Borgarstjórn
65 66 67 68 69 70 71 72 … 72 ›
Borgarbúar skipuleggja Vatnsmýrina Á morgun gefst Reykvíkingum færi á að hafa bein áhrif á skipulag Vatnsmýrarsvæðisins. Búið er að setja upp upplýsinga- og hugmyndamiðstöð í Listasafni Reykjavíkur þar sem borgarbúar geta gefið hugmyndafluginu lausan tauminn. Innlent 23.10.2005 15:01
Aðrar leiðir verði kannaðar Undirbúningshópur stofnunar íbúasamtaka í Laugardalshverfum telur að þó svo að það virðist sem að svokölluð „innri leið“ hafi verið valin við skipulagningu Sundabrautar í Reykjavík, þá sé ekki fullreynt að kanna aðrar leiðir. Innlent 23.10.2005 14:59
D-listi fengi hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta og níu fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur ef kosið yrði núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir Ríkisútvarpið. Liðlega 56 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn, tæp 28 prósent Samfylkinguna, 11,5 prósent Vinstri græna, tæp þrjú prósent Framsóknarflokkinn og tvö prósent Frjálslynda flokkinn. Innlent 23.10.2005 14:58
Júlíus Vífill styður Vilhjálm Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, sem gefur nú kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðsiflokksins í Reykjavík, segist styðja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem borgarstjóraefni flokksins. Þetta kom fram í þættinum Ísland í bítið í morgun. Innlent 17.10.2005 23:43
Hugmyndasamkeppnin ótímabær Bæði borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins og Ólafur F. Magnússon, fulltrúi F-lista, telja að alþjóðleg hugmyndasamkeppni um Vatnsmýrarsvæðið, sem borgarráð samþykkti í gær að efna til, sé ótímabær þar til lokið verði viðræðum fulltrúa Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytis um málið. Innlent 14.10.2005 06:41
21 milljón í hugmyndasamkeppnina Reykjavíkurborg hefur gert samstarfssamning við Íslandsbanka, KB banka, Landsbankann og fasteignafélagið Þyrpingu vegna alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. Hefur verið ákveðið að bankarnir og Þyrping leggi til 21 milljón króna í hugmyndasamkeppni um skipulag svæðisins. Innlent 14.10.2005 06:41
Anna stefnir á fyrsta sætið Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Anna tilkynnti þetta á blaðamannafundi fyrir stundu. Innlent 14.10.2005 06:41
Öll hækkunin afturkræf Forsvarsmenn stúdenta hafa leitað eftir svörum við því hjá borgaryfirvöldum hvort samþykkt borgarráðs um að falla frá fyrirhuguðum hækkunum á gjaldskrá leikskólanna þar sem annað foreldrið er í námi, eigi einnig við um þá hækkun sem tók gildi 1. júní síðastliðinn. Innlent 13.10.2005 19:46
Össur gagnrýnir Steinunni Valdísi Össur Skarphéðinsson gagnrýnir ummæli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur sem sagði að Stefán Jón hafi gengið með borgarstjórann í maganum og því komi ákvörðun hans um að bjóða sig fram sem borgarstjóraefni Samfylkingarinnar ekki á óvart. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:46
Lögreglan var við að missa tökin Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir ástandið á menningarnótt hafa verið ískyggilegt og ekki sé hægt að líða slíkt ár eftir ár. Mikið fyllerí, unglingafyllerí, fíkniefnaneysla, spennuþrungið og hættulegt ástand. Þannig lýsir Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur ástandinu í miðborginni eftir miðnætti umrædda nótt. Innlent 13.10.2005 19:45
Samið um 40 ljósleiðaratengingar Í dag var undirritaður samningur milli Reykjavíkurborgar og Og fjarskipta um 40 ljósleiðaratengingar vegna jafn margra starfsstaða borgarinnar. Samningurinn gildir til fjögurra ára og var gerður í kjölfar útboðs á ljósleiðaratengingum fyrir helstu starfsstaði borgarinnar. Verðmæti samningsins er um 111 milljónir króna. Innlent 17.10.2005 23:42
Afstaða ráðherra hefur ekki áhrif Ekki er áformað samkvæmt þeim hugmyndum sem Reykjavíkurborg kynnti Háskólanum í Reykjavík að byggja innan flugvallargirðingarinnar næstu tíu til fimmtán árin. Afstaða samgönguráðherra hefur því engin áhrif á framkvæmdir fram að þeim tíma. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans. Innlent 13.10.2005 19:33
Enginn er eyland í R-listanum „Það býður enginn flokkur fram Reykjavíkurlista einn og sér - það er ekki R-listi,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Tveir menn eru skráðir fyrir Reykjavíkurlistanum í fyrirtækjaskrá - annar er framsóknarmaður og hinn er í Samfylkingunni. Innlent 13.10.2005 19:33
