Stj.mál
137 138 139 140 141 142 143 144 145 … 187 ›
Ekki nóg að sigra í könnunum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ekki nóg að sigra í könnunum. Það séu kosningarnar sjálfar sem gildi. Hún segist þó gleðjast yfir nýrri könnun sem sýnir að átta af hverjum tíu Samfylkingarmönnum telja hana hæfari til formennsku í flokknum en sitjandi formann, Össur Skarphéðinsson. Innlent 13.10.2005 18:46
Þrýst hart á íslensk stjórnvöld Bandaríkjastjórn sótti hart að íslenskum stjórnvöldum að fara á lista hinna viljugu þjóða í Íraksstríðinu og það er þess vegna sem nafn Íslands lendir þar þann 18. mars 2003. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra viðurkennir í viðtali að ákvörðunin um að fara á þennan lista hafi tengst hagsmunum Íslands í varnarsamningunum við Bandaríkin. Innlent 13.10.2005 18:46
70 prósent telja Ingibjörgu hæfari Sjötíu prósent samfylkingarfólks telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hæfari en Össur Skarphéðinsson, til að gegna formennsku í Samfylkingunni. Sextíu prósent sjálfstæðismanna telja Össur hins vegar hæfari til starfans. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Mannlíf í janúar og birtist í nýjasta tölublaði þess. Innlent 13.10.2005 18:46
Harkan sex var kjörorðið Harkan sex var kjörorðið, síðasta dag kosningabaráttunnar í Danmörku. Flokkarnir birtu heilsíðuauglýsingar í dagblöðum þar sem hræðsluáróðri var beitt á óákveðna kjósendur. Kjörstöðum verður lokað klukkan sjö að íslenskum tíma en samkvæmt fyrstu útgönguspám heldur stjórnin velli. Erlent 13.10.2005 18:46
Meirihlutinn sá sami Nýjustu skoðanakannanir Gallups benda til þess að þingmeirihluti hægri stjórnar Anders Fogh Rassmussens verði nákvæmlega sá sami eftir kosningar og hann er í dag, eða 98 sæti gegn 77 sætum stjórnarandstöðunnar. Engu að síður benda kannanir til þess að stærstu flokkar beggja blokka tapi fylgi en að minni flokkarnir bæti við sig. Erlent 13.10.2005 18:45
Vopnahlé í Miðausturlöndum Leiðtogar Ísraels og Palestínu lýstu yfir vopnahléi eftir fund þeirra í Egyptalandi í dag en þjóðirnar hafa átt í blóðugri styrjöld síðastliðin fjögur ár. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að nú væri von á betri framtíð í Miðausturlöndum í fyrsta sinn í langan tíma og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tók í sama streng. Erlent 13.10.2005 18:46
Stjórnin með rúmlega 50% Nú á sjöunda tímanum voru birtar fyrstu útgönguspár í dönsku þingkosningunum. Samkvæmt spá systurstöðvar Stöðvar 2, TV2 í Danmörku, hljóta stjórnarflokkarnir ríflega fimmtíu prósent atkvæða og jafnaðarmenn tapa töluverðu fylgi, eins og búist var við. Erlent 13.10.2005 18:46
Saka hvor annan um hræðsluáróður Spennan magnast á kjördegi í Danmörku. Tveir stærstu flokkarnir saka hvor annan um hræðsluáróður í dagblaðaauglýsingum. Stjórnin heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun en bæði Venstre og jafnaðarmenn missa þingsæti. Sighvatur Jónsson er í Danmörku. Erlent 13.10.2005 18:45
Dean formaður Demókrataflokksins Howard Dean, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, verður næsti formaður bandaríska Demókrataflokksins. Eini keppinautur hans dró framboð sitt til baka í gærkvöldi. Erlent 13.10.2005 18:45
Evrópa vinur Bandaríkjanna „Það er tímabært að binda enda á deilur fortíðar,“ sagði Condoleeza Rice í París í dag og kvað engan vafa lengur leika á því í Bandaríkjastjórn að Evrópa væri vinur en ekki andstæðingur. Erlent 13.10.2005 18:46
Sýrlendingar bregðast illa við Sýrlendingar hafa brugðist illa við samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að þeir kalli hersveitir sínar heim frá nágrannaríkinu Líbanon. Fjórtán þúsund sýrlenskir hermenn eru í Líbanon og eru margir íbúar landsins ósáttir við dvöl þeirra sem þeir segja jafngilda hernámi. Erlent 13.10.2005 18:45
60% nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Sextíu prósent þeirra sem svöruðu í skoðanakönnun Frjálsar verslunar nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar spurt var hvern viðkomandi vildi sjá sem formann Samfylkingarinnar. Fjörutíu prósent nefndu Össur Skarphéðinsson. Innlent 13.10.2005 18:45
Frumvarp til að leyfa enska þuli Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að ráðherrum undanskildum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir það að verkum að hægt verður að sýna frá íþróttaviðburðum án þess að nota íslenska þuli eða þýðingartexta. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins neitar því að flokkurinn sé að rétta Skjá einum hjálparhönd. Innlent 13.10.2005 18:45
Halldór áhyggjulaus Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kippir sér ekki upp við það að skoðanakönnun sýni að hann sé sá stjórnmálamaður sem þjóðin ber minnst traust til. Hann segir að kannanir séu líka mismunandi vandaðar. Innlent 13.10.2005 18:45
Kippur kominn í kosningabaráttuna Fjörkippur er loksins hlaupinn í kosningabaráttuna í Danmörku en þar verður kosið til þings á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að það dragi saman með stjórn og stjórnarandstöðu. Sighvatur Jónsson fylgist með kosningabaráttunni í Danmörku. Erlent 13.10.2005 18:45
