Snjóflóð á Íslandi
1 2 3 ›
Snjóflóðavarnargarðar verða útivistarparadís Því er spáð að nýir snjóflóðavarnargarðar á Patreksfirði verði útivistarparadís og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Svo stoltir eru heimamenn af mannvirkinu að þeir buðu forseta Íslands að skoða veglegan útsýnispall sem búið er að smíða ofan á einum garðinum. Innlent 24.9.2023 06:17
„Sárin eru mjög djúp og þau gróa mjög hægt“ Forsætisráðherra mun funda með lögmanni aðstandenda fórnarlamba snjóflóðanna á Súðavík í næstu viku. Lögmaður segir sárin mjög djúp og þau grói hægt vegna þess að málið fékk ekki viðeigandi skoðun á sínum tíma. Innlent 29.4.2023 16:01
Heildartjónið nemur 150 milljónum króna Náttúruhamfaratrygging Íslands metur tjónið af völdum snjóflóðsins sem féll í Neskaupstað á 150 milljónir króna. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri stofnunarinnar, segir aðallega um að ræða tjón á gólfefnum og timburverki. Bifreiðar eru almennt undanþegnar tryggingunni. Innlent 6.4.2023 20:06
Tré rifnuðu upp með rótum í snjóflóðunum Veðurstofan telur að keilur ofan varnargarða í Neskaupstað sem og brattir þvergarðar hafi virkað vel til þess að draga úr krafti snjóflóðanna sem féllu á bæinn í lok mars. Ljóst er að flóðin voru kraftmikil en stór grenitré rifnuðu upp með rótum í þeim. Innlent 6.4.2023 10:42
Óvissustigi aflýst Óvissustigi Almannavarna sem var í gildi á Austfjörðum hefur verið aflýst, sem og óvissustigi Veðurstofu Íslands. Við taka umfangsmikil verkefni við hreinsun og endurreisn samfélagsins. Innlent 4.4.2023 12:45
Búið að aflétta öllum rýmingum á Austurlandi Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi vegna ofanflóðahættu á Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði og aflétta öllum rýmingum á svæðunum. Innlent 1.4.2023 19:33
Aflétta öllum rýmingum á Stöðvarfirði og Eskifirði Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi vegna ofanflóða á Stöðvarfirði og Eskifirði og aflétta öllum rýmingum á svæðinu. Fyrr í dag var öllum rýmingum aflétt í Neskaupstað og tilkynnt um afléttingar á vissum svæðum á Seyðisfirði. Innlent 1.4.2023 18:16
Rýmingu aflétt Rýmingu á reitum 4 og 16 í Neskaupstað verður aflétt klukkan 16 í dag. Þar með hefur rýmingu í öllum bænum vegna snjóflóðahættu verið aflétt. Innlent 1.4.2023 14:52
Björgunarsveitir halda heim Það björgunarfólk sem ferðaðist til Austfjarða í vikunni til að aðstoða heimafólk mun ferðast aftur til sín heima í dag. Björgunarfólk frá öllu landinu tóku þátt í aðgerðum þar vegna snjóflóða sem féllu í vikunni. Innlent 1.4.2023 12:19
Kötturinn fannst heill á húfi eftir snjóflóðið Köttur sem týndist í snjóflóðinu í Neskaupstað í liðinni viku hefur fundist heill á húfi. Innlent 1.4.2023 09:38
Markmiðið að hlúa að íbúum eftir áfall síðustu daga Viðbúið er að rýmingum verði aflétt í miklum mæli á Austfjörðum í dag en ekki er útlit fyrir að hægt verði að aflétta alls staðar strax. Mikil úrkoma er á svæðinu samhliða hlýindum og hafa flóð fallið nokkuð víða. Lögreglustjóri á Austurlandi segir markmiðið nú vera að hlúa að íbúum en ljóst sé að langtímaáhrif séu áföllum sem þessum. Innlent 31.3.2023 12:38
Rýmingu aflétt á nokkrum svæðum Veðurstofa Íslands hefur metið áframhaldandi rýmingarþörf á Austurlandi vegna snjóflóðahættu. Í kjölfar þess var ákveðið að aflétta rýmingu á nokkrum svæðum á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 31.3.2023 09:53
Víðtækar lokanir þjóðvega í strandbyggðum Austfjarða Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum og er áfram talin mikil hætta á snjóflóðum og krapaflóðum. Almannavarnir hafa í dag gripið til frekari rýminga í Neskaupstað og á Eskifirði. Þá hafa hús einnig verið rýmd í Mjóafirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, auk Seyðisfjarðar. Innlent 30.3.2023 21:42
