Eldgos og jarðhræringar
123 124 125 126 127 128 129 130 131 … 132 ›
Komu mjólk yfir gömlu brúna Þrír stórir mjólkurbílar fóru yfir gömlu brúnna á Markarfljóti klukkan hálf tíu í morgun og eru byrjaðir að safna mjólk af bæjum fyrir austan fljótið. Hún verður svo selflutt á léttum bíl vestur yfir brúnna. Innlent 16.4.2010 11:57
Öskulag sest á bíla í Danmörku Öskulag hefur lagst á bíla á vesturhluta Jótlands í Danmörku, samkvæmt frétt Jyllands Posten. Á vefútgáfu blaðsins segir að burtséð frá þeirri röskun sem hafi orðið á flugi ætti það að vera ómögulegt að Danir upplifi öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli. Þetta hafi nú samt gerst. Erlent 16.4.2010 11:44
Flogið til Skotlands klukkan tvö Icelandair efnir til aukaflugs til Glasgow í Skotlandi, og verður brottför frá Keflavíkurflugvelli kl. 14.00. Í tilkynningu frá félaginu segir að heimild hafi fengist til flugsins. Í ljósi þess hversu margir farþegar eru staðsettir hér á landi sem strandaglópar vegna eldgossins hefur verið ákveðið að bjóða upp á flug þangað. Innlent 16.4.2010 10:49
Opnun tefst enn um sinn - gamla brúin opin með takmörkunum Ljóst er að hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Gamla brúin yfir Markarfljót hefur þó verið opnuð, með takmörkunum þó. Innlent 16.4.2010 10:38
Askan úr Eyjafjallajökli fyllti hótel í Kaupmannahöfn Nær öll hótel í Kaupmannahöfn voru yfirfull af gestum í nótt vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Gestirnir voru flugfarþegar sem eru strandaglópar í borginni þar sem allt flug til og frá Danmörku leggur niðri. Svipuð staða hefur eflaust verið upp á teningnum í fleiri stórborgum um norðanverða Evrópu. Viðskipti erlent 16.4.2010 10:01
Andlit eldgossins Þessi magnaða mynd sem tekin var með sérstakri myndavél um borð í vél Landhelgisgæslunnar TF-SIF í gær. Myndin sýnir þrjú megin gosop eldgossins á Eyjafjallajökli. Gosopin eru 200 til 500 metrar í þvermál. Innlent 16.4.2010 09:55
Ríkislögreglustjóri fundar með ríkisstjórn um náttúruhamfarirnar Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar, mæta á fund ríkisstjórnarinnar sem hófst klukkan hálftíu í morgun. Þar munu þeir kynna stöðu mála vegna náttúruhamfaranna í Eyjafjallajökli. Innlent 16.4.2010 09:29
Icelandair aflýsir flugi til Evrópuborga í dag Icelandair hefur tilkynnt að flugi félagsins í dag til sex Evrópuborga hefur verið aflýst. Flugi FI318 til Osló, og flugi FI436 til Manchester/Glasgow hefur verið seinkað til kl. 16.00 í dag í þeirri von að heimildir til flugs til þessara staða verði veittar þegar líður á daginn. Innlent 16.4.2010 07:55
Flugumferð enn í molum vegna gossins Hundruð þúsunda farþega hafa orðið að fresta eða aflýsa ferðum sína víðsvegar um Norður Evrópu og í gær var fimm þúsund flugferðum aflýst í gær vegna gossins. Erlent 16.4.2010 07:11
Tvö flóð í Markarfljóti í nótt Flóð hljóp í Markarfljót upp úr klukkan tvö í nótt og aftur klukkustund síðar, en þau voru bæði minni en flóðið, sem varð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Annað þeirra virðist þó hafa verið litlu minna en kvöldflóðið. Þegar þess flóðs varð vart, voru margir bæir rýmdir í skyndingu í Fljótshlíðinni og í Landeyjum, en þegar leið á kvöldið fékk fólk að snúa aftur heim, nema til þeirra bæja, sem voru mannlausir í fyrrinótt. Innlent 16.4.2010 07:03
„All out of luck“ í Leifsstöð Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna. Innlent 15.4.2010 23:14
Hélt að konan væri frá Suður-Ameríku „Nú skilur maður loksins hvað orðið móðuharðindi þýðir,“ segir Haukur Snorrason, ferðabóndi í Hrífunesi í Skaftártungu. Haukur og kona hans, Hadda Björk Gísladóttir, sem hafa síðan í fyrra rekið ferðaþjónustu á bænum í hjáverkum, voru komin að Hrífunesi á miðvikudag og ætluðu að verja einum degi í viðhald á húsinu og snúa svo heim. Ferðin varð hins vegar lengri en til stóð. Innlent 15.4.2010 23:14
Lítið hægt að segja um gosið „Um framtíð gossins er lítið hægt að segja,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ, í gærdag. Fyrst og fremst byggi jarðvísindamenn á reynslu þegar þeir spái fyrir um gos og nánast engin reynsla sé af gosi í Eyjafjallajökli. Eina gosið sem talsvert er vitað um sé gosið 1821. „Og það er takmarkað sem hægt er að læra af einu gosi. Eldfjall er því marki brennt að það breytist í gosum og næsta gos verður í breyttu eldfjalli.“ Innlent 15.4.2010 23:15
„Hlykkjaðist fram eins og ormur“ „Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði.“ Þannig hljóðaði tilkynning Almannavarna klukkan 18.54 í gær. Þá hafði frést af miklu hlaupi á leið niður Markarfljót og gripið var til skyndirýmingar. Innlent 15.4.2010 23:15
