Eldgos og jarðhræringar
67 68 69 70 71 72 73 74 75 … 132 ›
Minni virkni í nótt en einn stór skjálfti í morgunsárið Nokkuð færri skjálftar urðu á Reykjanesskaga í nótt en aðeins fjórir mældust þrír að stærð eða stærri. Þar af var einn af stærðinni 4,6 sem reið yfir klukkan hálf sex í morgun. Innlent 3.8.2022 06:40
Óútskýrður eldur í mosa en engin kvika sjáanleg Ljósblossar í Fagradalsfjalli sem Landhelgisgæslan var send að kanna nú eftir miðnætti reyndust vera vegna elds í mosa. Engin merki eru um kviku á svæðinu. Innlent 3.8.2022 01:26
Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa Augu jarðvísindamanna, sem og fróðleiksþyrstra landsmanna um næsta eldgos á Reykjanesskaga, beinast núna að svæði austan og norðaustan Fagradalsfjalls sem liggur til norðausturs frá eldstöðvunum í Geldingadölum í fyrra og í átt að hinu svipmikla fjalli Keili. Þar benda mælingar til að kvika streymi núna inn í kvikugang sem gæti brotist upp til yfirborðs á næstu dögum með eldgosi. Innlent 2.8.2022 22:50
Lögreglumenn sendir út til að kanna aðstæður við Fagradalsfjall Fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum könnuðu aðstæður við Fagradalsfjall í kvöld eftir að bera fór þar á reyk. Sáu þeir ekkert athugavert á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings sem segir engin merki um að kvika sé að koma upp á yfirborðið. Innlent 2.8.2022 22:22
Öflugir skjálftar í Krýsuvík: „Þetta er enginn stórskaði eins og er“ Verulegar líkur eru taldar á eldgosi við Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum. Nýjar niðurstöður benda til þess að kvikugangur liggi mjög grunnt undir yfirborðinu. Ummerki skjálftahrinunnar eru greinileg á meðferðarheimilinu í Krýsuvík og segir framkvæmdastjórinn þá hörðustu líkjast brotsjó. Innlent 2.8.2022 20:17
Reykurinn í Fagradalsfjalli ekki merki um kviku Reykur sem sést rjúka upp við Fagradalsfjall í vefútsendingu mbl.is frá svæðinu er ekki merki um að kvika sé á leið upp á yfirborðið, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist um 2,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili um klukkan 19:40 í kvöld og fylgdu minni eftirskjálftar í kjölfarið. Stóri skjálftinn fannst meðal annars á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 2.8.2022 19:49
Verulegar líkur á gosi á næstu dögum eða vikum Líkurnar á eldgosi á svæðinu í kringum Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum hafa aukist og eru nú taldar verulegar. Þetta má lesa úr niðurstöðum nýrra aflögunarlíkana en líkt og staðan er núna virðist vera að hægja á aflögun og skjálftavirkni við Fagradalsfjall. Var það einn af forboðunum fyrir eldgosið sem hófst í mars á seinasta ári. Innlent 2.8.2022 18:40
Litakóða fyrir Grímsvötn breytt í gult Veðurstofan hefur breytt litakóða fyrir Grímsvötn í gult. Nokkrir jarðskjálftar stærri en 1,0 að stærð hafa mælst þar í eftirmiðdag og stærsti skjálftinn af þeim mældist 3,6 að stærð klukkan 14:24. Jarðskjálftavirkni er því umfram eðlilega bakgrunnsvirkni að sögn náttúruvársérfræðinga. Innlent 2.8.2022 17:24
Jarðskjálfti nálægt Grímsvötnum af stærðinni 3,7 Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist 2,7 kílómetra norðnorðaustur af Grímsfjalli klukkan tuttugu mínútur yfir tvö í dag. Fyrir utan þennan stóra skjálfta hefur verið lítið um virkni á svæðinu. Innlent 2.8.2022 16:53
