Eldgos og jarðhræringar
92 93 94 95 96 97 98 99 100 … 132 ›
Þrír yfir þremur rétt fyrir hádegi Níu skjálftar stærri en 3 að stærð hafa mælst við Fagradalsfjall síðan á miðnætti, þar af þrír skjálftar um 3 skömmu fyrir hádegi. Innlent 6.3.2021 13:27
Ekki útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg Ekki er talið að hraun muni renna yfir Reykjanesbraut, komi til eldgoss miðað við stöðuna nú á Reykjanesskaga, en ekki er útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg. Innlent 6.3.2021 12:47
Áfram mikil skjálftavirkni: Sex skjálftar um og yfir þremur að stærð í nótt Rúmlega 800 jarðskjálftar hafa mælst frá því á miðnætti, sá stærsti að stærð 3,7 við Fagradalsfjall klukkan 4:11. Fimm aðrir skjálftar hafa mælst um eða yfir þremur að stærð frá miðnætti og hefur mesta virknin verið bundin við Fagradalsfjall. Skömmu fyrir miðnætti, klukkan 23:29, varð svo skjálfti að stærð 3,5 sem mældist sömuleiðis við Fagradalsfjall. Innlent 6.3.2021 07:16
Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu. Innlent 5.3.2021 17:26
Ný gögn staðfesta grunsemdir um að kvikan sé komin ansi nálægt yfirborði „Það sem þessir nýju líkanreikningar sýna okkur er að kvikan hefur náð ansi nálægt yfirborði í þessum kvikugangi og þetta er nánast lóðréttur kvikugangur sem liggur þarna á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis,“ segir Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Líklegt er að kvikan hafi náð upp á allt að tveggja kílómetra dýpi í jarðskorpunni. Innlent 5.3.2021 16:59
„Skjálftavirknin sýnir að þetta er ekkert búið” Skjálftavirknin á Reykjanesskaga sýnir að þetta er ekki búið, segir jarðeðlisfræðingur. Ekki eru merki um að gos séu að hefjast í dag en ómögulegt að spá fyrir um næstu daga. Um þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Innlent 5.3.2021 11:36
Jarðskjálftalistinn slær í gegn á Spotify Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga er nú aftur að mestu bundin við Fagradalsfjall eftir að hún færði sig meira í átt til Grindavíkur og Bláa lónsins í gærkvöldi. Lífið 5.3.2021 11:30
Viðbúnaðarstig vegna flóðbylgjuhættu lækkað Í morgun var viðbúnaðarstig vegna flóðbylgjuhættu lækkað á Nýja-Sjálandi. Almannavarnir gáfu í gærkvöldi út viðvörun vegna flóðbylgjuhættu sem gæti ógnað landi og höfn. Nú er hætta aðeins talin steðja að sjávarsíðunni og höfninni. Erlent 5.3.2021 07:54
Skjálftavirknin færst aftur að Fagradalsfjalli Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga er nú aftur að mestu bundin við Fagradalsfjall eftir að hún færði sig meira í átt til Grindavíkur og Bláa lónsins í gærkvöldi. Innlent 5.3.2021 06:39
Þúsund fleiri skjálftar en minni líkur á gosi: „Við getum auðvitað aldrei útilokað neitt enn“ Um þúsund fleiri jarðskjálftar hafa mælst í dag en í gær en alls hafa mælst um 3.500 síðasta sólarhringinn. Einkum hefur skjálftavirkni verið meiri nær Grindavík í dag en í gær, þótt enn sé mikil virkni við Fagradalsfjall. Minni líkur eru þó á að eldgos sé yfirvofandi en gert var ráð fyrir í gær. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert gos yfirvofandi eins og er, en á sama tíma sé ekkert hægt að útiloka enn. Innlent 5.3.2021 00:14
Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“ Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta. Innlent 4.3.2021 22:48
Höllin í Grindavík skalf fyrir körfuboltaleik Jarðskjálfti upp á 4,1 sem skók Grindavík í kvöld fannst vel í HS-Orku-höllina rétt áður leikur Grindavíkur og Hattar í körfubolta hófst á áttunda tímanum í kvöld. Titringurinn náðist greinilega á mynd í útsendingu Stöðvar 2 frá höllinni. Upptökuna má sjá neðst í fréttinni. Innlent 4.3.2021 20:11
Ný hraunflæðispá: Fjögur svæði þar sem gos gæti komið upp Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt nýja hraunflæðispá þar sem miðað er við þróun jarðhræringanna á Reykjanesi frá því í nótt. Spáin gerir nú ráð fyrir fjórum svæðum þar sem eldgos gæti komið upp. Innlent 4.3.2021 19:42
„Við verðum bara að vera undir allt búin“ Engin merki er að finna í nýjustu gögnum um að kvika sé að nálgast yfirborð á Reykjanesi. Aftur á móti er enn óljóst hvort jarðhræringarnar á svæðinu komi til með að líða hjá á næstu dögum eða hvort komi til eldgoss. Innlent 4.3.2021 19:21
Tilbúin til að virkja allt sem virkja þarf ef þörf krefur Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eru tilbúin með allar viðbragðsáætlanir ef til eldgossins kemur. Bæjarstjórinn hefur hins vegar litlar áhyggjur og telur ólíklegt að hraun muni flæða inn í bæinn og hvetur til stillingar. Innlent 4.3.2021 19:04
