Stj.mál
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 187 ›
R-listaflokkar leita allra leiða R-listafólk leitar allra leiða til að viðhalda samstarfi um stjórn borgarinnar. Klofningur er í röðum Vinstri-grænna; borgarfulltrúar vilja halda samstarfinu áfram en óvíst er hvort flokksstjórnin samþykkir það. Frjálslyndir útiloka ekki að koma að samstarfinu. Innlent 13.10.2005 19:41
Vinstri grænir ósammála Það hriktir í stoðum R-listans. Borgarfulltrúi Vinstri-grænna telur hann einu leiðina til að hindra valdatöku Sjálfstæðisflokksins í borginni, og segist aldrei munu standa að samþykkt sem leiði það af sér. Innlent 13.10.2005 19:41
Harka í þýsku kosningabaráttunni Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands hóf kosningabaráttu sína með formlegum hætti í dag. Kristilegir demókratar hafa langtum meira fylgi í skoðanakönnunum, en Schröder virðist ætla að treysta á eigin persónutöfra, reynsluleysi andstæðings síns, Angelu Merkel, og innanflokksdeilur hjá kristilegum til að hífa fylgið upp. Erlent 13.10.2005 19:41
Réðist á andstæðinga sína Gerhard Schröder, Þýskalandskanslari og leiðtogi jafnaðarmanna, réðist harkalega að Kristilegum demókrötum þegar hann hóf kosningabaráttu sína fyrir þingkosningar sem haldnar verða eftir rúman mánuð. Erlent 13.10.2005 19:41
Vill skipa sér í forystusveit Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti framboðslista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:41
Fáheyrð ósvífni útvegsmanna "Útgerðarmenn sýna fáheyrða ósvífni með því að krefjast þess að dómsúrskurður færi þeim beinan eignarrétt yfir fiskinum í sjónum," segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar. Innlent 13.10.2005 19:40
Samvinna um afnám niðurgreiðslna Danir og Íslendingar ætla að vinna sameiginlega að afnámi niðurgreiðslna í sjávarútvegi, segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra. Hann segir mikilvægt að þjóðirnar samhæfi krafta sína á alþjóðlegum vettvangi. Innlent 13.10.2005 19:40
Ráðuneytum verður fækkað Meðal þess sem rætt hefur verið um endurskoðun á skipulagi stjórnsýslunnar er tilkoma aðstoðarráðherra. Forsætisráðherra segir löngu tímabært að hefja vinnu við uppstokkun ráðuneyta. Innlent 13.10.2005 19:40
Össur snuprar útgerðarmenn Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur útgerðarmenn á beinið fyrir að ætla að kæra úthlutun byggðakvóta á þeim forsendum að með því sé verið að taka af þeim stjórnarskrárvarin eignarréttindi af því byggðakvótinn minnkar þeirra hlut. Innlent 13.10.2005 19:40
Telja dvínandi líkur á samstarfi Menn úr öllum flokkum sem standa að R-listanum telja mjög dvínandi líkur á að R-listi verði boðinn fram við næstu borgarstjórnarkosningar eftir að starf viðræðunefndar flokkanna sigldi í strand í gær. Boltinn er nú aftur hjá félögum flokkanna þriggja í Reykjavík og hafa Vinstri -grænir boðað til félagsfundar á mánudag, en Samfylkingin og Framsóknarflokkur hafa ekki ákveðið fundartíma. Innlent 13.10.2005 19:40
Fjöregg R-listans hjá VG Borgarstjórnarflokkur R-listans kom saman til fundar í gær, en margt bendir til þess að hann þurfi næstu mánuðina að starfa við ný skilyrði þar sem dagar R-listans kunna að vera taldir. Félagsfundur Reykjavíkurfélags Vinstri grænna hefur verið boðaður á mánudag en þar kann framtíð samstarfsins að ráðast. Innlent 13.10.2005 19:40
Hefur skömm á stjórnarþingmönnum "Þetta er algjör leikaraskapur og ég hef sífellt meiri og meiri skömm á því hvernig stjórnarþingmenn geta komið fram við fólkið á landsbyggðinni," segir Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslindaflokksins aðspurður um viðbrögð stjórnarþingmanna við ástandinu á Bíldudal. Innlent 13.10.2005 19:40
Útvegsmenn geti ekki farið í mál Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur útilokað fyrir útvegsmenn að fara í mál við íslensk stjórnvöld til að fá svonefndan byggðakvóta afnuminn, sem þeir segja að skerði sinn eigin kvóta. Innlent 13.10.2005 19:40
R-listinn virðist í andarslitrunum Dagar R-listans virðast taldir. Svartsýni um áframhaldandi samstarf ríkir í herbúðum þeirra þriggja flokka sem að honum standa og vilji Vinstri-grænna og Samfylkingar til samstarfs er lítill sem enginn. Innlent 13.10.2005 19:40
Einhleypar konur fái tæknifrjógvun Einhleypar konur ættu að fá að njóta aðstoðar við tæknifrjóvgun að mati formanns Félags einstæðra foreldra. Hann segir löngu tímabært að afnema það ákvæði í lögum að kona þurfi að vera í samsvistum við karl til að teljast hæfur uppalandi. Innlent 13.10.2005 19:40
