Úkraína
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 79 ›
Bandaríkjaforseti setur tugi milljarða í hernaðaraðstoð Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst setja aukinn kraft í hernaðaraðstoð. Bandaríkjamenn hyggist útvega Úkraínumönnum hergögn að andvirði 625 milljóna bandaríkjadala en þar á meðal eru HIMARS-eldflaugakerfi, skriðdrekar og stórskotaliðstæki. Erlent 4.10.2022 18:49
Úkraínuforseti segir æ fleiri Rússa leggja á flótta Úkraínuforseti segir að hersveitir hans sæki fram í suðri og austri og frelsi æ stærri svæði undan Rússum. Á sama tíma leggi fleiri rússneskir hermenn á flótta. Forseti Frakklands vill mynda pólitískt bandalag lýðræðisríkja í Evrópu og segir að það geti tekið Úkraínu nokkur ár eða áratugi að gerast meðlimir að Evrópusambandinu. Erlent 4.10.2022 13:14
Rússar á undanhaldi í suðri Úkraínskir hermenn virðast sækja hratt fram gegn Rússum í suðurhluta Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komið verði fram við Úkraínumenn sem búa í byggðum sem búið er að frelsa frá Rússum af sanngirni. Erlent 4.10.2022 13:13
Úkraínuher sækir fram í suðri og austri Varnir Rússa í Kherson-héraði í sunnanverðri Úkraínu voru brotnar á bak aftur í dag á sama tíma og Úkraínuher sótti fram í austanverðu landinu sem Rússar segjast hafa innlimað. Birgðaflutningaleiðum fyrir rússneska hermenn er sagt ógnað með gagnsókninni. Erlent 3.10.2022 23:55
Kölluðu rússneska sendiherrann á teppið vegna innlimunarinnar Utanríkisráðuneytið kallaði rússneska sendiherrann á Íslandi til fundar til að lýsa fordæmingu sinni á tilraun rússneskra stjórnvalda til þess að innlima fjögur úkraínsk héruð í dag. Íslensk stjórnvöld ætla ekki að viðurkenna héruðin sem hluta af Rússlandi. Innlent 3.10.2022 23:02
Sendiherra segir Musk að fara norður og niður Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi vandaði Elon Musk, auðkýfingnum sem hefur haslað sér völl sem nettröll, ekki kveðjurnar eftir að sá síðarnefndi viðraði hugmynd um forsendur friðar á milli Rússlands og Úkraínu. Bað sendiherrann Musk um að fara norður og niður. Erlent 3.10.2022 17:48
Petreaus segir bandamenn myndu þurrka Rússa út í Úkraínu David Petreaus, fyrrverandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA og fjögurra stjörnu hershöfðingi, segir að Bandaríkin og bandamenn þeirra innan Atlantshafsbandalagsins myndu grípa til afgerandi aðgerða ef Rússar notuðu kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 3.10.2022 07:53
Góð helgi fyrir Úkraínumenn Frá því Vladimír Pútin lýsti yfir ólöglegri innlimun fjögurra héraða Úkraínu á föstudaginn virðist sem Úkraínumönnum hafi vegnað verulega vel gegn Rússum á vígvöllum landsins. Rússar eru víðast hvar á hælunum í Úkraínu. Erlent 2.10.2022 21:30
Beittu íbúa Izyum kerfisbundnum pyntingum Rússneskir hermenn eru sagðir hafa ítrekað pyntað íbúa Izyum í Úkraínu í þá sjö mánuði sem þeir stjórnuðu borginni. Sameinuðu þjóðirnar hafa skráð markvissa beitingu ofbeldis gegn óbreyttum borgurum og að pyntingar hafi verið beitt með kerfisbundnum hætti. Erlent 2.10.2022 18:00
Lyman sýni að innlimunin sé farsi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að undanhald Rússa frá Lyman sýni að tilraunir Rússa til að innlima úkraínskt landsvæði væri „algjör farsi“. Úkraínumenn eru sagðir hafa elt þær rússnesku hersveitir sem hörfuðu og munu bardagar geisa á ný, austur af Lyman. Erlent 2.10.2022 10:17
Segir trúverðugleika Rússa minnkandi sem gæti aukið hömluleysið Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir sigur Úkraínumanna í Lyman í dag mikið áfall og bakslag í áróðursstríði Rússa. Áhyggjuefni sé að leið Rússa úr slíkum ógöngum sé að stigmagna aðgerðir og verða hömulausari. Erlent 1.10.2022 20:43
Afhjúpuðu enn meiri hrylling Úkraínumenn náðu í dag lykilborg í austurhluta landsins aftur á sitt vald, eftir að Rússar innlimuðu svæðið ólöglega í gær. Sigurinn þykir högg fyrir Rússa. Mun fleiri féllu í hryllilegri árás Rússa á almenna borgara um síðustu helgi en talið var. Erlent 1.10.2022 19:37
Kadyrov kallar eftir herlögum og notkun kjarnorkuvopna Ramsan Kadyrov, einræðisherra Téténíu, birti í dag langan pistil þar sem hann gagnrýnir leiðtoga rússneska hersins harðlega vegna undanhaldsins frá Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Meðal annars kallar hann eftir því að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, setji á herlög á landamærasvæði Rússlands við Úkraínu og beiti kjarnorkuvopnum gegn Úkraínumönnum. Erlent 1.10.2022 15:23
Lyman er í höndum Úkraínumanna Úkraínumenn hafa rekið Rússa á brott frá bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Talsmaður úkraínska hersins sagði í morgun að allt að 5.500 rússneskir hermenn hefðu verið umkringdir þar en meirihluti þeirra virðist hafa flúið áður en borgin var umkringd. Erlent 1.10.2022 12:30
