Lögreglumál
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 275 ›
Rannsaka kynferðisbrot gegn barni í Reykjadal Lögregla hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot í sumarbúðunum í Reykjadal í ágúst 2022. Foreldrar barnsins lýsa brotunum í samtali við Heimildina og þeim áhrifum sem þau hafa haft á fjölskylduna. Málið allt hafi verið helvíti frá upphafi til enda. Innlent 24.3.2023 15:15
Koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann Ferðamálastjóri segir að koma þurfi í veg fyrir að fólk labbi upp að Glym yfir vetrartímann. Hann mun eiga samtal við landeigendur, fulltrúa sveitarfélagsins, lögreglu og aðra hlutaðeigandi aðila til þess að ræða aðgerðir til að auka öryggi á svæðinu. Innlent 24.3.2023 12:33
Hefði verið betra að fá þyrluna Slökkvilið fylgist enn vel með vettvangi mikils sinubruna í Straumsvík sem kviknaði í gær. Erfitt hefur verið að eiga við brunann að sögn varðstjóra, enda svæðið þungt yfirferðar. Eina þyrla Landhelgisgæslunnar sem nothæf er til slökkvistarfa var ekki tiltæk til aðstoðar í gær. Innlent 24.3.2023 11:56
Handteknu sleppt: „Einhver tenging“ við árásina á Bankastræti Club Einstaklingarnir fjórir sem voru handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni á miðvikudagskvöld hafa verið látnir lausir. Innlent 24.3.2023 11:04
Sérsveitin kölluð út og fimm handteknir eftir átök í heimahúsi Um klukkan 3 í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um átök í heimahúsi. Rætt var að hnífi hefði verið beitt í árásinni. Lögregla fór á staðinn ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra, en ekki er tekið fram hvar á höfuðborgarsvæðinu átökin áttu sér stað. Innlent 24.3.2023 06:14
Dansaði úti á miðri götu og truflaði umferð Lögreglu barst tilkynning um mann sem truflaði umferð í Múlunum með dansi. Manninum var bent á að gangstéttin væri betri dansstaður og færði hann sig þangað. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu yfir verkefni dagsins í dag. Innlent 23.3.2023 19:07
Hættulegur staður allt árið um kring Kona á þrítugsaldri lést þegar hún féll á annað hundrað metra við fossinn Glym í Hvalfirði í gær. Aðstæður voru mjög hættulegar á vettvangi, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Slysið sýni að bæta þurfi verulega öryggi á ferðamannastöðum landsins. Innlent 23.3.2023 11:45
Grunaður um tilraun til manndráps í nánu sambandi Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar síðastliðnum. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp. Innlent 23.3.2023 10:37
Kona á þrítugsaldri lést eftir hátt fall við Glym Kona á þrítugsaldri sem féll niður í gil við fossinn Glym í Hvalfirði í gær er látin. Talið er að hún hafi látist samstundis eftir hátt fall. Innlent 23.3.2023 08:49
Fjórir handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan 22 í gærkvöldi þess efnis að menn væru vopnaðir hnífum fyrir utan skemmtistað í miðbænum. Fjölmennt lið var sent á vettvang en mennirnir voru farnir þegar lögregla mætti á staðinn. Innlent 23.3.2023 06:26
Sérsveitin kölluð til vegna slagsmála í Bankastræti Mikill viðbúnaður er við Bankastræti í Reykjavík í kjölfar þess að slagsmál brutust þar út fyrr í kvöld. Sérsveitin var kölluð til ásamt lögreglu og sjúkrabíl. Innlent 22.3.2023 23:43
Skotmaðurinn á Dubliner í fjögurra vikna gæsluvarðhald Karlmaður sem grunaður er um að hafa hleypt af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. apríl á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 22.3.2023 18:08
Fall mannsins við Glym mun hærra en talið var í fyrstu Ljóst er að um alvarlegt slys er að ræða í tilfelli ferðamanns sem féll við fossinn Glym fyrir hádegi í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitar auk lögreglu er á svæðinu og er verið að bera viðkomandi frá slysstað. Innlent 22.3.2023 14:43
Staðfest að brakið og líkamsleifarnar séu úr banaslysinu Flugvélabrak og líkamsleifar sem festust í veiðarfæri skipsins Hrafns Sveinbjarnarsonar GK-255 þann 8. mars síðastliðinn eru úr banaslysi sem varð á svæðinu fyrir fimmtán árum síðan. Rannsóknarnefnd samgönguslysa komst að þessari niðurstöðu í dag. Innlent 22.3.2023 14:23