Rætt við hæstbjóðanda Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt að gengið yrði til viðræðna við hæstbjóðanda í hlut borgarinnar í Vélamiðstöðinni ehf. sem borgin á í félagi við Orkuveitu Reykjavíkur. Þá var samþykkt tillaga um að byggja nýtt fimleikahús fyrir Ármann og Þrótt í Laugardal. Innlent 13.10.2005 19:33
32% vilja Össur sem borgarstjóra Þrjátíu og tvö prósent þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun sem Plúsinn gerði eftir hádegi í gær sögðust vilja sjá Össur Skarphéðinsson sem næsta borgarstjóra. Sextíu og átta prósent voru því andvíg en spurt var hvort fólk vildi hann í embættið eða ekki. Innlent 13.10.2005 19:32
Stefnir ekki að borgarstjórastól Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segist ekki stefna að því að verða borgarstjóraefni R-listans og hefur hann enga ákvörðun tekið í þeim efnum. Innlent 13.10.2005 19:32
Vilja opið prófkjör Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, segir hugmyndir Össurar Skarphéðinssonar um opið prófkjör Samfylkingarinnar sem fram koma á heimasíðu hans í dag ekki vera nýjar af nálinni. Slíkt hafi verið gert tvisvar áður á síðustu árum og hefur hann verið talsmaður þess að sem flestir komi að prófkjöri. Innlent 13.10.2005 19:31
Össur vill opið prófkjör Össur Skarphéðinsson vill að prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík verði opið. Þannig segir hann að leið myndi opnast fyrir Dag B. Eggertsson til að vera á listanum. Innlent 13.10.2005 19:31
Stefán Jón gegn Steinunni? Kúvending á málflutningi viðræðunefndar Samfylkingarinnar eftir fund með ráðamönnum í flokknum olli því að sátt náðist á fundi R-lista flokkanna í gær. Náist sátt um áframhaldandi samstarf stefnir í baráttu núverandi borgarstjóra og Stefáns Jóns Hafstein um borgarstjórastólinn. Innlent 13.10.2005 19:30
R-listi: Viðræðum haldið áfram Flokkarnir þrír sem standa að R-listanum ákváðu rétt fyrir klukkan sex að halda áfram viðræðum um samstarf. Fyrr í dag hótuðu framsóknarmenn í samninganefnd fyrir R-listann að hætta samstarfinu ef Samfylkingin kæmi ekki með nýtt útspil á fundi flokkanna sem haldinn var síðdegis. Innlent 13.10.2005 19:29
Vendipunktur hjá R-listanum Ákveðinn vendipunktur varð á fundi fulltrúa aðildarflokka R-listans í dag að því er segir í tilkynningu frá fundarmönnum. Hvað þar var um að ræða er ekki útskýrt nánar. Innlent 13.10.2005 19:29
Framtíð R-listans að ráðast Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 13.10.2005 19:29
VG ræða framboðsmál í Reykjavík Félagsmenn Vinstri grænna í Reykjavík ætla í kvöld að fjalla um framboðsmál sín fyrir næstu borgarstjórnarkosningar en sem kunnugt er eru Vinstri grænir hluti R-listans. Líklegt er talið að Vinstri grænir muni velja frambjóðendur sína með innanflokksprófkjöri. Innlent 13.10.2005 19:25
Kynning á framkvæmdum við Hlemm Kynning á nýju deiliskipulagi og byrjuðum og fyrirhuguðum framkvæmdum í næsta nágrenni Hlemms fer fram í strætóskýlinu á Hlemmi á morgun. Einnig verður flutt sögulegt ágrip svæðisins og nýtt leiðakerfi Strætó bs. kynnt. Innlent 17.10.2005 23:41
Hvatt til samstarfs R-listans Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem hvatt er til viðræðna um endurnýjað samstarf í borgarstjórn undir merkjum Reykjavíkurlistans. Innlent 13.10.2005 19:21
Boðar að flugvöllurinn skuli fara Borgarfulltrúar R-listans boða að flugvöllurinn skuli fara en borgarstjóri vinnur með samgönguráðherra að undirbúningi nýrrar flugstöðvar. Innlent 13.10.2005 19:20
Íbúaþing D-lista í Laugardalnum Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna efnir til íbúaþings í dag klukkan 17 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal</u />. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokksins, setur íbúaþingið og mun kynna hugmyndir um betri borg. Innlent 13.10.2005 19:20
Monopoly kastað á milli Brask og bruðl er aðalmálið í spilinu Monopoly, eða Matador eins og flestir kalla það. Af þessum sökum þótti ungum sjálfstæðismönnum tilvalið að senda Alfreð Þorsteinssyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, spilið í dag. Honum finnst það hins vegar betur komið hjá Davíð Oddssyni, guðföður Perlunnar. Innlent 13.10.2005 19:18
Um 30 flóttamenn til Reykjavíkur Allt að þrjátíu flóttamenn frá Kólumbíu eru væntanlegir hingað til lands síðla sumars eða í haust. Þeir munu væntanlega setjast að í Reykjavík, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur formanns velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Innlent 13.10.2005 19:17
Húsnæði sérskóla til borgarinnar Reykjavíkurborg mun yfirtaka eignarhald á Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla, þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskólabörn. Innlent 13.10.2005 19:17