 323 324 325 … 334 ›
Sigur hjá Guðjóni Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli. Sport 13.10.2005 19:39
Úrslitin úr ensku 1.deildinni. Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir.. Sport 13.10.2005 19:39
Segir Owen að fara til Newcastle Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. Sport 13.10.2005 19:39
Breiðablik færist nær titlinum Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ. Sport 13.10.2005 19:39
Gautaborg er á toppnum Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2. Sport 13.10.2005 19:39
United yfir í hálfleik Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni. Sport 13.10.2005 19:39
Forlan verður okkur erfiður Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn. Sport 13.10.2005 19:39
Allardyce ekki örvæntingarfullur Sam Allardyce, stjóri Bolton, segist ekki verða orðinn örvæntingarfullur í leit sinni að nýjum leikmönnum til að fá til liðsins. Eftir að hafa fengið Javier Borgetti frá Mexíkó hefur Allardyce ekki náð að semja við neinn leikmann. Sport 13.10.2005 19:38
Dudek illa meiddur Jerzy Dudek, markvörður Liverpool fór úr olnbogalið á æfingu með liðinu í dag og missir því af upphafi móts. Meiðslin setja samt ekki strik í reikningin hjá Liverpool því liðið keypti Spánverjann Jose Reyna frá Villareal til að standa í markinu í vetur hjá liðinu. Sport 13.10.2005 19:39
Halmstad er í þriðja neðsta sæti Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad sem beið í gær lægri hlut fyrir Örgryte 2 - 1 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jóhann B Guðmundsson kom inn á sem varamaður í liði Örgryte í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:38
Við þurfum ekki Jenas Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kveðst sannfærður um að Cesc Fabregas, hinn kornungi spænski miðjumaður liðsins, geti fyllt það skarð sem Patrick Vieira skildi eftir sig þegar hann gekk til liðs við Juventus. Sport 13.10.2005 19:38
Ferdinand skrifar undir Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United hefur skrifað undir nýjan fjöguurra ára samning við liðið. Rio gekk til lið við United sumarið 2002 og hefur unnið bæði ensku deildina og bikarkeppnina með félaginu. Sport 13.10.2005 19:39
Giggs stillir upp úrvalsliði Ryan Giggs, leikmaður Manchester United stillti upp liði í blaðinu 4-4-2 sem inniheldur erfiðistu andstæðnum hans í gegnum tíðin. Liðið er skipað... Sport 13.10.2005 19:39
Abramovich á leiðinni til Lyon Kóngurinn sjálfur hjá Chelsea, Roman Abramovich, er á leið til Lyon á morgun til að borga fyrir Mickael Essien, miðjumanns liðsins. Sport 13.10.2005 19:38
Jafntefli hjá Keflavík - Þrótti Keflavík og Þróttur skildu jöfn 3 - 3 í Keflavík. Hörður Sveinsson skoraði tvö mörk heimamanna og nýliðinn ungi frá Færeyjum Simun Samuelsen skoraði eitt mark í sínum fyrsta leik í Landsbankadeildinni. Þórarinn Kristjánsson, Josef Maruniak og Haukur Páll Sigurðsson skoruðu mörk Þróttar. Sport 13.10.2005 19:38
Newcastle vill Owen Real Madrid hefur gefið það út að Newcastle United sé búið að staðfesta áhuga sinn á framherjanum Michael Owen, sem talið er að eigi ekki eftir að eiga sjö dagana sæla í herbúðum spænska liðsins á næstu leiktíð vegna gríðarlegrar samkeppni. Sport 13.10.2005 19:39
Geir eftirlitsmaður á Spáni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á viðureign Real Betis og Mónakó í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast á Manuel Ruíz de Lopera leikvanginum í Sevilla á Spáni á þriðjudagskvöld. Sport 13.10.2005 19:39
Owen byrjar tímabilið með Real Enski sóknarmaðurinn Michael Owen, sem nú er orðaður við annað hvert félag í Englandi, býst fastlega við því að hefja komandi leiktíð á Spáni. Sport 13.10.2005 19:38
