Eldgos og jarðhræringar
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 132 ›
Fylgjast grannt með nýrri sprungu innan varnargarðanna Veðurstofa Íslands fylgist grannt með sprungu sem opnaðist innan varnargarðanna nærri Grindavík á laugardaginn en gufa streymir frá sprungunni vegna mikils hita undir yfirborðinu. Þetta staðfestir náttúruvásérfræðingur Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Innlent 3.6.2024 11:58
Fylgjast grannt með hraunflæðinu Eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram og nú gýs á þremur gígum. Innlent 3.6.2024 07:18
Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel Gestum verður hleypt ofan í Bláa lónið klukkan 11:30, í fyrsta skipti síðan eldgos hófst á miðvikudag. Ágætisútsýni er yfir gosstöðvarnar frá lóninu, en aðeins þeim sem eiga miða í lónið er hleypt inn á svæðið. Innlent 2.6.2024 11:30
Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Enn mallar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hraun flæðir úr þremur gosopum en tveimur gígum að sögn Bryndísar Ýrar Gísladóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Hún segir stöðuna óbreytta. Hraun renni til tveggja átta. Frá syðri gíg rennur það til suðurs og suðvesturs eins og í síðasta gosi og frá nyrðri gíg rennur það til austurs. Innlent 2.6.2024 10:10
Bláa lónið opnar aftur á morgun Bláa Lónið tekur aftur til starfa á morgun eftir að hafa lokað þegar svæðið var rýmt við upphaf eldgossins sem hófst 29. maí 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjunum. Innlent 1.6.2024 14:39
Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið Útvegsbóndinn Hermann Ólafsson í Grindavík er kominn með rolluhótel skammt vestan bæjarins þar sem hann hýsir stóran hluta af sauðfé Grindvíkinga. Hann segir þetta sárabót vegna gistiheimilis sem hann neyddist til að loka vegna hamfaranna. Innlent 1.6.2024 12:52
Eldgosið í beinni útsendingu Hér fyrir neðan má sjá vefmyndavélar Vísis sem eru staðsettar á svæðinu í kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst á svæðinu þann 29. maí síðastliðinn. Innlent 31.5.2024 15:02
Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið, í samráði við Almannavarnir og Lögreglustjórann á Suðurnesjum, að halda áfram móttöku fasteigna í Grindavík strax á mánudag. Ákvörðunin er þó með þeim fyrirvara að aðstæður í bænum og við eldstöðvarnar breytist ekki til hins verra. Innlent 31.5.2024 14:40
Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að ef fram heldur sem horfir virðist spámennska Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings og félaga vera á réttu róli. Þeir spá goslokum í Sundhnúkagígaröðinni í júlí og þá gæti verið komið 800 ára hlé á umbrotum að sögn Þorvaldar. Innlent 31.5.2024 13:43
Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Mikið hefur dregið úr virkni eldgossins. Hraunrennsli er aðallega á svæðinu í kringum Hagafell. GPS mælingar sýndu að land í Svartsengi seig um fimmtán sentimetra þegar kvika hljóp þaðan í fyrradag áður en eldgosið hófst. Skjálftavirkni er lítil á svæðinu og gosórói helst nokkuð stöðugur. Innlent 31.5.2024 11:48
Engar breytingar í nótt Engar verulegar breytingar urðu á eldgosinu á Reykjanesi í nótt. Skjálftavirkni á svæðinu er takmörkuð og gosórói hefur haldist nokkuð stöðugur. Innlent 31.5.2024 06:49
Myndasyrpa: Vegurinn endar í hrauninu Hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi yfir vegi á Reykjanesskaga í gær. Nýjar myndir frá Vilhelm Gunnarssyni ljósmyndara Vísis sýna hvernig Grindavíkurvegur endar í hrauninu. Innlent 30.5.2024 17:42
„Allt of snemmt að afskrifa Grindavík“ Formaður bæjarráðs í Grindavík segir stöðuna vegna eldgossins sem hófst í gær mun betri en í fyrstu leit út fyrir. Ljóst sé að varnargarðar hafi bjargað byggðinni oftar en einu sinni. Innlent 30.5.2024 17:01
Eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki líklega í sumar Prófessor í eldfjallafræði telur líklegt að eldsumbrotum á Reykjanesskaga ljúki í sumar. Sennilegast muni gosið sem nú stendur yfir lognast út af á næstu dögum, en þó sé mögulegt að það malli áfram jafnvel í einhverjar vikur líkt og síðasta gos. Innlent 30.5.2024 12:55
