Ítalski boltinn
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 198 ›
Mílanóliðin söxuðu á forskot Juventus Heil umferð fór fram í ítalska boltanum í kvöld. Topplið Juventus náði aðeins jafntefli gegn Chievo á útivelli 1-1. AC Milan lagði Ascoli heima 1-0 með marki frá Inzaghi og Inter lagði Treviso á útivelli 1-0 með marki frá Cruz. Juventus heldur þó enn 8 stiga forskoti á Inter sem er í öðru sæti deildarinnar. Sport 18.1.2006 21:52
Leikmaður Vicenza missti handlegg Julio Gonzalez, leikmaður Vicenza á Ítalíu, þurfti að láta taka af sér annan handlegginn á sjúkrahúsi í dag eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi fyrir fjórum vikum. Gonzalez var landsliðsmaður Paragvæ og spilaði stöðu framherja. Sport 18.1.2006 16:39
Vorum hársbreidd frá því að kaupa Ronaldo Luciano Moggi, yfirmaður knattspyrnumála hjá ítölsku meisturunum Juventus, hefur staðfest það sem Cristiano Ronaldo sagði fyrir nokkru, að félagið hafi verið hársbreidd frá því að landa honum þegar hann lék með Sporting Lissabon á sínum tíma. Sport 17.1.2006 15:35
Ætlar að hætta 2009 Fabio Capello, þjálfari Juventus, hefur látið í veðri vaka að hann ætli sér að hætta knattspyrnuþjálfun árið 2009. ástæðuna segir hann að sé löngun til þess að fá meiri frítíma og ferðast um heiminn. Sport 17.1.2006 09:36
Roma lagði AC Milan Brasilíski kantmaðurinn Alessandro Mancini tryggði Roma óvæntan 1-0 sigur á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom á 81. mínútu þvert gegn gangi leiksins en Milan liðið var mun betri aðilinn í leiknum en fóru illa með fjöldamörg færi sín. Sport 15.1.2006 22:34
Juventus slær 56 ára stigamet Alessandro Del Piero skoraði sigurmark Juventus sem vann Reggina, 1-0 í ítalska fótboltanum í dag en með sigrinum sló liðið 56 ára gamalt stigamet nú þegar deildin er hálfnuð. Juve er með 52 stig, tíu stiga forskot á Inter Milan sem lagði Cagliari 3-2 með tveimur mörkum frá brasilíska sóknarmanninum Adriano. Sport 15.1.2006 17:08
Del Piero markahæsti leikmaður Juventus Framherjinn Allesandro del Piero varð í gærkvöld markahæsti leikmaður í sögu Juventus þegar hann skoraði þrennu í auðveldum 4-1 sigri liðsins á Fiorentina í bikarkeppninni. Sport 11.1.2006 03:16
AC Milan lagði Parma í markaleik AC Milan vann nauman sigur á Parma í kvöldleiknum á Ítalíu í kvöld, en Milanomenn máttu þakka fyrir að fara með sigur af hólmi 4-3, eftir að hafa náð 3-1 forystu í leiknum. Gilardino, Kaka og Shevchenko skoruðu mörk Milan í leiknum og eitt markið var sjálfsmark, en Marchionni skoraði tvö mörk fyrir Parma og Cannavaro eitt. Sport 8.1.2006 21:29
Juventus heldur sínu striki Juventus hefur tíu stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki dagsins. Juve sigraði Palermo 2-1 í gær, þar sem Adrian Mutu gerði bæði mörk liðsins, en Inter náði aðeins jafntefli gegn Siena í dag og er því tíu stigum á eftir meisturunum. AC Milan er í þriðja sæti deildarinnar og getur komist upp fyrir granna sína með sigri á Parma á San Siro í kvöld. Sport 8.1.2006 18:22
Hættur fasistakveðjum Ítalinn Paolo Di Canio hjá Lazio segist vera hættur fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum, en hann var á dögunum sektaður og settur í leikbann vegna þessa. "Ég hugsaði málið yfir jólin og hef ákveðið að setja hagsmuni Lazio framar mínum eigin," sagði Di Canio, en benti á að hann stæði þó fast á pólitískum skoðunum sínum engu að síður. Sport 4.1.2006 18:17