Cahill með nýjan samning Tim Cahill, leikmaður Everton gerði í dag nýjan og bættan fimm ára samning við félagið. Cahill var af öðrum ólöstuðum besti leikmaður Everton í fyrra og var markahæsti leikmaður liðsins þrátt fyrir að leika á miðjunni. Sport 13.10.2005 19:39
Klukkutími í leik Fram og Vals Nú er klukkutími í leik Fram og Vals í Landsbankadeild Karla. Leikurinn verður í beinni á Sýn og einnig er hægt að fylgjast með honum á Boltavaktinni hér á Vísi. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið, Fram í botnbaráttunni en Val í toppslagnum. Sport 13.10.2005 19:39
Fylkir - ÍA Hjörtur Hjartarson tryggði Akurnesingum öll stigin gegn Fylki með marki úr vítaspyrnu sem Skagamenn fengu gefins sex mínútum fyrir leikslok í 3 - 2 sigri Skagamanna í Árbænum. Sport 13.10.2005 19:38
Myhre til Charlton Norski landsliðsmarkvörðurinn, Thomas Myhre er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Charlton frá Fredrikstad í Noregi. Aðalmarkvörður Charlton Dean Kiely er meiddur. Myhre hefur leikið áður með Everton og Sunderland. Sport 13.10.2005 19:39
Leikið við Suður-Afríkumenn Suður-Afríkumenn verða mótherjar íslenska landsliðsins í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í næstu viku. Illa hefur gengið að fá mótherja fyrir landsliðið, fyrst gengu Venesúelar úr skaftinu og síðan Kólumbíumenn. Sport 13.10.2005 19:38
Lokeren og Genk skildu jöfn Keppni í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu hófst í gær. Lokeren og Genk gerðu 1-1 jafntefli. Indriði Sigurðsson kom inná á 38. mínútu fyrir Gert Claessens í vörn Genk. Arnar Viðarsson lék allan leikinn með Lokeren, Rúnar Kristinsson byrjaði inn á en Arnar Grétarsson leysti hann af hólmi á 80. mínútu. Sport 13.10.2005 19:38
Ísland U17 náði 7. sæti U17 ára landslið Íslands vann Finna 4-2, á ÍR-velli í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu í dag. Guðmundur Reynir Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Ísland en Hilmir Ægisson og Rafn Andri Halldórsson eitt hvor. Írar urðu sigurvegarar mótsins en þeir lögðu Englendinga 2-0 í úrslitaleiknum. Sport 13.10.2005 19:38
Chelsea vann Arsenal Chelsea lagði Arsenal 2-1 í hinum árlega úrslitaleik Englandsmeistara og bikarmeistara í knattspyrnu en leiknum var að ljúka í Cardiff. Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea en Francesc Fabregas minnkaði muninn fyrir Arsenal. Sport 13.10.2005 19:38
PSG lagði Sochaux í Frakklandi Önnur umferðin í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu fer fram um helgina. Paris St. Germain sigraði Sochaux á útivelli 1-0 og hefur því sigrað í báðum leikjum sínum líkt og Bordeaux sem vann nýliðana í Nancy 1-0. Auxerre sigraði Monaco 2-0 á útivelli. Sport 13.10.2005 19:38
Blikar nær sæti í Landsbankadeild Breiðablik færðist nær sæti í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í gær þegar liðið sigraði Þór með einu marki gegn engu. Kristján Óli Sigurðsson skoraði markið en tveimur leikmönnum Þórs var vísað útaf 10 mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 19:38
Gylfi sat á bakknum hjá Leeds Gylfi Einarsson sat á varamannabekk Leeds Utd sem vann Millwall 2-1 í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Gylfi kom hins vegar ekkert við sögu í leiknum. Þetta var eini leikurinn á dagskrá í deildinni í dag. Sport 13.10.2005 19:38
Arsenal minnkar muninn Francesc Fabregas hefur minnkað muninn fyrir Arsenal, 2-1 gegn Chelsea á Millennium Stadium í Cardiff. Markið kom á 65. mínútu eftir mistök hjá Tiago sem er nýkominn inn á í stað Eiðs Smára. Sport 13.10.2005 19:38