Hugsanlega í samstarfi og baráttu Sú ótrúlega staða gæti verið að koma upp að R-listaflokkarnir þrír þurfi að starfa áfram saman fram að kosningum en standi jafnframt í harðvítugri kosningabaráttu sín á milli. Innlent 13.10.2005 19:40
Danir flæktir í síldardeilu Danir hafa flækst inn í deilu Íslendinga og Norðmanna um kvótaskiptingu úr norsk-íslenska síldarstofninum. Hans Christian Schmidt ráðherra sjávarúrvegs-, matvæla- og landbúnaðarmála Danmerkur er nú staddur hér í vinnuferð til þess að leita málamiðlunar í deilunum. Erlent 13.10.2005 19:40
Tekið á móti útgerðum með hörku Það verður tekið á móti með hörku, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður vegna yfirlýsinga útgerðarmanna um að höfða mál gegn ríkinu vegna byggðakvótans og línuívilnunar. Þá er sjávarútvegsráðherra hvergi banginn. Innlent 13.10.2005 19:40
Líst ekki á stöðuna "Mér líst ekki vel á stöðunna eins og er en ekki er öll nótt úti enn," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar um strand R-lista viðræðna. "Það á eftir að ræða stöðuna á félagsfundum á næstu dögum." Innlent 13.10.2005 19:40
Ekki bjartsýnn á R-listaframboð Í kvöld ætti að skýrast hvort áframhald verði á samstarfi R-lista flokkanna. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem segist hafa verið bjartsýnn á samkomulag um sameiginlegt framboð flokkanna í aðdraganda síðustu tvennra borgarstjórnarkosninga, er það ekki lengur. Innlent 13.10.2005 19:40
Fundi lauk án árangurs Öllum á óvörum lauk viðræðunefnd R-listaflokkanna fundi sínum nú fyrir fáeinum mínútum, án nokkurs árangurs. Nefndarmenn geta engu svarað um það hvert framhaldið verður. Þrátt fyrir þessi snautlegu lok segir í sameiginlegri yfirlýsingu að vilji sé fyrir áframhaldandi samstarfi. Innlent 13.10.2005 19:40
R-lista viðræður í strand Nefnd, sem rætt hefur samstarf R-listaflokkana á næsta kjörtímabili, ákvað á fundi í gær að slíta frekari viðræðum og fela flokksfélögunum að taka endanlega ákvörðun um framtíð samstarfsins. Dagur B. Eggertsson ætlar ekki að bjóða sig fram hætti R-listinn við framboð. Innlent 13.10.2005 19:40
Mikið rætt um Strætó í borgarráði Umræður um nýtt leiðakerfi Strætó voru fyrirferðarmiklar á fundi borgarráðs í dag að því er fram kemur í tilkynningu aðstoðarmanni borgarstjóra. Forstjóri Strætós kom á fundinn og gerði grein fyrir innleiðingu nýja kerfisins og svaraði spurningum borgarráðsfulltrúa. Innlent 13.10.2005 19:40
Ekkert styðji innflutningsbann Formaður Dýralæknafélags Ísland segir landbúnaðarráðherra beita sjúkdómsvarnarákvæði þar sem það eigi ekki við. Hann segir ekkert styðja þá kenningu ráðherra að banna eigi innflutning á nautakjöti frá Argentínu. Innlent 13.10.2005 19:40
Vilja ekki umsóknir samkynhneigðra Óttast er að erlend ríki hætti að senda munaðarlaus börn hingað til lands fái samkynhneigðir rétt til ættleiðinga. Ekkert þeirra fimm ríkja sem Íslendingar ættleiða frá leyfa slíkt. Innlent 13.10.2005 19:40
Matvælaráðherra Dana í heimsókn Hans Christian Schmidt, matvælaráðherra Danmerkur, er nú staddur í vinnuferð hér á landi til að kynna sér íslenskan sjávarútveg. Ráðherrann á fund með Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra í dag auk þess sem hann mun heimsækja sjávarútvegs- og sölufyrirtæki á næstu dögum. Innlent 13.10.2005 19:40
Vilja úttekt á nýju leiðakerfi Minnihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarráði flutti í dag tillögu þar sem skorað var á forstjóra Strætós bs. og fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn fyrirtækisins að beita sér fyrir ýtarlegri úttekt á nýju leiðakerfi Strætós. Innlent 13.10.2005 19:40
Viðræðuslit alvaraleg tíðindi Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir ótímabært að gefa út dánarvottorð fyrir R-lista samstarfið á næsta kjörtímabili. "Nefndin sendi málið heim til flokkannna og það er þeirra að stíga næstu skref." Innlent 13.10.2005 19:40
Áfall ef R-listi býður ekki fram "Þegar R-listinn tók við völdum 1994 ríkti ófremdar ástand í boarginni, meðal annars í skóla-, dagsvistar- og atvinnumálum. R-listinn hefur gerbreytt stöðunni," segir Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í R-listanum. Innlent 13.10.2005 19:40
Færeyingar vilja aðild að EFTA Færeyingar vilja sækja um að aðild að Norðurlandaráði og EFTA en Færeyingar lúta enn yfirráðum Dana og hafa aðeins sjálfsstjórn og utanríkismál landsins eru í höndum Dana. Erlent 13.10.2005 19:40