Stj.mál
162 163 164 165 166 167 168 169 170 … 187 ›
Rússarnir ræddir í nefndinni Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkismálaráðuneytinu, var kallaður á fund utanríkismálanefndar Alþingis sem hófst klukkan ellefu til að skýra samskipti ráðuneytisins við rússnesk stjórnvöld vegna rússnesku herskipanna á Þistilfjarðargrunni. Innlent 13.10.2005 14:47
Barnabætur breytast ekki Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ekki sé gert ráð fyrir að barnabætur verði hækkaðar á næsta ári. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, segir að forsætisráðherrann hafi síðast í fyrradag boðað slíka hækkun 2005. Alþýðusambandið segist undrandi á afstöðu Halldórs. Innlent 13.10.2005 14:47
Vegið að sjálfstæði dómstóla Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar sakaði settan dómsmálaráðherra um að vega að sjálfstæðis dómstóla og láta ómálefnaleg sjónarmið ráða ferðinni við skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti hæstaréttardómara: Innlent 13.10.2005 14:46
Helmingslækkun matarskattar Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að svokallaður matarskattur verði lækkaður úr 14 í 7%. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. "Með þessu myndi matarreikningur íslenskra heimila verða lækkaður um 5 milljarða króna. Innlent 13.10.2005 14:46
Halldór skýrir skatta Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda. Innlent 13.10.2005 14:46
Börn í neyð Aðalfulltrúi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Haítí segir að allir í borginni Gonaives eigi um sárt að binda. Einn af hverjum tveimur íbúum Haítí er barn undir átján ára aldri. Mörg misstu foreldra sína og heimili eftir að fellibylurinn Jeanne lagði stór svæði í rúst. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 14:46
Rússar í sókn Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og yfirmaður Landhelgisgæslunnar segir að koma rússneskra herskipa að ströndum Íslands sé til marks um að rússneski flotinn sé í sókn að nýju. Innlent 13.10.2005 14:46
Stríð og friður í Írak Utanríkisráðherra segir barist í fimm byggðalögum í Írak en frið ríkja í hinum 795 byggðalögum landsins. Þingmönnum ber ekki saman um nákvæmni þessara talna né heldur hvaða mynd þær gefa af ástandinu í landinu. Erlent 13.10.2005 14:46
Engin ákvörðun en samt á fjárlögum Fjárveiting til starfrækslu flugvallarins í Kabúl miðar við að Íslendingar reki hann allt næsta ár, þótt engin ákvörðun hafi verið tekin þar að lútandi. Innlent 13.10.2005 14:46
Ráðherra kannar skólahald Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra segist ætla að láta kanna starfsemi svokallaðs Hávallgötuskóla sem Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur starfrækir í verkfalli kennara. Innlent 13.10.2005 14:46
Bush fengi fleiri kjörmenn í dag George W. Bush Bandaríkjaforseti næði endurkjöri ef kosið yrði í dag samkvæmt nýrri kosningaspá CNN sjónvarpsstöðvarinnar. John Kerry er hins vegar í sókn og getur velgt honum verulega undir uggum, segir í sömu spá. Erlent 13.10.2005 14:46
Kerry með forskot John Kerry virðist hafa mjakað sér fram úr George Bush miðað við niðurstöður nýjustu könnunar Reuters og Zogbi sem birt var fyrir stundu. Samkvæmt henni hefur Kerry einnar prósentu forskot sem er þó innan skekkjumarka. Erlent 13.10.2005 14:46
Kennaraviðræður sigldu í strand Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum kennara og sveitarfélaga. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sleit fundi um kvöldmatarleytið í gær og hyggst ekki boða samningamenn aftur til fundar fyrr en á miðvikudag. Því er ljóst að verkfallið stendur einhvern tíma enn. Innlent 13.10.2005 14:46
Sturla fyrirskipar rannsókn Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur fyrirskipað rannsókn á því hvað fór úrskeiðis þegar síðasta haftið í Almannaskarðsgöngum var sprengt þrettán mínútum á undan áætlun. Sex starfsmenn sem voru við vinnu í norðanverðum skálanum urðu að kasta sér í jörðina til að forðast grjót sem þeyttist yfir þá við sprenginguna. Innlent 13.10.2005 14:46
Afleiðingarnar yrðu gríðarlegar "Þetta myndi hafa í för með sér gríðarlegar afleiðingar fyrir íslenskan sjávarútveg," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um hugmyndir sem nú eru ræddar hjá Sameinuðu þjóðunum um að leggja bann við veiðum með botnvörpu. Íslendingar beita sér hart gegn því, ásamt fleiri þjóðum, að slíkt ákvæði verði ekki samþykkt. Innlent 13.10.2005 14:46
Tókust á af hörku George Bush Bandaríkjaforseti og John Kerry, keppinautur hans um Hvíta húsið, tókust á af hörku í kappræðum í gærkvöldi. Stríðið í Írak, skattar og atvinnumál voru efst á dagskránni. Erlent 13.10.2005 14:46