Ég er fasisti, ekki rasisti Hinn umdeildi Paolo di Canio hjá Lazio á Ítalíu heldur áfram að valda fjaðrafoki með fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum og hefur verið sektaður og dæmdur í leikbann í kjölfarið. Sjálfur segist hann aðeins vera misskilinn og hefur nú tekið það skýrt fram að hann sé fasisti - ekki rasisti. Sport 26.12.2005 02:50
Juventus varði forskot sitt á toppnum Juventus heldur átta stiga forskoti sínu á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins, en efstu liðin Juventus, AC Milan og Inter unnu öll sannfærandi sigra í gærkvöldi. Sport 22.12.2005 03:19
Fær eins leiks bann fyrir fasistakveðjuna Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio í ítölsku A-deildinni fær eins leiks bann og 10000 evru sekt fyrir fasistakveðjur sínar í leik með liðinu fyrr í mánuðinum. Þetta tilkynnti aganefnd ítölsku deildarinnar í gær. Sport 20.12.2005 15:10
Mílanóliðin í stuði Mílanóliðin AC og Inter söxuðu á forskot Juventus á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag, en liðin unnu bæði sannfærandi 4-0 sigra á andstæðingum sínum. Sport 18.12.2005 17:13
Jafnt hjá Lazio og Juventus Lazio og Juventus skildu jöfn 1-1 í ítölsku A-deildinni í gærkvöldi, en Juve hefur engu að síður 11 stiga forskot á helstu keppinauta sína sem eiga leik í dag. Tommaso Rocchi kom heimamönnum yfir í leiknum, en franski framherjinn David Trezeguet jafnaði skömmu síðar fyrir Juve og það varð lokaniðurstaðan. Treviso skaust af botninum með góðum sigri á Lecce, 2-1. Sport 18.12.2005 14:42
Tapaði áfrýjun sinni gegn Chelsea Framherjinn Adrian Mutu tapaði í dag áfrýjun sinni á hendur fyrrum liði sínu Chelsea á Englandi, en hann var rekinn frá félaginu og samningi hans sagt upp í október á síðasta ári, eftir að Rúmeninn varð uppvís að neyslu kókaíns. Sport 16.12.2005 16:53
Heilsaði aftur að hætti fasista Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio er aftur kominn í fréttirnar á Ítalíu eftir að hann heilsaði áhorfendum að fasistasið með útréttri hendi í leik gegn Livorno um helgina, en hann var fyrir skömmu sektaður um háa fjárhæð fyrir að gera slíkt hið sama þegar hann fagnaði marki. Sport 14.12.2005 15:18
Verður frá út árið Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Juventus er meiddur og verður frá út árið eftir að hafa meiðst á tá á æfngu. Buffon mun því missa af í það minnsta tveimur leikjum en vonir standa til um að hann verði orðinn klár í slaginn þann 7. janúar þegar Juve sækir Palermo heim. Buffon hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili, en hann er einnig ítalskur landsliðsmaður. Sport 14.12.2005 14:55
Við verðum með í baráttunni Roberton Mancini hefur fulla trú á því að lið hans Inter Milan geti veitt AC Milan og Juventus verðuga samkeppni í baráttunni um ítalska meistaratitilinn eftir að lið hans lagði erkifjendur sína í AC í Milanoslagnum í gær, 3-2. Sport 12.12.2005 15:28
Juventus í 10 stiga forystu Juventus náði í dag 10 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta þegar liðið valtaði yfir Cagliari, 4-0. David Trezeguet skoraði tvö mörk fyrir Juve og Pavel Nedved eitt en fjórða markið var sjálfsmark. 7 leikjum er lokið í Serie A í dag. Sport 11.12.2005 16:26
