Fréttir
149 150 151 152 153 154 155 156 157 … 334 ›
Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkaði um 1.172 frá því í nóvember í fyrra þar til í lok júnímánaðar, þegar íbúar bæjarins töldu 2.570 manns. Innlent 1.8.2024 10:25
Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Mohammed Deif, yfirmaður hernaðararms Hamas féll í árás Ísraela fyrir tæplega þremur vikum. Þetta staðhæfir Ísraelsher í dag og segir Deif hafa farist í loftárás á húsnæði í útjaðri borgarinnar Khan Younis í suðurhluta Gaza þann 13. júlí. Erlent 1.8.2024 09:20
Byrjar að rigna fyrir norðan en dregur úr vætu fyrir sunnan Spáð er rigningu norðanlands en minnkandi vætu sunnan heiða í dag. Við upphaf verslunarmannahelgar er útlit fyrir rigningu í flestum landshlutum og stífri austan- og norðaustanátt. Veður 1.8.2024 08:56
Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Sautján ára ungmenni hefur verið ákært fyrir morðið á þremur stúlkum í danstíma í bænum Southport í norðvesturhluta Englands. Erlent 1.8.2024 08:30
Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Yfirvöld í Hollandi hafa gefið út viðvörun til fólks með ung börn um að heimsækja ekki skóglendi nærri þorpinu Austerlitz, um það bil 16 kílómetra austur af Utrecht. Erlent 1.8.2024 08:04
Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn „Það má því segja að þau séu að verða þétt tvíeyki, Sigríður og Helgi Magnús,“ var skrifað í Viðskiptablaðið þegar Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson voru skipuð í embætti ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara árið 2011, en þar á undan höfðu þau verið saksóknarar Alþingis í málaferlum á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 1.8.2024 08:01
Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Þrír menn sem eru sakaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að játa aðkomu sína gegn því að verða ekki dæmdir til dauða. Erlent 1.8.2024 07:22
Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaefni Repúblikanaflokksins, fór mikinn á viðburði Samtaka svartra blaðamanna (NABJ) í gær og sagði meðal annars að Kamala Harris hefði aðeins „orðið svört“ fyrir nokkrum árum. Erlent 1.8.2024 06:55
Ók á mann og stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur útköllum í gærkvöldi þar sem slys höfðu orðið á fólki í umferðinni. Þar á meðal var tilkynning um að ekið hefði verið á mann á hlaupahjóli og ekið á brott. Innlent 1.8.2024 06:30
Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Dómsmálaráðuneytið segist ekki hafa gefið út leiðbeiningar, hvorki almennar né sérstakar, varðandi túlkun á 16. grein laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Innlent 1.8.2024 06:23
Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Bílvelta varð við Löngulínu í Sjálandshverfi í Garðabæ í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en áverkar viðkomandi eru ekki taldir alvarlegir. Innlent 31.7.2024 23:44
Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Mótmæli vegna stunguárásarinnar í bænum Southport í Norður-Englandi á mánudag hafa dreift sér út fyrir bæinn. Lögreglan í Lundúnum handtók tugi mótmælenda eftir að óeirðir brutust út við Downingstræti í kvöld. Erlent 31.7.2024 22:57
Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Fráfarandi forseti Íslands segist hafa tekið ígrunaða ákvörðun um að horfa ekki á fyrra undankvöld Eurovision í ár en gert Heru Björk Þórhallsdóttur keppanda Íslands grein fyrir því að hún ætti ekki að þurfa að gjalda fyrir að vera fulltrúi Íslands. Innlent 31.7.2024 22:30
Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkall á ellefta tímanum í kvöld um að bíll hefði hafnað utan vegar á Reykjavíkurvegi. Innlent 31.7.2024 22:29
Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Í dag fór fram síðasti ríkisráðsfundur Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands. Forsætisráðherra segir skilaboð forsetans fráfarandi á fundinum þau að ríkisstjórnin komi til með að spjara sig án hans, lítillát skilaboð sem hann segir endurspegla karakter Guðna vel. Innlent 31.7.2024 21:34
Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Útlit er fyrir nokkuð úrkomusama verslunarmannahelgi, þar á meðal í Vestmannaeyjum. Á Vesturlandi og suðvesturhorni verður ágætis veður að sögn Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings hjá blika.is. Hann vill ekkert gefa upp um það hvar hann verður staddur um helgina. Veður 31.7.2024 21:25
Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum Sérfræðingur í alþjóðamálum segir ólíklegt að dráp Ismail Haniyeh muni leiða til meiriháttar milliríkjaátaka þrátt fyrir að þær muni hafa ýmsar afleiðingar í för með sér. Ástæða þess séu þeir miklu hernaðarlegu yfirburðir sem Ísrael hefur yfir nágrannaríkin. Erlent 31.7.2024 21:00
Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Lögreglan í Vestmannaeyjum er eins klár og hægt er fyrir þjóðhátíð en hún fær þó mikla aðstoð lögreglumanna og fíkniefnahunda af fasta landinu. Sjálfboðaliðar eru líka klárir fyrir þjóðhátíð. Innlent 31.7.2024 20:05
Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands viðraði skoðanir sínar á umdeildum bílakaupum verðandi forseta í viðtali hans síðasta dag í embætti. Hann sagði háttsemi Brimborgar óforskammaða og spurði fréttamann hvort hún myndi kaupa bíl af svoleiðis fólki. Innlent 31.7.2024 19:30
„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar. Erlent 31.7.2024 18:57
Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Embættistíð Guðna Th. Jóhanessonar, sjötta forseta lýðveldisins, lýkur í dag og á morgun tekur Halla Tómasdóttir við lyklavöldum á Bessastöðum. Í kvöldfréttum verður rætt við Guðna um þau átta ár sem hann hefur setið á forsetastóli, í hans síðasta sjónvarpsviðtali sem forseti. Við kynnum okkur einnig dagskrá innsetningarathafnar nýs forseta. Innlent 31.7.2024 18:00
Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna á Selfossi eftir árekstur við Dyrhólaveg á Suðurlandi. Enginn er alvarlega slasaður en allir farþegar voru þó fluttir frá vettvangi til skoðunar. Innlent 31.7.2024 16:49
Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar gerir athugasemdir við frétt Vísir og auglýsingu Ástþórs Magnússonar hjá Islandus Bílum og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Hann telur ýmislegt óljóst og að Ástþór sé ekki að bjóða upp á sambærilegan bíl og þann sem Halla Tómasdóttir fær. Innlent 31.7.2024 16:41
„Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Guðni Th. Jóhannesson segir einstakt að hafa fylgt þjóðinni síðustu átta ár, og segir embættistíð sína hafa gengið ágætlega. Hann segist ekki hafa ætlað að verða forseti, en stjörnurnar hafi raðast upp á tiltekinn hátt og hann hafi staðið frammi fyrir því að geta orðið þjóðhöfðingi. Guðni lætur af embætti forseta Íslands á morgun. Innlent 31.7.2024 16:09
Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist í Japan. Hann var handtekinn við höfnina í Nuuk fyrr í mánuðinum en hann hefur vakið athygli hér á landi fyrir að hafa meðal annars sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. á níunda áratugnum. Erlent 31.7.2024 14:07
Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Von er á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku forseta Íslands þegar Halla Tómasdóttir verður sett í embætti á morgun. Athöfnin verður með nokkuð hefðbundnu sniði, en þó með nokkrum undantekningum. Vegna öryggiskrafna Alþingis komast færri fyrir í þinghúsinu, og því munu sérstakir gestir Höllu fylgjast með úr nýbyggingu þinghússins, Smiðju. Innlent 31.7.2024 12:31
Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Bæjarráð Vestamannaeyja samþykkti í gær tillögu að reglum um styrki til efnilegs íþróttafólks í Vestmannaeyjum vegna landsliðsverkefna á vegum Íslands. Bæjarráð skorar á ríkið og ráðherra málaflokksins að styðja betur við afreksstarf á Íslandi og sameiginleg landslið okkar. Innlent 31.7.2024 12:15
Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Jarðfræðingar við Háskóla Íslands sem stóðu að rannsókn um sigdalinn í Grindavík segja tímabært að fylgja eftir reglum um byggingar við misgengi og sprungur og segja mikilvægt að kortleggja þannig svæði á landsvísu. Innlent 31.7.2024 12:13
Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsinu á Akranesi eftir árekstur fólksbíls og jepplings á þjóðvegi 1 við Melasveit fyrir hádegi. Þjóðvegurinn var lokaður um tíma en unnið er að því að opna hann að fullu aftur. Innlent 31.7.2024 11:59
Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Von er á um þrú hundruð gestum við embættistöku forseta Íslands þegar Halla Tómasdóttir verður sett í embætti á morgun. Athöfnin verður með nokkuð hefðbundnu sniði, en þó með nokkrum undantekningum. Vegna öryggiskrafna Alþingis komast færri fyrir í þinghúsinu. Við kynnum okkur málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 31.7.2024 11:54