Stj.mál
99 100 101 102 103 104 105 106 107 … 187 ›
Tveir nýir sendiherrar Utanríkisráðherra skipaði í dag þá Helga Gíslason prótokollstjóra og Svein Á. Björnsson sendifulltrúa sendiherra í utanríkisþjónustunni frá og með 1. júní næstkomandi. Helgi Gíslason réðst til starfa í utanríkisþjónustunni árið 1970 og hefur m.a. starfað í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Moskvu, París. Sveinn Á. Björnsson réðst til starfa í viðskiptaráðuneytinu árið 1970 og starfaði m.a. sem viðskiptafulltrúi í París á þess vegum. Innlent 13.10.2005 19:16
Skipaði tvo nýja sendiherra Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. Innlent 13.10.2005 19:16
Stýrðu sölu bankanna Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tóku völdin af framkvæmdanefnd um einkavæðingu við sölu Landsbankans og Búnaðarbankans til að stýra því hver fengi að kaupa. Átökin um bankana og VÍS voru svo mikil að ríkisstjórnarsamstarfið var í uppnámi um tíma. Innlent 13.10.2005 19:16
Segir hugmyndir ekki stolnar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, vísar ummælum Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um að sjálfstæðismenn hafi stolið hugmyndum um uppbyggingu á Örfirisey algjörlega á bug. Steinunn Valdís sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að hugmyndirnar hefðu verið kynntar sem trúnaðarmál í hafnarstjórn á sínum tíma og greinilegt væri að sjálfstæðismenn gerðu þær að sinni tillögu nú. Því fagnaði hún. Innlent 13.10.2005 19:16
Hugmyndir geti leitt til hækkana Borgarstjóri segir líklegt að lóðaverð hækki með þeim miklu framkvæmdum sem tillögur sjálfstæðismanna um nýtt skipulag í borginni hefðu í för með sér. Innlent 13.10.2005 19:16
Börnum líði vel í leikskólanum Um mánaðamótin sameinast Leikskólar Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð í nýtt menntasvið Reykjavíkurborgar. Samhliða því mun Bergur Felixson, sem verið hefur í forsvari leikskólanna í Reykjavík í samfellt 30 ár, láta af starfi. Á fréttamannafundi í morgun kynnti Bergur könnun sem gerð var meðal foreldra leikskólabarna í Reykjavík þar sem fram kom að 99 prósent foreldra telja að börnum þeirra líði vel í leikskólanum. Innlent 13.10.2005 19:16
Ys og þys á Indlandi Íslandsheimsókn Abdul Kalam, forseta Indlands, hefst í dag og stendur í fjóra daga. Indland er á góðri leið með að verða þriðja stærsta hagkerfi heims en engu að síður fær aðeins hluti Indverja að njóta ávaxtanna af uppsveiflunni. Erlent 13.10.2005 19:16
Skorrdælingar velja sér framtíð Íbúar í Skorradalshreppi ákveða um næstu helgi hvort þeir vilja sameinast nágrannasveitarfélögunum eða ekki. Oddvitinn vísar því á bug að þriðjungur þeirra sem eigi lögheimili í Skorradalshreppi séu sumarbústaðareigendur úr höfuðborginni. Blaðamaður kannaði hvort sameiningarmálið væri í raun aðeins átök um auð.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoðun hafin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti því yfir á fundi með Samtökum um kvennaathvarf, Stígamót og fleiri samtök í gærmorgun að vinna væri hafin við að endurskoða kynferðiskafla almennra hegningarlaga. Innlent 13.10.2005 19:16
Refsirammi rúmur en dómar of vægir Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor segir að refsirammi kynferðisbrota sé sé rúmur og geri ráð fyrir þungum refsingum. Dómar séu hins vegar oft vægir. Dómsmálaráðherra hefur falið Ragnheiði að skoða ákvæði í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoða lög um kynferðisbrot Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Innlent 13.10.2005 19:16
Símtal breytti bankasölunni Selja átti Landsbankann og Búnaðarbankann til almennings og tryggja dreifða eignaraðild. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skiptu um skoðun og ákváðu að selja bankana til eins fjárfestis hvorn um sig eftir að Björgólfur Guðmundsson hringdi í Davíð og vildi kaupa annan hvorn bankann. Innlent 13.10.2005 19:16
Refsa Chirac fyrir efnahagsmálin Á sunnudaginn kemur fella Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu ef að líkum lætur. Nýjustu kannanir benda til þess að fimmtíu og fimm prósent þeirra sem ætla á kjörstað hyggist greiða atkvæði gegn stjórnarskránni. Erlent 13.10.2005 19:16
Gunnar fær ekki biðlaun Gunnar I. Birgisson, verðandi bæjarstjóri Kópavogs, fær ekki biðlaun þegar hann lætur af því starfi. Hann tekur við starfinu af Hansínu Björgvinsdóttur um næstu mánaðamót. Innlent 13.10.2005 19:16
Komið aftan að tugþúsundum heimila Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir komið aftan að fimmtíu til sextíu þúsund heimilum í landinu ef vaxtabætur verði skertar enn frekar. Á síðustu tveimur árum hafa vaxtabætur verið skertar um 900 milljónir. Innlent 13.10.2005 19:16
