Lögreglumál „
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 276 ›
„Algjör forsendubrestur í viðskiptasambandi okkar við Wok On“ Forsvarsmaður Gróðurhússins í Hveragerði segir að unnið sé að því að slíta viðskiptasambandi við veitingastaðinn Wok On, sem er í mathöll Gróðurhússins. Staðnum var lokað í gær í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Viðskipti innlent 6.3.2024 11:33
Átta handteknir og tugir taldir þolendur mansals Lögreglan handtók átta einstaklinga í umfangsmiklum aðgerðum sínum í gær sem teygðu anga sína frá höfuðborgarsvæðinu til Suðurnesja, Suðurlands og Norðurlands. Meintir þolendur mansals telja nokkra tugi. Innlent 6.3.2024 11:23
Rekstur Davíðs Viðarssonar: Áralöng saga gruggugrar starfsemi Veitingastaðurinn Pho Víetnam á Suðurlandsbraut fékk tvo af fimm mögulegum í einkunn frá Heilbrigðiseftirlitinu í heimsókn þess árið 2019. Staðurinn hét þá Vietnam Restaurant en var í eigu Davíðs Viðarssonar. Tæpum fimm árum síðar hafði heilbrigðiseftirlitið enn verri sögu að segja af staðnum sem hélst þó opinn þar til í gær þegar lögregla réðist í umfangsmiklar aðgerðir. Viðskipti innlent 6.3.2024 08:42
Aðgerðum lauk í kringum miðnætti Umfangsmiklum lögregluaðgerðum vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi lauk um miðnætti. Úrræði sem grípa fórnarlömb meints mansals hafa verið virkjuð. Innlent 6.3.2024 08:28
Aðgerðirnar standa enn yfir Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi standa enn yfir. Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 5.3.2024 20:33
Slíta samningi við Wok On Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segist ekki hafa upplýsingar um lögregluaðgerðir í tengslum við mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi, en útibúum Wok On í verslunum Krónunnar var lokað í aðgerðum lögreglunnar í dag. Viðskipti innlent 5.3.2024 18:54
Nokkrir handteknir í tengslum við aðgerðirnar Nokkrir hafa verið handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerðanna sem snúa að fyrirtækjum Davíðs Viðarsonar, sem á meðal annars Vy-þrif, Pho Víetnam, og Wok On. Innlent 5.3.2024 18:17
„Vitum ekki hvar við verðum í nótt“ Tveir ferðamenn frá Filippseyjum eru í leit að gistingu eftir að hafa verið gert að yfirgefa Kastala guesthouse síðdegis vegna umfangsmikilla lögregluaðgerða. Lögregla hefur innsiglað gistiheimilið. Innlent 5.3.2024 18:03
Kanna þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunnar, segir þátt Vinnumálastofnunnar í rannsókn lögreglunnar á fyrirtækinu Vy-þrifum og eiganda þess Davíð Viðarssyni fyrst og fremst varða þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir. Innlent 5.3.2024 18:00
Komast ekki í eigur sínar vegna lögregluaðgerða Írskur ferðamaður kom að lokuðum dyrum þegar hann sneri á Kastali Guesthouse í Kirkjustræti síðdegis eftir dagsferð út á land að skoða jarðhitasvæði. Innlent 5.3.2024 17:06
Eigandi Vy-þrifa grunaður um mansal og peningaþvætti Miðlæg rannsóknardeild lögreglu lagðist í umfangsmiklar aðgerðir víða um land í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerða á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi og standa þær enn yfir. Innlent 5.3.2024 16:24
Látinn laus og óvíst með framhaldið Karlmaður af erlendum uppruna sem var með óspektir á þingpöllum Alþingis síðdegis í gær verður leystur úr haldi í dag að loknum yfirheyrslum. Innlent 5.3.2024 16:01
Stóra kókaínmálinu hvergi nærri lokið Pétur Jökull Jónsson, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu og var eftirlýstur af Interpol á dögunum, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald næstu fjórar vikurnar. Innlent 5.3.2024 15:42
„Ég hefði aldrei haft hugmyndaflug í að þetta gæti gerst“ „Svona „tension“ hafði maður aldrei heyrt af áður hér á landi; að menn óttuðust um líf sitt í hefndaraðgerðum, eftir að maður var tekinn af lífi fyrir utan heimili sitt. Þetta voru ekki slagsmál fyrir utan b5, eða einhver barningur niðri í bæ. Þetta var í rauninni eitthvað sem við sjáum bara í bíómyndum.“ Innlent 4.3.2024 09:46
Tilkynningar um kynferðisbrot ekki færri síðan 2017 Tilkynnt var um 521 kynferðisbrot til lögreglunnar á síðasta ári og voru tilkynningar 15 prósent færri en að meðaltali samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan. Fara þarf aftur til 2017 til að sjá færri tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu. Innlent 4.3.2024 08:57