Ekki vísbendingar um gos á næstu klukkustundum Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. Innlent 4.3.2021 18:29
Óróasvæðið í beinni útsendingu Grannt er nú fylgst með svæðinu í kringum Keili á Reykjanesskaga vegna mögulegs gosóróa og jarðskjálftavirkni. Vísir er með tvær vefmyndavélar við Keili sem sýna óróasvæðið í beinni útsendingu. Innlent 4.3.2021 18:11
Gervitunglamyndir sýna ekki miklar breytingar Ný gervitunglamynd barst fulltrúum Vísindaráðs almannavarna rétt fyrir fund þeirra nú síðdegis. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur, segir myndina leiða í ljós að ekki séu miklar breytingar frá fyrri myndum. Innlent 4.3.2021 17:30
Drónar mega fljúga og fjölmiðlar frjálsir á skjálftasvæðinu Banni við flugi dróna verður aflétt klukkan 19 í kvöld. Þá mega fjölmiðlar aftur vera á svæðinu án þess að vera í fylgd björgunarsveita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 4.3.2021 16:19
Myndu verja línuna með varnargörðum eða kælingu Ólíklegt er talið að eldgos á Reykjanesi myndi valda truflunum á raforkuflutningi Suðurnesjalínu á Reykjanesi miðað við nýtt áhættumat. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Ef útlit sé fyrir að hraun muni ógna háspennulínum verði tími til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum. Innlent 4.3.2021 15:34
Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna. Innlent 4.3.2021 14:05
Haraldur varaði við því að kvika frá Krýsuvík gæti gosið við Reykjavík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur varaði við því fyrir sex árum að sprungukerfi frá Krýsuvíkureldstöðinni gæti leitt til eldgoss í jaðri Reykjavíkur. Hvatti hann þá til þess að betra áhættumat yrði gert fyrir Reykjavíkursvæðið. Innlent 4.3.2021 12:39
Rýmingaráætlun fyrir Vogana á lokametrunum Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru við öllu búnir og í startholunum ef til eldgoss kemur að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, en rætt var við hann í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 4.3.2021 12:34
Óþægilegt að finna skjálftana færast nær „Það er ekki því að neita að eftir því sem þetta færist nær að þá er þetta óþægilegra, og við finnum það betur á eigin skinni,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík. Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga en skjálftavirknin hefur verið að færast sunnar og nær Grindavík, sem þýðir að Grindvíkingar finna enn meira fyrir skjálftunum en áður. Innlent 4.3.2021 12:29
Áfram gert ráð fyrir að gos muni hefjast Áfram er mikil skjálftavirkni á Reykjanesskaganum þó eitthvað hafi dregið úr óróapúlsi í nótt. Þó er enn gert ráð fyrir að eldgos muni hefjast, að sögn Kristínar Jónsdóttur náttúruvársérfræðings. Stór skjálfti reið yfir í morgun en hann er sá stærsti í rúma tvo sólarhringa. Innlent 4.3.2021 11:50
Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu Snarpur skjálfti varð rétt í þessu sem fannst vel á suðvesturhorninu. Skjálftinn var 4,5 að stærð samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands og mældist klukkan 08:54. Innlent 4.3.2021 08:57
Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest. Innlent 4.3.2021 08:33
Enn mælast snarpir skjálftar þótt ekki sé búist við gosi á næstu klukkustundum Enn er mikil skjáftavirkni á Reykjanesskaganum en ekki er þó byrjað að gjósa. Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. Innlent 4.3.2021 06:34
„Það er bara stöðug skjálftavirkni og óróavirkni áfram“ Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands munu standa vaktina í alla nótt, venju samkvæmt, og fylgjast með jarðhræringunum á Reykjanesi. Unnið er á tvöföldum þessa dagana en staðan nú um miðnætti var óbreitt frá því fyrr í kvöld; Enn eru merki um óróa þótt nokkuð hafi dregið úr frá því síðdegis, en jarðskjálftavirkni er enn mikil. Innlent 4.3.2021 00:35
Dagurinn í myndum: „Þetta eru mjög spennandi tímar“ Þetta eru spennandi tímar fyrir jarðvísindin og á hverjum degi sem líður í þeim jarðhræringum sem nú standa yfir á Reykjanesi læra vísindamenn eitthvað nýtt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Síðast varð eldgos á svæðinu á þrettándu öld og nú er útlit fyrir að fljótlega kunni aftur að gjósa, þótt margt sé óljóst ennþá. Innlent 3.3.2021 22:11