Iceland fái ekki einkaleyfi Formaður Vinstri grænna og starfandi utanríkisráðherra leggjast báðir gegn því að verslunarkeðjan „Iceland“ fái einkaleyfi á orðinu Iceland í löndum Evrópusambandsins. Þeir eru hins vegar ósammála um hvort það gæti verið mönnum til framdráttar að skrá sig fyrir léninu steingrimurjod.is. Innlent 13.10.2005 18:45
Danska stjórnin heldur meirihluta Aukin spenna er hlaupin í kosningabaráttuna í Danmörku, en þingkosningar fara þar fram á morgun. Bilið minnkar milli tveggja stærstu flokkanna en stjórnin heldur naumum meirihluta samkvæmt skoðanakönnunum. Erlent 13.10.2005 18:45
Vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs Skjótt skipast veður í lofti fyrir botni Miðjarðarhafs. Leiðtogar Ísraels og Palestínu sem hittast á sögulegum leiðtogafundi á morgun hafa ákveðið að tilkynna um vopnahlé á milli stríðandi fylkinga. Þá hafa þeir líka þekkst heimboð Bush Bandaríkjaforseta um annan leiðtogafund í Washington í vor. Erlent 13.10.2005 18:45
Vilja breytingar á útvarpslögum "Okkar mat er að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkarekstri með neinum hætti og frumvarpið er í fullu samræmi við þá skoðun okkar," segir Hafsteinn Þ. Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Innlent 13.10.2005 18:45
Heilræði til Halldórs Steingrímur Hermannsson var jafnan vinsæll á meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. Hann gefur Halldóri Ásgrímssyni nokkur góð ráð. Innlent 13.10.2005 15:32
Gagnrýnir ný tollalög Ný tollalög sem fjármálaráðherra mælir fyrir á Alþingi á morgun einkennast um of af þeirri oftrú á refsingum sem tröllríður samfélaginu. Þetta segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Afleiðingarnar bitni á almennu starfsfólki sem megi refsa fyrir gáleysi eða mistök í starfi verði frumvarpið að lögum. Innlent 13.10.2005 15:32
Samfylking spurulust allra flokka Alþingismenn spyrja um allt á milli himins og jarðar, stjórnarandstæðingar þó sýnu meira en stjórnarliðar. Kynþroski þorsks og símtöl til Grænlands eru á meðal fyrirspurna sem bornar hafa verið upp á yfirstandandi þingi. Innlent 13.10.2005 15:32
Segjast ekki sitja á frumvörpum Sjálfstæðismenn hafa frestað því að afgreiða þrjú frumvörp Valgerðar Sverrisdóttir um samkeppnismál frá því í nóvember en langt er frá því að hinn stjórnarflokkurinn afgreiddi málið. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir sína menn ekki sitja á frumvörpunum heldur sé þetta dæmi um vönduð vinnubrögð. Innlent 13.10.2005 15:32
Aldrei verið óvinsælli Þriðjungur landsmanna segist bera minnst traust til Halldórs Ásgrímssonar af öllum stjórnmálamönnum. Aðeins fjögur prósent telja hann trúverðugastan íslenskra stjórnmálamanna. Davíð Oddsson nýtur aftur á móti mests trausts. Innlent 13.10.2005 15:32
Segir valdaráni afstýrt Naumlega tókst að afstýra valdaráni þegar laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, hefði verið ólöglegur, að mati Unu Maríu Óskarsdóttir varaformanns. Aðalheiður Sigursveinsdóttir sem var stjórnarmaður í Freyju segir gleðilegt að nýjar aðildarkonur hafi verið hreinsaðar af áburði um vafasaman tilgang með veru sinni í félaginu. Innlent 13.10.2005 15:31
Getur skipt upp fyrirtækjum Nýtt Samkeppniseftirlit fær skýra lagaheimild til að skipta upp fyrirtækjum sem hafa markaðsráðandi stöðu verði nýtt frumvarp viðskiptaráðherra að lögum. Þrjú frumvörp um breytingar á samkeppnislögum hafa verið til umræðu í þingflokkum stjórnarflokkanna frá því í nóvember. Innlent 13.10.2005 15:31
Aðalfundur Freyju ólöglegur Laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem fram fór 27. janúar síðastliðinn hefði verið ólöglegur. Ástæðan fyrir því er sögð sú að láðst hafi að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn en ekki sú að fjörutíu og þrjár konur hafi gengið í félagið daginn sem hann var haldinn. Halda verður nýjan aðalfund í þessum mánuði. Innlent 13.10.2005 15:31
Þurfa að taka útreið alvarlega Framsóknarmenn þurfa að taka slæma útreið í skoðanakönnunum alvarlega segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann hvetur félaga sína til að líta yfir sviðið nú, óróa og fylgistap, og skoða í því ljósi að í haust hafi hann þótt helsta vandamál flokksins. Innlent 13.10.2005 15:31
Reiðubúinn að leiða í Kópavogi Ómar Stefánsson, formaður Framsóknarfélagsins í Kópavogi, kveðst reiðubúinn að leiða flokkinn í bæjarstjórnarkosningunum á næsta ári. Innlent 13.10.2005 15:31
Styrki stöðu fjölskyldunnar Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að skipa nefnd sem hefur það verkefni að styrkja enn frekar stöðu íslensku fjölskyldunnar. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að skipun nefndarinnar komi í kjölfar áramótaávarps Halldórs Ásgrímssonar þar sem hann sagði meðal annars að samheldin fjölskylda væri kjarni hvers þjóðfélags. Formaður nefndarinnar er Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 15:31