Lögreglumál
64 65 66 67 68 69 70 71 72 … 275 ›
Staðfest að maðurinn lést af völdum höfuðhöggs Banamein karlmanns á þrítugsaldri sem lést í kjölfar líkamsárásar á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti fyrir tæpum tveimur vikum, var eitt höfuðhögg. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar Höfuðborgarsvæðinu. Innlent 4.7.2023 09:13
Einn fluttur á Landspítala eftir alvarlega líkamsárás með eggvopni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hnífi var beitt. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku Landspítala. Innlent 4.7.2023 06:21
Lagði fram kæru og hvetur fólk til að gera hið sama Árni Björn Björnsson, veitingamaður á Sauðárkróki, kærði í dag mann sem hann segir að hafi svikið sig um 16 milljónir. Fleiri hafa lagt fram kæru en Árni býst við að svikin nemi hátt í 200 milljónum króna. Innlent 3.7.2023 23:40
Manndráp og stórfellt fíkniefnasmygl: Staðan á málunum Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er undir gríðarlegu álagi um þessar mundir, en auk þriggja manndrápsmála hefur hún einnig stórfellt fíkniefnasmygl til rannsóknar. Tveir Grænlendingar og einn Dani eru í haldi fyrir að smygla inn miklu magni af fíkniefnum til landsins í skútu. Innlent 3.7.2023 20:01
Keyrði út af veginum við Flóttamannaleið Bíl var ekið út af veginum á Elliðavatnsvegi, svokallaðri Flóttamannaleið, ekki langt frá afleggjaranum að Maríuhellum, í morgun. Innlent 3.7.2023 14:45
Leit að Sigrúnu ber engan árangur Leit að Sigrúnu Arngrímsdóttur hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til þeirra sem upplýsingar gætu haft um að hafa samband. Innlent 3.7.2023 13:31
Ekki hægt að svara því hvort stjórnmálamenn hafi verið hleraðir Dómsmálaráðherra segist ekki getað svarað fyrirspurn um mögulegar hleranir lögreglu á alþingismönnum eða öðrum stjórnmálamönnum, þar sem störf eða embætti manna séu ekki skráð í LÖKE. Innlent 3.7.2023 07:00
Eldur logaði í trampólíni og grunur um íkveikju Lögregla og slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð til í umdæminu Grafarvogur/Grafarholt/Mosfellsbær í gær vegna elds í trampólíni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að grunur leiki á um íkveikju. Innlent 3.7.2023 06:16
Annasöm nótt á Írskum dögum og einn handtekinn með hníf Lögreglan á Vesturlandi handtók mann sem vopnaður var hníf og hamri á Akranesi í nótt. Töluvert var um mál á borði lögreglunnar í gærkvöldi og í nótt en bæjarhátíðin Írskir dagar fer fram um helgina. Innlent 2.7.2023 15:14
Piparúða spreyjað á gesti Írskra daga og fíkniefnahundar frá Suðurnesjum Óprúttinn aðili spreyjaði piparúða yfir gesti á dansgólfinu í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Yfirlögregluþjónn segir Írska daga hafa farið vel fram en lögreglan væri þó með aukið fíkniefnaeftirlit þar sem um fjölskylduhátíð væri að ræða. Innlent 1.7.2023 16:43
Maðurinn sem lést var búsettur í Vestmannaeyjum Karlmaður á áttræðisaldri lést í dag eftir að hafa fallið úr Ystakletti í Vestmannaeyjum. Innlent 1.7.2023 14:08
Nafn mannsins sem lést á Lúx Maðurinn sem lést eftir líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx á dögunum hét Karolis Zelenkauskas og var 25 ára gamall litáískur ríkisborgari, sem búsettur hafði verið hér á landi um nokkurra mánaða skeið. Innlent 1.7.2023 13:07
Unglingar játuðu að partíið væri vandræðalegt Í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um tvö til þrjú hundruð manna unglingapartí í Guðmundarlundi í Kópavogi. Þegar lögreglu bar að garði var rólegt yfir öllu og ungmenninn höfðu sjálf orð á að um væri að ræða „heldur vandræðalegt partí.“ Innlent 1.7.2023 07:11
Útsmogin svikaskilaboð valdi ferlegu veseni Sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS segir netsvik vera orðin fágaðri, þau valdi ferlegu veseni. Ekki sé lengur hægt að verja sig á bakvið það hve flókin íslenskan er. Þá sé eins og svikahrapparnir skilji markaðinn betur. Innlent 30.6.2023 16:30
