Efnahagsmál
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 70 ›
Bankasýsla ríkisins verði lögð niður Til stendur að leggja niður Bankasýslu ríkisins og flytja verkefni hennar til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Fjármálaráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda drög til umsagnar að frumvarpi þar sem lagt er til að sérstök lög sem nú gilda um Bankasýsluna verði felld úr gildi. Innlent 10.7.2024 12:58
Hvað kostar krónan heimilin? Í umræðum um gjaldmiðlamál og stöðu efnahagsmála á Íslandi er það oftast rök þeirra sem vilja halda í krónuna að fullyrða að hún bjargi okkur úr efnahagslægðum og áföllum. Þessi rök eru notuð til að blekkja almenning, en það er mikilvægt að skoða hvaða raunverulegan kostnað krónan leggur á heimilin og hvort hún raunverulega bætir líf okkar. Skoðun 9.7.2024 13:31
Vaxandi vanskil merki um víðtækari vanda framundan Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan. Forstjóri segir þetta merki um að nú séu langvarandi verðbólga og háir vextir farnir að segja til sín. Innlent 8.7.2024 22:07
Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Fullorðnir eru í þessu landi um 250.000 manns. Eftir því sem bezt verður séð, eru um 150.000 þessa fólks, 60 prósent þjóðarinnar, sá hluti hennar, sem ver er settur og þarf lán til að fjármagna sitt líf, íbúðarkaup, bílakaup eða annað. Fjármagnsþurfar. Skoðun 5.7.2024 08:31
Hagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af aukinni útgáfu ríkisbréfa Aðalhagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af fjármögnun ríkissjóðs og það hafi því komið honum um „örlítið spánskt fyrir sjónir“ hvað markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu skarpt þegar ríkið upplýsti um 30 milljarða aukna útgáfu af ríkisbréfum. Hann telur „fjármögnunarbrekkuna“ framundan ekki líta út fyrir að vera óyfirstíganleg. Innherji 4.7.2024 15:44
Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Á embættistíma núverandi barnamálaráðherra hefur barnafátækt á Íslandi aukist verulega. Á sama tíma hefur hlutfall barna sem útskrifast úr 10. bekk með lélegan lesskilning eða ólæsi hækkað úr 22% í um 50% frá árinu 2016. Þessi börn standa frammi fyrir ógnvekjandi veruleika þar sem tækifæri þeirra til að blómstra eru skert af kerfisbundinni mismunun. Skoðun 3.7.2024 09:31
Fyrirtækjalánin í methæðum vegna kaupa Þórkötlu á fasteignum í Grindavík Tilfærsla frá íbúðalánum heimila til fyrirtækja í tengslum við sölu Grindvíkinga á fasteignum sínum til fasteignafélagsins Þórkötlu skýrir að hluta tugmilljarða stökk í nýjum útlánun til atvinnufyrirtækja í maímánuði og höfðu þau aldrei mælst meiri. Félagið Þórkatla, sem var stofnað fyrr á árinu til að annast uppkaup ríkisins á íbúðarhúsnæði einstaklinga vegna eldsumbrotanna í nágrenni Grindavíkur, stóð að kaupum á um 200 fasteignum í maí. Innherji 2.7.2024 15:32
Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur. Innlent 2.7.2024 13:04
Aukin útgáfa ríkisbréfa kom markaðnum í „opna skjöldu“ sem taldi árið tryggt Fyrirhuguð aukin útgáfa á ríkisbréfum í ár kom markaðnum í „opna skjöldu“ og markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu því skarpt við tíðindin. Sjóðstjórar töldu að ríkið væri búið að fjármagna útgjöld vegna kjarasamninga og jarðhræringa á Reykjanesi að minnsta kosti fram á næsta ár. Spurningin „hver á að fjármagna ríkissjóð í þetta skiptið?“ veldur mörgum skuldabréfafjárfestum áhyggjum. Innherji 2.7.2024 06:31
Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Hagfræðideild Landsbankans segir það hugsanlegt að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli í október eða nóvember. Það fari allt eftir því hvenær verðbólga og verðbólguvæntingar benda til frekari hjöðnunar. Viðskipti innlent 1.7.2024 14:43
Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Útflutningur á eldislaxi hefur undanfarin fimm ár skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum sem fluttar eru frá Íslandi. Þorskurinn trónir þar á toppnum, en heilt á litið hefur loðnan skilað næstmestum útflutningstekjum af öllum fisktegundum á þessari öld. Síðustu fimm ár hefur laxinn þó tekið fram úr loðnunni. Viðskipti innlent 30.6.2024 17:51
Bestun Seðlabankastjóra Stór hluti af starfi verkefnastjóra er að reyna að besta ferla verkefnis, til að skila verðmætari afurð. Ef Seðlabankastjóri er verkefnastjórinn og afurðin er skilgreind sem lækkun á verðbólgu í 2,5% og minnka eigi þenslu í hagkerfinu verður líka að TÍMASETJA afurðina; skilgreina hvaða dag, mánuð eða ár afurðin á að vera tilbúin. Skoðun 30.6.2024 10:00
Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir verulega sem allra fyrst. Seðlabankinn segir að ekki sé til skoðunar að flýta næstu vaxtaákvörðun. Viðskipti innlent 28.6.2024 12:43
