Lögreglumál
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 275 ›
Meintur fíkniefnasali reyndist hárgreiðslumaður Tilkynnt var um sölu fíkniefna í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Grafarholti í gærkvöldi. Þegar laganna verði bar að garði reyndist meintur fíkniefnasali vera blásaklaus hárgreiðslumaður. „Átti málið því ekki við rök að styðjast,“ segir í dagbók lögreglu. Innlent 15.4.2023 07:17
Þingmaður segir mál Gylfa ómannúðlegt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að Vesturlönd þurfi að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins. Mál Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnumanns sanni það. Gylfi Þór er laus allra mála eftir að hafa sætt farbanni í Bretlandi í tæplega tvö ár. Innlent 14.4.2023 15:04
Telja að Modestas sé sá sem fannst látinn Lögregla á Vesturlandi segir grun leika á að líkið sem fannst í Borgarfirði í gær sé af Modestas Antanavicius sem hvarf í upphafi árs. Réttarmeinafræðingur og kennslanefnd eigi þó eftir að skera þar endanlega úr um. Innlent 14.4.2023 13:34
Ákvörðun um að gefa ekki út kæru vegna dauða árásarmannsins kærð Ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða mannsins sem varð konu að bana á Blönduósi hefur verið kærð til ríkissaksóknara. Aðstandendur mannsins kærðu ákvörðunina. Innlent 14.4.2023 12:23
Barn á Suðurlandi veiktist eftir að hafa innbyrt hlaupbangsa sem innihélt fíkniefni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú mál þar sem barn hafði í gáleysi innbyrt sælgæti sem innihélt ólögleg fíkniefni. Upp komst um málið fyrr í mánuðinum. Innlent 14.4.2023 11:25
Ákærður fyrir að smygla tæplega tveimur kílóum af metamfetamíni Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 32 ára íslenskum karlmanni sem er grunaður um stórfellt fíkniefnabrot. Maðurinn er í ákærunni sagður hafa staðið að innflutningi tæplega tveggja kílóa af metamfetamíni. Innlent 14.4.2023 07:06
Hótelþjófnaðir og fjársvik gegn ferðamönnum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær um þjófnað á hóteli. Þetta kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar en engar frekari upplýsingar liggja fyrir nema að málið sé í rannsókn. Innlent 14.4.2023 06:16
Líkfundur í Borgarnesi Lík fannst í fjöru skammt frá Borgarnesi í dag. Vegfarandi tilkynnti um líkið fyrr í kvöld og er málið í rannsókn að sögn lögreglu. Innlent 13.4.2023 18:56
Í gæsluvarðhald vegna stunguárásar í Reykjanesbæ Landsréttur staðfesti tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem er grunaður um að hafa stungið annan mann í hendina í Reykjanesbæ um páskana. Maðurinn er sagður dvelja ólöglega á landinu og hafa komist ítrekað í kast við lögin. Innlent 13.4.2023 18:11
Vara við tortryggilegum Toyota-gjafaleik „Enn eitt svindlið á Facebook,“ segir í upphafi færslu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birtir á Facebook-síðu sinni í dag. Færslan er gerð til að vara fólk við gjafaleik sem þúsundir Íslendinga hafa tekið þátt í. Innlent 13.4.2023 14:33
Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi í Flórída: „Ég vildi ekki gera þetta“ 31 árs íslenskur karlmaður, Stefán Gíslason, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Pensacola í Flórída, fyrir að hafa orðið karlmanni að bana árið 2020. Dómur var kveðinn upp í Escambia Circuit Court í Pensacola þann 6. mars síðastliðinn. Innlent 13.4.2023 12:39
Ákærður fyrir smygl á „öflugasta hugbreytandi vímuefninu“ Fertugur reykvískur karlmaður sætir ákæru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 5,4 kílóum af dímetýlryptamíni (DMT) til landsins. Efnin voru flutt til landsins með póstsendingu. Innlent 13.4.2023 11:24
Tilkynnt um skartgripaþjófnað á hótelherbergi Lögreglu barst tilkynning í gær frá erlendum ferðamanni, sem varð fyrir þjófnaði á hótelherbergi sínu. Voru atvik þannig að á meðan viðkomandi var í skipulagðri dagsferð með herbergisfélögum sínum hurfu skartgripir sem voru á herberginu. Innlent 13.4.2023 06:21
Nakin kona og grunsamlegur blaðberi í Breiðholti Í dag barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um nakta konu á stigagangi í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Konan fannst ekki er komið var á staðinn. Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í sama hverfi en lýsingin reyndist passa við blaðbera sem var við útburð. Innlent 12.4.2023 18:36
Ekki hægt að útiloka að fleiri Íslendingar verði handteknir Yfirlögregluþjónn á alþjóðasviði ríkislögreglustjóra segir ekki vera hægt að útiloka að fleiri Íslendingar verði handteknir í tengslum við rannsókn á streymi fíkniefna frá Brasilíu til Evrópu. Mun það skýrast síðar hvort farið verði fram á framsal á Íslendingi sem var handtekinn í Brasilíu í morgun. Innlent 12.4.2023 17:35
