Eldgos og jarðhræringar
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 132 ›
Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Við höfum fylgst með hetjulegri baráttu fólks við náttúruöflin suður með sjó. Eðlilega hafa vaknað spurningar um hvort við hér á höfuðborgarsvæðinu séum klár í slaginn, skyldi fara að gjósa nær okkur. Skoðun 26.3.2024 07:01
Vilja að ríkið fjármagni sprungufyllingar fyrir hundruð milljóna Bæjaryfirvöld í Grindavík kalla eftir því að ríkið komi að fjármögnun sprungufyllinga og viðgerða í bænum. Verkefnið hleypur á hundruðum milljóna. Níu svæði hafa verið girt af í bænum eftir að niðurstöður úr jarðvegsrannsókn sýndu fram á holrými og hættur sem leynast neðanjarðar. Innlent 25.3.2024 20:30
Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna. Innlent 25.3.2024 15:53
Dregið úr gosinu en land rís enn Svo virðist sem dregið hafi úr eldgosinu við Sundhnúksgíga síðasta sólarhringinn. Virkni í gígunum er minni og mögulega slökknað í minnstu gígunum. GPS-mælingar síðustu daga benda þó til þess að landris sé í gangi í Svartsengi, en mun hægara en áður. Það bendir til þess að enn safnist kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt eldgos sé í gangi. Innlent 25.3.2024 15:42
Níu svæði í Grindavík girt af Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin. Innlent 25.3.2024 12:13
Bein útsending frá gosstöðvunum Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Eitthvað dró úr virkni í nótt en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 25.3.2024 10:59
Dró úr virkninni í nótt í fyrsta sinn frá því að gosið hófst „Það hefur svona aðeins dregið úr virkninni í nótt,“ segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands um stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga. Innlent 25.3.2024 07:14
Myndir af eldstöðvunum úr lofti Enn gýs í Sundhnúkagígum og hraunið er orðið hærra en varnargarðarnir sums staðar við Grindavík. Eldstrókarnir sem teygja sig upp í næturhimininn eru sannarlega sjón að sjá. Innlent 23.3.2024 22:47
Varað við gasmengun í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum varar við hugsanlegri gasmengun í Reykjanesbæ vegna breytilegri vindátt í kvöld. Mælt sé með því að fólk í viðkvæmum hópum hafi glugga lokaða og slökkvi á loftræstingu. Innlent 23.3.2024 18:05
Svipaður kraftur og varnargarðar halda enn „Varnargarðarnir halda þessu enn þá og beina hrauni frá byggð. Hraunið hefur mest verið að þykkna.“ Innlent 23.3.2024 10:46
Aukin hætta vegna gasmengunar Aukin hætta er vegna gasmengunar á öllum svæðum við eldstöðvarnar við Sundhnúk. Hætt er við því að gasmengun muni berast yfir Grindavík og önnur nærliggjandi svæði um helgina. Innlent 22.3.2024 16:27
„Við höfum ekki séð svona áður“ Ísak Finnbogason hefur á undanförnum árum verið iðinn við að sýna frá eldgosum á Íslandi í beinni útsendingu með drónum. Í gær fangaði hann hraun flæða inn í Melhólsnámu og fylgdust þúsundir með útsendingunni. Innlent 22.3.2024 15:48
Hyggjast opna námuna og sækja efni Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík. Innlent 22.3.2024 11:04
Ekki útilokað að gosið endist í marga mánuði Kvikan sem safnaðist fyrir í Svartsengi flæðir nú beint upp og landri stöðvast. Jarðeðlisfræðingur segir yfirstandandi eldgos sambærilegt atburðum í Fagradalsfjalli. Engin merki séu um að gosið sé að minnka og það geti varað í margar vikur, jafnvel mánuði. Innlent 21.3.2024 23:45
Hraun fossar ofan í Melhólsnámu: „Bagalegt“ að missa námuna Hraunið sem kemur upp úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni fossar nú ofan í Melhólsnámu, sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna. Innlent 21.3.2024 19:38
Starfsmaðurinn á batavegi og stjórnendum brugðið Starfsmaður Bláa lónsins, sem leitaði á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna af völdum gasmengunar, er á batavegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að stjórnendum sé brugðið vegna málsins og það sé tekið alvarlega. Innlent 21.3.2024 18:45
Hækkun varnargarða hafin: „Þetta er ekki snjór sem bráðnar“ Vinna við hækkun varnargarða norðaustan við Grindavík er þegar hafin að sögn jarðverkfræðings. Innlent 21.3.2024 17:48
Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra. Örn Viðar var á meðal 27 umsækjenda um starfið. Félaginu er ætlað að annast uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Viðskipti innlent 21.3.2024 16:19
Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins. Innlent 21.3.2024 15:45
Hraunið að færast upp á varnargarðana Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur skriðið kröftuglega fram í dag og þrýstir nú á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Mögulegt er að hraunið komist yfir garðana á næstu klukkustundum. Innlent 21.3.2024 14:48
Landris í Svartsengi hefur stöðvast Áfram er góður kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og stóra Skógfells. Ljóst þykir að landris í Svartsengi hefur stöðvast. Því virðist jafnvægi komið á kerfið þar sem innflæði kviku upp í jarðskorpuna er til jafns við það sem streymir út í eldgosinu. Innlent 21.3.2024 13:26
Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé. Innlent 21.3.2024 12:24
Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila. Viðskipti innlent 21.3.2024 08:58
Gosið stöðugt en dregur mögulega úr landrisi við Svartsengi Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat á Reykjanesi vegna eldgossins. Eldgosið er enn stöðugt en mögulega dregur úr landrisi við Svartsengi. Innlent 20.3.2024 14:10
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Bein útsending: Svona er staðan á gosstöðvunum Sprungan sem gýs á milli Stóra-Skógfells og Hagafells virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Lítið dró úr eldgosi í nótt. Innlent 20.3.2024 10:38
Töluverð kvikustrókavirkni enn í gangi Lítið virðist hafa dregið úr gosinu á Reykjanesi í nótt en sprungan sem gýs á virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Innlent 20.3.2024 07:18
Landris geti leitt til lengra goss Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. Innlent 19.3.2024 20:53
Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt. Innlent 19.3.2024 15:56
Eldgosið toppar þrjú síðustu Eldgosið sem hófst á níunda tímanum á laugardagskvöld hefur nú staðið lengur en síðustu þrjúgos síðan í desember síðastliðnum. Það hefur nú staðið í tvo og hálfan sólarhring. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.3.2024 12:06