Ástin á götunni
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Davids til Tottenham Hollendingurinn Edgar Davids, sem er á mála hjá Inter Milan gengur að öllum líkindum til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham síðar í vikunni. "Hann er mjög fjölhæfur miðjumaður, hann vinnur boltann, hann getur stjórna spili liðs, með frábært úthald og magnað persónuleika," sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham um Davids. Sport 13.10.2005 19:35
Anderlecht 2-0 yfir gegn Neftchi Anderlecht frá Belgíu er komið 2-0 yfir eftir aðeins 23 mínútna leik gegn FK Neftchi frá Aserbaídjan í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en það var einmitt FK Neftchi sem sló út FH-liðið 4-1 samanlagt í fyrstu umferðinni. Mörkin skoruðu Tihinen á 20. mínútu og Jestrovic á 23. mínútu. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er yfir í hálfleik gegn Kaunas í Litháen 2-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Baravicius kom Kaunas yfir en þeir Cisse og Carrager gerðu mörk Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Inzaghi ætlar að hjálpa Gilardino Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist ekki geta beðið eftir því að fá að spila við hlið Alberto Gilardino sem nýgenginn er í raðir félagsins. Gilardino var keyptur frá Parma fyrir 17,2 milljónir punda en hann er 23 ára. Inzaghi segist vera rétti maðurinn til að kenn honum enn meira. Sport 13.10.2005 19:35
Stelpurnar steinlágu gegn Finnum Íslenska landsliðið í knattspyrnu kvenna 21 árs og yngri tapaði fyrir Finnum 4-1 í leik um 5. sætið á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Íslands. Sport 13.10.2005 19:35
Bolton að styrkja sig Enska úrvalsdeildarliðið Bolton Wanderes heldur áfram að styrkja sig með nýjum leikmönnum og nú hefur liðið fengið til sín Abdoulaye Diagne-Faye frá Lens í Frakklandi á lánssamningi til eins árs. Sport 13.10.2005 19:34
Nýliðar Wigan fá Henchoz Wigan Athletic, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa náð samkomulagi við svissneska landsliðsmanninn Stephane Henchoz. Þessi fyrrum varnarmaður Liverpool hefur undanfarna viku æft með Wigan og náði að sannfæra knattspyrnustjórann Paul Jewell um að hann sé vænlegur kostur. Sport 13.10.2005 19:34
Man Utd sigraði Peking Manchester United sigraði Peking Hyundai 3-0 í hádeginu í dag í Kína en liðið er statt þar í æfingaferð. Paul Scholes gerði tvö marka United en nýji maðurinn Park ji-sung frá Suður Kóreu gerði þriðja markið en það var hans fyrsta í United búningi. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool sigraði 3-1 Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Hlutbréf í Newcastle rjúka upp Hlutabréf í enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle hækkuðu um tæp 18% í dag eftir að orðrómur komst á kreik um að tveir fjárfestar hefðu hug á að kaupa 28,5% hlut Sir John Hall, eins aðaleigenda félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool gegn Kaunas í kvöld Allt bendir til þess að miðjumaðurinn Steven Gerrard verði orðinn klár fyrir Evrópuleik Liverpool gegn Kaunas í kvöld. Hann þurfti að hætta á æfingu á mánudagskvöld vegna meiðsla á ökkla en er líklegast klár fyrir leik kvöldsins. Sport 13.10.2005 19:34
Stuttgart í undanúrslit Stuttgart sigraði Bayern München í undanúrslitum þýska deildarbikarsins 2-1 í kvöld í Alianz Arena nýja heimavelli Bayern München. Roy Makaay gerði mark Bayern en þeir Hitzlsperger og Stranzl mörk Stuttgart sem er stjórnað af Giovanni Trapatoni fyrrum þjálfara Bayern München. Sport 13.10.2005 19:35
Bjarni Þór var bestur í Svíþjóð Mótshaldarar alþjóðlega U18 mótsins sem fram fór í Falkenberg í Svíþjóð völdu Bjarna Þór Viðarsson fyrirliða Íslenska liðsins besta leikmann mótsins. Bjarni Þór hlaut að launum veglegan bikar. Sport 13.10.2005 19:34
Þórður ætlar sér í landsliðið á ný Með tilkomu nýs þjálfara hjá Stoke City, Johan Boskamp, hefur Þórður Guðjónsson fengið fleiri tækifæri með liðinu, en hann var ekki í náðinni hjá forvera Boskamp,Tony Pulis. "Ég ætla mér að vinna mér sæti í liðinu aftur og vonandi dugar frammistaða mín í vetur með Stoke City til þess að komast í hópinn á nýjan leik," segir Þórður. Sport 13.10.2005 19:35