Þakklát forseta Íslands fyrir bréf eftir andlát dóttur sinnar Valda Anastasia Kolesnikova, móðir Sofiu Sarmite Kolesnikova sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn, segist vera gríðarlega þakklát fyrir stuðninginn sem hún hefur fengið eftir andlát dóttur sinnar. Hún þakkar Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, sérstaklega fyrir handskrifað bréf sem hann skrifaði henni. Innlent 30.6.2023 11:34
Fjórir eða fimm veittust að ungmenni og eyðilögðu hjól þess Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gær eftir að tilkynnt var um rán þar sem fjórir til fimm aðilar voru sagðir hafa ráðist á ungan einstakling. Einn af þeim ógnaði viðkomandi með hníf. Innlent 30.6.2023 06:16
Laus úr gæsluvarðhaldi Karlmaður sem handtekinn var vegna líkamsárásar og andláts manns á skemmtistaðnum Lúx í miðborg Reykjavíkur síðustu helgi er laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 29.6.2023 16:49
Hótaði að senda foreldrunum nektarmyndband Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um nálgunarbann á hendur manni sem sakaður er um að hafa ítrekað brotið gegn konu kynferðislega og haft uppi hótanir um að dreifa kynferðislegu myndefni af henni. Innlent 29.6.2023 13:24
Maðurinn muni ekki koma nálægt reiðskólanum framar Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, mun ekki koma nálægt starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur lengur. Hann var aldrei starfsmaður skólans en aðstoðaði við umhirðu hrossa eftir hádegi og segir skólinn hann aldrei hafa verið einan með nemendum. Innlent 29.6.2023 13:01
Alvarleg líkamsárás á eldri mann í heimahúsi á Ísafirði Karlmaður um áttrætt varð fyrir fólskulegri líkamsárás í fjölbýlishúsi á Ísafirði í vikunni. Karlmaður á miðjum aldri var handtekinn en látinn laus að lokinni yfirheyrslu. Innlent 29.6.2023 11:39
Níu stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum Níu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Tveir þeirra reyndust án ökuréttinda. Innlent 29.6.2023 06:19
Maður sem er sagður hafa brotið á stúlku vinnur enn í kringum börn Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, vinnur í dag í reiðskóla þar sem börn sækja námskeið. Innlent 28.6.2023 23:28
Sleppt að lokinni yfirheyrslu Sextán ára dreng, sem grunaður er um hnífstunguárás á Austurvelli seint á mánudagskvöld, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu að lokinni yfirheyrslu. Innlent 28.6.2023 14:29
Niðurstöður úr krufningu ættu að liggja fyrir í dag Bráðabirgðarniðurstöður úr krufningu manns, sem lést eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti, ættu að liggja fyrir í dag. Innlent 28.6.2023 11:38
Þjófnaðir, slagsmál og heimilisofbeldi á útkallslista lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt tengdum átökum og þjófnuðum. Innlent 28.6.2023 06:38
Lögreglan lýsir eftir Tomasz Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Tomasz Miastkowski, 46 ára, frá Póllandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Póllands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Tomasz er ekki talinn hættulegur. Innlent 27.6.2023 17:51
Manndráp aðfaranótt laugardags átti sér stað á Lúx Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur staðfest að alvarleg líkamsárás sem leiddi til andláts litáísks manns á laugardagsnótt átti sér stað á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti. Gæsluvarðhald yfir hinum grunaða rennur út á fimmtudag. Innlent 27.6.2023 16:52
Langt síðan lögreglan hefur lagt hald á viðlíka magn af hassi Lögreglan hefur staðfest að fíkniefnin sem lagt var hald á í skútu undan Suðurnesjum á laugardag voru hass. Grímur Grímsson segir langt síðan lögreglan hefur lagt hald á slíkt magn af hassi. Innlent 27.6.2023 14:52
Stunguárás á Austurvelli: Ungur árásarmaður „vistaður í viðeigandi úrræði“ Líðan manns á þrítugsaldri sem varð fyrir stunguárás á bak við hús við Austurvöll í Reykjavík í gærkvöldi er eftir atvikum. Fjórir voru handteknir vegna málsins og hefur þremur þeirra nú verið sleppt. Einn, sem er ungur að árum, er vistaður í viðeigandi úrræði. Innlent 27.6.2023 09:30
Fjórir handteknir vegna stunguárásarinnar í gærkvöldi Fjórir voru handteknir af lögreglu á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir að karlmaður var særður stungusári í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 27.6.2023 06:57