Lögreglumál
74 75 76 77 78 79 80 81 82 … 275 ›
Látnir lausir þrátt fyrir sérstaklega grófa árás Tveimur mönnum hefur verið sleppt úr haldi þrátt fyrir að þeir séu grunaðir um hrottalega árás á mann, sem er sagður hafa verið nær dauða en lífi þegar hann komst undir læknishendur. Innlent 5.4.2023 06:48
Maðurinn er fundinn Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir er fundinn heill á húfi. Innlent 4.4.2023 16:15
Þrjú innbrot og hlaupahjól með staðsetningarbúnaði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um innbrot í gærkvöldi og nótt. Innlent 4.4.2023 06:21
Sparkaði í bíla og var handtekinn Eins og oft áður var nóg um að vera í miðborg Reykjavíkur í dag. Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki og annað innbrot í nýbyggingu. Þá var einn handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa sparkað í bifreiðar í miðborginni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 3.4.2023 19:16
Guðmundur rekinn Guðmundur Elís Sigurvinsson mun ekki starfa áfram á Grímsnesi GK-555 eftir að fimmtán ára stúlka fannst um borð. Skipstjórinn segist hafa rekið hann í gærkvöldi. Guðmundur á sögu um gróft ofbeldi en var sleppt að lokinni skýrslutöku í gær. Innlent 3.4.2023 17:07
Lögregla leitar tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum, sem birtast á myndinni að ofan, og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu eða í síma 444 1000. Innlent 3.4.2023 10:30
Guðmundi sleppt eftir skýrslutöku í gær Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir Guðmundi Elís Sigurvinssyni sem handtekinn var við höfnina í Reykjanesbæ í gær eftir að tilkynnt var að fimmtán ára stúlka í Vestmannaeyjum hefði ekki skilað sér heim í gær. Stúlkan fannst um borð í bát við veiðar á Suðurnesjum. Guðmundur var látinn laus að loknum skýrslutökum. Innlent 3.4.2023 10:06
Fjarlægðu skráningarmerki af bíl og fengu tvo eftirlýsta í kaupbæti Nokkuð forvitnileg uppákoma átti sér stað í gærkvöldi eða nótt þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var á ferðinni og veitti því athygli að skráningarmerki á bifreið tilheyrði öðru ökutæki. Innlent 3.4.2023 06:23
Hafa fundið yfir hundrað kíló af fíkniefnum: „Við erum ekki bara hérna til að vera með leiðindi“ Fíkniefnahundurinn Bylur hefur haft aðkomu að haldlagninu á yfir hundrað kílóum af fíkniefnum hér á landi. Umsjónarkona hans telur að þörf sé á miklu fleiri hundum við störf. Innlent 2.4.2023 22:02
Fimmtán ára stúlka um borð í bát með alræmdum ofbeldismanni Tæplega 24 ára karlmaður var handtekinn við höfnina í Reykjanesbæ á fjórða tímanum í dag eftir að tilkynnt var að fimmtán ára stúlka í Vestmannaeyjum hefði ekki skilað sér heim í gær. Stúlkan fannst um borð í bát við veiðar á Suðurnesjum. Karlmaðurinn á sögu um gróft ofbeldi. Innlent 2.4.2023 18:16
Grýttu börn með flöskum og dósum á Ráðhústorginu Hópur fólks grýtti föður og tvo drengi hans með bjórdósum og glerflöskum á Ráðhústorginu á Akureyri í gærkvöldi. Faðirinn segir drengina hafa verið afar skelkaða og íhugar að kæra fólkið. Innlent 2.4.2023 16:19
Líkfundur í Reykjanesbæ Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um líkfund við fjöruborðið við Fitjabraut í Reykjanesbæ á hádegi í dag. Innlent 2.4.2023 15:32
Sló til lögreglu sem reyndi að skerast í leikinn Lögregla stöðvaði átök tveggja manna í miðborginni í gær. Annar þeirra var ósáttur með afskiptin og sló til lögreglumanns á vettvangi. Hann fékk að gista í fangageymslu í nótt. Innlent 2.4.2023 08:29
Kallað til lögreglu og barnaverndar vegna heiftugra bílastæðadeilna í Kauptúni Tveir einstaklingar misstu stjórn á skapi sínu vegna deilna um bílastæði í Kauptúni í Garðabæ um miðjan dag. Annar þeirra er sakaður um líkamsárás og hinn um eignaspjöll. Innlent 1.4.2023 17:48
