Stj.mál
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 187 ›
Undirbúa atlögu að Alfreð Atlaga að Alfreð Þorsteinssyni oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavíkurborg er í undirbúningi fyrir næstu kosningar. Verið er að safna liði í kringum Önnu Kristinsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og íhugar hún að gefa kost á sér í efsta sæti listans. Innlent 13.10.2005 19:45
Vilja prófkjör 4. og 5. nóvember Á fundi stjórnar Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í dag, var lögð fram tillaga um að prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík verði haldin 4. til 5. nóvember næstkomandi. Innlent 13.10.2005 19:45
Svarar Campbell vegna hvalveiða Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur sent Ian Campell, umhverfisráðherra Ástralíu, bréf þar sem hann fræðir hann um nokkrar staðreyndir hrefnuveiða. Ástæðan er bréf sem Campell sendi Árna þar sem hann hnýtti í vísindaveiðar Íslendinga og sagði þær óþarfar. Í svarbréfinu upplýsir Árni Campell um stofnstærð hrefnunnar hér við land og bendir á að veiðarnar hafi engin áhrif þar á. Innlent 13.10.2005 19:45
Borgin tryggi starfsfólk í umönnun Stjórn Vinstri - grænna í Reykjavík skorar á borgaryfirvöld að meta umönnunarstörf í verki og tryggja að starfsfólk fáist til þeirra starfa. Lýsa vinstri - grænir yfir áhyggjum af ástandi sem skapast hefur á frístundarheimilum og leikskólum borgarinnar vegna manneklu. Innlent 13.10.2005 19:45
Mótmælir harðlega gjaldskrárhækkun Stjórn Reykjavíkurfélags Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á borgaryfirvöld í Reykjavík að draga til baka ákvörðun um gjaldskrárbreytingu á leikskólum borgarinnar. Þar segir að það sé með öllu óásættanlegt að fjölskyldur þar sem annað foreldri stundi nám verði með þessari breytingu fyrir verulegri útgjaldaaukningu, en sú aukning nemi allt að 81.180 krónum á ársgrundvelli. Innlent 13.10.2005 19:45
Nýr formaður Vestnorræna ráðsins Henrik Old, þingmaður á færeyska lögþinginu, var í gær kosinn nýr formaður Vestnorræna ráðsins á fundi þess sem fram fer á Ísafirði og lýkur í dag. Old tekur við formannsstarfinu af Birgi Ármannssyni þingmanni. Erlent 13.10.2005 19:45
Engin aðför gegn Vilhjálmi Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, fullyrðir að valdamiklir menn geri harða atlögu að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Atlögu sem beinist að því að koma ungum sjónvarpsmanni fram fyrir Vilhjálm. Sjónvarpsmaðurinn ungi, Gísli Marteinn Baldursson, segir þetta alrangt. Innlent 13.10.2005 19:44
Frjálslyndir fagna flugvelli Borgarstjórnarflokkur F-listans fagnar umræðunni sem nú á sér stað um flugvallarmál á höfuðborgarsvæðinu. Frjálslyndir telja það grundvallaratriði fyrir samgöngu og öryggismál höfuðborgarsvæðisins og landsins alls að flugvöllur sé í hæfilegri nálægð við þær stofnanir og mannafla sem geta brugðist við neyðarástandi. Innlent 13.10.2005 19:44
Forsetinn kynnti sér orkusöguna Václav Klaus, forseti Tékklands, byrjar daginn í dag á því að funda með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra áður en haldið verður til Nesjavallavirkjunar og Þingvalla klukkan tíu.Opinber heimsókn Klaus og eiginkonu hans, frú Liviu Klausová, hófst í gærmorgun með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum. Innlent 13.10.2005 19:44
F-listinn vill Löngusker "Við teljum að það sé hagsmunamál jafnt fyrir landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið að það sé flugvöllur á höfuðborgarsvæðinu og við erum því alfarið á móti því að flytja hann til Keflavíkur," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans um framtíð Reykjavíkurflugvallar.Honum finnst koma til greina að byggja nýjan flugvöll á landfyllingu á Lönguskerjum. Innlent 13.10.2005 19:44
Bræðravíg í Sjálfstæðisflokknum Össur Skarphéðinsson segir að valdamiklir menn innan Sjálfstæðisflokksins, geri atlögu að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, oddvita flokksins í borgarstjórn. Þeir vilji fá Gísla Martein Baldursson í fyrsta sætið. Innlent 13.10.2005 19:44
Vill auka samvinnu þjóðanna Vakslav Klaus, forseti Tékklands, segir Ísland og Tékkland eiga margt sameiginlegt og vonast til að efnahagsleg og pólitísk samskipti ríkjanna verði aukin í framtíðinni. Opinber heimsókn hans hingað til lands hófst í dag. Innlent 13.10.2005 19:44
Spuni í kollinum á Degi "Sjálfstæðisflokkurinn mun alls ekki selja Orkuveituna og engin umræða hefur farið fram um það innan borgarstjórnarflokksins," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík um yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar í viðtali í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagur marga óttast að flokkurinn gæfi vinum sínum Orkuveituna. Innlent 13.10.2005 19:44
Kynslóðaskipti í skipulagsmálum Hugmyndir um flugvöll á Lönguskerjum má þakka kynslóðaskiptum í skipulagsmálum borgarinnar. Þetta segir Trausti Valsson sem kynnti hugmyndir að flugvelli á þessum stað fyrir nákvæmlega 30 árum. Innlent 13.10.2005 19:43