Nýtt gostímabil: Samfélagið þarf að aðlagast nýjum veruleika Íslendingar þurfa að aðlagast nýjum veruleika segir prófessor í eldfjallafræði sem telur skjálftahrinuna staðfesta að nýtt gostímabil sé hafið. Hann telur líklegt að það gjósi á Reykjanesi í haust. Innlent 2.8.2022 15:28
Túristagos ekki endilega jákvætt Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir almannavarnir og aðra viðbragðsaðila vera viðbúna ef það skildi byrja að gjósa. Allir reyni að halda sér eins upplýstum og hægt er. Túristagos hafi vissulega jákvæð áhrif á efnahaginn en það sé ekkert grín þegar það gýs svona nálægt byggð. Innlent 2.8.2022 14:15
Eldgos gæti tekið af okkur báða vegina til Suðurnesja Eldfjallafræðingur segir það vera skynsamlegt að byggja annan alþjóðaflugvöll fjarri Keflavíkurflugvelli. Það gæti gerst að eldgos taki af okkur bæði Suðurstrandarveg og Reykjanesbrautina þannig að engin leið sé fyrir bílaumferð til og frá Reykjanesi. Innlent 2.8.2022 11:23
Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum. Innlent 2.8.2022 11:15
Átta skjálftar yfir þremur frá þeim stærsta Átta skjálftar hafa mælst yfir þremur að stærð á Reykjanesskaga frá því að skjálfti af stærðinni fimm reið yfir laust fyrir hálf þrjú í nótt. Innlent 2.8.2022 07:18
Skjálfti af stærðinni 5 reið yfir um klukkan 2.27 Öflugur skjálfti reið yfir klukkan 02.27 í nótt og var 5 að stærð, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands. Kippurinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gler nötraði. Innlent 2.8.2022 02:56
Kröftugir skjálftar að stærð 4,7 og 4,8 riðu yfir um hálf tólf Tveir kröftugir jarðskjálftar að stærð 4,7 og 4,8 riðu yfir með hálfrar mínútu millibili um hálf tólf. Samkvæmt sjálfvirku mælingakerfi Veðurstofunnar voru þeir báðir á um kílómetra dýpi og átti sá minni upptök sín 19,5 kílómetra austsuðaustur af Laka og sá stærri 4,8 kílómetra norður af Krýsvík. Innlent 1.8.2022 23:14
Stórt bjarg hrunið úr Gálgaklettum norður af Grindavík Stórt bjarg hefur hrunið úr Gálgaklettum í Sundhnúk, norðan við Grindavík og skammt austan við fjallið Þorbjörn. Bjargið hefur mögulega hrunið vegna stóra skjálftans sem reið yfir í gærkvöldi og Grindvíkingar segja að sé sá stærsti á undanförnum árum. Innlent 1.8.2022 22:54
Íbúar Grindavíkur undirbúnir fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra Almannavarnir funduðu í hádeginu vegna jarðskjálftahrinu sem hófst á Reykjanesi um helgina. Skjálftahrinan hefur valdið nokkru tjóni á munum í Grindavík og segir íbúi að fólk sé undirbúið fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra. Innlent 1.8.2022 21:04
Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Snarpur jarðskjálfti að stærð 3,1 reið yfir klukkan 18:03 og fannst vel á Suðurlandsbraut, þaðan sem þessi frétt er skrifuð. Samkvæmt sjálfvirkum mælingum á vef Veðurstofunnar átti hann upptök sín 1,2 kílómetra suðvestan af Keili. Innlent 1.8.2022 18:05
„Það brotnaði allt sem brotnað gat“ Grindvíkingar hafa margir hverjir orðið fyrir miklu tjóni vegna skjálftahrinunnar sem stendur nú yfir. „Þetta venst aldrei,“ segir eigandi blómaverslunar sem kom að verslunin sinni líkt og sprengju hefði verið varpað á verslunina. Innlent 1.8.2022 16:41