Drengir plataðir og kúgaðir eftir að þeir senda af sér nektarmyndir Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu merkir fjölgun í svokölluðum sæmdarkúgunarmálum [e. sextortions] meðal ungra manna og drengja á Íslandi. Lögreglan er með nokkur slíkt mál til rannsóknar að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, yfirmanns deildarinnar. Innlent 4.3.2024 06:45
Lenti undir snjóflóði í Stafdal Tveir voru á skíðasvæði í Stafdal ofan Seyðisfjarðar þegar snjóflóð féll um fjögurleytið í dag. Annar lenti undir snjóflóðinu en félagi hans náði að koma honum til bjargar. Innlent 2.3.2024 17:50
Ógnaði dyravörðum skemmtistaðar með hníf Maður var handtekinn í miðborg Reykjavíkur á fjórða tímanum í nótt eftir að hafa tekið um hníf utan við skemmtistað og ógnað dyravörðum. Lögregla vistaði hann í fangaklefa í þágu rannsóknar Innlent 2.3.2024 07:20
Tveir í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á amfetamínbasa Fjórir menn voru í síðustu viku úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald vegna innflutnings á tæplega sjö lítrum af amfetamínbasa. Tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi en hinir tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald í viku til viðbótar. Innlent 1.3.2024 16:00
Lögreglan lýsir eftir manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum. Hann er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444-1000. Innlent 1.3.2024 09:09
Pho Víetnam á Suðurlandsbraut og Laugavegi fengu falleinkunn Pho Víetnam á Suðurlandsbraut og Laugavegi í Reykjavík fengu einn af fimm mögulegum í einkunn frá Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur í óboðaðri heimsókn í október í framhaldi af því að ólystugur matvælalager Vy-þrifa í Sóltúni uppgötvaðist. Eigandi beggja fyrirtækja á einnig veitingastaðina Wok On. Viðskipti innlent 1.3.2024 08:39
Skráningarmerki fjarlægð af ótryggðum og óskoðuðum bifreiðum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um líkamsárásir í nótt en önnur þeirra átti sér stað á skemmistað. Er það mál í rannsókn, samkvæmt yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Innlent 1.3.2024 06:16
Hart sótt að Úlfari á fundi með blaðamönnum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mætti á fund blaðamanna í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands og var hart að honum sótt á stundum. Innlent 29.2.2024 15:09
Pétur Jökull kom sjálfur á klakann Pétur Jökull Jónasson, sem lýst var eftir á vef Interpol þann 16. febrúar síðastliðinn, kom sjálfur til landsins í fyrradag. Þetta staðfestir Grímur Grímsson í samtali við fréttastofu. Innlent 29.2.2024 12:29
Fór inn á flugbraut, inn í flugvél og handtekinn við lendingu Maður var handtekinn í dag eftir að hann fór yfir grindverk og inn á virka flugbraut á flugvellinum í Reykjavík. Þar fór hann þó upp í flugvél og var ekki handtekinn fyrr en við lendingu, samkvæmt dagbók lögreglu. Innlent 28.2.2024 19:29
Pétur Jökull handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald Pétur Jökull Jónasson, sem lýst var eftir á vef Interpol þann 16. febrúar síðastliðinn, hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann er hvergi að finna á vef Interpol lengur. Innlent 28.2.2024 14:26
Bílstjóri rútunnar var starfsmaður á verkstæði Rútan, sem ekið var á móti umferð á Reykjanesbraut í gær, var í umsjón bifreiðaverkstæðisins Vélrás. Eigandi fyrirtækisins segir ljóst að um mannleg mistök hafi verið að ræða og að tekið verði á málinu innanhúss. Innlent 28.2.2024 12:53
Ekki eftirsóknarverður staður til að vera á Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi. Innlent 28.2.2024 11:40
Fór huldu höfði á landinu í samtals tvö ár Hælisleitandi sem hafði farið huldu höfði í heilt ár fannst þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þjófnaðar í verslun við Tryggvagötu. Þá kom í ljós að hann hafði verið í felum á Íslandi tvisvar í samtals tvö ár yfir sex ára skeið. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti í dag. Innlent 27.2.2024 18:03
Eltu kærustupar grunað um græsku um miðbæinn á kvennafrídaginn Karl og kona hafa hvort um sig fengið árslangan fangelsisdóm fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Parinu var gefið að sök að gera tilraun til að taka við tæplega 1,1 kílói af kókaíni sem kom með póstsendingu til landsins sem barst þann átjánda október í fyrra. Innlent 27.2.2024 14:26