Lögreglumál
145 146 147 148 149 150 151 152 153 … 276 ›
Neysla kókaíns jókst um helming fyrir Covid-19 en dróst aftur saman í fyrstu bylgju Neysla kókaíns í höfuðborginni jókst um meira en helming frá því í febrúar 2017 til apríl 2019. Hún dróst hins vegar saman um 60 prósent í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins. Innlent 7.6.2021 06:40
Í annarlegu ástandi að skjóta örvum í tré Maður var kærður fyrir brot á vopnalögum eftir að lögreglumenn höfðu afskipti af honum þar sem hann var með boga og örvar á sér í póstnúmeri 110 í gær. Hann sagði lögreglu að hann hefði verið að æfa sig í að skjóta í tré. Innlent 6.6.2021 07:17
Sóttkvíarbrjótar komu til landsins daginn áður en þeir létu greipar sópa í Smáralind Karl og kona sem áttu að vera í sóttkví voru handtekin fyrir þjófnað úr verslunum í Smáralind. Þau komu frá Lettlandi deginum áður samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þá hlaut lögreglumaður áverka á kinnbeini í átökum við karlmann á þrítugsaldri sem virti ekki reglur um sóttkví í gær. Innlent 5.6.2021 12:32
Átti að vera í sóttkví en veittist að lögreglumönnum Lögreglumaður þurfti að fara á slysadeild vegna minniháttar meiðsla sem hann hlaut þegar einstaklingur sem átti að dvelja í sóttvarnahúsi veittist að lögreglumönnum sem voru kallaðir til að flytja hann þangað. Innlent 5.6.2021 07:18
Skemmtanaglaðir hegðuðu sér vel Nokkuð fjölmennt var í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og nótt nú þegar slakað hefur verið á sóttvarnaaðgerðum sem hafa verið í gildi að meira eða minna leyti í meira en ár. Þrátt fyrir það segir lögregla að allt hafi gengið vel fyrir sig. Innlent 5.6.2021 07:07
Skammbyssa reyndist Stjörnustríðs geislabyssa Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um einstakling með skammbyssu í Hafnarfirði. Þegar betur var að gáð kom hins vegar í ljós að um var að ræða eftirlíkingu af Star Wars geislabyssu. Innlent 4.6.2021 06:26
Segir gögnunum hafa verið lekið í nóvember Gögnum, sem varða heimildir lögreglu til hlerana og að skoða persónulega bankareikninga, var lekið til sakborninga í nóvember síðastliðnum að sögn verjanda. Sakborningarnir voru handteknir í mars á þessu ári. Hann setur spurningarmerki við verklag lögreglu í málinu. Það sé í hæsta máta undarlegt að lögregla rannsaki mögulegan leka hjá sjálfri sér. Innlent 3.6.2021 19:01
Bein útsending: Ekkert ofbeldi án gerenda Hvernig náum við til gerenda í ofbeldisbrotum? Öll vitum við að til þess að koma í veg fyrir ofbeldisbrot þurfa gerendur að hætta að beita ofbeldi. Hingað til hafa úrræði fyrir gerendur verið afar takmörkuð. Innlent 3.6.2021 13:31
Innlit inn í nýja sýnatökugáminn á Keflavíkurflugvelli Nýr sýnatökugámur var tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn vonar að afkastageta aukist um helming en með auknum straumi ferðamanna sé þó spurning hvenær starfsemin sprengi utan af sér þessa nýju aðstöðu. Innlent 2.6.2021 21:54
Grunur um leka á viðkvæmum gögnum til sakborninga um afléttingu bankaleyndar og hleranir Grunur er um að gífurlega viðkvæmum gögnum, sem varða meðal annars afléttingu bankaleyndar og hleranir, hafi verið lekið til sakborninga sem grunaðir eru um að hafa stundað skipulagða glæpastarfsemi. Um er að ræða á annan tug dómsúrskurða sem lögregla, bankastarfsmenn og starfsmenn héraðsdóms höfðu aðgang að. Innlent 2.6.2021 18:35
Segir útbreidda sögu af frelsissviptingu og hópnauðgun ekki á borði lögreglu Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir útbreidda frásögn sem gengið hefur um samfélagsmiðla í gær og í dag um hrottalega hópnauðgun og frelsissviptingu erlendra karlmanna gegn ungri íslenskri konu ekki á borði lögreglu. Innlent 2.6.2021 10:31
Leituðu blóðugs manns í Smárahverfinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í nótt blóðugs manns en án árangurs. Tilkynning barst um „illa farinn“ mann í Smárahverfinu rétt fyrir kl. 4 en hann fannst ekki. Innlent 2.6.2021 06:13
Á bak við lás og slá eftir alvarlegar hótanir í garð blaða- og lögreglumanna Karlmaður sem hafði í hótunum við ýmsa aðila í gær, þeirra á meðal fréttamenn DV, starfsmenn Ríkisútvarpsins og lögreglu, er kominn bak við lás og slá. Hann verður yfirheyrður vegna málsins á næstu dögum eða vikum. Innlent 1.6.2021 12:05
Óska eftir vitnum að umferðarslysi í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að alvarlegu umferðarslysi sem varð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, á móts við Leirvogstungu, fimmtudaginn 27. maí. Innlent 1.6.2021 11:05