„Það virðist vera ný innskotavirkni hafin aftur á Reykjanesskaganum“ Ríflega 1.400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum síðan á miðnætti - þar af fimm yfir 4,0 að stærð. Landsmenn mega gera ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni næstu daga en jarðeðlisfræðingur telur að ný innskotavirkni sé hafin í kringum ganginn sem myndaðist við eldgosið í Geldingadölum. Innlent 1.8.2022 12:09
Snarpur skjálfti fannst víðsvegar Snarpur skjálfti 4,0 að stærð mældist rétt eftir klukkan 11 í dag. Skjálftinn mældist um 4,3 kílómetra austur af Keili, á fimm kílómetra dýpi. Innlent 1.8.2022 11:08
Öflugur skjálfti fannst víða Snarpur jarðskjálfti 4,7 að stærð varð um hálfan kílómetra vestur af Litla-Hrút rétt fyrir klukkan hálf sjö í morgun. Skjálftinn mældist á 3,8 kílómetra dýpi og er sá næstkröftugasti sem mælst hefur síðan jarðskjálftahrinan hófst um hádegisbil á laugardag. Innlent 1.8.2022 07:15
Stór skjálfti korter yfir þrjú í nótt Skjálfti að stærð 4,3 átti sér stað fjóra kílómetra suðsuðvestan af Fagradalsfjalli klukkan fjórtán mínútur yfir þrjú í nótt og fannst skjálftinn á höfuðborgarsvæðinu. Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall hefur staðið yfir frá hádegi á laugardag og telja sérfræðingar kvikuhlaup valda virkninni. Innlent 1.8.2022 03:32
Fjölmargir skjálftar yfir 3,0 að stærð fylgt eftir stóra skjálftanum Jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir skammt frá Grindavík klukkan 17:48 í dag. Skjálftinn er sá langstærsti í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Jörðin á Reykjanesskaga hefur haldið áfram að skjálfa allverulega síðan þá og hafa sextán skjálftar stærri en 3,0 riðið yfir. Innlent 31.7.2022 23:43
Grindvíkingar séu tilbúnir Frá miðnætti hafa meira en fjörutíu skjálftar af stærðinni þrír eða meira mælst á Reykjanesskaga. Stór hluti þeirra hefur mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus í mars á síðasta ári. Í aðdraganda gossins var jarðskjálftavirkni á svæðinu mikil, og Grindvíkingar ekki farið varhluta af því. Innlent 31.7.2022 22:56
Kaldavatnslaust í Grindavík eftir stóra skjálftann Aðveitulögn fyrir kalt vatn inn í Grindavík fór í sundur við Svartsengi eftir stóra skjálftann sem reið yfir rétt fyrir sex á Reykjanesskaga. Það er því kaldavatnslaust hjá íbúum bæjarins en unnið er að því að gera við lögnina. Innlent 31.7.2022 22:41
Tilkynningar um tjón í Grindavík Almannavarnir segja tilkynningar um tjón hafa borist frá Grindavík eftir að skjálfti að stærð 5,4 reið yfir um þrjá kílómetra austnorðaustur af bænum rétt fyrir sex í kvöld. Engar tilkynningar um slys af fólki hafi hins vegar borist. Innlent 31.7.2022 20:04
Stærsti skjálftinn í hrinunni til þessa Stærsti skjálftinn til þessa í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir tólf mínútur í sex í kvöld og var 5,4 að stærð. Skjálftarnir í dag hafa mælst á grynnra dýpi en í gær sem sérfræðingur segir benda til kvikuhlaups. Innlent 31.7.2022 18:31
Stór skjálfti að stærð 5,4 við Fagradalsfjall Stærsti skjálftinn í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir klukkan 17:48. Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var skjálftinn 5,4 að stærð. Innlent 31.7.2022 17:49