Putin segir Vesturlönd sækja að Rússum með skemmdarverkum og úrkynjun Úkraína hefur óskað eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu með hraði eftir að Rússlandsforseti setti á svið innlimun fjögurra héraða í landinu með athöfn í Kreml í dag. Utanríkisráðherra segir ekkert mark takandi á svo kölluðum kosningum í þessum héruðum þar sem varla fannst maður á móti innlimuninni. Erlent 30.9.2022 19:21
Svíar á svæðinu sólarhring áður en meint skemmdarverk átti sér stað Fjórir lekar fundust á Nord stream 1 og 2 gasleiðslurnar í Eystrasalti á dögunum og telur Atlantshafsbandalagið að um skemmdarverk hafi verið að ræða. Norrænir jarðskjálftamælar urðu varir við tvær sprengingar á svæðinu. Sænski sjóherinn sinnti eftirliti á svæðinu þangað til sólarhring áður en meintu skemmdarverkin áttu sér stað. Erlent 30.9.2022 18:37
„Þetta sýnir ekki styrk. Þetta sýnir veikleika“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir ólöglega innlimun Rússlands á fjórum héruðum Úkraínu vera mikla stigmögnun í tengslum við innrás Rússa hingað til. Ákvörðun Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, hefði þó ekki áhrif á eðli átakanna eða stuðning NATO við Úkraínu. Erlent 30.9.2022 17:09
Óska eftir skjótri inngöngu í NATO Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tilkynnti nú fyrir skömmu að ríkisstjórn hans hafi formlega sótt um skjóta inngöngu í Atlantshafsbandalagið (NATO). Það er í kjölfar þess að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði undir ólöglega innlimun fjögurra héraða Úkraínu. Erlent 30.9.2022 14:56
Bölsótaðist út í Vesturlönd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að þau héruð Úkraínu sem hann innlimaði einhliða og ólöglega í rússneska sambandsríkið í dag tilheyri Rússlandi. Þau hafi tilheyrt rússneska keisaraveldinu og Sovétríkin hafi rekið Þjóðverja þaðan í seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 30.9.2022 14:22
Umkringdir rússneskir hermenn sagðir hörfa frá Lyman Úkraínumenn eru sagðir hafa nánast umkringt hóp rússneskra hermanna í borginni Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Rússar eru sagðir undirbúa það að hörfa frá bænum á sama tíma og forseti Rússlands lýsir yfir innlimun héraðsins. Erlent 30.9.2022 12:16
Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar Í hádeginu fer fram athöfn í Kreml þar sem Vladimir Putin forseti Rússlands undirritar formlega yfirlýsingu um innlimun fjögurra héraða í Úkraínu í rússneska sambandslýðveldið. Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan gjörning. Erlent 30.9.2022 11:24
23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga. Erlent 30.9.2022 07:50
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar Úkraínskir hermenn eru sagðir nærri því að umkringja stóran hóp rússneskra hermanna í bænum Lyman í norðanverðu Donetsk-héraði. Þorp víðs vegar um bæinn hafa verið frelsuð og er útlit fyrir að Rússar eigi einungis eina undankomuleið frá Lyman. Erlent 29.9.2022 14:00
Ætlar að innlima héruðin á morgun Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að skrifa undir innlimun fjögurra héraða Úkraínu á morgun, föstudag. Þetta tilkynnti Kreml nú fyrir skömmu og sagði að klukkan þrjú á morgun, að staðartíma, myndi Pútín skrifa undir innlimun héraðanna í rússneska sambandsríkið og halda ræðu í kjölfarið. Erlent 29.9.2022 10:13
Eigendur Jets segja „skyldu sína“ að hjálpa fólki frá Úkraínu Annar af eigendum NFL-liðsins New York Jets hafa gefið eina milljón Bandaríkjadala [145 milljónir íslenskra króna] til góðgerðarmála tengdum Úkraínu og stríðinu þar í landi. Sport 29.9.2022 07:01
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. Erlent 28.9.2022 14:46
Rússneskur keppinautur Facebook fjarlægður úr AppStore Apple hefur fjarlægt rússneska samfélagsmiðilinn VK úr AppStore í kjölfar nýjustu uppfærslu breskra refsiaðgerða gagnvart Rússum. Viðskipti erlent 28.9.2022 12:26
Segja 99,23 prósent hafa stutt tillögu um að heyra undir Rússland Talsmenn leppstjórna Rússa í fjórum úkranskum hérðuðum hafa lýst því yfir að yfirgnæfandi meirihluti hafi greitt atkvæði með því að heyra undir Rússland, í svokölluðum „þjóðaratkvæðagreiðslum“ sem boðað var til og haldnar í gær. Erlent 28.9.2022 06:27
„Þetta land er Úkraína“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir væntanlega innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu vera marklausa og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Hann segir að ríki NATO muni ekki láta af stuðningi við rétt Úkraínumanna til fullveldis og sjálfsvarnar og að sviðsettar atkvæðagreiðslur Rússa hafi ekki lögmæti. Erlent 27.9.2022 16:56
Glasgow og Liverpool keppast um að halda Eurovision Borgirnar Glasgow og Liverpool í Bretlandi standa nú tvær eftir í keppninni um að halda Eurovision. Samkvæmt The BBC voru þær borgir með bestu tilboðin fyrir viðburðarhaldið. Bretland var valið til þess að halda keppnina í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, sem sigraði Eurovision. Lífið 27.9.2022 16:01