Fréttir „
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 334 ›
„Þetta er hundleiðinlegt auðvitað“ Brotist var inn á veitingastaðinn Dirty Burger and Ribs í Fellsmúla aðfaranótt sunnudags og peningaskúffu stolið úr afgreiðslukassa. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Innlent 19.8.2024 14:23
„Drengirnir okkar eru líka í hættu“ „Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit. Drengirnir okkar eru líka í hættu.“ Innlent 19.8.2024 14:01
Hélt dauðahaldi í ársgamla dóttur til að forða henni frá að drukkna Kona sem komst lífs af þegar lystisnekkja sökk við Sikiley snemma í morgun segist hafa haldið dauðahaldi í eins árs gamla dóttur sína til þess að bjarga henni frá því að drukkna. Breskur tæknifrumkvöðull er á meðal sex sem er saknað eftir slysið. Erlent 19.8.2024 13:57
Bein útsending: Málstofa og sýning um íslenskt námsefni Málstofa með yfirskriftinni Íslenskt námsefni – hvað er til? stendur yfir í Laugalækjarskóla dag frá klukkan 14 til 16. Innlent 19.8.2024 13:01
Frost í Reykjavík í nótt Hitastigið fór niður í mínus 0,9 gráður í Víðidal í Reykjavík klukkan sex í morgun. Mælt er í tveggja metra hæð og líklega hefur verið enn kaldara niðri við jörð. Innlent 19.8.2024 13:00
Vilja ekki tæma klósettin við Nykurhylsfoss Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur hafnað beiðni landeigenda jarðarinnar Lindarbrekku í Berufirði um að sveitarfélagið styrki innviði fyrir ferðamenn á plani við Nykurhylsfoss. Innlent 19.8.2024 12:38
Eldglæringar milli VG og Sjálfstæðisflokks Ríkisstjórnarsamstarfið hangir á bláþræði að mati prófessors í stjórnmálafræði. Gríðarleg missklíð og jafnvel eldglæringar séu milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. Búast megi við algjörri biðstöðu á Alþingi í vetur ákveði ríkisstjórnin að halda samstarfinu áfram. Innlent 19.8.2024 12:24
Höfuðkúpubrotnaði í vinnuslysi í Hafnarfirði Maður slasaðist alvarlega í vinnuslysi við Hringhellu í Hafnarfirði á miðvikudag. Hann var að vinna við lagfæringu á hurð á vinnugámi en fékk hurðina með miklu afli í höfuðið á sér. Innlent 19.8.2024 12:18
Aukin neysla eykur verðbólgu og dregur úr líkum á vaxtalækkun Markaðasaðilar eru svartsýnni en áður á hjöðnun verðbólgu samkvæmt könnun Seðlabankans sem dregur væntanlega úr líkum á því að bankinn lækki meginvexti sína á miðvikudag. Hagfræðingur Landsbankans segir mikinn kraft í hagkerfinu með aukinni neyslu Íslendinga og erlendra ferðamanna. Innlent 19.8.2024 12:00
Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38
Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Stærsta heitavatnslokun í sögu Veitna skellur á í kvöld. Heitavatnslaust verður hjá næstum þriðjungi þjóðarinnar fram á miðvikudag. Pípulagningameistari ráðleggur íbúum að skrúfa fyrir krana og loka fyrir inntak heits vatns. Þá þurfi fólk með gólfhitakerfi að huga sérstaklega að sínum kerfum. Innlent 19.8.2024 11:29
Skjálftar á Reykjanesi, í efnahagslífinu og í pólitíkinni Í hádegisfréttum beinum við sjónum okkar að verðbólgunni og vaxtaákvörðun Seðlabankans síðar í vikunni. Innlent 19.8.2024 11:27
Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19.8.2024 10:11
Einn látinn og sex saknað eftir að lystisnekkja sökk við Sikiley Að minnsta kosti einn er látinn og sex manns er enn saknað eftir að lystisnekkja með erlenda ferðamenn um borð sökk í slæmu veðri undan ströndum Sikileyjar á Ítalíu í nótt. Fimmtán manns, þar á meðal ársgömlu barni, var bjargað. Erlent 19.8.2024 09:13
Kaldi eða stinningskaldi en bjart fyrir sunnan og vestan Spáð er kalda eða stinningskalda með vætu norðan- og austanlands í dag en björtu sunnan- og vestantil. Úrkomusvæði kemur að suðausturströndinni síðdegis og fer norður yfir austanvert landið í kvöld og nótt. Veður 19.8.2024 08:38
Stjórnvöld virkja neyðarúrræði vegna yfirfullra fangelsa Stjórnvöld á Englandi hafa virkjað neyðarúrræði vegna plássleysis í fangelsum landsins, sem hafa löngum verið yfirfull en eru nú komin að þolmörkum vegna óeirða síðustu vikna. Erlent 19.8.2024 08:05
Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19.8.2024 07:40