Bush og Kerry nánast jafnir George Bush Bandaríkjaforseti og John Kerry, keppinautur hans um Hvíta húsið, tókust á af hörku í kappræðum í gærkvöldi. Báðir þóttu standa sig vel en John Kerry virðist hafa fallið betur í kramið hjá kjósendum. Erlent 13.10.2005 14:46
Hækkun jafnmikil og parísarveislan Um næstu áramót verða almenn komugjöld á heilsugæslustöðvar hækkuð um hundrað krónur. Alls skilar hækkunin tæpum 50 milljónum í ríkissjóð, sem er sama upphæð og reidd var fram vegna Íslandskynningunnar í París er ísklumpur var fluttur úr Jökulsárlóni. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:45
Össur ekki sáttur við nefndina Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, er ekki sáttur við hugmyndir menntamálaráðherra um nýja fjölmiðlanefnd en í henni eiga stjórnarflokkarnir þrjá fulltrúa en stjórnarandstæðingar tvo. Innlent 13.10.2005 14:45
Nefndin strax orðin umdeild Ný nefnd menntamálaráðherra um fjölmiðla hefur ekki verið skipuð en er þegar orðin umdeild. Nefndinni er ætlað ákveðið sáttahlutverk svo næsta frumvarp um fjölmiðla hljóti önnur örlög en það síðasta. Það byrjar hins vegar ekki vel því stjórnarandstaðan er ósátt við hvernig skipa á nefndina. Innlent 13.10.2005 14:45
Illugi tekur við af Ólafi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað Illuga Gunnarsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra, í framkvæmdanefnd um einkavæðingu. Illugi tekur sæti Ólafs Davíðssonar, sem veitti nefndinni forstöðu, en hann tekur við sendiherrastöðu í Þýskalandi. Innlent 13.10.2005 14:45
Kosningaslagur í danska þinginu Kosningaslagur var áberandi við fyrstu umræður eftir að danska þingið var sett. Frá þessu er greint á vefsíðu danska ríkisútvarpsins. Stjórnarandstaðan lagði fram tillögu um að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra boðaði til kosninga, áður en ný sveitastjórnarlög yrðu samþykkt í þinginu nk. vor. Erlent 13.10.2005 14:45
Ný fjölmiðlanefnd skipuð Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að ný fjölmiðlanefnd yrði skipuð til að undirbúa lög um fjölmiðla. Bæði stjórn og stjórnarandstaða skipa fulltrúa í nefndina. Menntamálaráðherra vonast til að geta lagt fram nýtt frumvap á vorþingi. Innlent 13.10.2005 14:45
Hvers konar stalínismi er þetta? Kristinn H. Gunnarsson segir að ummæli Hjálmars Árnasonar í Fréttablaðinu um sig beri keim af slúðri og rógi. Hann spyr jafnframt hvers konar stalínismi það sé ef þingmenn Framsóknarflokksins eigi nú að greiða atkvæði samkvæmt vilja þingflokksins en ekki eigin skoðunum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:45
Kabúl 65% dýrari Kostnaður við rekstur flugvallarins sem Íslendingar reka fyrir NATO í Kabúl eykst um 130 milljónir á næsta ári. Kostnaðurinn átti að vera 200 milljónir 2004 en verður 330 milljónir á næsta ári. Kostnaðurinn miðast við hálfs árs rekstur en til greina kemur að halda honum áfram. Innlent 13.10.2005 14:45
Reykjavíkurlistinn gagnrýndur Margrét Sverrisdóttir, áheyrnarfulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarráði, spurðist fyrir um það á fundi ráðsins í gær hvenær mætti vænta þess að fyrirhugaðar stjórnkerfisbreytingar yrðu kynntar fyrir borgarfulltrúum og starfsfólki borgarinnar. Innlent 13.10.2005 14:45
Óvænt stefna umræðu Utandagskrárumræður tóku óvænta stefnu á Alþingi í gær. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sakaði Samfylkinguna um að tala tungum tveimur og sitt með hvorri um kennarverkfallið á Alþingi og í borgarstjórn. Össur Skarphéðinsson segir ríkisstjórnina ekki geta verið stikkfrí í deilunni. Innlent 13.10.2005 14:45
Sjálfstæðismenn beygðir "Það hefur tekist að beygja sjálfstæðismenn sem voru á móti sölubanninu á sínum tíma og ég er mjög ánægð með það," segir Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, um ákvörðun eftirmanns síns á stóli ráðherra. Hún er sérstaklega sæl með að stefnt skuli að því að gera veiðarnar sjálfbærar. Innlent 13.10.2005 14:44
Alfreð var viss um niðurstöðuna Búið var að vara borgaryfirvöld við því að með því að synja Egilshöll um vínveitingarleyfi væri verið að brjóta gegn stjórnsýslulögum. Málið var þverpólitískt í borgarstjórn og klofnaði R-listinn meðal annars í afstöðu sinni. Sjö voru á móti því að veita leyfið og sex með. Innlent 13.10.2005 14:45
Kennarar á þingpöllum Aðeins 30 kennurum var hleypt á þingpalla á meðan utandagskrárumræður stóðu yfir um kennaradeiluna. Meinuðu þingverðir nokkrum fjölda kennara inngöngu í Alþingishúsið. Innlent 13.10.2005 14:45