Handtekinn maður grunaður um fíkniefnaakstur á Miklubraut Maður var handtekinn í kringum hádegið í dag á Miklubraut, grunaður um fíkniefnaakstur. Tveir lögreglubílar komu á vettvang á samt lögreglumanni á vélhjóli. Innlent 12.4.2023 14:25
Hinn látni karlmaður um áttrætt Maðurinn sem lést eftir að bifreið hans fór í höfnina í Vestmannaeyjum í gærkvöldi var karlmaður um áttrætt. Yfirlögregluþjónn segir Eyjamenn slegna vegna atburðarins. Rannsókn á tildrögum slyssins er hafin. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Innlent 12.4.2023 11:49
Hrækti í auga lögreglumanns og skallaði hann í andlitið Einstaklingur sem grunaður er um líkamsárás og eignarspjöll hrækti í auga lögreglumanns og skallaði hann í andlitið þegar unnið var að því að flytja hann á lögreglustöð í höfuðborginni í gær. Innlent 12.4.2023 06:19
22 líkamsárásir um páskana Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um 22 líkamsárásir um páskahelgina, þar af tvær alvarlegar. Ellefu sinnum var kallað á lögreglu vegna heimilisofbeldis. Innlent 11.4.2023 15:34
Lögreglumaður kýldur í andlitið af ósáttum vegfaranda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til ásamt sjúkraliði þegar tilkynnt var um bráðaveikindi á veitingastað í miðborginni. Veikindin reyndust minniháttar en vegfarandi var ósáttur við viðveru lögreglu og brást við með því að kýla lögreglumann í andlitið. Innlent 11.4.2023 06:18
Þrjár líkamsárásir á borði lögreglu eftir gærkvöldið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjú útköll vegna líkamsárása í gærkvöldi. Innlent 10.4.2023 07:18
Ók á 170 á stolnum bíl Karlmaður olli í gær mikilli hættu þegar hann ók stolnum bíl á allt að 170 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er sextíu kílómetrar á klukkustund. Lögregla veitti manninum eftirför í mikilli umferð og hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Innlent 9.4.2023 07:21
Ekki vissir um hvor ók bifreiðinni á ljósastaur Tveir menn voru handteknir í dag eftir að bifreið var ekið á ljósastaur í Háaleitishverfi. Hvorugur hinna handteknu vissi hvor þeirra hafi ekið bifreiðinni. Innlent 8.4.2023 19:32
Sex skemmtistöðum lokað tímabundið í nótt vegna réttindalausra dyravarða Nokkur erill var á lögreglunni í nótt. Meðal þeirra verkefna sem lögreglan sinnti var eftirlit með skemmtistöðum í miðborginni en þar kom í ljós að fjöldi réttindalausra dyravarða var að störfum. Einnig var aðstoðar lögreglu óskað vegna líkamsárásar í vesturbænum. Þá gerðist fjöldi ökumanna sekir um akstursbrot vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Innlent 8.4.2023 07:40
Lögreglan skorar á verktaka að bregðast skjótt við Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skorar á verktaka að bregðast skjótt við og huga strax að vinnusvæðum sínum. Einnig eru íbúar beðnir um að huga að lausamunum sem gætu fokið í hvassviðrinu enda mun það ekki ganga niður fyrr en í kvöld. Veður 7.4.2023 16:33
Fannst meðvitundarlaus eftir líkamsárás í Breiðholti Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, líkt og búast mátti við kvöldið fyrir almennan frídag. Meðal verkefna sem lögreglan sinnti var tilkynning um meðvitundarlausan mann í Breiðholti. Sá kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás og var með sjáanlega áverka. Innlent 7.4.2023 07:47
Eftirlýstur reyndi að hlaupa frá lögreglu Ökumaður reyndi að flýja lögreglu á bifreið sinni í gærkvöldi en þegar það gekk ekki fór hann úr bílnum og reyndi að komast burt á hlaupum. Það tókst honum ekki og voru bæði hann og farþegi bifreiðarinnar handteknir grunaðir um að selja fíkniefni en töluvert magn þeirra fundust í fórum þeirra ásamt fjármunum sem taldir eru vera hagnaður af sölu. Þá reyndist ökumaðurinn einnig vera eftirlýstur. Innlent 6.4.2023 07:20
Stefán Arnar sá sem fannst látinn í Reykjanesbæ Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur staðfest að Stefán Arnar Gunnarsson var sá sem fannst látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ um helgina. Leitað hafði verið að Stefáni síðan 3. mars síðastliðinn. Innlent 5.4.2023 13:03
„Við klárum bara rannsóknina“ Yfirlögregluþjónn segir að rannsókn á einkar grófri líkamsárás í Reykjavík sé vel á veg kominn. Mennirnir sem grunaðir eru um árásina voru leystir úr varðhaldi í fyrradag. Innlent 5.4.2023 11:54
Endar aldrei vel þegar fólk notar vímuefni undir stýri Maður sem keyrði bifreið ofan í húsgrunn á gamla Blómavalsreitnum í gærkvöldi er grunaður um fíkniefnaakstur. Engin slys urðu á fólki. Maðurinn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og verður tekin af honum skýrsla seinna í dag. Innlent 5.4.2023 10:45