Blinken segir komið að ögurstundu í samningaviðræðunum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir komið að ögurstundu í friðarviðræðum Ísrael og Hamas og nú sé mögulega lokatækifærið til að semja um lausn gíslanna sem Hamas tóku fanga í árásum sínum 7. október síðastliðinn. Erlent 19.8.2024 07:20
Segir Trump mögulega munu tapa ef hann breytir ekki um stefnu Repúblikaninn Lindsey Graham segir Donald Trump eiga á hættu að tapa forsetakosningunum ef hann haldi áfram að ögra og eggja í stað þess að eiga málefnalegar umræður. Erlent 19.8.2024 06:54
Tugir barna á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu Börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í nærri öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Um 36 bíða í Garðabæ, 23 í Hafnarfirði og 141 barn í Kópavogi. Ekkert barn bíður í Mosfellsbæ en fimm á Seltjarnarnesi. Í Reykjavík er enn verið að vinna að innritun og fjöldi á bið enn óljós. Innlent 18.8.2024 22:54
Segir tilganginn með innrás í Kúrsk að búa til hlutlaust svæði Forseti Úkraínu, Volodomír Seleneskíj, segir að með því að ráðast inn í Kúrskhérað í Rússlandi vonast hann til þess að geta búið til hlutlaust svæði til að vernda Úkraínu. Hann segist vilja stöðva árásir rússneska hersins þvert yfir landamærin og að þessi gagnsókn hafi verið það sem þurfti. Erlent 18.8.2024 21:53
Feður sameinuðustu gegn þjóðarmorði á samstöðufundi Feður, kennarar, rithöfundar og aðrar starfsstéttir sameinuðust í gær í samstöðugöngu á vegum Félagsins Ísland Palestínu gegn þjóðarmorði, stríðsglæpum, barnamorðum, eyðileggingu og ofbeldi Ísraelshers. Um 1.200 gengu saman frá Hallgrímskirkju að Austurvelli samkvæmt tilkynningu félagsins. Krafa þeirra sem gengu var sú að íslensk stjórnvöld setji á viðskiptaþvinganir og slíti tafarlaust stjórnmálasambandi við Ísrael. Innlent 18.8.2024 21:22
Læknar á Indlandi krefjast aðgerða vegna nauðgunar Unglæknar á Indlandi mættu margir ekki til vinnu í dag þrátt fyrir að boðuðu verkfalli Læknasamtakanna væri lokið. Læknasamtökin á Indlandi boðuðu til verkfalls um allt land til að krefjast úrbóta fyrir lækna og sérstaklega kvenkyns lækna eftir að 31 árs læknanema var nauðgað og hún myrt á vakt. Erlent 18.8.2024 21:04
Ríkisstjórnin gæti ekki lengur að hagsmunum almennings Formaður Viðreisnar segir það hagsmunamál allra að gengið verði til kosninga sem fyrst. Ríkisstjórnin gæti ekki lengur að hagsmunum almennings heldur einungis flokka sinna og ráðherra. Innlent 18.8.2024 21:00
Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Kýrin Mugga á bænum Steindyrum í Svarfaðardal er engin venjuleg kýr því hún bar þremur kálfum, allt hraustar kvígur. Innlent 18.8.2024 20:04
Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Fatasöfnun Rauða krossins hefur tekið ákvörðun um að selja ekki vörur frá netverslunum eins og Shein og Temu í búðum sínum á Íslandi. Teymisstjóri söfnunarinnar segir gríðarlegt magn af slíkum fötum rata í söfnunargáma og oft séu þau jafnvel ónotuð. Innlent 18.8.2024 19:10
Ellefu ára drengur myrtur á Spáni Lögreglan á Spáni leitar nú manns sem grunaður er um að hafa myrt ellefu ára gamlan dreng með eggvopni fyrr í dag. Drengurinn var úti að leika með vinum sínum þegar maður með hettu réðst á hann snemma í dag. Erlent 18.8.2024 18:34
Kýtingur á stjórnarheimilinu og ofgnótt af hraðtískufötum Dómsmálaráðherra og formaður Vinstri grænna eru ósammála um forgangstöðun í málefnum útlendinga. Í síðustu viku lýsti annar ráðherra sig ósammála formanninum um orkumál. Rætt verður við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.8.2024 18:01
Lýstu yfir þungum áhyggjum af risi öfgahægri afla Fjölmennur flokksráðsfundur VG fór fram í Reykjanesbæ í gær, laugardaginn 17. ágúst. Vel yfir eitt hundrað félagsmenn komu saman og samþykktu við lok fundar 17 ítarlegar ályktanir. Ályktanirnar fjölluðu meðal annars um róttækar breytingar á húsnæðismarkaði, ójöfnuð, Palestínu og stríðið á Gasa, auðlindir, innflytjendur og margt fleira. Innlent 18.8.2024 17:25
Skeytasendingar ráðherra til marks um valdþreytu Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem nokkrir hafa munnhöggvast opinberlega síðustu daga, nota stöðu sína í eigin þágu til að skapa sér sérstöðu í aðdraganda kosninga. Innlent 18.8.2024 16:18