Þyrlan kölluð út vegna ferðamanns sem féll við Glym Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi eftir að tilkynning barst um að maður hafi fallið og slasast nærri fossinum Glym í Hvalfirði um klukkan 10:30 í morgun. Innlent 22.3.2023 11:52
Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir skotmanninum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur sunudagskvöldið 12. mars síðastliðinn. Innlent 22.3.2023 10:48
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. Erlent 21.3.2023 07:33
Ekið á barn á reiðhjóli Ekið var á barn á reiðhjóli á höfuðborgarsvæðinu um klukkan 18 í gær. Barnið slasaðist ekki en engar frekari upplýsingar um atvikið er að finna í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Innlent 21.3.2023 06:02
Lýsa yfir áhyggjum af vegferð lögreglunnar Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem hún fordæmir að enn einn blaðamaðurinn hafi hlotið stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið svokallaða. Innlent 20.3.2023 18:29
Nafn mannsins sem lést í Ásahreppi Karlmaðurinn sem lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi hét Guðjón Björnsson. Hann var fæddur árið 1983 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Haldin var bænastund í hreppnum í gær. Innlent 20.3.2023 15:24
Mönnunum sleppt úr haldi Mönnunum tveimur sem handteknir voru eftir að karlmaður fannst látinn í húsi í Þingholtunum hefur verið sleppt úr haldi. Er það mat lögreglu að þeir hafi ekki átt þátt í dauða mannsins. Innlent 20.3.2023 11:46
Fjögur innbrot og eignaspjöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt en henni bárust meðal annars fjórar tilkynningar um þjófnað úr verslunum auk tilkynninga um íkveikju og eignaspjöll. Innlent 20.3.2023 06:23
Reyna að yfirheyra mennina aftur í fyrramálið Lögreglu hefur enn ekki tekist að yfirheyra mennina sem handteknir voru í morgun vegna andláts í Þingholtunum. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að yfirheyra mennina en það hefur ekki tekist sökum ástands þeirra. Gerð verður tilraun til að yfirheyra mennina aftur í fyrramálið. Innlent 19.3.2023 22:40
Hafa ekki enn náð að yfirheyra mennina sökum ástands Tilraunir lögreglu til að yfirheyra mennina sem handteknir voru í morgun vegna andláts í Þingholtunum hafa ekki borið árangur sökum ástands þeirra. Takist það ekki seint í kvöld þurfi að skoða aðrar ráðstafanir þar sem lögregla hefur aðeins heimild til að halda einstaklingum í sólarhring. Innlent 19.3.2023 19:29
Eldur kviknaði í ísskáp Eldur kviknaði í ísskáp á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglan fór á vettvang ásamt slökkviliði í kljölfar þess sem tilkynning um eldinn barst. Eldurinn var farinn að dreifa sér um eldhúsið en slökkviliði tókst að slökkva eldinn. Tæknideild lögreglu mætti einnig á vettvang. Innlent 19.3.2023 18:45
Telja ólíklegt að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Ekki var hægt að yfirheyra mennina tvo, sem handteknir voru í morgun í tengslum við andlát í Þingholtunum í Reykjavík, fyrr en síðdegis sökum ástands þeirra. Lögregla segir það ekki talið líklegt að svo stöddu að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en það mun skýrast betur í dag. Innlent 19.3.2023 14:44
Klemmdist og lést í vinnuslysi Karlmaður lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi á föstudag. Innlent 19.3.2023 13:32
Tveir handteknir í tengslum við andlát í miðbænum Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við andlát í Þingholtunum í Reykjavíkur í morgun. Tilkynning barst á sjöunda tímanum í morgun um hávaða og háreysti í húsi en þegar lögregluþjóna bar að garði var þar maður meðvitundarlaus. Innlent 19.3.2023 11:13
Kom að húsnæði í rúst eftir innbrot Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um innbrot í Hafnarfirði. Þegar eigandi húsnæðisins kom heim var búið að brjótast inn og skemma þar mikið af húsgögnum og munum. Innlent 19.3.2023 07:35
Tveir fluttir slasaðir eftir snjóflóðið Snjóflóð féll í fjallshlíð suður af Ólafsfirði á fyrsta tímanum í dag með þeim afleiðingum að tveir úr hópi skíðafólks slösuðust. Björgunarsveitir eru mættar á vettvang ásamt þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Innlent 18.3.2023 14:07