Nunez kominn til Celta Vigo Antonio Nunez hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska liðið Celta Vigo en hann kemur frá Evrópumeisturum Liverpool. Nunez er því aftur kominn í spænska boltann eftir misheppnaða dvöl á Anfield. Sport 13.10.2005 19:34
Figo til Inter? Ítalska liðið Internazionale leiðir kapphlaupið um miðjumanninn Luis Figo hjá Real Madrid samkvæmt fréttum fjölmiðla á Ítalíu í gær. Enska liðið Liverpool er þó enn í baráttunni um leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:35
Örn Arnarson langt frá sínu besta Örn Arnarson, sundkappi úr SH, var eini Íslendingurinn sem keppti á heimsmeistaramótinu í sundi sem fer fram í Montreal í Kanada. Hann keppti í 100 metra baksundi og var í sjöunda milliriðli af tíu. Hann náði sér alls ekki á strik á synti á 57,43 sekúndum sem er langt frá Íslandsmeti hans. Sport 13.10.2005 19:34
Rætt við Essien í þessari viku Peter, Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni ræða við Mickael Essien, leikmann Lyon, síðar í þessari viku með hugsanleg félagsskipti í huga. Sport 13.10.2005 19:34
Ferguson vísar ósætti á bug Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum um að hann og fyrirliðinn Roy Keane hefðu lent í rifrildi. Sport 13.10.2005 19:34
Hannes til Stoke City Hannes Þ. Sigurðusson, framherji ungmennalandsliðsins í knattspyrnu, er genginn til liðs við Stoke City frá Viking í Noregi. Hannes skrifaði undir þriggja ára samning við Stoke en ekki hefur kaupverðið verið gefið upp. Hannes er 22 ára gamall og lék með Fjölni og FH í yngri flokkum áður en hann gekk til liðs við Viking í Noregi. Sport 13.10.2005 19:34
Öruggur sigur Arsenal Arsenal burstaði austuríska liðið Ritzing í æfingaleik ytra í gær, 2-5. Það voru þeir Thierry Henry, Dennis Bergkamp, Jose Reyes, Alexander Hleb og Sebastian Larson sem skoruðu mörk Arsenal í leiknum. Sport 13.10.2005 19:34
Baptista nálgast Highbury Sóknar-miðjumaður Sevilla á Spáni, Julio Baptista er líklega á leiðinni til bikarmeistara Arsenal sagði Jose Maria Del Nido forseti spænska liðsins í vitali við spænska blaðið Marca. "Félögin hafa ekki náð saman um kaupverðið en Arsenal nálgast þá upphæð sem við sættum okkur við," sagði Del Nido enn fremur. Sport 13.10.2005 19:34
Eiður Smári góður gegn AC Milan Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsesa, sem vann 1-0 sigur á AC Milan í æfingaleik í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Sport 17.10.2005 23:42
Rætt við Essien í þessari viku Peter, Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni ræða við Mickael Essien, leikmann Lyon, síðar í þessari viku með hugsanleg félagsskipti í huga. Sport 13.10.2005 19:34
Borgetti til Bolton Jared Borgetti er genginn til liðs við Bolton Wanderers frá mexíkóska liðinu Pachuca. Borgetti, sem sló í gegn í Álfukeppninni í sumar er 31 árs og er markahæsti leikmaður mexíkóska landsliðsins frá upphafi ásamt Hugo Sanchez með 35 mörk. Kaupverðið á kappanum er ein milljón pund Sport 13.10.2005 19:34
Vassel til Man. City Darius Vassell, landsliðsmaður Englands í knatttspyrnu er genginn til liðs við Manchester City frá Aston Villa. Kaupverðið á kappanum sem er 25 ára gamall er um 2,5 milljónir punda. Vassell hefur gert 6 mörk í 22 landsleikjum fyrir England. Sport 13.10.2005 19:34
Haraldur með sigurmarkið gegn RBK Haraldur Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu gerði sigurmark Álasunds gegn meisturunum í Rosenborg í 2-1 sigri í norku úrvalsdeildinni í kvöld. Haraldur gerði markið á 56.mínútu. Stefán Gíslason var í liði Lyn sem tapaði fyrir Fredrikstad 2-1. Sport 13.10.2005 19:34
Norska úrvalsdeildin Lið Árna Gauts Arasonar Valerenga komst í gær upp í annað sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Valerenga sigraði HamKam 2-1. Sport 13.10.2005 19:34
Markalaust hjá Haukum og HK HK og Haukar gerðu markalaust jafntefli í leik liðanna í kvöld í 1. deild karla. Þetta var lokaleikur 11.umferðar. Veldu meira til að sjá stöðuna í deildinni. Sport 13.10.2005 19:34
Haukur Ingi að koma til Knattspyrnumaðurinn Haukur Ingi Guðnason lék á föstudaginn með U23 liði Fylkis sem tapaði 5-0 fyrir U23 liði Þróttar. Þetta er fyrsti leikur Hauks síðan hann sleit krossbönd í hné í mars í fyrra. Hann gekkst þá undir aðgerð og lék ekkert með Fylki í Landsbankadeildinni síðasta sumar. Sport 13.10.2005 19:34