Boðið verður upp á fylgdarakstur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Ákveðið hefur verið að bjóða upp á fylgdarakstur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í kvöld. Snjóflóð féll úr Hólmatindi Eskifjarðar megin fyrr í dag. Innlent 30.3.2023 19:11
Ráðast í rýmingar á Stöðvarfirði og á Fáskrúðsfirði Veðurstofan hefur vegna hættuástands vegna ofanflóða ákveðið rýmingu á reitum 4 á Stöðvarfirði og reit 7 Fáskrúðsfirði. Innlent 30.3.2023 13:35
Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 29.3.2023 22:20
Búist við umtalsverðri úrkomu en telja ekki þörf á frekari rýmingum Gert er ráð fyrir umtalsverðri úrkomu á Austfjörðum í kvöld og fram til föstudagsmorguns. Bæði er spáð snjókomu og rigningu. Töluverður fjöldi húsa á Austurlandi var rýmdur í kjölfar snjóflóða sem féllu á svæðinu í upphafi vikunnar. Veðurstofa telur að ekki sé þörf á frekari rýmingum að svo stöddu. Innlent 29.3.2023 18:03
Frekari rýmingar á Seyðisfirði og áfram enginn skóli í Neskaupstað Veðurstofan hefur ákveðið að rýma skuli að nýju hús á reit 14 á Seyðisfirði í varúðarskyni frá klukkan 21 í kvöld. Von er á mikilli snjókomu. Innlent 29.3.2023 14:10
Rýmingar áfram í gildi og mögulegt að þær verði víðtækari Rýmingar frá í gær í Neskaupstað, á Eskifirði og Seyðisfirði eru enn í gildi og hugsanlegt er að rýma þurfi nýju þau hús sem aflétt var af í gær. Innlent 29.3.2023 12:49
Fjórði garðurinn hefði afstýrt hörmungunum Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær. Innlent 28.3.2023 22:27
Rýmingu aflétt að hluta til Ákveðuð hefur að aflétta rýmingu á hluta þeirra húsa sem rýmd voru í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Þetta var ákveðið í kjölfar þess sem Veðurstofa Íslans mat aðstæður á Austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu í dag. Innlent 28.3.2023 18:04
Gul viðvörun á Austfjörðum á fimmtudaginn Gul viðvörun tekur á ný gildi á Austfjörðum á fimmtudaginn vegna snjókomu. Verður hún í gildi í heilan sólarhring. Innlent 28.3.2023 16:40
Rútur í veseni á Fjarðarheiði bætast við álag á Seyðfirðinga Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði fyrr í dag þrátt fyrir að búið sé að rýma fjölda húsa í bænum. Úr skipinu kom fjöldi fólksbíla og rúta sem sumar hverjar lentu í vandræðum á Fjarðarheiði. Innlent 28.3.2023 12:18
Níu gistu í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun. Innlent 28.3.2023 10:11
Ekkert frést af frekari snjóflóðum Ekkert hefur frést af frekari snjóflóðum á Austfjörðum í nótt og hefur veðrið verið með rólegasta móti. Innlent 28.3.2023 07:33
„Hún vaknaði upp við það að glugginn og flóðið kemur yfir hana“ Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í morgun og þá hafa snjóflóð fallið í Mjóafirði og á Reyðarfirði utan byggðar. Íbúi í Neskaupstað segir atburðina erfiða fyrir marga og áminning um mannskæð snjóflóð í bænum fyrir hálfri öld. Innlent 27.3.2023 23:46
„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“ Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa. Innlent 27.3.2023 21:14
Fluttu ólétta konu yfir á Egilsstaði Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið á ellefta tímanum í morgun og fór austur á land vegna snjóflóðanna sem féllu þar í morgun. Í kvöld flutti þyrlan svo ólétta konu frá Neskaupstað og yfir á Egilsstaði. Gert er ráð fyrir því að þyrlan verði fyrir austan í nótt. Innlent 27.3.2023 19:56
Fara af neyðarstigi á hættustig Þegar snjóflóð féllu á Neskaupstað í morgun var neyðarstigi Almannavarna lýst yfir. Nú hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. Innlent 27.3.2023 19:15
Snjóflóð féll á yfirgefna byggingu á Seyðisfirði Snjóflóð féll á byggingu á Seyðisfirði í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landsbjargar var um að ræða yfirgefna byggingu. Töluverður fjöldi björgunarsveitarmanna eru nú komnir austur og tilbúnir til aðstoðar. Innlent 27.3.2023 18:45