Ungt fólk fái tækifæri í kosningum Samband ungra framsóknarmanna hvetur flokksmenn um allt land að leggja áherslu á sem öflugasta aðkomu ungra að framboðum á vegum flokksins í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Í tilkynningu frá SUF segir að ungt fólk í Framsóknarflokknum sé tilbúið að taka að sér ábyrgðarmikið starf við að byggja upp flokkinn til framtíðar og standa að hugsjónum flokksmanna. Innlent 13.10.2005 19:43
Unnið verði að endurskoðun Það þarf að skoða hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ástand eins og skapaðist í miðborginni eftir flugeldasýninguna í gærkvöldi. Þetta segja borgarstjóri og yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:43
Ísland jafnhreint og S-Argentína Ísland er jafnhreint og Suður-Argentína þegar kemur að gin- og klaufaveiki, segir dýralæknir í stjórn Dýralæknafélags Íslands. Þrátt fyrir það telur landbúnaðarráðherra áhættuna of mikla við að flytja inn argentínskt nautakjöt til landsins. Innlent 13.10.2005 19:43
Hafna tillögu um Löngusker Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hafna því sem þeir kalla málamiðlunartillögu um að færa Reykjavíkurflugvöll út á Löngusker í Skerjafirði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið hefur sent frá sér vegna umræðu um hugsanlegan flutning flugvallarins úr Vatnsmýrinni. Innlent 13.10.2005 19:43
Bætur fyrir Kópavogshöfn Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi R-listans og formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segist líta svo á að Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs sé til viðræðu um nýjan flugvöll höfðuborgarsvæðisins á Lönguskerjum. Innlent 13.10.2005 19:43
Skiptar skoðanir um Löngusker Skiptar skoðanir eru meðal bæjarstjóra nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur um flugvöll á Lönguskerjum. Bæjarstjóri Kópavogs segir allt tal um flugvöllinn tímaskekkju. Innlent 13.10.2005 19:43
Hafa safnað 10 þús. undirskriftum Rúmlega 10 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun á stjórnvöld um að lækka álögur á bifreiðaeldsneyti. Undirskriftirnar verða afhentar stjórnvöldum í næstu viku og framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda er bjartsýnn á að stjórnvöld taki mark á bifreiðaeigendum. Innlent 13.10.2005 19:43
Ófagleg vinnubrögð hjá Framsókn Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi túlkar uppákomuna í borgarráði í hádeginu í gær sér í hag. Hann segir þetta þó ekki fagleg vinnubrögð hjá framsóknarmönnum. Innlent 13.10.2005 19:43
Deilt um breytingar á leiðakerfi Ágreiningur í stjórn Strætó bs. á fundi í gær varð til þess að Björk Vilhelmsdóttir stjórnarformaður dró til baka tvær tillögur sínar um breytingar á þjónustu strætisvagna. Meirihluti stjórnar telur að kostnaður við breytingar á þjónustutíma, leiðakerfi og tímatöflum verði of mikill. Innlent 13.10.2005 19:43
Frjálslyndir ætla ekki í samstarf Frjálslyndi flokkurinnn ætlar ekki í samstarf við Framsóknarflokkinn eða Samfylkinguna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá borgarstjórnarflokki F-listans. Innlent 13.10.2005 19:43
Vill ekki flugvöll á Löngusker "Þeir hugsa nú bara um sjálfa sig þessir kappar og hugsa ekki um aðra," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og líst ekkert á hugmyndir um byggingu nýs flugvallar á Lönguskerjum sem borgaryfirvöld hafa rætt um við fulltrúa FL Group og dótturfélags þess, Flugfélags Íslands. Innlent 13.10.2005 19:43
Bíða álits forsætisnefndar Þingflokkur Samfylkingarinnar hyggst bíða með að birta upplýsingar um fjárhags- og hagsmunatengsl þingmanna sinna þar til forsætisnefnd hefur fjallað um málið og ákveðið hvort setja skuli almennar reglur fyrir þingmenn um slíkt. Framsóknarmenn gagnrýna þetta og kalla eftir efndum. Innlent 13.10.2005 19:43
R-listinn endanlega úr sögunni Samfylkingin ætlar að bjóða fram eigin lista fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi.Þar með er ljóst að R-listinn er úr sögunni, en samstarf félagshyggjuflokkanna í Reykjavík hefur staðið yfir í tæp tólf ár. Innlent 13.10.2005 19:42
Barist innbyrðis um hylli kjósenda Skýr merki þess að R-lista flokkarnir séu farnir að berjast innbyrðis um hylli kjósenda birtust á borgarráðsfundi í dag þegar Alfreð Þorsteinsson lagði til að hætti yrði við umdeilda gjaldskrárhækkun á leikskóla, sem Stefán Jón Hafstein hafði aðeins klukkustund áður reynt að verja á fundi með fulltrúum háskólastúdenta. Innlent 13.10.2005 19:42
Samfylking brýtur eigin siðareglur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar telur enga hagsmunaárekstra felast í því að hún sitji í stjórn Seðlabankans. Siðareglur, sem flokkurinn setur þingmönnum, banna þeim að sitja í stjórnum banka, stofnana og fyrirtækja þar sem hætta er á slíku. Innlent 13.10.2005 19:42
Stjórnarseta ekki hagsmunaárekstur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar telur enga hagsmunaárekstra felast í því að hún eigi sæti í stjórn Seðlabankans. Innlent 13.10.2005 19:42