Hernaður
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 54 ›
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. Erlent 9.2.2023 20:06
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. Erlent 9.2.2023 08:58
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. Erlent 8.2.2023 23:06
Vilja eigin kjarnorkuvopn af ótta við Norður-Kóreu Sífellt fleiri íbúar Suður-Kóreu eru þeirrar skoðunar að ríkið eigi að koma upp eigin kjarnorkuvopnum, til móts við vopn nágranna þeirra í Norður-Kóreu. Þá efast margir um að ríkið geti reitt sig á að Bandaríkjamenn komi þeim til varnar komi til stríðs á Kóreuskaganum. Erlent 7.2.2023 23:56
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. Erlent 6.2.2023 22:41
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Norðmenn sinna loftrýmisgæslu við Ísland með öflugustu orrustuflugvélum heims Áttatíu manna norskt herlið auk fjögurra orustuþota af gerðinni F-35 sinna nú loftrýmisgæslu á Íslandi á vegum Atlandshafsbandalagsins. F-35 eru með öflugustu herflugvélum heims en ein slík kostar á bilinu þrettán til fimmtán milljarða íslenskra króna. Innlent 5.2.2023 10:00
Skutu niður njósnabelginn Bandaríkjaher hefur skotið niður loftbelg, sem talinn er vera njósnabelgur frá Kína, utan strönd Suður-Karólínu. Erlent 4.2.2023 19:59
Herflugvélar hringsóla um njósnabelginn Fjórar orrustuþotur hringsóla nú um kínverskan njósnabelg sem svífur skammt utan við Myrtle Beach í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Bandarísk yfirvöld íhuga nú að skjóta belginn niður. Erlent 4.2.2023 18:55
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. Erlent 30.1.2023 10:29
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Töluverðar áhyggjur uppi vegna stöðunnar á Vesturbakkanum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óttast að ástandið á Vesturbakkanum eigi eftir að versna enn frekar eftir að tveimur eldflaugum var skotið frá Gaza í morgun og svarað með loftárásum Ísraelsmanna. Erlent 27.1.2023 11:05
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. Erlent 26.1.2023 08:32
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 31 skriðdreka Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda 31 M1 Abrams skriðdreka til Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa verið tregir til að senda skriðdreka en í gær samþykktu Þjóðverjar að senda 14 Leopard 2A6 skriðdreka á vígvöllinn. Búist er við að fleiri ríki Atlantshafsbandalagsins fylgi þessu fordæmi og sendi skriðdreka til Úkraínu. Erlent 25.1.2023 18:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. Erlent 25.1.2023 10:50
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. Erlent 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. Erlent 24.1.2023 16:52
Biðja formlega um leyfi til skriðdrekasendinga Yfirvöld í Póllandi hafa sent formlega beiðni til Þýskalands um leyfi til þess að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Ráðamenn í Póllandi hafa gefið í skyn að verði beiðninni hafnað muni þeir samt senda skriðdrekana en Þjóðverjar hafa verið undir miklum þrýstingi að undanförnu vegna málsins. Erlent 24.1.2023 11:01
Vopnaframleiðandinn Rheinmetall vill senda skriðdreka til Úkraínu Þýska vopnaframleiðslufyrirtækið Rheinmetall getur séð Úkraínumönnum fyrir 139 Leopard skriðdrekum ef þörf krefur. Frá þessu greindi talsmaður Rheinmetall í samtali við fjölmiðlasamsteypuna RND. Erlent 24.1.2023 07:30
Morawiecki segir framgöngu Þjóðverja óafsakanlega Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, gagnrýndi Þjóðverja í gær fyrir að draga lappirnar hvað varðar útflutning skriðdreka til Úkraínu. Erlent 23.1.2023 07:11
Telur hæpið að Rússar verði reknir á brott á þessu ári Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segist telja óraunhæft að búast við því að Úkraínumenn geti rekið allar rússneskar hersveitir út úr Úkraínu á þessu ári. Hann sagðist ekki telja það ómögulegt en sagðist telja að stríðið í Úkraínu myndi enda við samningaborðið, eins og flest önnur stríð. Erlent 21.1.2023 22:30
Skilgreina Wagner sem alþjóðleg glæpasamtök Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að skilgreina rússneska málaliðahópinn Wagner Group sem alþjóðleg glæpasamtök. Í kjölfar þess verður hópurinn beittur viðskiptaþvingunum sem takmarka eiga umsvif hópsins á heimsvísu. Erlent 21.1.2023 09:07
Macron ætlar í mikla hernaðaruppbyggingu Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í dag áætlun sína um þriðjungs aukningu á fjárútlátum til varnarmála. Samkvæmt áætlun hans á að verja 413 milljörðum evra til hersins á árunum 2024 til 2030, en á síðustu sambærilegu fjárhagsáætlun, frá 2019 til 2025, voru sömu fjárútlát 295 milljarðar. Erlent 20.1.2023 15:56
Samþykkja ekki enn skriðdrekasendingar til Úkraínu Boris Pistorius, nýr varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði við blaðamenn í Ramstein í Þýskalandi í dag að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Hann sagði þó að ráðuneyti hans myndi fara yfir birgðastöðu Þjóðverja og kanna hve marga skriðdreka hægt væri að senda og hve fljótt, verði slík ákvörðun tekin á næstunni. Erlent 20.1.2023 14:25
Rússar segja að sendingar vestrænna skriðdreka muni engu máli skipta Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútíns, forseta Rússlands, segir að hergagnasendingar Vesturlanda til Úkraínu muni ekki hafa nein áhrif á stöðu mála á víglínum landsins. Sendingarnar muni eingöngu auka á vandræði Úkraínumanna. Erlent 20.1.2023 11:17
Serbar æfir vegna auglýsinga Wagner málaliðahópsins Rússneskt fréttamyndskeið þar sem serbneskir sjálfboðaliðar eru sagðir undirbúa sig undir að berjast við hlið Rússa í Úkraínu hefur vakið mikla reiði í Serbíu. Um er að ræða myndskeið framleidd af Wagner-málaliðahópnum, þar sem Serbar eru hvattir til að ganga til liðs við hópinn. Erlent 20.1.2023 07:19
Á að ákveða hvort Úkraína fái vestræna skriðdreka Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti í morgun að hann myndi skipa Boris Pistorius í embætti varnarmálaráðherra. Sá hefur verið innanríkisráðherra Neðra-Saxlands frá árinu 2013 en hans fyrsta verk í nýju embætti verður að taka ákvörðun um það hvort flytja megi Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 17.1.2023 13:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar undirbúa sig fyrir langvarandi stríð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er byrjaður að taka skref í að breyta hinni „sértæku hernaðaraðgerð“, eins og hann kallar innrás Rússa í Úkraínu, í langvarandi stríð. Ríkisstjórn hans vinnur meðal annars að áframhaldandi herkvaðningu og umfangsmiklum breytingum á iðnaðarkerfi Rússlands með því markmiði að halda stríðinu í Úkraínu áfram til lengdar. Erlent 16.1.2023 11:12