Dusterinn er kominn aftur á kreik Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik. Innlent 1.6.2021 07:01
Sagðist ekki hefðu stolið af barni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð á vettvang um klukkan 22 í gærkvöldi vegna þjófnaðar á rafmagnshlaupahjóli. Atvik máls voru á þá leið að eigandi hjólsins, sem var tíu ára, hafði farið inn í verslun og skilið hjólið eftir fyrir utan. Innlent 1.6.2021 06:27
Grunur um heimilisofbeldi í sumarbústað Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar ofbeldismál sem kom upp nýlega í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu. Innlent 31.5.2021 14:17
Brunaði af vettvangi eftir að hafa ekið niður ær og lamb Þriðjudaginn 25. maí var bifreið ekið á ær og lamb á Suðurlandsvegi skammt frá Jökulsárlóni og drápust bæði. Bílnum var ekið af vettvangi og ekki tilkynnt um slysið. Innlent 31.5.2021 14:07
Hætta á að hraun loki fólk inni Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað endanum á gönguleið A að gosinu í Geldingadölum vegna hættu á að fólk lokist inni þegar hraun renni yfir gönguleiðina en fyrirséð er að það muni gerast á næstunni. Vettvangsstjóri segir fólk hunsa lokunarborða. Innlent 31.5.2021 11:49
Þjófar réðust á starfsmann lyfjaverslunar Tveir menn réðust á starfsmann lyfjaverslunar í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi en hann veitti þeim eftirför eftir að þeir létu greipar sópa í versluninni. Innlent 31.5.2021 06:24
Skjalafals, bílþjófnaður og húsbrot Bifreið var stolið fyrir utan verslun í Hlíðunum í gær þegar ökumaðurinn skildi bílinn eftir í gangi fyrir utan verslunina. Bifreiðin fannst tveimur tímum síðar og var þjófurinn þá sofandi undir stýri. Hann var í mjög annarlegu ástandi sökum áfengis og fíkniefna og var vistaður í fangaklefa lögreglu í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 30.5.2021 07:18
Trukkur valt á Hafnarfjarðarvegi Stór bíll valt á hlið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogsbraut fyrir skemmstu. Tveir voru í bílnum og er hvorugur alvarlega slasaður. Innlent 29.5.2021 20:41
Veðurofsinn lék borgarbúa grátt Töluvert var um útköll vegna veðursins sem gekk yfir Suðvesturhornið í gær. Fjúkandi trampólín, hjólhýsi og hlutir af byggingarsvæðum voru sérstaklega áberandi í störfum björgunarsveitanna á höfuðborgarsvæðinu, sem voru kallaðar út síðdegis í gær og voru að störfum hátt til miðnættis. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 29.5.2021 07:13
Kona alvarlega slösuð eftir slysið á Vesturlandsvegi Tvær konur og einn karlmaður slösuðust í árekstri pallbíls og fólksbíl undir brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungu í Mosfellsbæ í kvöld. Önnur konan er sögð alvarlega slösuð en líklega ekki í lífshættu. Innlent 27.5.2021 23:00
Tvær bifreiðar lentu framan á hvor annarri á Vesturlandsvegi Alvarlegt umferðarslys varð þegar tvær bifreiðar höfnuðu framan á hvor annarri á Vesturlandsvegi skammt norðan við Köldukvísl skömmu eftir klukkan 19:00 í kvöld. Innlent 27.5.2021 19:56
Hafa borið kennsl á líkamsleifarnar sem fundust í Vopnafirði Eftir ítarlegar rannsóknir hefur verið borið kennsl á líkamsleifar sem fundust í fjörunni í Vopnafirði í apríl síðastliðnum. Nafn mannsins er Axel Jósefsson Zarioh, sem var fæddur árið 2001. Innlent 27.5.2021 16:50
Braut upp útihurð og gekk á brott Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst heldur undarleg tilkynning í gærkvöldi en að sögn þess sem hringdi braut einstaklingur upp útihurð og gekk síðan á brott. Viðkomandi var handtekinn skömmu síðar en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Innlent 27.5.2021 06:24
Rannsókn á kæru starfsmanns Samherja á frumstigi Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að kæra starfsmanns Samherja vegna þjófnaðar sé til skoðunar hjá embættinu. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar. Innlent 26.5.2021 12:49
Skemmdir unnar á bílum í bílakjallara Ráðhússins Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í morgun eftir að tilkynnt var um innbrot og skemmdarverk á þremur bílum í bílakjallara Ráðhúss Reykjavíkur. Innlent 26.5.2021 11:31
Ríkissaksóknari fær ekki svör og segist ekki geta sinnt eftirlitsskyldum sínum Lögregla og héraðssaksóknari óskuðu 314 sinnum eftir heimild dómstóla til að beita rannsóknarúrræðum árið 2020 í alls 76 málum. Óskað var 413 aðgerða en 388 voru nýttar. Í 25 tilvikum var ekkert framkvæmt. Innlent 26.5.2021 06:53