Eins og á allt annarri plánetu „Það var eins og maður væri kominn á aðra plánetu,“ segir Reynir Ragnarsson í Vík, sem var á ferð um Mýrdal í gærmorgun með jarðvísindamönnum að taka sýni úr gosöskunni. Innlent 15.4.2010 23:15
Vel heppnuð aðgerð „Þessi aðgerð, að rjúfa hringveginn til að bjarga Markarfljótsbrúnni, heppnaðist fullkomlega. Hér hefur verið unnið mikið og gott verk,“ sagði Kristján Möller samgönguráðherra þegar hann virti fyrir sér aðstæður á veginum við Markarfljótsbrúna um hádegisbil í gær. Innlent 15.4.2010 23:15
Askan ógnar ekki dýrum Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við, segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Innlent 15.4.2010 23:15
Naumlega tókst að senda fisk til Liège Í gærmorgun tókst að senda fragtvél til Liège í Belgíu með 37 tonn af fiski af þeim um 50 tonnum sem til stóð að flytja út. Ekki var hins vegar hægt að millilenda í Englandi, eins og venja er, heldur þurfti að flytja átta tonn með flutningabílum frá Liège til kaupenda á Bretlandseyjum. Innlent 15.4.2010 23:15
Í miðju kafi við mjaltirnar „Ég var á miðju kafi við mjaltir þegar aðvörun barst í gemsann,“ segir Hafsteinn Jónsson. Hann var staddur í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Hann var strax farinn að búa sig til farar aftur heim í Akurey í Vestur-Landeyjum. Innlent 15.4.2010 23:15
Kostnaður flugfélaga hleypur á milljónum Þær þúsundir flugfarþega, sem ekki komust leiðar sinnar með íslensku flugfélögunum í gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, eiga rétt á endurgreiðslu eða nýjum farseðlum. Ferðatryggingar gilda hins vegar ekki um tafir vegna eldgosa og náttúruhamfara og tjón, svo sem hótelherbergi eða bílaleigubíla sem ekki er hægt að nýta á áfangastað, fæst því ekki bætt. Innlent 15.4.2010 23:14
Drunurnar eins og í þotu að lenda „Við vorum við fjárhúsið að gefa þegar við heyrðum drunur eins og það væri þota að lenda fyrir utan,“ segir Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð. Hún var innilokuð á bænum vegna hlaups í Markarfljóti um klukkan 19 í gærkvöldi, en sagðist ekki óttast um öryggi sitt eða fjölskyldu sinnar. Innlent 15.4.2010 23:15
Grímsvötn í startholunum Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst í fyrradag gerðu aðrar eldstöðvar vart við sig. Innlent 15.4.2010 23:15
Morgunflugi Iceland Express seinkað Vélum Iceland Express til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið, sem áttu að fara klukkan sjö hefur verið seinkað til klukkan ellefu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Innlent 15.4.2010 22:50
Búið að aflétta rýmingu að hluta til Búið er að aflétta rýmingu að hluta til á bæjum í kringum Eyjafjallajökul. Íbúar tuttugu bæja þurfa þó að finna sér annan svefnstað. Það er nákvæmlega sama tilhögun og var í gær. Innlent 15.4.2010 21:45
Lokaðist inni í Fljótshlíðinni þegar flóðið brast á Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótshlíðinni, varð innlyksa í hlaupinu núna í kvöld. „Ég heyrði miklar drunur og ályktaði svo að það væri að koma nýtt flóð,“ segir Anna. Innlent 15.4.2010 21:13
Hlaupið kom úr toppgígnum „Þetta á eftir að halda svona áfram,“ segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur. Innlent 15.4.2010 21:03
Enn bjarga skörðin - flóðið nær hámarki Hlaupið er búið að ná að þjóðveginum og það er töluvert rennsli í gegnum skörðin sem voru rofin í veginn fyrsta daginn. Mikið straumur fer í gegnum þau skörð núna að sögn Andra Ólafssonar, fréttamanns Stöðvar 2, sem er á vettvangi. Innlent 15.4.2010 20:53
Fólk situr bara og bíður í Hvolsskóla „Fólk er ótrúlega rólegt. Það er rólegt og þakklátt," segir Árný Hrund Svavarsdóttir, starfsmaður fjöldahjálpamiðstöðvar Rauða krossins. Innlent 15.4.2010 20:35
Varnargarðarnir virðast halda við efri brúna Flóðið lamdi duglega á varnargörðunum við efri brúna að sögn Ásgeirs Árnasonar, bónda við Stórumörk 3, sem er nærri Þórsmörk. Hann fylgist með flóðinu og lýsti því þannig að það virtist minna í því heldur en í gær en það væri þó allt öðruvísi. Vatnið væri fullt af ís auk krapa og eðju. Innlent 15.4.2010 20:26
Unnur Brá: Vona að varnargarðarnir haldi „Ég vona bara að varnargarðarnir haldi,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður sem býr á Hvolsvelli. Þar er nú fólk úr Landeyjum og Fljótshlíðinni að safnast saman í fjöldahjálparmiðstöðinni í Hvolsskóla vegna hlaupsins sem nú rennur úr Eyjafjallajökli. Innlent 15.4.2010 20:19