Segir enga hættu á ferðum og yfirvöld komin í lið með íbúum Starfsmenn Einhamar Seafood unnu að því í morgun að koma óunnum fiski frá Grindavík en Stefán Kristjánsson, eigandi og forstjóri fyrirtækisins, segir yfirvöld mun samvinnufúsari núna varðandi aðgang að bænum en í fyrri gosum. Innlent 30.5.2024 12:34
Fylgjast sérstaklega með hrauntjörnum sem gætu brostið fram Hraun rennur áfram úr eldgosinu sem hófst í gær en hægt. Almannavarnir kanna í dag með drónaflugi hvar mögulega hrauntjarnir gætu verið að myndast og hvert þær gætu runnið. Vel er fylgst með öllum helstu innviðum en skyggni er erfitt vegna veðurs. Lokað er á svæðinu og inn í Grindavík. Vilji fólk sjá gosið er mælt með vefmyndavélum. Innlent 30.5.2024 08:13
Virknin mjög svipuð í alla nótt Virknin í eldgosinu á Reykjanesi sem hófst í gær hefur verið mjög svipuð í alla nótt eftir að töluvert dró úr ákafanum síðdegis í gær. Innlent 30.5.2024 06:32
Vaktin: Virknin á svipuðum nótum í alla nótt Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis. Innlent 30.5.2024 06:18
„Varnargarðarnir stóðu sig mjög vel“ Ármann Höskuldsson eldfjallasérfræðingur segir varnargarðana hafa haldið vel þegar hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi að í dag. Sýni af hrauninu séu á leið úr landi. Innlent 29.5.2024 21:49
Hraun flæðir yfir Nesveg Hraunið frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúk á fyrsta tímanum í dag flæðir yfir Nesveg og Grindavíkurveg. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari myndaði hraunflæðið í kvöld. Innlent 29.5.2024 20:55
Eina leiðin inn í Grindavík um Suðurstrandarveg og innviðir í hættu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum líst illa á eldgosið nærri Sundhnúki. Hraunið, sem flætt hefur yfir bæði Grindavíkurveg og Nesveg liggi ofan í görðunum og innviðir séu bersýnilega í hættu. Innlent 29.5.2024 19:32
Stærri atburður en við höfum séð áður Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir að sérfræðingar hafi beðið eftir eldgosinu sem hófst í morgun vegna stöðugrar kvikusöfnunnar og landris undir Svartsengi. Innlent 29.5.2024 18:51
„Það mesta sem við höfum séð í þessum gosum hingað til“ Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir hraunflæðið vera um 1.500 til 2.000 rúmmetrar á sekúndu, það mesta í eldgosunum á Reykjanesskaga hingað til. Á einum og hálfum tíma sé hraunið orðið um 5 til 5,5 ferkílómetrar. Innlent 29.5.2024 14:52
Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér Almannavarnir vilja að Grindvíkingar sem eru búsettir í Grindavík eða voru í bænum þegar rýming átti sér stað láti vita hvar þau eru. Innlent 29.5.2024 12:15
Átta hundruð manns í Bláa lóninu Á milli sjö og átta hundruð manns voru í Bláa lóninu þegar það var rýmt upp úr klukkan ellefu. Viðvörunartónar hljómuðu í lóninu, Grindavík og við HS Orku. Innlent 29.5.2024 11:39
Allar gosmyndavélarnar á einum stað Hér að neðan má sjá vefmyndavélar frá svæðinu kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst í henni klukkan 12:46 í dag. Innlent 29.5.2024 11:29
Vaktin: Eldgos er hafið Eldgos hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík klukkan 12:46 í dag. Innlent 29.5.2024 11:02
„Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Skjálftavirkni á Hengilssvæðinu er ekkert annað en strangheiðarleg jarðskjálftahrina, sem stafar sennilega af niðurdælingu frá Hellisheiðarvirkjum, að sögn sérfræðings. Fólk fylgist vel með vef Veðurstofunnar og því hafa vaknað spurningar um virknina. Innlent 25.5.2024 12:03
Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur telja líklegt að öll virkni undir Sundhnúksgígaröðinni muni stöðvast í lok júlí á þessu ári. Þetta kemur fram á bloggi Haraldar en þar fer hann yfir þróun kvikugangsins frá því í nóvember 2023 þegar fyrsta eldgosið hófst. Innlent 25.5.2024 08:10
Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Það hafa mælst um 140 skjálftar í kringum kvikuganginn síðustu tvo sólahringa, allir undir 2,0 að stærð. Skjálftarnir voru flestir á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar. Innlent 24.5.2024 15:41