Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 38 ›
Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG Jódís Skúladóttir þingkona Vinstri grænna gefur kost á sér í embætti varaformanns Vinstri grænna sem fer fram á landsfundi flokksins þarnæstu helgi. Jódís fer þannig fram gegn sitjandi formanni, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, sem tilkynnti fyrr í dag að hann ætli sér ekki að sækja eftir embætti formanns en vilji vera varaformaður, líkt og hann var. Innlent 23.9.2024 18:24
Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og starfandi formaður Vinstri grænna (VG) ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssætið á komandi landsfundi. Í stað þess vill hann sjá Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra og þingmann VG leiða flokkinn en hún hefur ekki tilkynnt framboð. Innlent 23.9.2024 18:24
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. Innlent 23.9.2024 15:05
Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir fatlað fólk með NPA-samninga ekki geta beðið lengur eftir þjónustu en að það sé óásættanlegt að ríkið vísi málinu alfarið til sveitarfélaganna og á þá við ummæli félagsmálaráðherra frá í dag. Innlent 22.9.2024 20:50
Bjarni fundaði með Guterres Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hitti í dag Antonio Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í tengslum við Leiðtogafund um framtíðina sem stendur yfir í New York. Innlent 22.9.2024 18:24
Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Fjárlagaumræðan undanfarna daga hefur afhjúpað algjört skeytingarleysi ríkisstjórnarflokkanna gagnvart kjörum og hagsmunum fólks sem hefur unnið slítandi störf um langa ævi. Skoðun 22.9.2024 16:02
Eftir hækkun Moody´s er lánshæfi Íslands einum flokki neðar en Bretlands Náist samkomulag við lífeyrissjóðina um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs og salan á Íslandsbanka klárast ætti það að leiða til meiri lækkunar á skuldahlutfalli ríkissjóðs en núverandi áætlun Moody´s gerir ráð fyrir, en lánshæfismatsfyrirtækið hefur hækkað einkunn Íslands í A1, einum flokki neðar en hjá löndum á borð við Bretland og Írland. Vaxtabyrði íslenska ríkisins í hlutfalli af tekjum er umtalsvert meiri í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat en Moody´s telur að það muni lækka nokkuð á komandi árum. Innherji 22.9.2024 14:09
Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Ríkið uppfyllir allar sínar skyldur hvað varðar fjármögnun NPA-samninga að sögn félagsmálaráðherra. Hann vonast til þess að sveitarfélögin leysi úr vandanum sem blasir við þeim hvað varðar fjármögnun samninganna. Innlent 22.9.2024 13:14
Fjárfesting í háskólum Það hefur verið á vitorði stjórnvalda í áratugi að við vanfjárfestum í háskólamenntun. Ísland veitir mun minna fjármagni í þennan málaflokk en önnur Norðurlönd og aðrar þjóðir sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Það hefur lengi verið á stefnuskrá stjórnvalda að breyta þessu, en lítið hefur þokast í þá átt. Skoðun 22.9.2024 10:32
„Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Andri Snær Magnason gagnrýnir Viðskiptaráð fyrir afstöðu þess til loftslagsaðgerða. Vilji samtökin láta taka sig alvarlega þurfi þau að koma með plan í stað þess að einblína eingöngu á afkomu fyrirtækja. Eins og stendur sé ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtækjum að vera í Viðskiptaráði Innlent 21.9.2024 13:29
Maður margra storma íhugar stöðu sína Bjarni Benediktsson hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því að hann íhugi nú stöðu sína eftir fimmtán ár í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Hann geri sér grein fyrir að dagur ákvörðunar renni upp innan hálfs árs, eða fyrir landsfund flokksins sem fram fer um mánaðamótin febrúar-mars á næsta ári. Ef til vill væri kominn tími til að hleypa nýju blóði inn í forystu flokksins. Innlent 21.9.2024 08:00
„Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Brynjar Níelsson sagði af sér varaþingmennsku í gær. Hann segir afsögn sína ekki tengjast stöðu Sjálfstæðisflokksins, ríkisstjórnarinnar eða máli Yazans Tamimi með neinum hætti. Hann er þó afar gagnrýninn á hvernig það fór fram. Ráðherrar Vinstri grænna hafi beitt dómsmálaráðherra óeðlilegum þrýstingi og hefði hann verið í stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur hefði hann sagt af sér. Innlent 20.9.2024 09:06
Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Eftir heilt ár af linnulausum og grimmilegum hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá lengur. Brýnt er að ríki heims taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld. Skoðun 20.9.2024 09:03
Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir það áhyggjuefni að ekki hafi tekist að halda uppi öflugra eftirliti á innri landamærunum eftir að Ísland gekk í Schengen-samstarfið. Mikið álag sé á lögreglu vegna fjölda frávísunarmála á Keflavíkurflugvelli. Innlent 19.9.2024 18:11
Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Brynjar Níelsson hefur sagt af sér varaþingmennsku og mun að öllum líkindum taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar, gangi allt eftir. Þetta tvennt tengist þó ekki. Innlent 19.9.2024 17:02
Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segist vera velta eigin framtíð í stjórnmálum fyrir sér. Hann segist ekki vera búinn að ákveða hvað hann ætli að gera á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram í vor. Innlent 19.9.2024 15:51
Brynjar segir af sér Brynjar Níelsson hefur sagt af sér varaþingmennsku. Kjartan Magnússon leysir hann af. Innlent 19.9.2024 10:37
Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætir fyrstur manna í Samtalið hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 og sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:10. Innlent 19.9.2024 10:21
Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segis sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt, sérstaklega þá sem koma hingað til lands til þess eins að fremja afbrot. Innlent 19.9.2024 06:45
Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Haraldur Ingi Þorleifsson, frumkvöðull og baráttumaður, lýsir þrautagöngu sinni við það að fá svör um notendastýrða persónulega aðstoð, eða NPA. Biðlistar eftir þjónustunni eru langir, þrátt fyrir að hún sé lögbundinn. Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega. Innlent 18.9.2024 23:18
Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli Mikil tilhlökkun og ánægja er á Hvolsvelli með þá staðreynd að höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar, Náttúruverndarstofnunar verði á staðnum og skapi þannig nokkur ný störf. Nýja stofnunin tekur til starfa um næstu áramót. Innlent 18.9.2024 22:02
„Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Formaður Miðflokksins segir miður að Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne, hafi orðið að bitbeini í pólistíkum deilum ráðherra í ríkisstjórninni. Hann telur hagsmuni hans hafa verið hafða að leiðarljósi við meðferð máls hans í stjórnkerfinu og furðar sig á misvísandi fullyrðingum ráðherra um hvort eðlileg stjórnsýsla hafi verið viðhöfð í málinu. Innlent 18.9.2024 21:33
Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Innlent 18.9.2024 14:00
Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu kom saman og söng fyrir utan Heilbrigðisráðuneytið í morgun. Kórinn vakti athygli á stöðu heilbrigðismála í Palestínu í yfirlýsingu sinni og tileinkaði sönginn Yazan Tamimi, ellefu ára langveika drengnum sem enn stendur til að vísa úr landi. Heilbrigðisráðherra hlýddi ekki á sönginn. Innlent 18.9.2024 13:37
Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Hinn ellefu ára Yazan Tamimi frá Palestínu er mjög skelkaður eftir aðgerðir lögreglu aðfararnótt mánudags, þegar vísa átti honum og fjölskyldu hans úr landi. Lögmaður fjölskyldunnar telur að íslensk yfirvöld hafi brotið lög við málsmeðferð og framkvæmd í máli fjölskyldunnar. Öryggi hans er talið betur borgið á Barnaspítalanum en í Rjóðrinu. Innlent 18.9.2024 12:21
Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Gest Pétursson í embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. Innlent 18.9.2024 10:06
Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, segir kostnaðinn af háum vöxtum og verðbólgu á Íslandi ekki leggjast jafnt á alla á Íslandi, heimili eða fyrirtæki. Úrræði yfirvalda eigi þó ekki eingöngu að miðast við lágtekjufólk. Viðskipti innlent 18.9.2024 08:42
„Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Umboðsmaður barna segist uggandi yfir löngum biðlistum hvað varðar úrræði fyrir börn með vanda. Ekkert sé mikilvægara en að hlúa að börnunum. Innlent 17.9.2024 21:49
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 17.9.2024 20:25
Þegar ómennskan vitnar í lög Í gegnum söguna hafa allskonar óhæfuverk verið framin af ríkisstjórnum sem réttlæta slíkt með því að vitna í lög. Þegar ráðherra vitnar í lög til þess að réttlæta það að flytja barn með ólæknandi sjúkdóm úr landi, útí óvissuna, og fjölskyldu hans með, þá getur hann um leið slökkt á samvisku sinni og sagt: Ég er bara að fylgja lögum. Skoðun 17.9.2024 15:01