Ungmenni sem hrelldu íbúa á bak og burt Lögreglu barst tilkynning um ungmenni sem áttu að hafa verið að hrella íbúa í Mosfellsbæ í nótt með því að banka á glugga og hurðar og taka í hurðarhúna. Ungmennin voru hvergi sjáanleg þegar lögregla mætti á vettvang. Innlent 1.4.2023 07:35
Ekki talið óhætt að aflétta rýmingum frekar Veðurstofa Íslands hefur kannað ástand hlíða á Austurlandi með tilliti til rýminga í dag. Ekki þykir óhætt að aflétta rýmingum frekar að svo stöddu. Innlent 31.3.2023 17:50
Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár. Innlent 31.3.2023 14:49
Hvetja íbúa fyrir austan að huga að niðurföllum Lögreglan á Austurlandi biðlar til íbúa að huga að niðurföllum en búist er við því að úrkoma þar nái hámarki síðar í dag. Í tilkynningu segir að allar varúðarráðstafanir vegna snjóflóðahættu og annars séu enn til staðar. Innlent 30.3.2023 10:00
Harður árekstur á Fagradal Tveggja bíla árekstur varð í Fagradal á Austurlandi fyrr í kvöld. Tveir voru fluttir á slysadeild. Innlent 28.3.2023 21:41
Þrír fluttir á slysadeild eftir að rúta valt á Öræfum Rúta með tæplega þrjátíu farþegum valt í Öræfasveit í dag. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til Hafnar í Hornafirði og verða þaðan fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Enginn þeirra slösuðu er með lífshættulega áverka. Innlent 28.3.2023 13:50
Glóð frá opnum eldi orsök stórbruna á Tálknafirði Bruninn sem varð í nýbyggingu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í botni Tálknafjarðar varð líklegast vegna glóðar sem barst frá opnum eldi sem unnið var með í plastteninga sem ekki voru langt frá. Málið telst upplýst en enginn var með stöðu sakbornings við rannsókn málsins. Innlent 28.3.2023 11:43
Leita að eiganda peninga í óskilum Heiðarlegur borgari fann peninga í verslun í Mosfellsbæ í síðustu viku og kom þeim í hendur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eigandans er nú leitað. Innlent 27.3.2023 18:45
Hlupu uppi fíkniefnasala sem reyndist vera í ólöglegri dvöl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði fyrr í dag afskipti af aðila sem grunaður var um að að selja fíkniefni. Sá reyndi að komast undan á hlaupum en var hlaupinn uppi af lögreglumönnum. Innlent 27.3.2023 18:18
Leita að ökumanni sem ók á ungan strák á hlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík síðastliðinn föstudagsmorgun. Innlent 27.3.2023 15:43
Snjóflóð féll í Norðfirði og búið að rýma eitt hús Snjóflóð féll í Norðfirði í nótt vestan leiðigarða við Urðarteig í nótt. Flóðið fór yfir Strandgötu og í sjó fram. Verið er að rýma eitt hús. Innlent 27.3.2023 07:27
Ákærður fyrir að nauðga konu í bifreið við bensínstöð í Reykjavík Héraðssaksóknari hefur höfðað mál gegn manni sem er grunaður um að hafa nauðgað konu í bifreið við bensínstöð í Reykjavík í janúar síðastliðnum. Málið var þingfest 21. mars síðastliðinn. Innlent 27.3.2023 06:38
Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu. Innlent 26.3.2023 21:28
Aðgerðum lokið í Straumsvík Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lauk í gærkvöld störfum á vettvangi í Straumsvík þar sem mikill sinubruni kviknaði í fyrradag. Varðstjóri segir að áfram sé þó fylgst grannt með svæðinu. Innlent 25.3.2023 11:17
Dró upp hafnaboltakylfu í deilum við bensínstöð Deilur á milli þriggja einstaklinga við bensínstöð í austurhluta borgarinnar enduðu með því að einn þeirra dró upp hafnaboltakylfu. Innlent 25.3.2023 08:11
Neitar því að axarárásin hafi verið tilraun til manndráps Rúmlega fimmtugur karlmaður viðurkenndi við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa ráðist að barnsmóður sinni með öxi á bílastæðinu við Dalskóla í Úlfarsárdal í nóvember. Hann neitaði því hins vegar að árásin hafi verið tilraun til manndráps. Innlent 25.3.2023 08:01