Heimta aukafund og „myndarlega“ vaxtalækkun Hagsmunasamtök heimilanna fara fram á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands komi saman á aukafundi sem fyrst og lækki stýrivexti „myndarlega“. Næsti fundur nefndarinnar verður að óbreyttu í ágúst, þegar stýrivextir munu hafa verið þeir sömu í ár. Innlent 28.6.2024 10:11
Útlán til fyrirtækja tóku sextíu milljarða stökk og hafa aldrei mælst meiri Ágætis þróttur er í nýjum útlánum bankakerfisins til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir þröng lánþegaskilyrði en í maí námu þau meira en sextíu milljörðum og hafa aldrei mælst meiri í einum mánuði. Vöxturinn er sem fyrr drifinn áfram af ásókn fyrirtækja í verðtryggð lán á tímum hárra vaxta auk þess sem mikil aukning er í lánum í erlendum gjaldmiðlum. Innherji 27.6.2024 17:52
Verðbólga nú 5,8 prósent Verðbólga mælist nú 5,8 prósent miðað við vísitölu neysluverðs síðustu tólf mánuði. Hún var 6,2 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga var mest í febrúar 2023 þegar hún var 10,3 prósent. Frá þessu er greint í nýrri tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 27.6.2024 09:23
Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits hjá Seðlabanka Íslands, er komin í stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Viðskipti innlent 24.6.2024 15:16
Orðum aukið að Ísland sé dottið úr tísku Á fyrstu fimm mánuðum ársins voru þrjátíu þúsund fleiri ferðamenn á landinu en á sama tíma í fyrra. Það samsvarar 4 prósent fjölgun frá síðasta ári. Í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins segir að þótt greinilega sé að hægja á vexti umsvifa í ferðaþjónustu virðist orðum aukið að óveðurský séu yfir greininni og að Ísland sé dottið úr tísku meðal ferðamanna. Innlent 21.6.2024 13:46
Launaþróun æðstu embættismanna eigi að fylgja öðrum launum Forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, segir það forgangsmál ríkisstjórnarinnar að vinna bug á verðbólgu og skapa Seðlabankanum skilyrði til að lækka vexti. Til að það gangi eftir verði forsendur nýgerðra kjarasamninga að standast og forðast þurfi launaskrið „sem endar í höfrungahlaupi á vinnumarkaði með þekktum afleiðingum.“ Innlent 19.6.2024 22:23
Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um áttatíu milljörðum króna. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík. Þyngst vegu framlag ríkissjóðs vegna kaupa Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Innlent 14.6.2024 15:33
Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum Forseti ASÍ segir áríðandi að frumvarp innviðaráðherra um bætta stöðu leigjenda verði samþykkt fyrir þinglok. Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, segir frumvarpið fast í nefnd því ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um þinglok. ASÍ skorar á Alþingi að ljúka málinu fyrir þinglok. Innlent 14.6.2024 13:05
„Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar geldur varhug við umræðu um „betur borgandi ferðamenn,“ en hún segir hugtakið vera nokkurs konar klisju. Hún segir að óþægilega mikið hafi dregið úr eftirspurn hins almenna ferðamanns, sem eyðir hér að jafnaði hundruðum þúsunda hver. Ísland hafi dregið lappirnar í markaðssetningu um árabil. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:47
Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir. Viðskipti innlent 13.6.2024 16:04
Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið. Innherji 13.6.2024 14:06
Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum. 1.Það verður áfram að vera góður grundvöllur fyrir þann byggingariðnað sem er í landinu og það þarf að styrkja hann, meðal annars með því að útskrifa fleiri iðnaðarmenn. Það kerfi sem fyrir er á að taka við þegar jafnvægi er náð. Skoðun 13.6.2024 07:01
Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt. Viðskipti innlent 12.6.2024 21:24
Ríkisstjórnin hafi sett efnahag venjulegs fólks á hvolf Formaður Samfylkingarinnar heitir því að flokkurinn muni endurheimta og tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi, nái flokkurinn í ríkisstjórn. Í eldhúsdagsræðu sinni í kvöld sagði hún ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa sett efnahag venjulegs fólks á hvolf, en Samfylkingin hafi getuna til að rétta úr kútnum. Innlent 12.6.2024 19:59
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10.6.2024 23:42
Kyrrstöðuverðbólga Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni. Skoðun 10.6.2024 11:30
Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Seðlabankinn í Evrópu lækkaði í dag stýrivexti bankans í fyrsta sinn síðan 2019. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að ástæða lækkunar sé að verð hækki eins hratt og að þau séu á góðri leið að ná verðbólgumarkmiðum sínum sem eru tvö prósent. Bankinn lækkaði stýrivextina um 0,25 prósentustig í 3,75 prósent úr fjögur prósent en þeir höfðu verið fastir í fjögur prósent frá september 2023. Viðskipti erlent 6.6.2024 19:19