Del Piero jafnaði markamet Juve Framherjinn Allesandro Del Piero jafnaði í gær markamet Giampiero Boniperti hjá Juventus í gær þegar hann skoraði tvö mörk fyrir félagið í meistaradeildinni í 3-1 sigri á Rapid Vín. Þessi mikli markahrókur hefur því skorað 182 mörk fyrir félagið í öllum keppnum. Sport 8.12.2005 17:11
Albertini leggur skóna á hilluna Miðjumaðurinn ítalski Demetrio Albertini hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika sem atvinnumaður eftir langan og glæsilegan feril og ætlar að einbeita sér að því að þjálfa á næstunni. Albertini á að baki glæstan feril með ítalska landsliðinu og AC Milan, þar sem hann gerði garðinn frægan á síðasta áratug. Sport 5.12.2005 17:02
Stórsigur Fiorentina á Milan Fiorentina skaust í annað sæti ítölsku A deildarinnar í dag, þegar liðið vann stórsigur á AC Milan, 3-1. Ítalski landsliðsmaðurinn Luca Toni skoraði tvö marka Fiorentina, sem er í öðru sætinu ásamt Milan eftir sigurinn. Juventus hefur enn fimm stiga forskot í deildinni eftir sannfærandi 4-1 sigur á Roma í gær. Sport 20.11.2005 18:55
Arsenal hafði ekki nógu mikinn áhuga Patrick Vieira miðjumaður Juventus á Ítalíu segir í nýútkominni ævisögu sinni að áhugaleysi Arsenal á að hafa sig áfram, hafi verið þess valdandi að hann yfirgaf félagið í sumar. Vieira segir að það hafi verið orð varastjórnarformanns Arsenal, David Dean, sem hröktu hann til Ítalíu. Sport 13.11.2005 20:00
Juventus heldur toppsætinu Efstu liðin á Ítalíu unnu auðvelda sigra í gær og því er staðan á toppnum í A-deildinni óbreytt eftir leiki helgarinnar. Juventus vann Livorno 3-0 og AC Milan tók Udinese í kennslustund 5-1. Sport 7.11.2005 03:07
Fyrsta tap Juventus AC Milan skellti Juventus, 3-1, í risaslag ítalska fótboltans í gærkvöldi en leikið var á San Siro í Milano. Clarence Seedorf, Kaka og Andrea Pirlo skoruðu fyrir Milan í fyrri hálfleik en David Trezeguet minnkaði muninn fyrir Juve stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þetta var fyrsta tap Juve á tímabilinu en þeir höfðu unnið alla níu leiki sína fyrir leikinn. Sport 30.10.2005 13:27
Juventus setti met Juventus hefur enn fimm stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Sampdoria í gærkvöldi, sem var jafnframt níundi sigurleikur liðsins í röð í upphafi leiktíðar, sem er nýtt met í A-deildinni. Sport 27.10.2005 03:20
Rómverjar sektaðir Knattspyrnulið Roma hefur verið sektað um 25.000 evrur eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu smápeningi í höfuðið á dómaranum í grannaslag Roma og Lazio um helgina. Því miður eru atburðir sem þessi tíðir á Ólympíuleikvanginum í Róm, en stuðningsmenn liðanna beggja eru þekktir fyrir að vera ansi heitir. Sport 26.10.2005 04:02
Ítalía: Kýldi vallarstarfsmann Alessandro Del Piero skoraði eina mark Juventus sem heldur áfram ótrauðri sigurgöngu sinni í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta með 1-0 sigri á Messina í gærkvöldi. Juve er nú með fullt hús stiga að loknum 7 umferðum. Í hinum leik gærkvöldsins tapaði Siena fyrir Udinese, 2-3 í leik þar sem afar sjaldgæf sjón varð fyrir augum áhorfenda. Sport 23.10.2005 15:04
Inter í 2. sætið á Ítalíu Inter Milan lyfti sér upp í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með stórsigri á Livorno, 5-0. Inter er 6 stigum á eftir toppliði Juventus sem er með fullt hús stiga eftir 7 umferðir. Fiorentina sem var jafnt AC Milan í 2. sæti fyrir umferðina mistókst að saxa á forskot Juve þar sem liðið tapaði fyrir Lazio, 1-0 í dag. Sport 23.10.2005 15:05