Segja Alfreð hóta samstarfsslitum Vinstri grænir segja Alfreð Þorsteinsson hóta að slíta meirihlutasamstarfinu í Reykjavík. Hótanir hans um að mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að selja rafmagn til stóriðju spilli viðræðum um framtíð Reykjavíkurlistans. Innlent 13.10.2005 19:16
Kosningar á landsfundi lögmætar Ný kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar hefur gefið út yfirlýsingu um að kosningar í öll embætti á landsfundi Samfylkingarinnar hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins. Innlent 13.10.2005 19:16
Mannréttindum hrakar á heimsvísu Mannréttindum hrakar á heimsvísu og þau eru brotin um allan heim. Bandaríkin og framferði stjórnvalda þar er ein meginorsök þessarar þróunar, samkvæmt ársskýrslu Amnesty International. Erlent 13.10.2005 19:16
Kosningar lögmætar Kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar segir að kosningar í öll embætti á landsfundinum hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins. Innlent 13.10.2005 19:16
Kanna arðsemi og umhverfisáhrif "Áður en hægt er að taka afstöðu til álvers í Helguvík þarf fyrst að kanna arðsemi jafnt álversins og þeirra jarðvarmavirkjana sem því tengjast. Jafnframt finnst mér ljóst að fara þarf yfir umhverfisþætti málsins," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar Innlent 13.10.2005 19:16
Sýna vöðva og tennur Fulltrúar flokkanna þriggja, sem koma að Reykjavíkurlistanum, funduðu í gær um framtíð samstarfsins. Innlent 13.10.2005 19:16
Út á hvað gengur stjórnarskrá ESB? Út á hvað gengur þessi umdeilda stjórnarskrá Evrópusambandsins sem virðist vekja hörð viðbrögð um alla álfuna? Fréttamaður Stöðvar 2 rýndi í skjalið og skýrir málið. Erlent 13.10.2005 19:16
Frakkar hafni stjórnarskránni Franski hægri öfgamaðurinn Jean Marie Le Pen hélt fund í París í gær þar sem hann hvatti Frakka til að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins. Le Pen notaði einnig tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi þess að hleypa sem fæstum útlendingum inn í landið og að koma eigi í veg fyrir að Tyrkir komist inn í Evrópusambandið. Erlent 13.10.2005 19:16
Eyjaborgin Reykjavík Sjálfstæðismenn vilja allt að 350 hektara uppfyllingu við sundin, meðal annars frá Örfirisey út í Akurey og byggð í Engey með brú og göngum. Einnig er gert ráð fyrir byggð í Viðey. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna kynnti í gær hugmyndir um nýja byggð fyrir 30 þúsund íbúa á eyjunum við sundin Innlent 13.10.2005 19:16
Stefnir allt í að Frakkar hafni Það er næsta víst að Frakkar hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn kemur. Könnun sem birt var í morgun bendir til þess að fimmtíu og fjögur prósent þeirra sem ætla á annað borð á kjörstað hyggist greiða atkvæði gegn stjórnarskránni. Erlent 13.10.2005 19:16
Vilhjálmur vill prófkjör Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, vill að flokkurinn haldi prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Hann sækist eftir fyrsta sætinu og lítur ekki á það sem þrýsting á sig þótt Gísli Marteinn Baldursson hafi einnig lýst áhuga á að leiða flokkinn í kosningunum. Innlent 13.10.2005 19:16
Abbas fundar með Bush Leiðtogi Palestínu, Mahmoud Abbas, kom til Washington seint í gærkvöld en til stendur að hann og George Bush Bandaríkjaforseti fundi í dag. Abbas vill staðfestingu á því að Bandaríkjamenn hjálpi til við að tryggja að eftir að Ísraelar dragi herlið sitt til baka frá Gaza í sumar muni þeir ekki nota það sem afsökun til að styrkja stöðu sína enn frekar á Vesturbakkanum. Erlent 13.10.2005 19:15
Segja Alfreð hóta Ummæli Alfreðs Þorsteinssonar í Fréttablaðinu í gær um mögulegan meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Orkuveitu Reykjavíkur hafa vakið hörð viðbrögð hjá Vinstri-grænum. Stjórn Vinstri-grænna í Reykjavík kom saman til fundar í gær og harmaði afstöðu Alfreðs til málsins. Innlent 13.10.2005 19:15
Draga úr þróun kjarnorkuvopna Íranar munu halda áfram að draga úr þróun kjarnorkuvopna að sögn Jack Straw, utanríkisáðherra Bretlands. Straw lýsti þessu yfir í dag eftir að hafa setið þriggja tíma fund með forsvarsmönnum kjarnorkumála í Íran, ásamt utanríkisráðherrum Þýskalands og Frakklands, þar sem málið var rætt ítarlega. Erlent 13.10.2005 19:15
Átti að skjóta vélina niður Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, gaf hernum leyfi til að skjóta niður Cessnu-vél sem flaug yfir Washingtonborg þann 11. maí síðastliðinn. <em>Washington Post</em> greinir frá þessu í dag. Erlent 13.10.2005 19:15